Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 Gs import ehf | S. 892 6975 | www.gsimport.is Frábær ending Léttvínsglös úr hertu gleri Stjórnmálaskýrendur á Spáni telja að Pedro Sánchez, forsætisráðherra landsins, boði til þingkosninga eftir að fjárlagafrumvarp stjórnarinnar var fellt á þinginu í Madríd í gær. Sánchez kvaðst ætla að tilkynna á morgun, föstudag, hvort kosningum yrði flýtt. Forsætisráðherrann er leiðtogi Sósíalistaflokks Spánar og myndaði minnihlutastjórn í júní með stuðn- ingi sautján þingmanna fra Katalón- íu. Hann þurfti stuðning þeirra í at- kvæðagreiðslunni um fjárlagafrum- varpið en þeir ákváðu að styðja ekki stjórnina til að mótmæla réttar- höldum yfir leiðtogum aðskilnaðar- sinna sem reyndu að lýsa yfir sjálf- stæði Katalóníu í október 2017. Áður hafði stjórnin hafnað kröfu þing- mannanna um að hefja viðræður um sjálfsákvörðunarrétt Katalóníu- manna. Fjárlagafrumvarpið var fellt með 191 atkvæði af 350. Skoðanakannanir benda til þess að hægriflokkar komist til valda á Spáni ef þingkosningum verður flýtt. Spænskir stjórnmálaskýrendur spáðu því að forsætisráðherrann boðaði til kosninga, þótt honum bæri ekki skylda til þess, eftir ósigurinn á þinginu. AFP Saksókn mótmælt Réttarhöldum í Madríd yfir tólf forystumönnum kata- lónskra sjálfstæðissinna mótmælt í Barcelonaborg í Katalóníu. Telja stefna í þing- kosningar á Spáni Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Kviðdómur í New York hefur fundið mexíkóska eiturlyfjabaróninn Joa- quín Guzmán sekan um stórfellt fíkniefnasmygl til Bandaríkjanna og búist er við að hann verði dæmdur í lífstíðarfangelsi í júní. Guzmán stjórnaði eiturlyfjasmyglhringnum Sinaloa sem bandarísk yfirvöld segja að sé sá stærsti í heiminum. „Sektardómurinn er mikill sigur fyrir réttarríkið, Mexíkó, Bandarík- in og önnur lönd sem hafa orðið fyrir barðinu á Sinaloa-hringnum,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Mike Vigil, fyrrverandi yfirmanni þeirrar deild- ar bandarísku fíkniefnalögreglunnar sem sér um alþjóðlegar aðgerðir gegn eiturlyfjasmygli. „Guzmán var mesti eiturlyfjabarón allra tíma, meiri en glæpaforingjar á borð við Pablo Escobar.“ Vigil telur þó að fangelsun Guz- máns hafi lítil áhrif á starfsemi smyglhringsins. „Sinaloa-hringurinn heldur áfram að starfa eins og áður og er eins öflugur og hann var.“ Alræmdur fyrir miskunnarleysi Guzmán er 61 árs og hefur verið kallaður „El Chapo“ eða „Sá stutti“, en hann er 168 cm á hæð. Hann fæddist í fátækustu sýslu Sinaloa- fylkis, sem smyglhringurinn er kenndur við, og nýtur enn mikilla vinsælda meðal íbúa heimabæjar síns, Badiraguato. „Fátæktin hefur aukist hérna frá því að Chapo fór. Fólk hefur þurft að fara héðan í leit að atvinnu, vegna þess að ástandið er mjög slæmt,“ hefur AFP eftir ein- um íbúanna. Guzmán stjórnaði eiturlyfja- smyglhringnum í tæpa tvo áratugi og var alræmdur fyrir harðýðgi og miskunnarleysi. Bandarískir sak- sóknarar segja að hagnaður hans af fíkniefnasmygli hafi numið að minnsta kosti 14 milljörðum banda- ríkjadala, jafnvirði tæpra 1.700 milljarða króna, áður en hann var handtekinn árið 2016 og seinna framseldur til Bandaríkjanna. 56 vitni komu fyrir réttinn í New York og lýstu glæpum Guzmáns sem er sagður hafa svifist einskis til að ná sínu fram og vernda hagsmuni smyglhringsins. Saksóknararnir segja að Guzmán hafi framið eða fyrirskipað tugi morða. Hann er meðal annars sakaður um að hafa pyntað keppinauta, skotið þá í höf- uðið og fyrirskipað að þeir yrðu brenndir. Fram komu mjög ýtarlegar upp- lýsingar um starfsemi og umsvif glæpaveldisins sem Guzmán byggði upp, að sögn The Wall Street Journ- al. Til að mynda kom fram að smygl- hringurinn greiddi lögreglumönn- um, lögregluforingjum og embættismönnum á öllum stigum dómskerfisins mútur reglulega til að geta haldið starfseminni áfram án afskipta yfirvalda. Eitt vitnanna sagði að sumir embættismannanna hefðu fengið meira en jafnvirði 120 milljóna króna á mánuði í mútur. Guzmán er meðal annars sakaður um að hafa greitt Enrique Peña Nieto, þáverandi forseta Mexíkó, jafnvirði 12 milljarða króna árið 2012, en Peña Nieto hefur neitað því. Vitni lýstu því einnig hvernig eiturlyfjum var smyglað til Banda- ríkjanna, m.a. um löng göng sem voru grafin undir landamærin. Smyglararnir földu einnig fíkniefna- poka inni í veggjum járnbrautar- lesta eftir að hafa borið á þá feiti til að koma í veg fyrir að hundar fyndu lykt af efnunum. Strauk tvisvar úr fangelsi Guzmán var fyrst handtekinn árið 1993 en slapp úr öryggisfangelsi í vestanverðu Mexíkó átta árum síðar með því fela sig í þvottakörfu eftir að hafa greitt fangavörðum fyrir að að- stoða við flóttann. Hann var hand- tekinn að nýju í febrúar 2014 en strauk aftur ári síðar með því að nota 1,5 kílómetra löng göng sem samverkamönnum hans tókst að grafa þrátt fyrir mikinn öryggis- viðbúnað í fangelsinu. Hermt er að þeir hafi brotið sér leið upp um sturtubotn í klefa hans til að frelsa foringja sinn. Þegar veldi Guzmáns var mest var hann álitinn einn af auðugustu mönnum heimsins. Hann var í 41. sæti á lista tímaritsins Forbes yfir áhrifamestu menn heimsins árið 2009, ofar en þjóðarleiðtogar á borð við þáverandi forseta Frakklands og Rússlands. Hermosillo Ciudad Obregon Torreon 1993 Handtekinn á landamærunum að Gvatemala og dæmdur í fangelsi Forsprakki eiturlyfjasmyglhringsins Sinaloa í Mexíkó 2001 Slapp úr fangelsi með því að fela sig í þvottakörfu 2014 Handtekinn aftur eftir þrettán ára flótta 2015 Slapp úr öryggisfangelsi um göng sem grafin voru frá klefa hans 2016 Handtekinn og færður í fangelsi 2017 Framseldur til Bandaríkjanna Heimild: Stratfor Joaquín „El Chapo“ Guzmán Tijuana Nogales Ciudad Juarez Nuevo Laredo Tampico GVATEMALA Frá Asíu Frá Kólumbíu Frá Kólumbíu, Venesúela og Brasilíu Manzanillo Reynosa Karíbahaf Veracruz Acapulco MEXÍKÓ- BORG Culiacan Merida Cancun Norðvestur Helstu smyglleiðir 200 km BANDARÍKIN KYRRA- HAF Sinaloa og það sem eftir er af Beltran Leyva Suðaustur Jalisco Nueva Generacion, Guerreros Unidos, Los Rojos, Knights Templar, Los Viagras Norðaustur Los Zetas, Cartel del Golfo Altiplano Mazatlan 2019 12. febrúar: Kviðdómur fann hann sekan um fíkniefnasmygl til Bandaríkjanna Helstu glæpahópar Nóv.: Réttarhöld í máli hans hófust í New York 2018 Sagður mesti eitur- lyfjabarón allra tíma  Joaquín Guzmán sakfelldur fyrir stórfellt eiturlyfjasmygl AFP Sá stutti Fíkniefnabaróninn Joaquín Guzmán í fylgd hermanna í Mexíkó- borg eftir að hann var handtekinn árið 2014 eftir þrettán ára flótta. Talið hafa lítil áhrif á eiturlyfjasmyglið » Talið er að handtaka og fangelsun glæpaforingjans Joaquíns Guzmáns hafi lítil áhrif á starfsemi eiturlyfja- smyglhrings hans, Sinaloa, sem bandarísk yfirvöld telja þann stærsta í heiminum. » Smyglhringurinn er kenndur við Sinaloa-fylki í Mexíkó og hefur meðal annars verið mjög umsvifamikill í smygli á kókaíni og maríjúana til Bandaríkj- anna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.