Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 68
Ljóðaflokkurinn An die ferne Ge-
liebte eftir Ludwig van Beethoven
verður fluttur í Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag kl. 12 ásamt nokkr-
um lögum úr Vetrarferðinni eftir
Franz Schubert. Flytjendur eru
Andri Bjarnason barítón og Aladár
Rácz píanóleikari og eru tónleikarn-
ir hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum
nótum í Fríkirkjunni.
Beethoven og
Schubert í hádeginu
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 31. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Guðjón Valur Sigurðsson verður
orðinn fertugur þegar hann byrjar
að spila með franska meistaralið-
inu París SG næsta haust. Hann var
kynntur til sögunnar hjá félaginu í
gær og bætir þar með enn einu
stórliðinu á listann. Hann á átján
ára ferli sem atvinnumaður hefur
Guðjón spilað með nokkrum af
bestu félagsliðum heims. »s
Fertugur á leið í
enn eitt stórliðið
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Fígúrur í landslagi nefnist sýning
á nýju verki eftir Ragnar Kjart-
ansson sem opnuð verður í dag kl.
17 í galleríinu i8 við Tryggvagötu.
Ragnar varð hlutskarpastur í sam-
keppni um listaverk fyrir nýbygg-
ingu heilbrigðisvísindasviðs Kaup-
mannahafnarháskóla,
Mærsk-turninn, og nefnist verkið
Figures in Landscape,
þ.e. Fígúrur í landslagi,
og er marglaga víd-
eóverk sem listamað-
urinn hefur unnið að
ásamt samstarfs-
fólki síðasta ár.
Það var vígt í
fyrradag í
byggingunni
og sama
verk má sjá
í i8.
Fígúrur í landslagi
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég átti ekki von á því þegar ég væri
hættur á sjónum að ég færi í sjóinn,“
segir Sigurður Friðriksson skipstjóri
eða Diddi Frissa eins og hann er kall-
aður. Hann er rúmlega sjötugur og
alinn upp í Sandgerði.
„Ég hætti til sjós árið 2006 og
flutti frá Sandgerði til Reykjavíkur.
Félagi minn, Ingvar Þórðarson, var
búinn að reyna í langan tíma að fá
mig með sér í sjósund,“ segir Sig-
urður sem barist hefur við liðagigt
frá unglingsaldri og var á leið í
hjartaþræðingu í lok janúar 2012.
„Ég var á því að ég mætti alls ekki
fara í kaldan sjóinn, bæði vegna gigt-
arinnar og taldi það gefa augaleið að
ég gæti ekki farið í sjóinn fyrr en í
fyrsta lagi eftir að búið væri að laga
kransæðastíflu hægra megin við
hjartað,“ segir Sigurður. Hann er
þakklátur Ingvari fyrir að gefast
aldrei upp og hringja í hann daglega
til þess að fá hann í sjósund.
„Þriðja janúar 2012 var fallegt
veður og sjórinn mjög kaldur. Ingvar
hringdi og sagði við mig að þetta
væri dagurinn. Ég vildi bíða fram yf-
ir hjartaþræðingu en hann sagði að
þess þyrfti ekki. Ég ákvað þann dag-
inn að stökkva í sjóinn með honum,“
segir Sigurður sem sér ekki eftir
þeirri ákvörðun. Tæpum fjórum vik-
um seinna var hann mættur í hjarta-
þræðingu til að losa stífluna hægra
megin við hjartað en hún var þar
ekki lengur og engin skýring hefur
fengist á því hvernig hún losnaði.
Sigurð grunar að sjósundið eigi sinn
þátt í því.
Öfgamaður í öllu
„Vegna liðagigtarinnar fór ég
reglulega frá 17 ára ára aldri á spít-
alann til þess að dæla í mig ein-
hverjum efnum. Ég fór svo að
sprauta mig sjálfur annan hvern dag
Um leið og ég fór í sjósundið leið
gigtin úr mér, ég fór að sprauta mig
einu sinni í viku og síðar hálfsmán-
aðarlega. Núna er gigtin skugginn af
því sem hún var,“ segir Sigurður sem
að eigin sögn er mikill öfgamaður og
það sem hann ákveður að gera geri
hann af miklum krafti.
„Nú er Nauthólsvík opin alla daga,
sem er mikil framför. Það skiptir mig
engu máli hvernig veðrið er eða
hvort aðrir fara, ég fer í sjóinn nán-
ast á hverjum degi,“ segir Sigurður
og minnist þess að fyrir mörgum ár-
um hafi birst mynd af einhverjum
sem synti einn í Nauthólsvík og þá
hefðu dætur hans fjórar sagt að
þetta hlyti að vera pabbi þeirra.
Með alls konar greiningar
Sigurður byrjaði ungur til sjós,
menntaði sig síðar sem skipstjóri og
gerði lengi út Guðfinn KE 19.
„Ég byrjaði sem krakki á sjó. Mig
langaði ekkert annað en að fara á sjó-
inn. Ég er með alls konar greiningar
og því lá sjórinn beinast við,“ segir
Sigurður, sem fór í hótelrekstur og
ferðaþjónustugeirann eftir að hann
flutti til Reykjavíkur. Í dag rekur
hann bílaleigu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hress Sigurður Friðriksson fer nánast daglega í sjósund í Nauthólsvík. Sjórinn hefur verið kaldur í vikunni.
Sjötugur Diddi Frissa
eldhress af sjósundinu
Kransæðastíflan hvarf Segir gigtina á undanhaldi
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ÚTSALA
LÝKUR 10. FEBRÚAR
YFIR 2.000 VÖRULIÐIR
á lækkuðu verði
lagersala
50-70%
föstudag - sunnudags
afsláttur
af VÖLDUM sýningareintökum,
útlitsgölluðum húsgögnum
og smávöru