Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 63
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Barnaleikritið Þitt eigið leikrit – Goðsaga, eftir leikarann og rithöf- undinn Ævar Þór Benediktsson, verður frumsýnt í Kúlunni í Þjóð- leikhúsinu í dag kl. 18. Ævar hefur skrifað nokkrar bækur með því sér- staka sniði sem nú hefur verið fært á fjalirnar, að láta lesandann stýra framvindu sögunnar. Leikhúsgestir munu ráða hvað gerist næst og nota til þess sérhönnuð tæki. Möguleik- arnir eru ótalmargir og því afar ólík- legt að sama sagan verði sögð tvær sýningar í röð en söguheimur verks- ins er norræn goðafræði með öllum sínum goðum, gyðjum og skaðræð- isskepnum. Samstillt átak Að æfa og læra leikrit með ótal- mörgum möguleikum í framvindu sögunnar hlýtur að vera afar snúið fyrir leikarana og til að átta sig á umfanginu þá tekur um sex klukku- stundir að fara yfir allt verkið með öllum sínum mögulegu beygjum og snúningum, að sögn leikstjóra þess, Stefáns Halls Stefánssonar. En hvernig er hægt að æfa leikrit með svo snúnu formi? „Með sam- heldni, í rauninni, þetta er bara sam- stillt átak allra þessara stórkostlegu listamanna sem koma að þessari sýningu,“ svarar Stefán Hallur. „Í grunninn er þetta dálítið nýtt leikhúsform sem við erum að takast á við þannig að við höfum, að ein- hverju leyti, verið að finna upp hjólið hvað varðar verkferla. Einföld atriði eins og útlistun á æfingaboðum eru aðeins flóknari en gengur og gerist þegar möguleikarnir eru 1.294 sem þú ert að kljást við. Og við erum búin að læra afskaplega margt af þessu og þetta væri ekki hægt nema með samstilltu átaki frábærs fólks.“ –Þetta hlýtur að vera mjög mikill texti og efni fyrir leikarana að læra? „Að einhverju leyti en það er að- allega út af möguleikunum, þeir vita í rauninni aldrei í hvaða ævintýri þeir munu lenda á hverri sýningu. Það er stóri óvissuþátturinn, í hvaða leikriti þau eru,“ segir Stefán Hallur sposkur. Kveikir á fleiri perum Leikstjórinn er spurður að því hvort verkið reyni á minni leikar- anna með öðrum hætti en þeir eru vanir. „Ég myndi halda það, að þetta kveiki á fleiri perum en maður er vanur þegar maður er bara með eitt fyrirfram gefið stykki. Ég held að þetta kveiki á fleiri skilningarvit- um,“ svarar hann. –Hafa leikararnir farið óvart inn um rangar dyr á æfingum, ef þannig mætti að orði komast? „Það á eftir að koma dálítið í ljós og ég fagna því ef það gerist. Þá er bara brugðist við því, ég fyrirgef fólki ýmislegt þegar kemur að því.“ –Þarf þá kannski að grípa til spuna? „Að einhverju leyti en allir eru á tánum og 150% að bregðast við hverju því sem kemur upp á.“ Leikarar í verkinu eru fimm, þau Sólveig Arnarsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Baldur Trausti Hreins- son, Hilmir Jensson og Snorri Eng- ilbertsson. Stefán Hallur segir að auk leikaranna fimm komi 40-50 manns að uppfærslunni sem er aug- ljóslega tæknilega flókin. „Öll galdratól leikhússins eru nýtt til hins ýtrasta og gott betur, til að skapa þessa ótalmörgu heima sem við erum að kljást við,“ segir hann. Verkferlar í þróun Stefán Hallur hefur áður leikstýrt barnaleikriti, Litla prinsinum árið 2015 í Þjóðleikhúsinu og er verk Ævars því annað barnaleikritið sem hann tekst á við og ætti að höfða til allra frá átta ára aldri og upp í 108, eins og Stefán Hallur orðar það. En hvað hefur reynst honum erf- iðast við uppfærsluna sem leik- stjóra? „Ég átta mig ekki alveg á því hvað það er,“ svarar hann. „Eftir að æf- ingaferlinu lýkur þarf að setjast nið- ur og skrásetja þetta ferli frá a til ö, sjá hvað við lærðum, hvað við gerð- um vel og hvar við rákum okkur á. Þetta eru verkferlar sem maður er ekki vanur og hefur þurft að þróa.“ Stefán Hallur segir að ef svipuð leikrit verði sett upp seinna meir, með mörgum mögulegum leiðum, verði gott að hafa handbók til að fara eftir. „En aðaláskorunin er þessi stóri heimur, hvernig maður útfærir hann og sem betur fer hef ég frá- bært fólk í kringum mig sem hjálpar mér við það. Ég er umsetinn góðu fólki hérna.“ Fjögur tákn í boði Stefán Hallur er beðinn um að lýsa tækinu sem leikhúsgestir munu nota við valið. „Hvert sæti hefur sína fjarstýringu með fjórum valmögu- leikum. Þetta eru ákveðin tákn sem við notum, ekki tölu- eða bókstafir, og á ákveðnum stöðum í verkinu eru áhorfendur spurðir að því hvað þeir vilji velja, allt frá aðalpersónu verks- ins yfir í að velja búning eða vopn eða í hvaða formi senan sem í hönd fer á að vera leikin, hvort hún eigi að vera leikin á þýsku eða íslensku. Svo bara blikka ljósin á fjarstýringunni og áhorfendur eiga valið,“ segir hann. Valið fer í gegnum tölvukerfi og svo fá gestir að vita hvað varð of- an á og þá í margvíslegu formi, að sögn leikstjórans, í ýmsum birting- armyndum. Alltaf jafnlöng Stefán Hallur segist gríðarlega spenntur fyrir því að sjá viðbrögð leikhúsgesta við verkinu. „Það er oft talað um að áhorfandinn sé hinn óþekkti mótleikari en þarna er hann beinlínis áhrifavaldur,“ segir hann. „Við vitum ekkert í hvaða leikrit við erum að fara og sýningin verður allt- af jafnlöng, sama hvaða leið er val- in,“ bætir Stefán Hallur við, „það eru spennandi hlutir að gerast hjá okkur.“ –Hvað stendur til að sýna verkið oft? „Eins oft og áhorfendur krefjast,“ svarar leikstjórinn. „Ég held og vona að fólk eigi eftir að njóta sýn- ingarinnar.“ Ævintýraleg óvissuferð Morgunblaðið/Hari Óvissuferð Frá æfingu á Þínu eigin leikriti - Goðsögu, sem frumsýnt verður í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Einbeittur Stefán Hallur, lengst til hægri, og samstarfsmenn á æfingu.  Þitt eigið leikrit – Goðsaga, eftir Ævar Þór Benediktsson, frumsýnt í Kúlunni  Gestir kjósa hvaða leið skuli farin í frásögninni  „Vitum ekkert í hvaða leikrit við erum að fara,“ segir leikstjórinn Sáttur Ævar Þór Benediktsson, höfundur leikritsins, fylgist með æfingu og af svipnum að dæma virðist hann hæstánægður með uppfærsluna. Spennandi Tækið sem gestir nota til að velja hvaða leið skuli fara hef- ur að geyma fjögur tákn. MENNING 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 KRINGLU OG SMÁRALIND DÖMUSKÓR SKECHERS HARTFORD VATNSHELDIR DÖMU VETRARSKÓR. STÆRÐIR 36-41. 11.997 VERÐ ÁÐUR 19.995 ÚTSALA 40% AFSLÁTTUR >> >> ICQC 2018-20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.