Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 45
miðlum að slökkvilið þurfi einnig
aðkomubraut um Fógetagarðinn fyr-
ir slökkvitæki. Tilkynnt var 8. janúar
2019 að menntamálaráðherra hefði
fallist á tillögu Minjastofnunar um
friðlýsingu Víkurgarðs. Gerir það
örðugt um vik að finna lausnir á inn-
gangsvandanum og braut fyrir
slökkviliðið. Sést glöggt að hótelið er
of stórt og á of viðkvæmum stað þótt
ekki væri einnig kirkjugarði til að
dreifa.
Athuga ber að Fógetagarðurinn er
aðeins vesturhluti gamla kirkju-
garðsins en verndunarmenn tala um
allan Víkurkirkjugarð, líka austur-
hlutann þar sem hótelið skal byggt.
Allur austurhlutinn að Thorvaldsens-
stræti nefnist Landsímareitur. Helm-
ingur þessa reits, vesturhelmingur-
inn, heyrði til Víkurkirkjugarði. Þar
voru grafnar upp 32 grafir árið 2016,
þar af 22 heillegar beinagrindur í
heillegum kistum, og var flutt á Þjóð-
minjasafnið til að rýma fyrir hótelinu.
Þarna nærri komu upp bein árið 1915
og aftur í austurhlutanum 1967 þegar
leyft var að grafa skurð fyrir undir-
stöðu viðbyggingarinnar sem var
brotin niður sumarið 2018. Við skurð-
gröftinn þetta ár komu upp fimm
kistur með beinum einstaklinga og
líka bein sjötta einstaklings, án kistu-
leifa, og var allt flutt á Þjóðminja-
safnið. Loks sást þarna í austurhlut-
anum enn árið 1966 leiði mæðgna
sem voru jarðsettar 1882 og 1883, og
var legsteinn á leiðinu og girðing um-
hverfis. Á dögunum fundust svo
kistuleifar þarna í austurhlutanum.
Hinn 8. janúar 2019 birti Minja-
stofnun tilkynningu um skyndifriðun
austurhluta garðsins.
Enga ferðamannamiðstöð
yfir grafreiti Reykvíkinga
Virðingu við 1000 ára grafreit
Reykvíkinga og virðingu við friðhelgi
Alþingis verður að sýna með öðrum
hætti en að breyta reitnum í ferða-
mannamiðstöð. Fyrirhuguðu hóteli
er ofaukið í hjarta höfuðborgarinnar.
Auk grófra helgispjalla er mikilvægu
og sögufrægu svæði fórnað fyrir
einkahagsmuni. Í kirkjugarðalögum
segir að niðurlagðan kirkjugarð megi
ekki nota til neins þess sem óviðeig-
andi er að dómi prófasts. Ekki má þar
jarðrask gera né reisa nein mann-
virki nema ráðherra veiti undanþágu
að fengnu samþykki kirkjugarðaráðs.
Slík undanþága hefur ekki verið veitt.
Vel fer á að þessi forni og söguhelgi
kirkjugarður verði í heild sinni skrúð-
garður fyrir almenning. Telja flutn-
ingsmenn tillögunnar að úr því sem
komið er verði framtíð reitsins best
borgið þannig að ríkið verði eigandi
Landssímahússins sem gæti sem
best nýst í þágu Alþingis eða að ríkið
eftir atvikum eignist þann hluta
byggingarlóðar sem tilheyrir Víkur-
kirkjugarði.
Áskorun heiðursborgara Reykja-
víkur fylgir tillögunni sem aðgengileg
er á vef Alþingis og einnig nýr upp-
dráttur Hjörleifs Stefánssonar arki-
tekts þar sem leitast er við að af-
marka austurmörk Víkurgarðs eftir
því sem heimildir framast leyfa.
» Virðingu við 1000 ára
grafreit Reykvík-
inga og virðingu við frið-
helgi Alþingis verður að
sýna með öðrum hætti
en að breyta reitnum í
ferðamannamiðstöð.
Höfundur er alþingismaður
utan flokka.
olafurisl@althingi.is
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019
Margt fólk sem
komið er á efri ár býr í
skuldlausu húsnæði,
sem er orðið óþarflega
stórt og jafnvel óhent-
ugt ef litið er til lífs-
gæða og tilvistar.
Óhagræðið getur falist
í aðgengi eða umönn-
un eignarinnar og er
þá átt við daglega
umönnun á borð við
þrif, en líka viðhald og endurbætur.
Eignir sem ekki fá nauðsynlega
umönnun hrörna og geta fallið í
verði.
Á sama tíma býr margt yngra
fólk, gjarnan á því lífsskeiði að fjöl-
skyldan fer stækkandi, við þröngan
kost og gæti þegið að vera í stærra
húsnæði. Þeir sem yngri eru búa yf-
ir nægri orku til að annast um eign-
ir, auk þess sem verulegir hags-
munir felast í að halda verðgildi
eignar við með endurbótum og
góðri umhirðu.
Hugmynd
Væri það ekki kostur ef þeir sem
yngri eru gætu keypt húsnæði af
þeim eldri? Leið til þess gæti verið
að hluti kaupverðs yrði greiddur
með veðskuldabréfi, þ.e. að seljandi
lánaði kaupanda hluta kaupverðs til
einhverra ára. Þetta skuldabréf
skapaði seljendum viðbótarlífeyri.
Til þess að tryggja þennan lífeyri
gengist ríkið í sjálfskuldarábyrgð á
þessum skuldabréfum.
Kostir
Seljandi væri öruggur um að fá
greitt með umsömdum hætti.
Seljandi getur keypt eign sem
hentar einstaklingi á viðkomandi
æviskeiði, t.d. með tilliti til hreyfi-
getu og þjónustu auk annars sem
skiptir máli.
Kaupandi fjárfestir í eign sem
hentar fjölskyldustærð og á þeim
stað sem viðkomandi hentar að búa,
m.a. með tillliti til þjónustu, skóla,
vinnustaðar og ef til vill fleiri þátta
sem kunna að skipta máli.
Ríkið þarf ekki að leggja út neina
fjármuni.
- Vanskil á húsnæðis-
lánum að undan-
gengnu greiðslugetu-
mati eru í lágmarki.
Flestir láta það
ganga fyrir öðrum út-
gjöldum að tryggja
heimilinu öryggi og
greiða skilvíslega af
lánum. Það eru því
litlar líkur á að það
reyni á ábyrgð ríkis-
ins og jafnvel þótt
svo færi yrði um
tímabundið ástand að
ræða, þar sem eignin færi þá í
söluferli og ríkið fengi sitt til baka.
Viðskipti með eignir undir þess-
um formerkjum færu fram á al-
mennum fasteignamarkaði og
myndu því ekki valda skekkju á
markaðinum, en pólitískar ákvarð-
anir hafa oft valdið tímabundinni
röskun á fasteignamarkaði, sem
leiðréttist þó ávallt á tiltölulega
skömmum tíma vegna þess hve
fasteignamarkaður er þungur í vöf-
um og lýtur sínum eigin lögmálum
til lengri tíma litið.
Umræðan um úrræði í húsnæðis-
málum hefur farið hátt undanfarið
og er tilefni þess að þessari hug-
mynd er varpað fram. Auðvitað er
engin ein leið til lausnar í húsnæðis-
málum, en fjölbreytt flóra úrræða
getur bætt ástandið og orðið til að
efla almenna hagsæld og velmegun.
Þessi hugmynd er ekki ný. Jón
Guðmundsson fasteignasali og Leó
Löve lögmaður settu fram svipaða
hugmynd fyrir um það bil 30 árum,
en þá voru aðrir tímar og ástand
húsnæðismála með öðrum hætti en
nú. Upphaflega hugmyndin þeirra
er þó góð og gild enn þann dag í
dag og á heima meðal annarra
góðra hugmynda um húsnæðis-
úrræði sem hafa komið fram.
Eftir Magnús
Axelsson » Leið til þess gætiverið að hluti kaup-
verðs yrði greiddur með
veðskuldabréfi, þ.e. að
seljandi lánaði kaup-
anda hluta kaupverðs til
einhverra ára.
Magnús Axelsson
Höfundur er fasteignasali.
fasteignir@maxco.is
Annað húsnæðisúrræði
sem gæti líka virkað
Lestrarfærni grunn-
skólabarna hefur áhrif
á allt þeirra nám, tæki-
færi og lífsgæði til
framtíðar.
Á undanförnum ára-
tugum hafa sterkar vís-
bendingar borist um að
íslensk börn hafi í lestri
staðið jafnöldrum sín-
um í mörgum saman-
burðarlöndum að baki.
Með sameiginlegu átaki helstu
áhrifavalda í skólasamfélaginu hefur
lestur hins vegar fengið aukna at-
hygli. Umræða hefur aukist og metn-
aðarfull lestrarverkefni hafa orðið til.
Kennarar hafa fengið ný og bætt
lestrarmælitæki og nú leggur mikill
meirihluti lestrarkennara svokölluð
lesfimipróf fyrir sína nemendur til að
meta stöðu þeirra.
Lesfimiprófin eru afrakstur sam-
starfs Menntamálastofnunar og sér-
fræðinga í læsi. Þau mæla lestrar-
hraða, lestrarnákvæmni og lestrar-
lag, sem eru mikilvægir þættir í
lestrarfærni barna. Þau hafa jafn-
framt reynst vera mikil hvatning fyr-
ir foreldra og börn til að lesa meira,
enda eru prófin endurtekin reglulega
og niðurstöðurnar birtar myndrænt
svo auðvelt er að sjá þróun frá einu
tímabili til annars.
Annað veifið skýtur upp kollinum
gagnrýni á lesfimiprófin – síðast í
grein Hermundar Sigmundssonar í
Morgunblaðinu 10. febrúar – þar sem
helst er gagnrýnt að áhersla sé lögð á
lestrarhraða. Rétt er að ítreka það
sem nefnt er að ofan, að fleiri þættir
lestrarfærni eru mældir en hraðinn,
sem í sjálfu sér er ekki eftirsóknar-
verður. Hins vegar er sjálfvirkur og
fyrirhafnarlaus lestur sannarlega eft-
irsóknarverður og hann næst fyrst og
fremst með æfingu og elju. Til að les-
ari geti einbeitt sér að innihaldi texta
þarf hann að geta breytt bókstöfum í
hljóð og orð með sjálfvirkum hætti,
án fyrirhafnar og mikils álags á
minni, en það leiðir til
aukins svigrúms fyrir
hugsun um innihald
textans eða lesskilning-
inn. Lesfimin er því ein
forsenda góðs lesskiln-
ings. Gott lestrarlag og
hrynjandi þykir svo til
marks um að nemandinn
hafi skilið efni textans í
megindráttum.
Lesfimiprófin eru
byggð á traustum vís-
indalegum grunni.
Hundruð rannsókna menntavísinda-
fólks um allan heim sýna að lestrar-
hraði, nákvæmni og gott lestrarlag
mynda mikilvægar undirstöður undir
læsi barna til framtíðar. Ein og sér
gefa lesfimiprófin ekki fullnægjandi
mynd af lestrarfærni nemenda og það
er brýnt að nota einnig önnur og fjöl-
breyttari matstæki. Þetta er mikil-
vægt að hafa í huga og þetta skilja
kennarar. Lesfimiprófin hafa sannað
gildi sitt og nú er svo komið að yfir
90% grunnskólanemenda þreyta þau.
Prófin eru orðin sjálfsagður og eðli-
legur hluti af skólastarfinu í landinu,
þrátt fyrir að kennurum sé ekki skylt
að leggja þau fyrir nemendur. Kenn-
arar velja sjálfir að gera það, enda sjá
þeir afraksturinn, hafa góðan skilning
á aðstæðum og vita að mikilvægt er
að börn fái endurgjöf með stöðumati í
grundvallarnámsgreinum. Matinu er
enda ætlað að styðja við nemendur og
búa þá betur undir lífið.
Lestur, lífsgæði
og mat á færni
Eftir Arnór
Guðmundsson
Arnór Guðmundsson
» Sjálfvirkur og fyrir-
hafnarlaus lestur er
eftirsóknarverður. Les-
ari sem breytir bók-
stöfum sjálfkrafa í orð
getur einbeitt sér að
innihaldi textans.
Höfundur er forstjóri
Menntamálastofnunar.
arnor.gudmundsson@mms.is
Það er látið svo að allt standi og falli
með ferðaþjónustunni. Hún sé það
hjálpræði sem okkur hafi verið sent
af forsjóninni og ef eitthvað dragi úr
þá sé voðinni vís.
Eins og okkur hafi ekki gengið
bærilega, rík þjóð í gjöfulu landi áð-
ur en Eyjafjalla- og túristagosið
skall á. Auðvitað var ekki alltaf upp-
sveifla, það væri á móti allri hag-
fræði, en tiltölulega jöfn kjör og
miklar framfarir er það sem sett
hefur svip á land og þjóð, síðustu tvo
mannsaldra.
Þeir sem einblínt hafa á ferða-
mennskuna hafa ekkert verið að
súta fórnarkostnaðinn. Land-
skemmdir, yfirfulla vegi sem eyði-
leggjast hraðar en hægt er að laga.
Slysahættu, týnt fólk í óbyggðum og
á jöklum. Aukið álag á yfirfull
sjúkrahús. Ónæði í byggð og óbyggð
og vaxandi pirring landsmanna
gagnvart örtröð .
Þjóðin er aldrei nefnd né spurð
hvort hún vilji þetta. Nú koma góðu
fréttirnar að eitthvað muni draga úr
á þessu ári og er það vel. Það eru
fleiri bjargræðisvegir í landinu sem
reynst hafa afkomudrjúgir.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Bjargræði í ferðaþjónustu
Ferðamennska Bæði kostir og gall-
ar hafa fylgt fjölgun ferðamanna.