Morgunblaðið - 31.01.2019, Page 64

Morgunblaðið - 31.01.2019, Page 64
Python um Brian nokkurn sem er fyrir mistök talinn vera Kristur. „Þeir héldu sig við kjánaganginn en voru samt sem áður að taka fyrir trúarbrögð, hvernig fólk kýs frekar að berjast hvert við annað í stað þess að berjast hvert fyrir annað,“ segir Izzard um Monty Python og hina sí- gildu gamanmynd þeirra og ádeilu á trúarbrögð og mannlegt eðli. Öllu gamni fylgir nokkur alvara og segist Izzard nefna í sýningunni að 21. öldin verði mögulega sú síðasta sem mannkynið muni upplifa á jörð- inni. Það sé á góðri leið með að út- rýma sjálfu sér og sú staðreynd sé auðvitað dauðans alvara. Ekki sé þó öll von úti, enn megi bjarga um sjö og hálfum milljarði manna. „Ég held að það verði að takast á næstu 80 ár- um,“ segir Izzard og blaðamaður tekur heilshugar undir það. Guðirnir í Valhöll og á Ólympos –Þú minntist á Monty Python og ég man ekki betur en að John Cleese hafi kallað þig „týnda Pyt- hon-inn“, kannastu við þau ummæli hans? „Já og ég spurði hann út í þetta, hvort hann hefði sagt þetta og hann sagðist hafa gert það. Ég spurði hins vegar ekki að því hvað hann hefði meint með þessu en ég held að hann hafi átt við að ég væri týndur í tíma, ég er 20 árum yngri en þeir eru að meðalaldri. Þannig að það eru 20 ár á milli okkar en ég á grínið þeim að þakka,“ svarar Izzard. –Þeir hafa þá verið þinn helsti innblástur? „Algjörlega. Þeir eru guðirnir í Valhöll og á Ólymposfjalli,“ segir Izzard með tilþrifum. Hann hafi líka þakkað þeim Monty Python-mönn- um fyrir grínferil sinn. „En ég hef sjálfur þróað þennan sögumann sem er nauðsynlegt að hafa í uppistandi. Þú segir fólki að velta þessu eða hinu fyrir sér og flytur svo í fram- haldi grínatriðið,“ útskýrir Izzard. –Þú virðist vera með gríðarlega gott minni og átt greinilega mjög auðvelt með að læra tungumál. Hversu stór hluti af uppistandinu er spuni? „Aðeins um 5% af hverri sýningu. Nýjasta sýningin er enn í þróun og stór hluti hennar er því spuni eða getur verið það en hún er engu að síður ansi vel mótuð. Þannig að þetta eru bara um fimm mínútur og meira að segja Lenny Bruce sagði að aðeins um fimm mínútur af hverri sýningu væru spuni. Ég eima hana, það er mín aðferð og þannig get ég skerpt hana og gert betri og bætt við hana ef mig langar til.“ Lærði sýninguna á spænsku –Þú hefur sagst ætla að flytja sýninguna líka á arabísku og rúss- nesku … „Já, algjörlega, arabísku ætlum við bróðir minn að læra því við fæddumst í Jemen, eigum landinu og borginni Aden þar í landi mikið að þakka og þar á fólk núna um sárt að binda. Hvað rússneskuna varðar þá held ég að Rússar hafi líka átt mjög erfitt um aldir vegna árása úr vestri, einkum frá Napóleoni og Hitler. Halda mætti að Vesturlöndin séu alltaf á móti Rússlandi en mig lang- ar að fara þangað og segja nei, við erum það ekki, ég er hingað kominn til að segja ykkur það og ég er líka búinn að læra tungumálið ykkar.“ –Kanntu þá rússnesku? „Nei, ég ætla að læra hana,“ segir Izzard og er greinilega alvara. –Hvenær þá, í jólafríinu?! „Nei, sjáðu til, ég er núna búinn að læra 60 mínútur af sýningunni á spænsku. Bróðir minn átti þessa hugmynd, ég fór til Madrid og Barcelona og var þar í tvo mánuði. Fyrsta kvöldið sem ég flutti sýn- inguna var hún öll á ensku nema tvær mínútur sem ég var búinn að læra af henni á spænsku. Næstu sýningu flutti ég á ensku en fjórar mínútur af henni á spænsku. Ég bætti svo tveimur mínútum við á hverjum degi þar til ég var búinn að læra alla sýninguna á spænsku, 60 mínútur. Það ætla ég líka að gera í Moskvu, flytja alla sýninguna á ensku nema tvær mínútur á rúss- nesku og svo framvegis,“ svarar Izz- ard og blaðamaður er nær orðlaus yfir þessari aðferð og ótrúlega góðu minni grínistans. –Þetta hlýtur að vera einstök leið til að læra tungumál? „Já, bróður mínum datt hún í hug og sem betur fer tala svo margir ensku að maður getur lært sýn- inguna utan að og bætt þessu svo við.“ Ævintýraleg ævi Izzard vann það ótrúlega afrek að hlaupa 27 maraþonhlaup á jafn- mörgum dögum árið 2016 og safnaði áheitum upp á samtals 1,35 milljónir punda fyrir góðgerðarsamtökin Sport Relief, jafnvirði um 200 millj- óna króna í dag. Og uppistandssýn- ingar hans og ferðalög um allan heim með þær eru líka ákveðið maraþon og má nefna að fyrir fimm árum flutti hann sýninguna Force Majeure í 45 löndum – og líka öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna – á fjórum tungumálum. Blaðamaður nefnir þessar sjálfs- áskoranir við Izzard, að hann virðist hrifinn af því að reyna á mörk sín, andlega og líkamlega, með slíkum gjörningum. „Ég hef haft gott af þeim. Mig dreymdi um að eiga æv- intýralega ævi þegar ég var dreng- ur, að vera sérsveitarmaður í hern- um en mér finnst ég í staðinn hafa verið í borgaralegri sérsveit. Ég hef hugsað út fyrir rammann, kom út úr skápnum sem transmaður fyrir 33 árum, hef hlaupið öll þessi maraþon, flutt sýningar á fjórum tungumálum og verið róttækur miðjumaður,“ segir Izzard og vonast til þess að gjörðir hans og skoðanir hafi haft og muni hafa áhrif til góðs, að hann hafi lagt sitt lóð á vogarskálarnar í bar- áttu gegn hatri, fordómum, aðskiln- aðarstefnu og annars konar illsku okkar mannanna. Eins og Schwarzenegger Izzard var ekki aðeins áberandi sem leikari og grínisti í fyrra heldur einnig sem stjórnmálamaður því hann tók sæti í framkvæmdastjórn Verkamannaflokksins í heimalandi sínu eftir að Christine nokkur Shawcroft lét þar af störfum. Blaða- maður spyr hvort stjórnmálaþátt- taka hans muni koma niður á grín- inu. „Þegar ég verð þingmaður verð ég að hætta bæði að grínast og leika í kvikmyndum líkt og Glenda Jack- son og Arnold Schwarzenegger þurftu að gera,“ segir Izzard sposk- ur. Þó sé gott að hafa dálítið spé í ræðum, það sé ágætt til árása en síðra til uppbygingar. „Ég þarf að komast aftur í Bláa lónið, fá mér drykk og fljóta um,“ segir Izzard þegar hann er spurður að því hvað hann ætli að gera annað á Íslandi en að fara með gamanmál. „Er hægt að fá sér drykk þegar maður er úti í vatninu?“ spyr hann svo og blaðamaður telur það líklegt. Í versta falli geti hann notað frasann sígilda „veistu hver ég er?“ Álíka alvarlegt og Life of Brian  Grínistinn og baráttumaðurinn Eddie Izzard flytur nýjustu uppistandssýningu sína, Wunderbar, í Eldborg 31. mars  Lærði sýninguna á spænsku og arabíska og rússneska eru næst á dagskrá VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Hæ, þetta er Eddie,“ segir kunn- ugleg rödd á hinum enda línunnar og lífgar upp á drungalegt skamm- degið. Blaðamaður tekur Eddie fagnandi, enda sjálfur Eddie Izzard þar á ferð, einn vinsælasti grínisti heims sem snýr aftur til Íslands 31. mars næstkomandi og flytur nýjasta uppistand sitt, Wunderbar. Izzard kom síðast til Íslands árið 2015 og fór þá mikinn í Eldborg, tal- aði tungum og lék á als oddi. Hann hlýtur að hafa kunnað vel við sig í Eldborg því hann kemur aftur fram í þeim sal í mars og aðeins á einni sýningu. Izzard gaf blaðamanni nokkrar mínútur af sínum dýrmæta tíma í loka desember en hann var þá - og er væntanlega enn - á miklu flakki um heiminn með sýninguna. Heyra má á Izzard að hann lætur tímann ekki fara til spillis, hann biður blaða- mann um að láta vaða, nennir ekki neinu kurteisishjali. Er það vel. Allt frá hinu agnarsmáa til hins ógnarstóra –Mér skilst að þú sért á mun per- sónulegri nótum í þessari sýningu en þeim fyrri? „Já, mig langaði til þess að tala um foreldra mína. Pabbi dó á þessu ári [2018, innsk.blm.] og mamma fyrir sléttum 50 árum. Það er svo gríðarlegt bil þarna á milli,“ svarar Izzard en ítrekar að hann verði með alls kyns kjánagang í Eldborg, tali til dæmis um kenningar sínar um al- heiminn, kóngafólk og fleira. Hann segist ætla að kanna allt frá hinu agnarsmáa til hins ógnarstóra. „En ég mun leitast við að verða á per- sónulegri nótum,“ bætir hann við. –Ertu þá á alvarlegri nótum en venjulega? „Nei, ég held að þetta sé álíka al- varlegt og Life of Brian,“ svarar Izz- ard sposkur og á þar við gam- anmynd grínhópsins enska Monty Óviðjafnanlegur Uppistandssýningar Eddie Izzard eru mikil upplifun. 64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 Litina hennar Sæju færð þú í Slippfélaginu GÆÐIN Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið. Votur Volgur Ber Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík, Dalshrauni 11, Hafnarfirði Hafnargötu 54, Reykjanesbæ Gleráreyrum 2, Akureyri Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími: 588 8000 • slippfelagid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.