Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 VIÐTAL Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Togarinn Þorkell máni RE 205, lagði af stað með 32 skipverja til karfaveiða á Nýfundnalandsmið 29. janúar 1959. Frá upphafi ferðar til loka hennar fóru skipverjar á Þorkeli mána ekki varhluta af fréttum um skipskaða og þurftu sjálfir að berjast fyrir lífi sínu með því að losa allt sem hægt var að losa af togaranum og berja klaka af honum í nær þrjá sólarhringa. Einar Jónsson var 18 ára háseti í öðrum túr á Þorkeli mána ferðina örlagaríku. Ragnar Leví Jónsson var 18 ára há- seti í þriðja túr og Þórður Guðlaugs- son var 25 ára, 1. vélstjóri sem verið hafði til sjós með hléum í 11 ár. Fyrr- verandi skipsfélaga rekur ekki minni til að hafa hist allir þrír saman í 60 ár, fyrr en þeir settust niður með blaða- manni í Hádegismóum og rifjuðu upp ferðina. Þeir tóku allir þátt í því að brenna af fjórar, tveggja tonna davíð- ur í skut Þorkels Mána. Þórður stjórnaði verkinu og allir eru þeir sammála um að hefðu þeir ekki með harðfylgi náð að skera niður davíð- urnar og varpa þeim fyrir borð hefði enginn lifað veiðiferðina af. Áður hafði björgunarbátunum verið varpað fyrir borð en þeir voru orðnir eitt klakastykki og héngu þannig í davíð- unum. Að sögn félaganna var sigling á Nýfundnalandsmið í kringum fjórir til fimm sólarhringar. Það fór eftir veðri og vindum hversu löng ferðin var en túrinn var kringum 18 daga. Aldrei lent í öðru eins „Á leiðinni á miðin var veðrið strax orðið leiðinlegt. Þegar við vorum við Hvarf úti fyrir Grænlandi heyrðum við neyðarkall frá Hans Hedtoft, far- þegaskipi sem sigldi frá Grænlandi með 40 manna áhöfn og 55 farþega innanborðs. Það voru önnur skip nær sem fóru til leitar en skipið sökk og engin þeirra 95 sem um borð voru komust lífs af,“ segir Einar sem við- urkennir að erfitt hafi verið að vita af farþegaskipinu í nauðum. Þorkell máni var fulllestaður skömmu eftir komuna á miðin. Þórð- ur segir að hann hafi aldrei á langri ævi lent í öðru eins og veðrinu sem hófst seinnipart laugardagsins 7. febrúar 1959. „Það var vitað að það væri djúp lægð á leiðinni en það grunaði engan að veðurhamurinn og sjólagið yrði slíkt sem það varð án þess að dúra svo nokkru næmi í 72 tíma. Það var 10 til 12 stiga frost og vindur upp í 33 metra á sekúndu. Sjórinn var mínus þrjár gráður og lítið saltmagn í hon- um vegna Labradorstraumsins sem kom norðan úr hafi og gerði það að verkum að ísingin varð meiri, “ segir Þórður sem áætlar að þegar skipið var í botni öldudals hafi hæð öldunnar verið um 20 metra yfir skipinu. Þórð- ur segir að fjótlega hafi klaki farið að hlaðast á skipið og hann hafi strax gert sér grein fyrir því hversu hættu- legt ástandið var. Einar og Ragnar höfðu hins vegar ekki miklar áhyggj- ur og héldu að þetta væri alvanalegt til sjós. Það rifjast upp fyrir Þórði hversu hissa hann varð þegar þeir fé- lagarnir spurðu hann hvort þetta væri ekki allt saman eðlilegt. „Veðrið skall skyndilega á og skip- ið sem var fulllestað fylltist fljótt af sjó þannig að við áttum engan mögu- leika að ganga frá trollinu. Sex tíma vaktir voru gengnar um borð í Þor- keli mána en þegar leið að miðnætti voru skipverjar ræstir til þess að berja klaka af togaranum sem safn- ast hafði hratt á hann. Þorkell máni var farinn að hallast á bakborða (vinstri hlið) og þyngslin vegna ísing- ar orðin mikil,“ segir Einar sem ekki varð hræddur þrátt fyrir alvarlegt ástand á þeim tímapunkti. Hann og Ragnar segja að forysta skipstjórans og hugvit og stjórnun Þórðar þegar davíðurnar voru fjarlægðar hafi orðið til þess að þeir komust heilir heim. Hörkumannskapur um borð Þórður bendir á að um borð hafi verið hörkumannskapur og duglegir karlar sem unnu sleitulaust án hvíld- ar í þrjá sólarhinga. Þrekraunin sem skipverjar þreyttu hafi verið það sem skilaði skipi og skipshöfn í heimahöfn. Allir þrír eru sammála um að það sé kraftaverk að allir skyldu bjargast og eru þakklátir fyrir að hafa lifað hrakningarnar af. Þeir segja að nokkrir skipverjar hafi fengið kal á fingur og í andlit og Sigurður Kol- beinsson, 1. stýrimaður, hafi slasast á baki þegar brot gekk yfir bátinn. „Veðrið var svo brjálað að ekkert var hægt að gera annað en að draga Sigurð í skjól og við gátum lítið sinnt honum næstu sólarhringana,“ segir Einar og Þórður skýtur inn í að hann muni ekki hvort ópíum hafi verið til um borð til að lina þjáningar Sig- Sterkur Togarinn Þorkell máni RE 205 komst í hann krappan á Nýfundalandsmiðum 1959. Öflug díselvél, hugvit og þrekvirki áhafnarinnar komu skipi og áhöfn heilum heim að mati skipverja. Sjóferðin sem aldrei gleymist  Þrekvirki skipverjanna á Þorkeli mána  Kraftaverk og samstaða skiluðu áhöfninni heim  Börðu klaka af skipinu í ofsaveðri í þrjá sólarhringa  Brenndu davíðurnar af togaranum Morgunblaðið/Árni Sæberg Þrekvirki 60 árum eftir hrakningarnar í ofsaveðrinu hittust skipverjar af Þorkeli mána, Þórður Guðlaugsson, Einar Jónsson og Ragnar Leví Jónsson. 60 ár frá ofsaveðrinu á Nýfundnalandsmiðum GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Við vitum hvað þín eign kostar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.