Morgunblaðið - 14.02.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 14.02.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 212.200 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir Í þessari gönguferð verður boðið upp á fjölbreyttar gönguleiðir sem liggja allar um stórkostlegt landslag, fjöll og dali. Gist verður í Kaprun sem er lítill, fallegur bær við vatnið Zell am See, umlukinn austurrísku Ölpunum og rómaður fyrir einstaka náttúrufegurð. Hér gefst einstakt tækifæri til þess að anda að sér fersku fjallalofti, njóta útiveru í tilkomumiklu landslagi og hreyfa sig í skemmtilegum félagsskap. 2. - 9. júní Trítlað við Zell amSee BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Bankaráð Landsbankans hefur árum saman bent á að laun bankastjóra bankans þyrftu að vera samkeppnis- hæf. Misbrestur hafi orðið á þessu meðan launin heyrðu undir kjararáð á árunum 2009 til 2017. Umræða hefur skapast um launa- hækkanir til handa Lilju Björk Ein- arsdóttur, bankastjóra Landsbank- ans, eftir að hún hætti að heyra undir kjararáð sumarið 2017. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum voru laun hennar 2.089.093 krónur, í samræmi við ákvörðun kjara- ráðs, eftir að ráðningarsamn- ingur hennar tók gildi 15. mars 2017. Til upprifj- unar hætti Stein- þór Pálsson sem bankastjóri haustið 2016 og var Hreiðar Bjarnason, fram- kvæmdastjóri fjármála, starfandi bankastjóri frá 30. nóvember 2016 til 15. mars 2017 er greint var frá ráðn- ingu Lilju. Hækkuðu í 3,25 milljónir Þær upplýsingar fengust frá bank- anum að 1. júlí 2017 hafi launin hækk- að í sléttar 3,25 milljónir. Spurt var hver hafði frumkvæði að þeirri hækkun og var svarið að í ráðn- ingarsamningi hafi verið ákvæði um hækkun launa þegar ákvörðunarvald færðist frá kjararáði til bankaráðs Landsbankans. Það hafi þannig legið fyrir þegar ráðið var í stöðuna að ákvörðun um laun bankastjóra yrði færð frá kjararáði til bankaráðs. Jafnframt var spurt hver hafði frumkvæði að því að laun Lilju Bjark- ar hækkuðu 1. apríl í fyrra þannig að mánaðarlaun hækkuðu, að bifreiða- hlunnindum meðtöldum, úr 3,25 millj- ónum í 3,8 milljónir. Svar bankans var að í starfskjara- stefnu Landsbankans sé ákvæði um að laun skuli vera samkeppnishæf en ekki leiðandi. Í ráðningarsamningi bankastjóra sé ákvæði um að laun skulu sæta árlegri endurskoðun og skyldi fyrsta endurskoðun miða við 1. apríl 2018. Þá var spurt hvort laun bankastjórans muni hækka frekar í ár, m.a. vegna kjarasamninga, og var svarið að svo væri ekki. Hér fyrir ofan má sjá launaþróun hjá bankastjóra og framkvæmda- stjórum Landsbankans á síðustu ár- um. Tölurnar eru sóttar í ársskýrslur og eru mánaðarlaun áætluð út frá árslaunum. Skal ítrekað að þetta eru áætluð mánaðarlaun. Bendir samantektin til að saman- lagt hafi bankastjóri og sex fram- kvæmdastjórar bankans haft um 290 milljónir í árslaun í fyrra. Meðallaun þessara sjö voru rúmar 40 milljónir. Með hærri laun en bankastjóri Meðal þess sem taflan sýnir er að meðallaun framkvæmdastjóra bank- ans voru hærri á árinu 2016 en laun bankastjórans. Komu starfsmenn því á framfæri í samtölum við Morgun- blaðið á sínum tíma. Þá kom til um- ræðu innan bankans að þegar Stein- þór var bankastjóri hafi vel á annað hundrað starfsmenn fjármálafyrir- tækja haft hærri laun en hann. Hefur verið áætlað að þeir starfsmenn hafi þá verið um 150. Til samanburðar bendir könnun Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja síðastliðið haust til að á fjórða hundrað svarenda hafi þá haft yfir 1,2 milljónir í heildarlaun. Sem áður segir hefur bankaráð Landsbankans litið svo á að breyta þurfi kjörum bankastjóra Lands- bankans og færa þau nær þeim kjör- um sem starfsmannastefnan kveður á um. Meðal annars sagði í skýrslu stjórnar með ársreikningi bankans 2012 að það væri „almennt áhyggju- efni að bankinn, hlutafélag sem starf- ar á kvikum samkeppnismarkaði, geti ekki samið um laun við æðsta stjórn- anda. Laun og kjör bankastjóra eru ákveðin af kjararáði sem telur sig bundið af því að ákvarða laun fyrir dagvinnu ekki hærri en föst laun for- sætisráðherra. Bankaráð taldi það fyrirkomulag tímabundið og gerði ráð fyrir að því lyki um áramót 2010- 2011.“ Samþykkt af hluthöfum Þá sagði í tilkynningu frá banka- ráði á mánudaginn var að launahækk- anir til handa bankastjóranum, 1. júlí 2017 og 1. apríl 2018, væru í samræmi við starfskjarastefnu bankans sem hluthafar hafi samþykkt. Bankinn leggi áherslu á að starfskjör stjórn- enda og annarra starfsmanna séu samkeppnishæf en þó ekki leiðandi. Til upprifjunar var lögum um kjararáð breytt sumarið 2009 og kveðið á um að ráðið skyldi „gæta þess að föst laun fyrir dagvinnu, ann- arra en forseta Íslands, verði ekki hærri en föst laun forsætisráðherra“, sem var þá Jóhanna Sigurðardóttir. Varð það fyrirkomulag tilefni deilna. Má þar nefna launadeilu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Hækkun hluti af ráðningarsamningi  Í ráðningarsamningi bankastjóra Landsbankans var ákvæði um að laun yrðu endurskoðuð sama ár  Ákvörðunarvald færðist frá kjararáði til bankaráðs  Starfsmenn voru ósáttir við laun bankastjóra Laun stjórnenda Landsbankans 2015-2018 Laun bankastjóra, milljónir kr. 2015 2016 2017 2018 Árslaun, bifreiðahlunnindi meðtalin 19 24,5 27 44 Mótframlag í lífeyrissjóð 5,8 7,4 5,2 8,3 Samtals 24,8 31,9 32,2 52,3 Mánaðarlaun 1,6 2,0 2,8 3,7 Heildarlaun á mánuði 2,1 2,7 3,4 4,4 Laun framkvæmdastjóra, milljónir kr. 2015 2016 2017 2018 Fjöldi framkvæmdastjóra 6+1 5 5+1 6 Árslaun, bifreiðahlunnindi meðtalin 190,9 153,8 174,3 199,6 Mótframlag í lífeyrissjóð 35,5 28,8 33,4 38,2 Samtals 226,4 182,6 207,7 237,8 Mánaðarlaun 2,3 2,6 2,6 2,8 Heildarlaun á mánuði**** 2,7 3,0 2,9 3,3 *Gerður var starfslokasamningur við einn framkvæmdastjóra á árinu 2015. Allur kostnaður vegna starfslokanna var færður til gjalda í rekstrarreikningi fyrir árið 2015. **Gert var samkomulag um starfslok við einn fram- kvæmdastjóra á árinu 2017. Allur kostnaður vegna starfslokanna var færður til gjalda í rekstrarreikningi fyrir árið 2017. ***Skv. ársreikningi. ****Útreikningar eru blaðsins. Heimild: Ársskýrslur Landsbankans 2015-2018. ** *** * Launaþróun starfsmanna fjármálafyrirtækja Þróun heildarlauna 2004-2018 samkvæmt könnun á vef SSF 1.000 750 500 250 0 mars-apríl 2004 mars 2007 maí 2008 október 2010 febrúar 2013 febrúar 2016 október 2018 299 433 588 398 473 692 838 Launaþróun 2004-2018 Meðalheildarlaun fyrir skatt, þús. kr. Heildarlaun fyrir skatt í okt. 2018 Lægri en 500 þús. kr. 500 til 700 þús. kr. 700 til 900 þús. kr. 900 þús. til 1,2 millj. kr. 1,2 millj. kr. eða hærri Heildarlaun fyrir skatt í október 2018 Heimild: Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF), kjarakönnun, október 2018. Gallup. 9% 31% 25% 22% 13% Meðalheildarlaun 2004-2018, þús. kr. Lilja Björk Einarsdóttir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nýleg könnun bendir til að heildarlaun bankastjóra Landsbankans séu ríflega fimmföld meðalheildarlaun hjá fjár- málafyrirtækjum. Friðbert Traustason, fram- kvæmdastjóri Sam- taka starfsmanna fjármálafyrirtækja, SSF, segir að 2.800 félagsmenn hafi svarað síðustu launakönnun. Það er 74% þátttaka. Spurt var um greidd heildarlaun fyrir skatt 1. október sl. Sérfræðingar á hærri launum Friðbert segir fjölgun sérfræðinga eiga þátt í hækkandi launum. Hækkunin milli ára 2017 og 2018 hafi verið um 6%. Þar af séu 5% sam- kvæmt kjarasamningi. „Áður fyrr var kerfið meira niður- neglt. Starfsfólk fjármálafyrirtækja var fastara í launaflokkum. Með auknu frelsi í fjármálaþjónustu um aldamótin fór sérfræðingum að fjölga. Um leið varð meira um fastlaunasamninga. Innan við 30% okkar félagsmanna í dag taka laun beint eftir launatöflum. Hinir eru meira og minna á fastlauna- samningum. Þess vegna hófum við formlegar launakannanir árið 1999. Við höfum reynt að gera þær á tveggja ára fresti,“ segir Friðbert. Hann út- skýrir svo aðspurður að starfsmenn á fastlaunasamningum fái allar kjara- samningsbundnar launahækkanir. En almennt fái þeir sem eru á fastlauna- samningi ekki greidda unna yfirvinnu. Samkvæmt síðustu könnun SSF voru heildarlaun starfsmanna fjár- málafyrirtækja 838 þúsund í október síðastliðnum, borið saman við 692 þús- und í febrúar 2016 (sjá töflu fyrir ofan). Það er 21% hækkun. Heildarlaun bankastjóra Landsbankans í fyrra, 4,4 milljónir, voru um fimmfalt hærri. Fækkun útibúa Friðbert segir breytta samsetningu á starfsmönnum fyrirtækjanna eiga mikinn þátt í hækkandi meðallaunum. Bankaútibúin hafi flest verið um 170 en séu nú um 80. Með því hafi gjald- kerum og starfsfólki í afgreiðslu fækk- að. Samtímis hafi sérfræðingum hjá fjármálafyrirtækjum hlutfallslega fjölgað. Nútímabankaviðskipti kalli á meiri sérfræðiþekkingu en áður fyrr. Til dæmis starfi nú 600-700 manns við upplýsingatækni hjá bönkunum, Reiknistofu bankanna og öðrum fjár- málafyrirtækjum. Þar af séu um 500 háskólamenntaðir tölvunarfræðingar, stærðfræðingar, verkfræðingar og aðrir með álíka menntun. Þá séu fjöl- mennar deildir í áhættustýringu, lög- fræðiþjónustu, hjá hagdeildum, við verðbréfaviðskipti, lífeyrisþjónustu, gjaldeyrisviðskipti og svo framvegis. Slík störf krefjist mikillar menntunar. „Þeir sem hafa lægri launin hafa verið að missa störfin en þeir sem halda störfum og hafa verið ráðnir í sérfræðistörfin eru á hærri launum.“ Bankastjóri með fimmföld meðallaun fjármálafólks  Meðallaun félagsmanna SSF voru 838 þúsund í haust Friðbert Traustason Morgunblaðið/Golli Fjármál Laun í íslenskum bönkum hafa farið hækkandi á síðustu árum. Samkvæmt ársskýrslu Arion banka fyrir 2018 var Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri með 67,5 milljónir í árslaun og 7,2 milljónir í árangurstengdar greiðslur. Samanlagt voru þetta 74,7 milljónir króna, eða 6,23 milljónir króna á mánuði. Til samanburðar var hann með 62 milljónir í laun 2017 og 9,2 milljónir í árangurstengdar greiðslur, alls 71,2 milljónir. Hækkuðu heildarlaun því um 4,9% milli ára 2017 og 2018. Skv. ársskýrslu Íslandsbanka 2018 hækkuðu laun Birnu Ein- arsdóttur bankastjóra úr 58 milljónum 2017 í 63,5 millj. 2018, eða um 9,5%. Við bættist mótframlag í lífeyrissjóð. Hækka líka HINIR BANKARNIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.