Morgunblaðið - 14.02.2019, Page 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Þrjátíu ár eru í dag liðin síðan Khomeini, leið-
togi klerkastjórnarinnar í Íran, gaf út fatwa,
trúarlega yfirlýsingu um að rithöfundurinn
Salman Rushdie væri réttdræpur vegna þess
að skáldsagan Söngvar Satans, sem kom fyrst
út undir lok ársins 1988, hefði verið skrifuð,
prentuð og gefin út í óþökk við íslam, spá-
manninn, og Kóraninn.
Rushdie, sem í kjölfarið fór lengi vel huldu
höfði, segist nú lifa eðlilegu lífi í New York þar
sem hann hefur búið síðustu tvo áratugi.
„Ég vil ekki lifa í felum,“ sagði hann við
AFP-fréttastofuna í heimsókn til Parísar ný-
lega. „Ég nota neðanjarðarlestina.“
Khomeini erkiklerkur las líflátsdóminn í út-
varpið í Teheran 14. febrúar 1989 og næstu
þrettán ár naut Rushdie stöðugrar lögreglu-
verndar og faldi sig undir fölsku nafni. En árið
1998 lýsti þáverandi forseti Írans, Mohammad
Khatami, því yfir að írönsk stjórnvöld myndu
hvorki letja né hvetja menn til að ráða Rushdie
af dögum. Strangtrúaðir í landinu telja hins
vegar að dauðadómurinn sé í fullu gildi enda sé
enginn þess umkominn að afturkalla hann
nema sá sem kvað upp dóminn í upphafi, Kho-
meini, en hann lést árið 1989.
Nú er margt annað að óttast
Í kjölfar hryðjuverkaárásanna á New York
og Washington 11. september 2001 hætti Rus-
hdie að nota dulnefni og kom úr felum.
„Ég var 41 árs þegar þetta gerðist en nú er
ég 71 árs. Allt er í góðu lagi nú,“ sagði Rushdie
í september sl. „Við búum í heimi sem breytist
hratt. Og þetta er orðið gamalt mál. Nú er
margt annað að óttast – og aðrir sem þarf að
drepa,“ bætti hann við.
Vopnaðir óeinkennisklæddir lögreglumenn
gættu þó Rushdie þegar hann veitti AFP við-
tal á skrifstofu útgefanda síns í París.
Rushdie fæddist árið 1947 á Indlandi en bjó
síðan í Bretlandi og menntaðist þar. Fyrsta
bók hans, Grimus, kom út 1975 en frægðarsól
hans byrjaði að rísa árið 1981 þegar hann
sendi frá sér bókina Miðnæturbörn, sem hlaut
Booker-verðlaunin það ár.
Söngvar Satans var fimmta bók Rushdie,
sem hann segir nú að hafi verið misskilin og í
raun fjallað um innflytjendur frá Suður-Asíu í
Lundúnum. Hanif Kureishi, rithöfundur og
vinur Rushdies, segist hins vegar efast um að
nokkur myndi þora nú að skrifa Söngva Sat-
ans, hvað þá gefa bókina út. En Kureishi við-
urkennir að hann hafi ekki séð fyrir uppnámið
sem bókin átti eftir að valda þegar hann las
próförk að Söngvum Satans. „Ég tók ekki eftir
neinu sem gæti hreyft við bókstafstrúar-
mönnum. Í mínum huga var þetta bók um geð-
rof, um breytingar og nýja hluti.“
Vendipunktur
Því hefur verið haldið fram að dauðadóm-
urinn yfir Rushdie hafi verið vendipunktur í
sögu íslamstrúar enda hafi það verið í fyrsta
sinn sem heittrúarhópar hafi beitt sér svo op-
inskátt gagnvart prent- og persónufrelsi á
Vesturlöndum.
Salil Tripathi, indverskur höfundur og
blaðamaður sem berst fyrir réttindum rithöf-
unda, segir að mál Rushdie hafi búið til hug-
ræna tálma og mörg viðfangsefni séu nú for-
boðin. Hættan á múgæsingu hafi aukist mikið.
„Þetta er ógnvænleg staða fyrir rithöfunda.
Það ríkir samkeppnisumburðarleysi – fyrst
múslimar geta látið banna teikningar í Dan-
mörku, hvers vegna getum við í Pakistan og
Indlandi ekki bannað þessum kristna manni
eða hindúa að segja þetta eða hitt?“
Sean Gallagher, starfsmaður stofnunar-
innar Ritskoðunarvaktarinnar, segir að heim-
urinn hafi ekki þróast mikið síðan mál Rushdie
hófst. „Við erum enn að fást við það sama. Um-
ræðan um guðlast og lög er hluti af hringrás-
arumræðu sem er mjög nauðsynleg. Það er
mikilvægt að standa áfram vörð um málfrelsið
og skiptast á skoðunum um menningu.“
Þegar Rushdie sjálfur er spurður hvort
hann hefði betur látið það eiga sig að skrifa
Söngva Satans svarar hann: „Ég segi eins og
Edit Piaf: Je ne regrette rien (Ég sé ekki eftir
neinu).“
Þrjátíu ár í skugga dauðadóms
Rithöfundurinn Salman Rushdie fór huldu höfði í þrettán ár eftir að íranska klerkastjórnin lýsti
hann réttdræpan vegna skáldsögunnar Söngva Satans Rushdie segist nú ekki vilja lifa í felum
September 1988
Bókin Söngvar Satans
gefin út í Lundúnum
Október 1988
Bókin bönnuð í
Indlandi
Janúar 1989
Eintök brennd í
Bradford á Englandi
1991
Japanskur þýðandi Rushdie
myrtur, ítalskur þýðandi stunginn
1993
Skotið á norskan útgefanda.
37 létu lífið þegar kveikt var
í hóteli sem tyrkneskur til-
vonandi þýðandi dvaldi á
1998
Írönsk stjórnvöld
segjast ekki ætla að
framfylgja dauðadómi
2005
Ali Khamenei,
eftirmaður
Khomeinis,
segir réttlætan-
legt samkvæmt
Íslam að ráða
Rushdie bana
2007
Elísabet Eng-
landsdrottning
slær Rushdie
til riddara
2016
2,8 milljónir dala
settar til höfuðs
Rushdie
14. febrúar 1989
Khomeini erkiklerkur gefur út
fatwa (trúarlega tilskipun)
um að Rushdie sé réttdræpur
13. febrúar 1989
5 létu lífið í árás á Bandarísku menn-
ingarmiðstöðina í Islamabad eftir að
bókin kom út í Bandaríkjunum
Salman Rushdie: 30 ár frá dauðadómi
Heimild: AFP Photos/Joel Saget
N. Schiller/R. Raveendran
Teheran 14. febrúar 1989
Nýja Delhi,
11. febrúar 1999
París
10. sept. 2018
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
JAPANSKIR HNÍFAR
Allt fyrir eldhúsið
Hágæða hnífar og töskur
Allir velkomnir
Einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
maxipodium 500
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?