Morgunblaðið - 14.02.2019, Qupperneq 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Á annan endavegg hins langa salar
Listasafns Reykjanesbæjar hefur
myndlistarmaðurinn Guðjón Ketils-
son dregið upp sköpunarsögu Gamla
testamentisins. Það tók hann marga
daga að skapa þetta stóra veggverk
sem hefst með „Í upphafi var orð-
ið…“ og hann hefur gert það að sínu
persónulega myndverki með græn-
leitum lit; orð og stafir breytast í
tákn og renna saman í heillandi vef
lína og forma þess frábærlega
slynga handverksmanns sem Guðjón
er. Á andstæðum vegg eru fimmtíu
rammar með þéttum vef stafa í
teikningum, þar hefur Guðjón skrif-
að upp eða teiknað með sínum hætti
alla Passíusálma Hallgríms Péturs-
sonar. Á lengsta veggnum eru tíu
ljóð, mótuð úr blámáluðum trjá-
greinum, og annað stórt veggverk er
úr sama efniviði – og þá eru ónefndir
skúlptúrar listamannsins úr bókum
og húsgögnum.
Sýning Guðjóns verður opnuð í
Listasafni Reykjanesbæjar klukkan
18 á morgun, föstudag og hann kall-
ar hana Teikn. Öll verkin fjalla á ein-
hvern hátt um tungumálið, tákn-
merkingu og „lestur“ í víðum
skilningi.
Guðjón er einn markverðasti
myndlistarmaður þjóðarinnar. Hann
hefur haldið yfir þrjátíu einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum
víða um lönd. Hann hefur hlotið
ýmsar viðurkenningar og skapað
verk sem sjá má í opinberu rými hér
á landi og erlendis.
Í raun þrælkompónerað
Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ing-
ólfsson, listfræðingur, en auk hans
ritar skáldið Sjón hugleiðingu í sýn-
ingarskrá um „fundið myndletur“
Guðjóns, þar sem hann grennslast
fyrir um hugsanlegan boðskap þess.
Þá eru birt ljóð sem Sjón orti við
fimm ljóðanna sem Guðjón skapaði
úr greinum tjáa og sýnir.
Þegar við Guðjón göngum saman
um salinn milli verkanna segir hann
að með vali á heiti sýningarinnar
Teikn, sé vísað til teikningarinnar
sem verkin eigi sameiginlega og svo
felst í orðinu ákveðin opinberun.
Undanfarna áratugi hefur Guðjón
unnið með hina ýmsu miðla mynd-
listarinnar, jöfnum höndum þrívídd-
arverk og teikningar, og eru þau
hvorttveggja í senn völundarsmíði
og hugleiðingar um tilvist manns –
jafnt þau spor sem hann markar
með gjörðum sínum og þær aðferðir
sem hann notar til að gera sig skilj-
anlegan í menningarlegu nær-
umhverfi sínu.
Tíu ljóð Guðjóns eru afar falleg,
virðast fljótt á litið skrifuð með fín-
legri, flúraðri rithönd en eru í raun
mótuð úr blámáluðum trjágreinum
sem standa út frá veggnum.
„Þessar greinar urðu efniviður
fyrir hálfgerða tilviljun,“ útskýrir
Guðjón brosandi. „Heim til mín
barst harðort bréf frá borginni um
að í garðinum hjá okkur væri tré
sem slútti yfir gangstéttina og það
þyrfti að fjarlægja af því greinarnar.
Ef ég gerði það ekki innan nokkurra
daga þá yrði það gert á minn kostn-
að. Ég var hálf fúll yfir þessu en
fékk mér stiga, fór upp í hann og
byrjaði að klippa greinarnar af. En
þegar ég leit niður á jörðina á vax-
andi greinahauginn þá fannst mér
ég sjá þar tengingu við verkin sem
ég var þá líka að vinna að úr texta á
vinnustofunni. Ég hugsaði með mér
að það væri verið að segja mér eitt-
hvað – þetta voru teikn!“
Hann ítrekar að teikningin bindi
verk sýningarinnar saman en líka
tungumálið, texti og umbúnaður
texta.
„Hvað varðar þessi ljóð hér á
veggnum, sem ég hef eytt umtals-
verðum tíma í, þá er þetta sjónrænt
tungumál sem byggist á sjónrænu
spili. Að auki myndast einhverskon-
ar merking með ryþmanum milli
verkanna og uppsetningunni. Við
Sjón ræddum þessi verk fram og til
baka og mikið um blæbrigðin sem
mætti finna með uppsetningunni.
En áður en við Sjón hittumst hafði
ég unnið talsvert með greinarnar á
vinnustofunni og hafði farið út í að
mála þær með þessu bláa bleki – ég
reyndi að finna út hvaða blek hefði
verið í blekbyttu skólastjórans í
barnaskólanum, mig langaði að vísa
til þess, og þá mótaðist þessi ímynd-
aða handskrift. Ég leitaði eftir því
hvað og hvernig mætti tjá sig með
þessari hrynjandi einfaldlega með
vali á greinum – þetta er í raun þræl-
kompónerað. Uppsetningin vísar til
ljóðlína og orða í ljóðum; þetta er
mitt á milli þess að kompónera í orð-
um og skapa afstrakt myndir.
Þegar Sjón kom að skoða þetta á
vinnustofunni hellti ég yfir hann
spurningum. Mig langaði til að vita
hvernig ljóðskáld hugsa, um sjón-
ræna uppsetningu ljóðanna og
hrynjandina í þeim út frá innihald-
inu. Sjón skrifaði svo um þetta grein
sem er í skránni og hann hafði líka
áhuga á að „þýða“ einhver ljóðanna;
hann orti ljóð upp úr fimm þeim
fyrstu hér á veggnum og þau eru
birt í sýningarskránni.
Í byrjun braut ég ljóðin bara upp í
fjórar línur, gerði ferskeytlur! En
eftir samtalið við Sjón fór ég að leika
meira með formin. Ég grúskaði mik-
ið meðan ég vann að verkunum – og
hef aldrei lesið jafn mikið af ljóðum!“
Snúið upp á sköpunina
Við ræðum um stóra verkið sem
Guðjón hefur skapað á vegginn upp
úr Sköpunarsögunni. Hann segist
hafa farið í þetta í kjölfar þess að
hafa gert Völuspá í röð grafíkverka
en hún er sköpunarsagan í norrænni
trú.
„Mér fannst spennandi að vinna
með Fyrstu Mósebók frá upphafi til
enda og hef gert nokkrar útfærslur
af því. Mig langaði til að geta gengið
inn í þann heim – og sú hugsun kall-
aði á þetta stóra veggverk hér,“ seg-
ir Guðjón. „Að vissu leyti snýst verk-
ið um það að snúa upp á sköpunina
með því að eyða henni og afbyggja;
gera hana í raun ólæsilega.“ Og
hann útskýrir verklagið þannig að
hann geri teikningu úr hverjum bók-
Þarf allan þennan tíma í verkin
Á viðamikilli sýningu Guðjóns Ketilssonar í Lista-
safni Reyjanesbæjar má sjá Sköpunarsöguna í
tímabundnu veggverki, útgáfu listamannsins á
öllum Passíusálmunum og ljóð úr trjágreinum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamaðurinn Guðjón Ketilsson í sal Listasafns Reykjanesbæjar. Til hægri er túlkun hans á Sköpunarsögunni.
»Sinfóníuhljómsveit Íslands tók í vikunni á móti
um 3.000 nemendum frá 30 grunnskólum á
þrennum skólatónleikum í Eldborg Hörpu. Á tón-
leikunum lék hljómsveitin verk eftir Grieg,
Beethoven, Dvorák og John Williams undir stjórn
Tung-Chieh Chuang sem hlaut fyrstu verðlaun í
hinni virtu Malko-hljómsveitarstjórakeppni árið
2015. Halldóra Geirharðsdóttir, kynnti tónleikana,
fjallaði um verkin og tónskáldin á sinn einstaka og
einlæga hátt ásamt því að draga upp myndir af
mennsku og tilfinningum í nútíð og þátíð.
3.000 nemum frá 30 skólum boðið á tónleika
Troðfullt Grunnskólanemendur fylla Eldborg Hörpu á þrennum tónleikum.
Ljósmynd/Kristinn Magnússon
TRÉSMÍÐAVÉLARNAR
FÁST Í BRYNJU
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Hefill HMS 850
hefilbreidd 210 mm
kr. 64.290
Opið
virka
daga
frá 9
-
lau f
rá 10
-1
Slípiban
BTS 800
kr. 38.49
d
0
Bandsög Basa 1
kr. 54.660
Fræsari
HF 50
r. 58.400
Borðsög
TS 310
kr. 81.940
18
6
k
Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár