Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 63
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Barnaleikritið Þitt eigið leikrit –
Goðsaga, eftir leikarann og rithöf-
undinn Ævar Þór Benediktsson,
verður frumsýnt í Kúlunni í Þjóð-
leikhúsinu í dag kl. 18. Ævar hefur
skrifað nokkrar bækur með því sér-
staka sniði sem nú hefur verið fært á
fjalirnar, að láta lesandann stýra
framvindu sögunnar. Leikhúsgestir
munu ráða hvað gerist næst og nota
til þess sérhönnuð tæki. Möguleik-
arnir eru ótalmargir og því afar ólík-
legt að sama sagan verði sögð tvær
sýningar í röð en söguheimur verks-
ins er norræn goðafræði með öllum
sínum goðum, gyðjum og skaðræð-
isskepnum.
Samstillt átak
Að æfa og læra leikrit með ótal-
mörgum möguleikum í framvindu
sögunnar hlýtur að vera afar snúið
fyrir leikarana og til að átta sig á
umfanginu þá tekur um sex klukku-
stundir að fara yfir allt verkið með
öllum sínum mögulegu beygjum og
snúningum, að sögn leikstjóra þess,
Stefáns Halls Stefánssonar.
En hvernig er hægt að æfa leikrit
með svo snúnu formi? „Með sam-
heldni, í rauninni, þetta er bara sam-
stillt átak allra þessara stórkostlegu
listamanna sem koma að þessari
sýningu,“ svarar Stefán Hallur.
„Í grunninn er þetta dálítið nýtt
leikhúsform sem við erum að takast
á við þannig að við höfum, að ein-
hverju leyti, verið að finna upp hjólið
hvað varðar verkferla. Einföld atriði
eins og útlistun á æfingaboðum eru
aðeins flóknari en gengur og gerist
þegar möguleikarnir eru 1.294 sem
þú ert að kljást við. Og við erum búin
að læra afskaplega margt af þessu
og þetta væri ekki hægt nema með
samstilltu átaki frábærs fólks.“
–Þetta hlýtur að vera mjög mikill
texti og efni fyrir leikarana að læra?
„Að einhverju leyti en það er að-
allega út af möguleikunum, þeir vita
í rauninni aldrei í hvaða ævintýri
þeir munu lenda á hverri sýningu.
Það er stóri óvissuþátturinn, í hvaða
leikriti þau eru,“ segir Stefán Hallur
sposkur.
Kveikir á fleiri perum
Leikstjórinn er spurður að því
hvort verkið reyni á minni leikar-
anna með öðrum hætti en þeir eru
vanir. „Ég myndi halda það, að þetta
kveiki á fleiri perum en maður er
vanur þegar maður er bara með eitt
fyrirfram gefið stykki. Ég held að
þetta kveiki á fleiri skilningarvit-
um,“ svarar hann.
–Hafa leikararnir farið óvart inn
um rangar dyr á æfingum, ef þannig
mætti að orði komast?
„Það á eftir að koma dálítið í ljós
og ég fagna því ef það gerist. Þá er
bara brugðist við því, ég fyrirgef
fólki ýmislegt þegar kemur að því.“
–Þarf þá kannski að grípa til spuna?
„Að einhverju leyti en allir eru á
tánum og 150% að bregðast við
hverju því sem kemur upp á.“
Leikarar í verkinu eru fimm, þau
Sólveig Arnarsdóttir, Lára Jóhanna
Jónsdóttir, Baldur Trausti Hreins-
son, Hilmir Jensson og Snorri Eng-
ilbertsson. Stefán Hallur segir að
auk leikaranna fimm komi 40-50
manns að uppfærslunni sem er aug-
ljóslega tæknilega flókin. „Öll
galdratól leikhússins eru nýtt til
hins ýtrasta og gott betur, til að
skapa þessa ótalmörgu heima sem
við erum að kljást við,“ segir hann.
Verkferlar í þróun
Stefán Hallur hefur áður leikstýrt
barnaleikriti, Litla prinsinum árið
2015 í Þjóðleikhúsinu og er verk
Ævars því annað barnaleikritið sem
hann tekst á við og ætti að höfða til
allra frá átta ára aldri og upp í 108,
eins og Stefán Hallur orðar það.
En hvað hefur reynst honum erf-
iðast við uppfærsluna sem leik-
stjóra?
„Ég átta mig ekki alveg á því hvað
það er,“ svarar hann. „Eftir að æf-
ingaferlinu lýkur þarf að setjast nið-
ur og skrásetja þetta ferli frá a til ö,
sjá hvað við lærðum, hvað við gerð-
um vel og hvar við rákum okkur á.
Þetta eru verkferlar sem maður er
ekki vanur og hefur þurft að þróa.“
Stefán Hallur segir að ef svipuð
leikrit verði sett upp seinna meir,
með mörgum mögulegum leiðum,
verði gott að hafa handbók til að fara
eftir. „En aðaláskorunin er þessi
stóri heimur, hvernig maður útfærir
hann og sem betur fer hef ég frá-
bært fólk í kringum mig sem hjálpar
mér við það. Ég er umsetinn góðu
fólki hérna.“
Fjögur tákn í boði
Stefán Hallur er beðinn um að
lýsa tækinu sem leikhúsgestir munu
nota við valið. „Hvert sæti hefur sína
fjarstýringu með fjórum valmögu-
leikum. Þetta eru ákveðin tákn sem
við notum, ekki tölu- eða bókstafir,
og á ákveðnum stöðum í verkinu eru
áhorfendur spurðir að því hvað þeir
vilji velja, allt frá aðalpersónu verks-
ins yfir í að velja búning eða vopn
eða í hvaða formi senan sem í hönd
fer á að vera leikin, hvort hún eigi að
vera leikin á þýsku eða íslensku. Svo
bara blikka ljósin á fjarstýringunni
og áhorfendur eiga valið,“ segir
hann. Valið fer í gegnum tölvukerfi
og svo fá gestir að vita hvað varð of-
an á og þá í margvíslegu formi, að
sögn leikstjórans, í ýmsum birting-
armyndum.
Alltaf jafnlöng
Stefán Hallur segist gríðarlega
spenntur fyrir því að sjá viðbrögð
leikhúsgesta við verkinu. „Það er oft
talað um að áhorfandinn sé hinn
óþekkti mótleikari en þarna er hann
beinlínis áhrifavaldur,“ segir hann.
„Við vitum ekkert í hvaða leikrit við
erum að fara og sýningin verður allt-
af jafnlöng, sama hvaða leið er val-
in,“ bætir Stefán Hallur við, „það
eru spennandi hlutir að gerast hjá
okkur.“
–Hvað stendur til að sýna verkið
oft?
„Eins oft og áhorfendur krefjast,“
svarar leikstjórinn. „Ég held og
vona að fólk eigi eftir að njóta sýn-
ingarinnar.“
Ævintýraleg óvissuferð
Morgunblaðið/Hari
Óvissuferð Frá æfingu á Þínu eigin leikriti - Goðsögu, sem frumsýnt verður í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu í kvöld.
Einbeittur Stefán Hallur, lengst til hægri, og samstarfsmenn á æfingu.
Þitt eigið leikrit – Goðsaga, eftir Ævar Þór Benediktsson, frumsýnt í Kúlunni Gestir kjósa hvaða
leið skuli farin í frásögninni „Vitum ekkert í hvaða leikrit við erum að fara,“ segir leikstjórinn
Sáttur Ævar Þór Benediktsson, höfundur leikritsins, fylgist með æfingu og
af svipnum að dæma virðist hann hæstánægður með uppfærsluna.
Spennandi Tækið sem gestir nota
til að velja hvaða leið skuli fara hef-
ur að geyma fjögur tákn.
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
KRINGLU OG SMÁRALIND
DÖMUSKÓR
SKECHERS HARTFORD VATNSHELDIR DÖMU
VETRARSKÓR. STÆRÐIR 36-41.
11.997
VERÐ ÁÐUR 19.995
ÚTSALA
40%
AFSLÁTTUR
>> >>
ICQC 2018-20