Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2019
VETTVANGUR
Þess eru ófá dæmi frá liðinnitíð að listamenn sem öðlasthafa viðurkenningu hafi
ekki verið metnir að verðleikum af
samtíð sinni. Þetta þekkjum við úr
okkar sögu og erlendis geymir
menningarsagan mörg slík dæmi.
Þetta gerir það að verkum að við
förum varlega í að gagnrýna list-
sköpun sem er okkur framandi.
Hver vill verða til þess að hafa for-
dæmt eða fúlsað við nýjum Picasso
eða Laxness framtíðarinnar?
Þýðir þetta þá að varasamt sé
að gagnrýna nútímalist, hafi menn
ekki stimpil upp á að mega gera
slíkt? Með þessu orðalagi er ég
ekki að hnjóða í listfræðina, alls
ekki, enda ber ég virðingu fyrir
henni. En ég vil heldur ekki láta
tala okkur niður sem erum meira
fákunnandi um vegi listarinnar en
þau sem innvígð eru í hennar
heim.
Þegar allt kemur til alls þá er
ekkert að því að hafa sterkar skoð-
anir á pálmatrjám í Vogunum, og
það því heldur að það eru okkar
fjármunir sem yrðu notaðir til að
smíða utan um hin suðrænu tré
sem þýskur verðlaunahafi Reykja-
víkurborgar gerir tillögu um að
hingað verði flutt.
Hugmyndin er okkur sögð vera
sú, að þar sem pálmatré eru suð-
ræn þá komi þau til með að hlýja
okkur á sálinni í nepjunni sem er
nánast viðvarandi við sundin blá.
Við gætum með öðrum orðum látið
okkur dreyma um sólríkar slóðir,
enda bjóði veruleiki okkar ekki
upp á annað en drauma.
Það er kannski ljótt að segja
það en mér finnst ekki laust við að
í leiðinni sé verið sé að klappa
okkur ögn á kollinn í meintu fá-
sinninu hér norður á nára. Lista-
konan segir það berum orðum að
hugmynd sín hafi kviknað vegna
þess að Íslendingar „þrái suð-
rænni andblæ“ í hversdagslífið.
Annars hefur verðlaunaveitingin
kynt undir frjórri, hugmyndaríkri
umræðu. Umhugsunarverð er alla-
vega tillagan um að nota millj-
ónirnar hundrað og fjörutíu til að
senda íbúa í Vogunum í sólar-
landaferðir og ná sér þannig milli-
liðalaust í suðræna sól.
Ef til vill eiga pálmatrén í Vog-
unum eftir að breyta fleiru en dag-
draumum okkar. Kannski verður
til ný hugtakanotkun í íslensku.
Nú er gjarnan talað um vin í eyði-
mörkinni þegar gróðurríkan blett
er að finna í lífvana sandauðn og
er þetta þá notað sem myndlíking
vilji menn máta það sem þeir sjá
afbragðsgott við það sem hraklegt
er.
Hver veit nema næsta kynslóð
tali um að eitthvað sé eins og
pálmatré í Vogunum þegar slá á
einhverju verki sérstaka gull-
hamra, að með því séu okkur færð-
ar umbætur sem um munar.
En svo má vel vera að pálamt-
rén verði aldrei meira en hugmynd
og að við sitjum uppi í nepjunni,
án þess að geta yljað okkur við til-
hugsun um sólríkan heim undir
pálmatrjám í Vogunum.
Eins og pálmatré í Vogunum
’Ef til vill eiga pálma-trén í Vogunum eftirað breyta fleiru en dag-draumum okkar. Kannski
verður til ný hugtaka-
notkun í íslensku.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Eydís Blöndal,
varaþingkona og
ljóðskáld, tísti:
„Mér finnst við,
sem tegund, þurfa
að borða of oft. Ég
hef bókstaflega ekki andlega getu
eða hugmyndaflug til að borða
þrjár (helst ólíkar) máltíðir á dag.
Ein stór máltíð í viku væri hentugra
fyrirkomulag fyrir mig.“
Umfangsmikið svindl sem bíla-
leigan ProCar varð uppvís að í vik-
unni, þar sem tugþúsundir kíló-
metra voru teknir af aksturs-
mælum bifreiða varð uppspretta
að mörgum tístum í vikunni.
Yrsa Sigurð-
ardóttir rithöf-
undur tísti: „Næst
þegar ég er spurð
um aldur mun ég
segjast vera 36 í
Procar-árum.“
Sævar Helgi Bragason, rit-
stjóri Stjörnufræðivefsins og dag-
skrárgerðarmaður
með meiru tísti:
„Í mig hringdi
sextugur maður
sannfærður um
a) veikingu
segulsviðsins, yfirvofandi pólskipti
og jörðin muni snúast við í heild.
b) að CO2 væri ekki gróður-
húsagas og þ.a.l. væri jörðin ekki að
hlýna.
c) að hlýnun jarðar væri samt
vegna pólskipta.
Fæ aldrei þessar 40 mín aftur.“
Og Þorsteinn
Guðmundsson,
leikari, grínisti og
verkefnastjóri
með meiru tísti í
tilefni Valentínus-
ardags: „Byrjaði daginn á því að
þrífa hundaskít, skafa af bílnum,
gefa honum start, fara með hann í
viðgerð upp í Grafarvog, þrífa kaffi-
vélina og fá í bakið. Kallið mig herra
Valentínus.“
AF NETINU
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Nýja sólarvörnin frá Meraki verndar
viðkvæma húð fyrir sólinni. Hentar
börnum og fullorðnum. UVA/UVB.
Astma- og ofnæmisprófað.
SÓL EÐA SKÍÐI?
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU