Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Page 10
VETTVANGUR
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2019
Kristinn Magnússon
Sjálfbærni og sjálfbær þróuneru hugtök sem í hugummargra (ef ekki flestra) eru
frekar óljós og loðin. Flestir átta
sig á að þau hafa eitthvað að gera
með umhverfismál og tengja þau
lausnum á vandamálum eins og
loftslagsvandanum. Margir tengja
sjálfbærni við sjálfsþurftarbúskap
og telja að við þurfum að fara með
samfélagið aftur til fortíðar til að
ná sjálfbærni, það er sem betur
fer misskilningur sem oft liggur í
því hversu lík orðin eru á íslenskri
tungu.
Sjálfbærni er vissulega tengt
umhverfismálum órjúfanlegum
böndum en hugtakið inniheldur
fleiri þætti. Það nær til alls sam-
félagsins svo sem félagsmála, vel-
ferðarmála, menningar og efna-
hagslífs. Enska orðið yfir
sjálfbærni er „sustainable“ en
sögnin „to sustain“ á ensku þýðir
„að viðhalda“. Með sjálfbærni ætl-
um við einmitt að viðhalda ein-
hverju til lengri tíma. Þannig þarf
að huga að langtímasýn á það sem
við viljum gera sjálfbært. Þegar
við skoðum sjálfbærni verkefna,
framkvæmda eða starfsemi þá
þurfum við að skoða áhrif til
lengri tíma á bæði náttúru og
samfélag.
Þegar um sjálfbæra þróun er að
ræða er litið til þriggja megin-
stoða sem eru samfélag, náttúra
og efnahagur. Til að gera nokkuð
sjálfbært þarf að hafa allar þrjár
stoðirnar í huga. Ef sjálfbærni
væri kollur með þessar þrjár meg-
instoðir fyrir fætur, þá yrði hann
ekki stöðugur fyrir okkur að sitja
á nema allir fæturnir væru jafn-
langir. Ein stoðanna þriggja er
takmörkuð að stærð þ.e. náttúran
og geta hinar tvær aðeins vaxið
fyrir tilstuðlan og innan takmarka
hennar. Því má segja að allt
standi og falli með þeim auðlind-
um og þjónustu sem við fáum frá
náttúrunni. Sjálfbær þróun verður
þó ekki nema að einnig sé tekið
tillit til samfélags- og efnahags-
mála. Þannig geta verkefni og
framkvæmdir ekki verið sjálfbær
ef þau hafa neikvæð áhrif á sam-
félagið þrátt fyrir að vera „um-
hverfisvæn“. Tökum sem dæmi
endurnýjanlega orku okkar Ís-
lendinga. Nýting endurnýjan-
legrar orku er eitthvað sem í hug-
um okkar er umhverfisvænt og
þar með sjálfbært. En endurnýj-
anlegt og sjálfbært er ekki það
sama. Í raun er ekki um sjálfbæra
nýtingu orkunnar að ræða nema
að hægt sé að ganga úr skugga
um að nýting hennar hafi ekki nei-
kvæð áhrif á samfélagið þar sem
hún er nýtt. Sjálfbær nýting orku-
auðlinda þýðir að orkan er fram-
leidd og notuð þannig að það hafi
jákvæð áhrif á samfélagið í heild,
að hún sé hagkvæm og hafi ekki
neikvæð áhrif á náttúruna, til
skemmri og lengri tíma litið. Til
að ganga úr skugga um þetta hafa
verið gerðir svo kallaðir sjálf-
bærnivísar fyrir bæði vatnsafls-
og jarðhitavirkjanir sem bæði
Landsvirkjun og Orka náttúrunn-
ar hafa notað til að meta sjálf-
bærni sinna virkjana.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóð-
anna um sjálfbæra þróun eru 17
markmið sem eiga að stuðla að
betra lífi og lífsskilyrðum fyrir allt
mannkyn. Markmiðin eru samþætt
og órjúfanleg og mynda jafnvægi
milli hinna þriggja stoða sjálf-
bærar þróunar. Sem dæmi um
markmið eru ekkert hungur,
menntun fyrir alla, jafnrétti
kynjanna, góð atvinna og hag-
vöxtur og aðgerðir í loftslags-
málum. Eins og sjá má eru mark-
miðin fjölbreytt en miða öll að því
að gera heiminn sjálfbæran. Sem
aftur sýnir okkur að sjálfbærni og
sjálfbær þróun gera okkur ekki
bara umhverfisvænni heldur bæta
líf okkar á öllum sviðum um leið
og tekið er tillit til takmarkaðra
auðlinda náttúrunnar.
Þannig getur þú velt því fyrir
þér þegar þú sérð fjallað um vöru
eða þjónustu sem sjálfbæra hvort
rétt sé farið með hugtakið; er ver-
ið að bæta samfélag, efnahag og
náttúru til framtíðar? Við getum
öll tekið þátt í að gera heiminn
sjálfbærari með því að taka okkar
skref í að gera samfélag okkar
betra, hvort sem það er að stuðla
að bættri menntun, betri heilsu,
auknu jafnrétti, ábyrgri neyslu
eða draga úr kolefnisspori okkar.
Virðing fyrir og góð framkoma við
samborgarana stuðlar líka alltaf
að betra samfélagi og þar af leið-
andi sjálfbærni.
Hvað er sjálfbærni?
Í átt að
sjálfbærni
dr. Snjólaug
Ólafsdóttir
snjolaug@andrymi.is
’ Sjálfbær nýtingorkuauðlinda þýðirað orkan er framleidd ognotuð þannig að það hafi
jákvæð áhrif á sam-
félagið í heild, að hún sé
hagkvæm og hafi ekki
neikvæð áhrif á náttúr-
una, til skemmri og
lengri tíma litið.
Rekaviðarhálsmen frá kr. 15.500
Teketill úr postulíni kr. 36.500
Smádúkur úr lífrænni bómull kr. 4.900
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Roðtöskur
Fagnaðar–
fundir
af öllum
stærðum
og gerðum
Bókaðu 8–120 manna fundarými.
Nánar á harpa.is/fundir