Morgunblaðið - 14.02.2019, Síða 36

Morgunblaðið - 14.02.2019, Síða 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 A U G N V Í T A M Í N Fæst í öllum helstu apótekum www.provision.is Viteyes augnvítamínin er nauðsynleg augum sérstaklega þeim sem glíma við augnþurrk eða aldursbundina augnbotnahrörnun. Nýtt Nýtt FRÉTTASKÝRING Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Milljarðar tonna leysingavatns sem streymir úr jöklum og íshell- um Grænlands og Suðurskauts- landsins út í heimsins höf gætu ýtt undir öfgar í veðurfari og raskað jafnvægi svæðisbundinna staðviðra á innan við fáum áratug- um, að sögn vísindamanna. Þessir bráðnandi risar, einkum og sér í lagi sá er þekur Græn- land, virðast þess megnugir að veikja hafstraumana enn frekar; strauma sem streyma köldu vatni suður með botni Atlantshafsins og knýja í leiðinni hlýrri hitabeltissjó nær yfirborðinu norður á bóginn, segja vísindamennirnir í grein í nýjasta hefti tímaritsins Nature. Þetta fljótandi færiband er þekkt sem hitaseltuhringrásin (AMOC). Gegnir það lykilhlutverki í veðrakerfum jarðarinnar og stuðlar að hlutfallslegum hlýindum á norðurhvelinu. „Samkvæmt líkönum okkar mun leysingavatnið raska hafstraum verulega og breyta hitafari um heim allan,“ segir aðalhöfundur greinarinnar, Nicholas Golledge, aðstoðarprófessor við Suður- skautsstofnun Viktoríuháskólans í Wellington á Nýja-Sjálandi. Bráðnun íshellu norðurskautsins lokar aftur á móti hlýjan sjó af undir yfirborðinu. Sverfur hann af jöklunum að neðan í vítahring vaxandi bráðnunar sem stuðlar að hækkun yfirborðs sjávar. Svalara loft Flestar rannsóknir á íshellunum hafa beinst að því hversu hratt þær kunni að hopa vegna hlýnun- ar lofthjúpsins og hvað hlýnunin þarf að vera mikil áður en þær leysast upp. Hvort þurfi til hundr- uð ára eða þúsundir áður en þröskuldinum er náð og allt fellur um koll. Mun minni rannsóknir hafa hins vegar verið gerðar á því hvernig leysingavatnið gæti raskað sjálfu veðrakerfinu. „Hinar víðtæku breytingar sem koma fram í líkönum okkar stuðla að enn óreiðukenndara veðurfari, auknum öfgakenndum veðurfyrir- bærum, meiri lofthita og tíðari hitabylgjum,“ segir einn af höf- undunum, Natalya Gomez, við AFP-fréttastofuna. Hún sinnir rannsóknum í jarð- og geimvís- indadeild McGill-háskólans í Kan- ada. „Um miðja öldina mun leys- ingavatn frá Grænlandshellunni trufla AMOC verulega en það streymi sýnir nú merki um að hægja á sér,“ bætir hún við. „Þetta er miklu styttri tímaskali en talið var,“ segir Helene Sero- ussi um þetta. Hún starfar að rannsóknum í sjávarfalla- og ís- fræði við svonefnda Jet Propulsion rannsóknarstofnun í Kaliforníu en var þó ekki þátttakandi í rann- sóknunum sem hér er um fjallað. Niðurstöður þeirra byggðust á flóknum og nákvæmum hermilí- könum og gervihnattamælingum á breytingum á íshellunum frá 2010. Ein líkleg afleiðing veikingar hafstrauma í Atlantshafi er að loft verði hlýrra á norðurskautssvæð- inu, austanverðu Kanada og Mið- Ameríku en svalara í Norðvestur- Evrópu. Íshellur Suðurskautslandsins og Grænlands eru allt að þriggja kílómetra þykkar og í þeim er að finna meira en tvo þriðju fersk- vatnsbirgða jarðarinnar, er duga mundu til að hækka yfirborð heimshafanna, önnur hellan um 58 metra og hin sjö metra, bráðnuðu þær alveg báðar. Þau svæði sem eru hvað berskjölduðust fyrir bráðnuninni, auk Grænlands, eru Suðurskautslandið vestanvert og stórir og stöðugir jöklar á Austur- Suðurskautslandinu. Í annarri rannsókn sem birt var í Nature fyrra miðvikudag spáðu nokkrir sömu vísindamanna um hvert framlag Suðurskautslands- ins væri til hækkunar sjávaryfir- borðs fram til ársins 2100 . Um slíkt eru afar skiptar skoðanir. Ísklettar Í umdeildum niðurstöðum rann- sóknar frá árinu 2016 var því haldið fram að ísklettum álfunnar, klettabelti sem skaga út úr jökl- um er standa við sjávarsíðuna, væri hætt við hruni, sem gæti haft í för með sér sjávarborðs- hækkun upp á einn metra fyrir aldarlok. Það myndi duga til að knýja allt að 187 milljónir manna frá heimkynnum sínum um allan heim, ekki síst á mannmörgum lágt liggjandi óseyrum í Asíu og Afríku. Nýju rannsóknirnar draga þetta í efa. „Haldið var fram, að óstöðugir ísklettar væru orsök óstöðvanlegs hruns stórra hluta íshellunnar. Við höfum skoðað þau gögn og endur- metið og komist að því að svo var ekki,“ sagði Tamsin Edwards, landafræðilektor við King’s Col- lege í London, og einn úr fyrr- nefndum vísindamannahópi. „Báð- ar þessar nýju rannsóknir spá um 15 sentímetra hækkun sjávarborðs vegna bráðnunar á suðurskaut- inu,“ bætti hann við. Í sérstakri skýrslu nefndar Sameinuðu þjóðanna er fjallar um loftslagsmál (IPCC) og kemur út í september í haust verður reynt að segja fyrir um hækkun sjávar- borðs. Í síðasta mati IPCC á því, frá 2013, var jökulbráðnun ekki með í myndinni vegna skorts á mæligögnum. Nú eru íshellurnar hins vegar taldar áhrifavaldar, næst á undan hitnandi lofthjúp og bráðnandi jöklum. Beaufortstraumur ógnvekjandi En það er víðar sem breytingar í umhverfinu vekja ógn. Þar á meðal er Beaufort-straumurinn norður af Kanada, sem í samspili við aðrar breytingar gæti haft áhrif hér á landi og hafinu í kring. Við blasir að iðustraumur í haf- inu sendi milljarða rúmmetra ferskvatns út á Atlantshafið. Er það eitt af mörgum táknum þess að loftslagsbreytingar munu segja til sín í höfunum sem haft getur gríð- arleg áhrif í yfirborðsvatninu. Allt hið náttúrulega kerfi virðist vera að brotna saman. Golfstraumurinn er að hægja ferð sína og stórt haf- svæði suðvestur af Íslandi er orðið miklu kaldara en menn hafa átt að venjast. Og svo er það Beaufort- hvirfillinn. Í þúsundir ára hefur hann haldið sínum sjálfstæða takti. Vindar hafa hrundið vatni úr fersk- vatnsám heimskautahéraðanna og bráðnandi hafís út í nokkurs konar ósýnilegt baðkar. Með árunum hef- ur iðustraumurinn í því stækkað, allt þar til hann náði nokkur hundruð kílómetra breidd. En þá hrundi hann og ruddi ferskvatninu frá sér svo það blandaðist söltum sjónum í kring. Tifandi tímasprengja „Hefði allt verið eins og ætti að vera hefði þetta átt að gerast fyrir áratug að minnsta kosti,“ segir Mary-Louise Timmermans, pró- fessor í haffræði við Yale- háskólann í Bandaríkjunum. Í stað- inn hefur straumiðan haldið áfram að stækka, bæði niður í djúpið og á breiddina, og hert á sér. Með þeim afleiðingum að hann er núna rúm- lega 1.000 kílómetra breiður. „Hið náttúrulega kerfi virðist hafa hrunið, í heild sinni,“ segir prófessorinn sem rannsakað hefur Beaufort-iðustrauminn árum sam- an. Var hún einn höfunda greinar um rannsóknirnar í jarðvísinda- tímaritinu Geophysical Research Letters í október sl. Í niðurlagi hennar er það niðurstaða höf- unda, að hlýnun lofthjúpsins og skortur á hafís valdi þessum breytingum. Norðurskautssvæðið er sá blettur á jarðarkringlunni sem hlýnar hraðast. Síðustu 40 árin hefur stærð hellunnar að sumri til, þegar hún er minnst, minnkað um 40%. Án þungs íshlemms eykst hraði, kraftur og útbreiðsla iðunnar. Allt þar til hún dag nokkurn þolir ekki meir og brotn- ar saman. Kalt á Íslandi „Gerist það, eins og von er á til- tölulega fljótt, mun kalda fersk- vatnið skolast út með hafís, eins og straumur meðfram austur- strönd Grænlands. Því næst mun hann leggja sig sem kaldur yfir- borðssjór í Norður-Atlantshafi og þar getur hann ruglað jafnvægi í hringrás hafsins,“ segir Mary- Louise Timmermans. Eins og margir aðrir vísindamenn fer hún varlega í að vekja upp dómsdags- spár. En menn hafa áhyggjur af því að breytingarnar geti þýtt kaldara loftslag á Íslandi og í Norður-Evrópu og að það bitni hart á fiskveiðum. Fyrir fimm árum var Timmer- mans í hópi haffræðinga sem vör- uðu við því að Beaufort-straumur- inn væri tifandi tímasprengja fyrir loftslag jarðarinnar. Í millitíðinni hefur hann bara stækkað og stækkað og færst í aukana. Er það ekki ótrúlegt að mitt í allri hlýnun lofthjúpsins skuli menn allt í einu eiga á hættu að það verði ís- kalt. Breytingar í lofthjúpnum koma ekki jafnt niður. Svæðis- bundinn munur getur orðið mjög misjafn og skammtíma öfgar í loftslagi miklar þegar hin við- kvæma framrás náttúrunnar er skekkt. Eitthvað er að í hafinu  Bráðnandi jöklar veikja hafstraumana  Áhyggjur eru uppi um að breytingarnar vegna Beaufort- straumsins geti þýtt kaldara loftslag á Íslandi og í Norður-Evrópu  Gæti bitnað hart á fiskveiðum Færiband úthafanna Hiti losnar út í andrúmsloftið Hiti losnar út í andrúmsloftið Heitur yfirborðs- straumur Kaldur saltur djúpsjávar- straumur KYRRAHAF INDLANDSHAF ATLANTSHAF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.