Morgunblaðið - 14.02.2019, Side 34
Á VETTVANGI
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Vinnum LA!“ voru hvatningarorðin
á spjöldum sem veifað var og sungin
voru á áhorfendapöllunum á leik
gömlu erkifjendanna, Boston Celtics
og Los Angeles Lakers í NBA-
körfuboltadeildinni í TD Garden í
Boston. Þetta eru slagorðin sem not-
uð hafa verið í áratugi þegar íþrótta-
liðin í Boston hafa tekið á móti liðum
frá borg englanna. Að þessu sinni
var endurbætt útgáfa af slagorðinu
notuð, „Vinnum LA – aftur“ og var
með því væntanlega verið að vísa til
sigurs New England Patriots á Los
Angeles Rams í leiknum um Of-
urskálina í NFL-deild ameríska fót-
boltans nokkrum dögum fyrr.
Svo vildi til að lið frá þessum
tveimur borgum á austur- og vestur-
strönd Bandaríkjanna mættust strax
í kjölfar Ofurskálarinnar. Boston-
búar riðu ekki feitum hesti frá þeim
viðureignum. Celtics tapaði báðum
sínum leikjum, gegn Lakers og Los
Angeles Clippers, þótt liðið hafi verið
mun sterkara en vestanliðin í vetur,
en Boston Bruins bjargaði helginni
með því að sigra Los Angeles Kings í
NHL-íshokkídeildinni.
Allir leikirnir voru skemmtilegir
og tveir þeirra enduðu á hádrama-
tískan hátt. Lakers vann með flautu-
körfu og Bruins með gullmarki í
framlengingu.
„Garðurinn“ þétt setinn
Viðureignir gömlu erkifjendanna,
Celtics og Lakers, eru oftar en ekki
sögulegar. „Garðurinn“ var fullur,
með hátt í 20 þúsund gesti í sætum,
og mikil stemning. Þótt grænu Bost-
on-treyjurnar og -húfurnar væru
mest áberandi voru einnig margir
áhorfendur í gulum eða fjólubláum
treyjum Hollývúdd-liðsins enda eru
vinsældir þessa gamla stórveldis
ekki bundnar við Los Angeles.
Margir mættu meira en klukku-
tíma fyrir leik til að fylgjast með
upphitun og jafnvel ná sér í stöðu við
göngin inn á leikvanginn til að reyna
að fá að heilsa stjörnunum eða fá
áritun á treyju.
Margt var gert til að hita áhorf-
endur upp. Sýndar voru nærmyndir
af grænklæddum áhorfendum í ýms-
um stellingum og hvatningar-
myndbönd frá gömlum hetjum og
þekktum einstaklingum. Svo var
stöðugur straumur á veitingastaðina.
Enginn var maður með mönnum
nema fara að minnsta kosti eina ferð
til að sækja fullan bakka af djúp-
steiktum kjúklingi og frönskum eða
pylsu og diet kók eða bjór.
Sigursælustu liðin
Boston Celtics og Los Angeles La-
kers eru sigursælustu lið amerísku
körfuboltadeildarinnar, NBA. Celt-
ics hefur unnið 17 sinnum og Lakers
16 sinnum og hafa bæði tæplega 60%
vinningshlutfall frá upphafi. Celtics
hefur ekki aðeins vinninginn í fjölda
meistaratitla heldur einnig betra sig-
urhlutfall í innbyrðis viðureignum.
Liðin voru með mikla yfirburði í
NBA-deildinni á sjöunda og níunda
áratug síðustu aldar. Margir af
þekktustu körfuknattleiksmönnum
heims léku með þeim á þessum ár-
um. Nægir að nefna Larry Bird hjá
Boston og Magic Johnson hjá Lak-
ers.
Nokkuð er umliðið frá því þessi
sögufrægu lið urðu „heimsmeistar-
ar“, eins og Kaninn segir. Boston
sigraði síðast árið 2008 og Lakers
2010. Bæði liðin eru í uppbyggingar-
ferli eftir mörg mögur ár. Lakers
virtist ná sér í góða stöðu með því að
kaupa besta körfuknattleiksmann
heims um þessar mundir, LeBron
James, fyrir þetta tímabil. Flestir
meðspilarar hans eru hins vegar
ungir að árum, vissulega efnilegir
eða jafnvel góðir. Það hafði mikil
áhrif á leik ungu mannanna þegar
sögusagnir birtust um að Lakers
væri tilbúið að láta stóran hluta liðs-
ins fara til annars liðs í skiptum fyrir
stórstjörnuna Anthony Davis. Ljóst
varð klukkan þrjú á leikdegi viður-
eignar Celtics og Lakers að ekkert
yrði úr þessum viðskiptum. Óvíst var
hvaða áhrif þetta hefði á mannskap-
inn í leiknum en talið var að það hefði
átt þátt í stórtapi Lakers nokkrum
dögum fyrr. En kóngurinn LeBron
James var kominn aftur til leiks eftir
meiðsli. Það skipti máli. Margir voru
komnir til að sjá hann leika.
Boston Celtics hefur á að skipa
mörgum góðum leikmönnum og er
mun heildsteyptara lið en Lakers.
Þar fer gamall félagi LeBron úr
meistaraliði Cleveland Cavaliers,
Kyrie Irving, fremstur í flokki. Liðið
hefur leikið ágætlega í vetur og er
öruggt inn í úrslitakeppni austur-
deildarinnar á meðan Clippers og
Lakers þurfa að taka sig verulega á
til að þau fari ekki í frí þegar úr-
slitakeppnin hefst. Líkurnar voru því
með Celtics á heimavelli, áður en
leikurinn hófst.
Flautukarfa réði úrslitum
Celtics var við stjórnvölinn í fyrri
hálfleik og virtist þetta ætla að verða
auðveldur sigur fyrir þá en Lakes
náði að draga úr skaðanum fyrir
leikhlé. Lakers sýndi sínar bestu
hliðar í seinni hálfleik undir forystu
LeBron og í lokin skiptust liðin á um
að hafa forystuna þótt Celtics væri
alltaf líklegra og stuðningsmenn
þeirra hefðu nokkrum sinnum fagn-
að sigri.
Þegar leiktíminn var að renna út
eftir 48 mínútna leik var Celtics einu
stigi yfir. Lakers-menn komu bolt-
anum ekki á sína ofurstjörnu og
maðurinn sem sat uppi með ábyrgð-
ina renndi sér undir körfuna en snið-
skot sem hann tók aftur fyrir sig var
varið. Boltinn hrökk í hendur Rajon
Rondo sem náði skoti áður en flautan
gall og Lakers-menn fögnuðu vel.
Svo vill til að Rondo hóf atvinnu-
mannaferil sinn með Boston Celtics
og var þar í stóru hlutverki í 8 og
hálft ár. Eftir flakk á milli félaga er
hann nú kominn til Lakers. Það var
púað á hann þegar leikmenn voru
kynntir fyrir leik en hann þaggaði
svo sannarlega niður í sínum gömlu
stuðningsmönnum með sigurkörf-
unni.
Tveir dyggir stuðningsmenn Bost-
on voru ánægðir með ýmislegt í
leiknum, annað en úrslitin. Það var
öðrum þeirra huggun harmi gegn að
það var þó ekki LeBron sem skoraði
sigurkörfuna!
AFP
Sigur Lakers-menn fagna Rajon Rondo ákaflega eftir að hann tryggði sigur síns nýja félags, LA
Lakers, gegn sínu gamla, Boston Celtics. Mikil stemning er ávallt á leikjum erkifjendanna.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Samlyndi Stuðningsmenn Lakers og Celtics sátu eða stóðu í sátt og samlyndi á bekkjunum.
Ekki bar á ágreiningi þótt vitaskuld hefðu menn stundum sleppt tilfinningunum lausum.
Vinnum LA aftur – eða alls ekki
Þrjú lið frá Los Angeles léku við heimaliðin í Boston í kjölfar Ofurskálarinnar Gamla slagorðið
„Vinnum LA!“ virkaði illa að þessu sinni Dramatík í leik erkifjendanna Lakers og Celtics
Ljósmynd/Hjálmar Örn Hannesson
Í leikhléi Höfundur stendur á milli Hannesar Birgis Hjálmarssonar og Sig-
urðar Ingimundarsonar. Sigurður heiðrar Larry Bird, gamla stjörnu Celtics.
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019