Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Síða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Síða 15
„Þessi atburðarás hefur verið ótrúleg,“ segir Salvadora Smith, eiginkona föður Gunnars, Roberts Smith. „Þegar Hlynur hafði samband við mig og ég sá að hann var að senda mér skilaboð frá Íslandi, fylltist ég eftirvæntingu. Hann sendi mér ljósmyndina af Robert á facebook og ég vissi strax að sonur Roberts var fundinn.“ Þegar Robert og Salvadora kynntust sagði hann henni á fyrsta stefnumóti þeirra að hann ætti son á Íslandi, hann vissi ekki nafn hans, en hann átti myndir af honum. „Mitt viðhorf var að þetta væri partur af lífi Roberts en ég fann að það kom Gunnari á óvart að ég hafði haldið upp á allar þær myndir sem Robert átti, af syni sínum og honum og móður hans. Ég upplifði ótrúlegan létti, að þarna væri sonur hans kominn og börnin mín urðu himinlifandi enda hafði alltaf verið talað um að þau ættu bróður og þau höfðu reynt að hafa uppi á hon- um.“ Salvadora segist strax hafa vanist því að Robert talaði mikið um móður Gunnars, Theódóru eða Dóru eins og hann kallaði hana. „Það fyndna var að hann fór líka að kalla mig Dora, en ég heiti Salvadora og Dora var ekki gælunafn sem neinn annar notaði.“ Börn Salvadoru fóru, þegar þau eltust, að „googla“ og reyna að finna hvort þau rækjust á vísbendingar um hvar Gunnar væri að finna. „Satt best að segja datt engum í hug að Theódóra myndi nokkurn tíma gefa Gunnari eftirnafnið Smith. Mér líður eins og hálfgerðum asna eftir á, að hafa ekki einu sinni dottið það í hug. Líka með smæðina á Íslandi, að það er ekki erfitt að finna fólk eins og hér í Bretlandi. Ég þekki ekki ástæður þess gjörla af hverju það slitnaði upp úr hjá foreldrum Gunnars. Róbert sagði mér að hann hefði vilj- að fá Dóru til sín með barnið út og ala það upp í Bretlandi. Honum fannst það stórt skref að kveðja allt sitt umhverfi og fara til Íslands. Faðir Dóru hefði viljað fá hann til Íslands. Það varð að minnsta kosti úr að þeirra sambandi og öllum sam- skiptum lauk.“ Salvadora lýsir eiginmanni sínum sem hjartahreinum og til- finningaríkum manni en hún telji að hann hafi ekki verið manneskja til að hafa sig í frammi í leitinni sjálfur. „Hann lét okkur börnin um þetta grúsk. Hann kunni varla á gemsa, hvað þá internetið, en ég veit að hann hefði innilega viljað hitta hann. Stundum ræddum við það, svo ég veit það fyr- ir víst. Þegar við sóttum Gunnar á flugvöllinn upplifðum við öll miklar tilfinningar, við gátum ekki hætt að faðma hann. Þetta er auðvitað stór viðbót við fjölskylduna, og ég er ákaflega þakklát að hafa eignast öll þessi stjúpbarna- og barna- barnabörn og það er ótrúlegt að geta verið í sambandi núna svona oft, á Facebook. Ég vona að Gunnar komi hingað sem oftast.“ Gátum ekki hætt að faðma hann Gunnar með Salvadoru Smith, ekkju Roberts Smith. Gunnar með systkinum sínum ytra í fyrsta sinn. Frá vinstri: Gunnar, Robert, Denise, Charlotte og Gemma. Gunnar heimsækir leiði föður síns síðasta sumar. 17.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Góð heyrn glæðir samskipti Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.