Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 10
VETTVANGUR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2019 Kristinn Magnússon Sjálfbærni og sjálfbær þróuneru hugtök sem í hugummargra (ef ekki flestra) eru frekar óljós og loðin. Flestir átta sig á að þau hafa eitthvað að gera með umhverfismál og tengja þau lausnum á vandamálum eins og loftslagsvandanum. Margir tengja sjálfbærni við sjálfsþurftarbúskap og telja að við þurfum að fara með samfélagið aftur til fortíðar til að ná sjálfbærni, það er sem betur fer misskilningur sem oft liggur í því hversu lík orðin eru á íslenskri tungu. Sjálfbærni er vissulega tengt umhverfismálum órjúfanlegum böndum en hugtakið inniheldur fleiri þætti. Það nær til alls sam- félagsins svo sem félagsmála, vel- ferðarmála, menningar og efna- hagslífs. Enska orðið yfir sjálfbærni er „sustainable“ en sögnin „to sustain“ á ensku þýðir „að viðhalda“. Með sjálfbærni ætl- um við einmitt að viðhalda ein- hverju til lengri tíma. Þannig þarf að huga að langtímasýn á það sem við viljum gera sjálfbært. Þegar við skoðum sjálfbærni verkefna, framkvæmda eða starfsemi þá þurfum við að skoða áhrif til lengri tíma á bæði náttúru og samfélag. Þegar um sjálfbæra þróun er að ræða er litið til þriggja megin- stoða sem eru samfélag, náttúra og efnahagur. Til að gera nokkuð sjálfbært þarf að hafa allar þrjár stoðirnar í huga. Ef sjálfbærni væri kollur með þessar þrjár meg- instoðir fyrir fætur, þá yrði hann ekki stöðugur fyrir okkur að sitja á nema allir fæturnir væru jafn- langir. Ein stoðanna þriggja er takmörkuð að stærð þ.e. náttúran og geta hinar tvær aðeins vaxið fyrir tilstuðlan og innan takmarka hennar. Því má segja að allt standi og falli með þeim auðlind- um og þjónustu sem við fáum frá náttúrunni. Sjálfbær þróun verður þó ekki nema að einnig sé tekið tillit til samfélags- og efnahags- mála. Þannig geta verkefni og framkvæmdir ekki verið sjálfbær ef þau hafa neikvæð áhrif á sam- félagið þrátt fyrir að vera „um- hverfisvæn“. Tökum sem dæmi endurnýjanlega orku okkar Ís- lendinga. Nýting endurnýjan- legrar orku er eitthvað sem í hug- um okkar er umhverfisvænt og þar með sjálfbært. En endurnýj- anlegt og sjálfbært er ekki það sama. Í raun er ekki um sjálfbæra nýtingu orkunnar að ræða nema að hægt sé að ganga úr skugga um að nýting hennar hafi ekki nei- kvæð áhrif á samfélagið þar sem hún er nýtt. Sjálfbær nýting orku- auðlinda þýðir að orkan er fram- leidd og notuð þannig að það hafi jákvæð áhrif á samfélagið í heild, að hún sé hagkvæm og hafi ekki neikvæð áhrif á náttúruna, til skemmri og lengri tíma litið. Til að ganga úr skugga um þetta hafa verið gerðir svo kallaðir sjálf- bærnivísar fyrir bæði vatnsafls- og jarðhitavirkjanir sem bæði Landsvirkjun og Orka náttúrunn- ar hafa notað til að meta sjálf- bærni sinna virkjana. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóð- anna um sjálfbæra þróun eru 17 markmið sem eiga að stuðla að betra lífi og lífsskilyrðum fyrir allt mannkyn. Markmiðin eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli hinna þriggja stoða sjálf- bærar þróunar. Sem dæmi um markmið eru ekkert hungur, menntun fyrir alla, jafnrétti kynjanna, góð atvinna og hag- vöxtur og aðgerðir í loftslags- málum. Eins og sjá má eru mark- miðin fjölbreytt en miða öll að því að gera heiminn sjálfbæran. Sem aftur sýnir okkur að sjálfbærni og sjálfbær þróun gera okkur ekki bara umhverfisvænni heldur bæta líf okkar á öllum sviðum um leið og tekið er tillit til takmarkaðra auðlinda náttúrunnar. Þannig getur þú velt því fyrir þér þegar þú sérð fjallað um vöru eða þjónustu sem sjálfbæra hvort rétt sé farið með hugtakið; er ver- ið að bæta samfélag, efnahag og náttúru til framtíðar? Við getum öll tekið þátt í að gera heiminn sjálfbærari með því að taka okkar skref í að gera samfélag okkar betra, hvort sem það er að stuðla að bættri menntun, betri heilsu, auknu jafnrétti, ábyrgri neyslu eða draga úr kolefnisspori okkar. Virðing fyrir og góð framkoma við samborgarana stuðlar líka alltaf að betra samfélagi og þar af leið- andi sjálfbærni. Hvað er sjálfbærni? Í átt að sjálfbærni dr. Snjólaug Ólafsdóttir snjolaug@andrymi.is ’ Sjálfbær nýtingorkuauðlinda þýðirað orkan er framleidd ognotuð þannig að það hafi jákvæð áhrif á sam- félagið í heild, að hún sé hagkvæm og hafi ekki neikvæð áhrif á náttúr- una, til skemmri og lengri tíma litið. Rekaviðarhálsmen frá kr. 15.500 Teketill úr postulíni kr. 36.500 Smádúkur úr lífrænni bómull kr. 4.900 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Roðtöskur Fagnaðar– fundir af öllum stærðum og gerðum Bókaðu 8–120 manna fundarými. Nánar á harpa.is/fundir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.