Morgunblaðið - 14.02.2019, Qupperneq 11
kost Vísis ehf. nú í haust. Skipið er í
grunninn um 40 ára gamalt og bar
áður nöfnin Arney KE og Skarðsvík
SH. Því var lagt fyrir um áratug en
komst svo í eigu Vísis fyrir nokkrum
árum. Var á síðasta ári tekið til kost-
anna í skipasmíðastöð í Póllandi, en
þar var skipið lengt og íbúðir, vélar,
vinnsludekk og brú endurnýjuð. Frá
Póllandi komið skipið síðasta sumar.
Í framhaldinu var nýrri og fullkom-
inni vinnslulínu komið fyrir í skipinu
hjá 3X-Stál á Ísafirði og meðan á því
stóð var skipið um nokkurn tíma í
höfn fyrir vestan.
„Ég var síðast á Jóhönnu Gísla-
dóttur en var svo óvænt munstaður
á Sighvat í haust þegar kom að því
að hefja útgerð. Báturinn hefur í alla
staði reynst vel og fyrir skipstjóra er
gaman að vera með svona grip í
höndunum. Eiginlega forréttindi.
Vinnslulínan um borð er afar full-
komin; aflinn er veginn, raðast í kör
eftir stærðum og hver haus er tal-
inn. Í því felst mikill vinnusparn-
aður. Í landi sjá svo verkstjórar og
sölumenn nákvæmlega hver staðan
er og geta hagað sínum störfum
samkvæmt því,“ segir Ólafur sem
hefur verið á Vísisbátum um árabil.
„Þetta er hörkufínt skip sem við
erum að ná sífellt betri tökum á. Það
eina sem mér finnst vanta er andvel-
titankur sem reyndar er ætlunin að
setja hér um borð á næstunni. Slíkt
stykki gerir skipið mun stöðugra svo
allur veltingur ætti að verða úr sög-
unni,“ segir Óli Björn sem er afleys-
ingaskipstjóri á Sighvati, jafnan tvo
túra í senn á móti fjórum sem Ólafur
rær.
Aflabátur Útgerðin á hinum nýja Sighvati GK hófst í október í fyrra og hef-
ur gengið ljómandi vel í alla staði. Hér hvílir hann fallegur við höfnina.
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Ný sending
frá nanso
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG PÍPARA?
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Nýjar
vörur
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
10%
AFSLÁTTUR
til 22. febrúar
Best4me Skinny buxur
ÚTSÖLULOK
60-80%
afsláttur
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Fimmtudagur 10-18
Föstudagur 10-18
Laugardagur 10-16
Sunnudagur 12-17
Síðustu dagar!
Smart föt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Öflug og framsækin
fyrirtækjaráðgjöf
Við önnumst
meðal annars:
• Verðmat fyrirtækja og gerð fjárfestakynninga
• Kaup, sölu og sameiningu á fyrirtækjum
• Greiningu á fjárhag fyrirtækja
• Gerð viðskiptaáætlana
• Fjárhagslega endurskipulagningu
• Arðsemis- og áhættugreiningar
Ráðgjafar / eigendur
Haukur Þór Hauksson, Rekstrarhagfræðingur, MBA
Gsm. 8939855
Thomas Möller, Hagverkfræðingur, MBA
Gsm. 8939370
Góð aflabrögð eru engin nýmæli fyrir Ólafi Óskarssyni, sem hefur
verið til sjós í áratugi. Í október 2016 var hann skipstjóri á Jóhönnu
Gísladóttur GK og fiskaði þá 710 tonn. Enginn línubátur á Íslandi
hefur nokkru sinni komið með meiri afla að landi í einu mánuði. Ein
löndunin var 153,9 tonn, segir á mbl.is
„Þarna gátum við beitt okkur eins og við vildum, því sjómanna-
verkfall var yfirvofandi og skall á rétt síðar. Við vorum á þessum
tíma fyrir norðan, þar sem allt var vaðandi í þorski. Og ef ekki væri
kvótinn væri sjálfsagt hægt að nálgast þetta met aftur núna. Þar
kemur til að hér við sunnan- og vestanvert landið er mikið af fiski
núna og við á nýjum bát sem er bæði lipur og öflugur,“ segir Ólafur
Óskarsson.
Á Íslandsmet
VANUR GÓÐUM AFLA