Morgunblaðið - 14.02.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nýr ferðavefur hefur verið opnaður á
mbl.is og mun fjalla um allt sem tengist
útivist og ferðalögum hérlendis og er-
lendis. Umsjónarmaður ferðavefjarins
er Friðrika Hjör-
dís Geirsdóttir en
hún hefur verið
viðriðin fjölmiðla
undanfarinn ára-
tug, bæði í sjón-
varpi, á prenti sem
og í vefmiðlum.
Friðrika segir
að á vefnum muni
birtast viðtöl,
greinar, pistlar og
hollráð sem tengj-
ast útivist og ferðalögum. Einnig hefj-
ist fljótlega átta þátta viðtalsröð sem
nefnist Undarlegt ferðalag þar sem
ferðalangar víða að segja frá ævintýr-
um sínum á óhefðbundna áfangastaði.
,,Það mætti segja að það hefði orðið
sprenging í áhuga Íslendinga á útivist
og ferðalögum sem er mikið fagnaðar-
efni,“ segir Friðrika. „Ferðavefurinn
er hugsaður fyrir alla þá sem hafa
áhuga á þessum málefnum, eru að
sækjast eftir upplýsingum og að sjálf-
sögðu innblæstri fyrir næstu skref.“
Sjálf hefur Friðrika, eða Rikka,
mikla ástríðu fyrir efnistökunum og
segir að vefurinn verði líflegur og víða
komið við. ,,Ég hef verið svo heppin að
hafa fengið tækifæri til að ferðast víða
frá því ég var barn og eitt af því
skemmtilegasta sem ég geri er að vera
úti í náttúrunni með góðu fólki. Það er
einhver kynngikraftur sem umlykur
þetta tvennt og hef ég trú á því að það
skili sér á þessum vef sem stígur sín
fyrstu skref í dag.“
Vefur um ferðalög og útivist á mbl.is
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Frá kr.
99.995
Lissabon
Borgin semoft er kölluð San Francisco Evrópu
25.apríl í 4 nætur
Magnús Heimir Jónasson
Hjörtur J. Guðmundsson
Ómar Friðriksson
Samtök atvinnulífsins (SA) lögðu
fram tilboð á fundi ríkissáttasemj-
ara í gær til lausnar kjaradeilu
samtakanna við VR, Eflingu,
Verkalýðsfélag Akraness og Verka-
lýðsfélag Grindavíkur. „Við munum
fara yfir þetta tilboð og erum að
fara að hitta okkar samninga-
nefnd,“ sagði Ragnar Þór Ingólfs-
son, formaður VR, í gær. „Við tók-
um við þessu tilboði og tjáðum
Samtökum atvinnulífsins það að við
myndum koma með viðbrögð við
þessu og lögðum til fundartíma
næsta föstudag,“ segir Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness.
Viðsemjendurnir eru bundnir
trúnaði um efni tilboðsins en skv.
heimildum Morgunblaðsins innan
verkalýðshreyfingarinnar kom út-
spil SA um launahækkanir stéttar-
félögunum ,,þægilega á óvart“, þó
að það dugi ekki til að mæta kröf-
um þeirra. Líkur á samkomulagi
geti í framhaldinu að miklu leyti
ráðist af því hversu langt ríkis-
stjórnin mun ganga í að létta skött-
um af tekjulægstu hópunum. Þá
mun tilboðið ekki vera háð umdeild-
um hugmyndum um vinnutíma-
breytingar með afnámi neysluhléa
og byggist á að samið verði til
þriggja ára.
Spurður almennt um ganginn í
viðræðunum segir Ragnar að segja
megi að línurnar séu að skýrast.
Hins vegar sé ljóst, eins og legið hafi
talsvert lengi fyrir, að aðkoma
stjórnvalda þurfi að vera umtalsverð
til að leysa deiluna. „Það þarf að fara
að nálgast einhverja niðurstöðu í
þessum viðræðum, bæði hvað varðar
SA og stjórnvöld. Hver sem hún síð-
an verður. Við erum alla vega komin
með tilboð í hendurnar til þess að
taka efnislega afstöðu til og við mun-
um taka stöðuna með okkar samn-
inganefnd í kvöld,“ segir Ragnar.
Kerfisbreytinga krafist
Að sögn Ragnars er boltinn þann-
ig í raun hjá stjórnvöldum. Þar sé
um að ræða kerfisbreytingar sem
hafi mikil áhrif á félagsmenn verka-
lýðsfélaganna til lengri og skemmri
tíma. Þar spili inn í húsnæðismálin,
aðgerðir í verðtryggingar- og vaxta-
málum, aðgerðir varðandi greiðslu
hækkaðs iðgjalds inn á fasteignalán
og til uppsöfnunar í útborgun til
íbúðakaupa og skattkerfisbreyting-
ar. „Þetta er allt leysanlegt en það
þarf raunverulegan vilja stjórnvalda
og viðleitni til þess að koma að þessu
vegna þess að það er svo mikið í
húfi. Ekki bara fyrir okkar fé-
lagsmenn heldur líka fyrir stjórn-
völd,“ segir Ragnar. Hinn valkost-
urinn sé ekki góður. Vísar hann til
þess að samningar opinberra starfs-
manna losni í lok mars og fram í
júní.
„Þá verða stjórnvöld með allan
vinnumarkaðinn í fanginu og verða
með hann í fanginu út kjörtímabilið.
Ég held að ríkisstjórninni hreinlega
verði ekki mikið meira úr verki held-
ur en það ef hún tekur ekki stöðuna
alvarlega og er tilbúin til þess að ná
lengri samningi við vinnumarkaðinn,
bæði hinn opinbera og almenna,“
segir hann enn fremur. Þannig sé til
gríðarlega mikils að vinna fyrir
stjórnvöld og samfélagið að ná góðri
lendingu við verkalýðshreyfinguna
um þriggja ára samning.
Iðnaðarmannafélögin hafa ekki
fengið tilboð frá SA eins og er, að
sögn Kristjáns Þórðar Snæbjarnar-
sonar, formanns Rafiðnarsamtaka
Íslands. Boðaðir eru fundir SA með
iðnaðarmönnum og SGS í dag.
Tilboð SA um lausn til skoðunar
VR, Efling og Verkalýðsfélög Akraness og Grindavíkur svara tilboðinu fyrir vikulok Útspil SA
kom félögunum „þægilega á óvart“ Aðkoma stjórnvalda þarf að vera umtalsverð til að leysa deiluna
Morgunblaðið/Hari
Kjaradeilur Verkalýðsfélögin og SA funduðu hjá ríkissáttasemjara í gær þar sem tilboð um lausn var lagt fram.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Skráð atvinnuleysi í janúar var 3,0%
og jókst um 0,3 prósentustig frá des-
embermánuði. Að meðaltali fjölgaði
um 1.182 á at-
vinnuleysisskrá í
janúar 2019 frá
janúar 2018, en þá
mældist skráð at-
vinnuleysi 2,4%.
Þetta kemur fram
í vinnumarkaðs-
greiningu Vinnu-
málastofnunar. Þá
er gert ráð fyrir
að skráð atvinnu-
leysi muni aukast lítils háttar í febr-
úar og gæti náð allt að 3,2%. „Það hef-
ur almennt verið að hægjast á
hagkerfinu. Það er stöðnun í ferða-
þjónustu og árstíðarsveifla að hluta til
í byggingariðnaði og ferðaþjónustu
sem hefur áhrif,“ segir Karl Sigurðs-
son, sviðsstjóri hjá Vinnumálastofn-
un. Hann segir að uppsagnir tengdar
ferðaþjónustu, einkum á Suðurnesj-
um, og samdráttur hjá WOW air geti
verið tímabundnar skýringar á aukn-
ingunni.
35% erlendir ríkisborgarar
Árstíðarsveiflur í byggingariðnaði
hafa m.a. valdið því að atvinnuleysi út-
lendinga á Íslandi er afar mikið núna.
Alls voru 2.080 erlendir ríkisborgarar
án atvinnu í lok janúar eða um 35%
allra atvinnulausra. Í janúar 2018 var
hlutfall erlendra ríkisborgara 28%
allra atvinnulausra. Þessi fjöldi sam-
svarar um 5,9% atvinnuleysi meðal
erlendra ríkisborgara. Flestir erlend-
ir ríkisborgarar á atvinnuleysisskrá
komu frá Póllandi eða 1.153, sem er
um 55% allra erlendra ríkisborgara á
atvinnuleysisskrá. „Við erum enn þá
að sjá fram á meiri flutning útlend-
inga til landsins heldur en starfssköp-
un gefur tilefni til. Menn hafa verið að
koma hingað í ýmis verkefni í bygg-
ingariðnaði sem hafa klárast og þá
koma þeir, tímabundið í það minnsta,
á atvinnuleysisskrá. Þeir sem eru að
byrja ný verkefni flytja kannski inn
nýja útlendinga. Þannig að það er
ójafnvægi þar,“ segir Karl.
Meira atvinnuleysi en í fyrra
Karl segir að ekki sé búist við stór-
kostlegri aukningu atvinnuleysis en
gert er ráð fyrir að atvinnuleysi árið
2019 verði meira en árið 2018. „Árið
er að byrja í 3% núna en byrjaði í 2,4%
í fyrra. Þannig að við gerum bara ráð
fyrir að það verði undirliggjandi
meira atvinnuleysi í flestum mánuð-
um ársins. Það kemur samt sem áður
til með að fara að lækka í mars og apr-
íl samkvæmt þessari hefðbundnu árs-
tíðarsveiflu. En það er ljóst að það
verður meira en í fyrra.“
Atvinnuleysi á Íslandi eykst
Karl Sigurðsson
Skráð atvinnuleysi 3% í janúar Spá aukningu í febrúar
Stöðnun í ferðaþjónustu og sveiflur í byggingariðnaði
Ákveðið hefur verið að veiðiskipin
Ásgrímur Halldórsson frá Horna-
firði og grænlenska skipið Polar
Amaroq haldi í dag til loðnuleitar
ásamt rannsóknaskipinu Árna
Friðrikssyni. Síðastnefnda skipið
fór til leitar á mánudag og hefur
verið fyrir norðaustan land.
Leiðangur skipanna þriggja
hefst fyrir suðaustan land í
grennd við Hornafjörð og verður
siglt á móti göngu loðnunnar norð-
ur með Austfjörðum og síðan vest-
ur með Norðurlandi. Vonast er til
að á þennan hátt takist að ná utan
um stærð veiðistofns loðnu. Enn
vantar nokkuð upp á mælingu til
að upphafskvóti verði gefinn út.
aij@mbl.is
Þrjú skip
leita loðnu