Morgunblaðið - 14.02.2019, Page 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
LOFOTEN N°6814
160x200 cm 299.900 kr. Nú 224.900 kr.
180x200 cm 319.900 kr. Nú 239.900 kr.
HÖFUÐGAFL N°03
160 cm 59.900 kr. Nú 44.900 kr.
180 cm 69.900 kr. Nú 49.900 kr.
LOFOTEN
WWW.ILVA.IS/NORTHBEDS
1
23
4
5
6
7
8
1 Teygjanlegt efni sem má þvo
2 Comfort Latex - 5 cm
3 Clima Latex bólstrun - 2,5 cm
4 7 svæða pokagormar - 15 cm
5 Stuðningssvampur
6 Stuðnings-pokagormar - 13 cm
7 Pokagormar - 7 cm
8 Mjög sterkur viðarrammi - 12 cm
Nýtt
25%
KYNNINGARAFSLÁTTUR
Tónlistarmaðurinn Arnljótur Sig-
urðsson heldur tónleika í Mengi í
kvöld kl. 21. Samkvæmt tilkynningu
verður fjölbreytt dagskrá á boð-
stólum. Arnljótur hyggst flytja nýja
raftónlist, sem að hluta var samin
fyrir nýafstaðna tónleika á Safna-
nótt í Kópavogskirkju við mynd-
bandsverk Hrundar Atladóttur, sem
verður sýnt við tónlistarflutning-
inn. Þá kemur fram Kraftgalli, enn
annað hliðarsjálf Arnljóts, sem ein-
blínir á fríkaðar poppsmíðar.
Arnljótur í Mengi
FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 45. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
„Ég er afar ánægð með að forráða-
menn Aarhus vildu leyfa mér að fara
þegar þetta tilboð frá Þýskalandi
barst. Árósaliðið er í fjárhagserf-
iðleikum og fær pening í skiptum
fyrir mig. Þar af leiðandi vinna allir
þegar upp er staðið,“ segir hand-
knattleikskonan Birna Berg Haralds-
dóttir sem gekk í gær til liðs við
Neckarsulmer í Þýskalandi. »1
Ánægð með að Aarhus
leyfði mér að fara
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Hugarflug, árleg ráðstefna Listahá-
skóla Íslands, stendur í dag og á
morgun. Ráðstefnan er vettvangur
starfsfólks, nemenda og annarra
sem stunda rannsóknir á fræða-
sviði lista eða tengdra sviða til að
mætast og spyrja spurninga, gera
tilraunir og kynna verkefni sín. Ætl-
unin er þannig að skapa aðstæður
til að nýjar tengingar og samtöl
geti átt sér stað, og ný-
ir möguleikar til
samstarfs á milli
ólíkra
sviða
opnist.
Dagskrána má
nálgast á
vefnum
lhi.is/
hugarflug.
Hugarflug Listaháskól-
ans í dag og á morgun
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hafsteinn Björgvinsson hefur unnið
við vatnsbólin í Heiðmörk frá 1984 og
fylgst vel með dýralífinu á svæðinu
síðan. Hann hefur samið skýrsluna
„Fuglar og önnur dýr á verndar-
svæðum vatnsbóla Reykjavíkur“ á
hverju ári frá 1998, þar af tvisvar eitt
árið, og nú er 23. útgáfan komin út
(www.veitur.is/frett/fuglar-og-onnur-
dyr-a-verndarsvaedum-vatnsbola).
Í henni eru myndskreyttar upplýs-
ingar með gröfum um fugla og spen-
dýr á brunnsvæðum Veitna í Heið-
mörk og nágrenni.
Upphaf skýrslnanna má rekja til
þess að óttast var að fuglaflensa væri
á leiðinni til landsins undir lok lið-
innar aldar. Hafsteinn segir að hann
og Loftur Reimar Gissurarson, þá
gæðastjóri Vatnsveitu Reykjavíkur,
hafi ákveðið að útbúa skrá um dýra-
lífið á svæðinu til þess að halda heim-
ildum til haga. „Fyrsta skýrslan kom
út 1998 og síðan hefur þetta undið
upp á sig,“ segir Hafsteinn, sem er
umsjónarmaður Veitna á vatnsvernd-
arsvæðum Reykjavíkur.
Stöðugt nýjar tegundir
Sjá má Hafstein á vatnsverndar-
svæðinu hvern virkan dag og einnig
stundum um helgar. Hann hefur talið
fugla samviskusamlega og fylgst vel
með öllum breytingum, sem hann
gerir grein fyrir í skýrslunum. Hann
segir að stöðugt megi sjá nýjar teg-
undir. Glókollur hafi bæst við flóruna
síðan hann hafi byrjað að fylgjast
með, svartþröstum hafi fjölgað og
kríur fært varpsvæði sín. „Hún er
hætt að verpa inni á svæðinu og hefur
fært sig niður á Helluvatn. Grágæs-
um hefur fækkað og þær skiluðu til
dæmis engum ungum á nýliðnu ári,
sem er mjög óvenjulegt, en ætla má
að refurinn eigi þar stóran hlut að
máli.“ Hann segir að almennt hafi
gæsavarp minnkað og það færst nær
mannabyggð eins og víða þar sem
refur herji á. Skógurinn virki hvetj-
andi á sumar fuglategundir og sem
dæmi sé meira um krossnef nú en áð-
ur. „Lífið er árstíðabundið og þess má
geta að steindepill skilaði sér illa til
landsins eitt árið og rjúpnatalningar
á svæðinu benda til þess að sveiflur í
stofninum virðast ekki hafa mikil
áhrif.“
Hafsteinn segir að í raun komi ekk-
ert í dýralífinu á óvart. Þannig hafi
lúpínan verið að kæfa kríuna og því
hafi hún fært sig. Mikið kríuvarp hafi
verið í kringum Fjárborg, en þegar
byggt hafi verið á svæðinu hafi krían
farið annað. „Mér finnst skemmtileg-
ast að fylgjast með himbrimanum því
hann er svo mikill kóngur á svæðinu.“
Í skýrslunni kemur fram að illa
hafi gengið að koma ungum him-
brima á legg vegna háspennulína sem
liggja yfir Hrauntúnstjörn. „Ung-
arnir hafa flogið á línurnar og væng-
brotnað eða týnt lífi,“ segir skýrslu-
höfundur og ráðleggur
orkufyrirtækjum að leggja ekki línur
yfir vötn þar sem fuglalíf er mikið.
Hafsteinn er einnig meindýraeyðir
en segir að hann hafi ætlað sér að
verða fuglafræðingur þegar hann var
ungur. Hann hafi búið í sveit og alið
upp marga fugla. „Svo þróaðist þetta
þannig að ég varð fuglahræðufræð-
ingur! En fuglar eru engu að síður
helsta áhugamálið og það skemmti-
legasta við vinnuna er að ég get aldrei
gengið að neinu vísu.“
Hafsteinn í konungs-
ríki himbrimans
Ljósmyndir/Hafsteinn Björgvinsson
Keldusvín Fuglinn er hættur að verpa hérlendis en sést af og til.
Skýrsla um fugla og spendýr á verndarsvæðum vatnsbóla
Kambönd Flækingsfuglinn sást síðast á tjörnum Heiðmerkur 2016.