Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Qupperneq 37
eyða peningum en hún keypti sér
t.d. sportbíl þrátt fyrir að vera ekki
með bílpróf.
Hætti á Instagram
Það var ekki eintóm gleði hjá Cardi í
vikunni eftir þessa sögulegu
Grammy-verðlaunahátíð. Hún hefur
verið gagnrýnd fyrir að eiga verð-
launin ekki skilið. Cardi setti inn
myndband á Instagram þar sem hún
ver sig og eyddi síðan tímabundið út
Instagram-reikningnum sínum.
Aðdáendasíða afritaði myndbandið
áður en þetta gerðist.
Í því rifjar Cardi upp við-
brögðin við Grammy-
hátíðinni í fyrra þar sem
það var gagnrýnt að hún
hefði ekki fengið
verðlaun fyrir
„Bodak Yellow“
og skilur hún
því ekki vanda-
málið nú. Plata
hennar hafi
selst í tvöfaldri
platínusölu og verið á öll-
um topplistum.
Innrás í einkalífið
Platan heitir eins og áður
sagði Invasion of Privacy
og er titillinn bein tilvísun
í hvernig Cardi leið þeg-
ar hún var að taka upp
plötuna.
„Þessa síðustu mán-
uði þegar ég var að
taka upp plötuna hef ég orðið fyrir
mikilli árás á einkalíf mitt,“ sagði
hún í viðtalsþætti á útvarpsstöðinni
Sirius XM. „Mér finnst ég hafa gefið
fólki mjög mikið og fólk vill samt
meira.“
Dóttirin og Offset
Hún ítrekar að hún hafi lagt mjög
hart að sér við gerð plötunnar og
eytt óteljandi stundum í hljóðverinu
og hún hafi stundum gist þar dögum
saman, þótt hún hafi verið ólétt að
dóttur sinni, Kulture Kiari, sem er
nú sjö mánaða. Faðirinn er rapp-
arinn Offset en þau trúlofuðu
sig opinberlega í október
2017. Síðar kom í ljós að þau
giftu sig skömmu
fyrr á laun í
svefnherbergi
sínu. Hún til-
kynnti í
desember
sl. að þau
væru skilin
að skiptum en
Offset hafði haldið fram
hjá henni.
Þau mættu hins
vegar saman á
Grammy-verð-
launahátíðina um
síðustu helgi og fór
hann með henni á
svið þegar hún tók
við verðlaununum
fyrir bestu rapp-
plötuna.
Cardi B kom fram á
Adult Video News-
verðlaunahátíðinni í
Las Vegas í janúarlok.
AFP
17.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
KVIKMYNDIR Heimildarmynd um tónlistar-
manninn Chris Cornell, er í bígerð, samkvæmt
frétt Variety. Framleiðendur heimildarmynd-
arinnar er Vicky, ekkja Cornell, ásamt fram-
leiðslufyrirtæki Brads Pitt og Peters Berg,
Film 45.
Cornell var söngvari Soundgarden frá
stofnun 1984 og þangað til sveitin hætti árið
1997. Hann myndaði síðan sveitina Audioslave
ásamt meðlimum úr Rage Against the Mach-
ine, þar til meðlimir Soundgarden endurvöktu
sveitina 2011. Cornell lést langt fyrir aldur
fram, þann 18. maí 2017, eftir tónleika Sound-
garden í Detroit.
Heimildarmynd um Cornell
Chris Cornell á tónleikum
í Laugardalshöll árið 2007.
Morgunblaðið/Eggert
SJÓNVARP CBS Television
Studios og Nickelodeon vinna að
því að gera nýja Star Trek-
þáttaröð fyrir börn. Þættirnir
verða teiknaðir en handritshöf-
undar verða Kevin og Dan Hag-
eman, samkvæmt frétt Variety.
Þeir eru þekktir fyrir skrif sín
fyrir teiknimyndaþætti á borð við
Ninjago: Masters of Spinjitzu og
Trollhunters. Þeir unnu líka að
handriti myndanna Hótel Tran-
sylvanía og The Lego Movie og
The Lego Ninjago Movie.
Teiknaður Star Trek-heimur
„Mér finnst að líf mitt sé ævin-
týri og ég sé prinsessan, sem
fer úr fátækt í ríkidóm og allir
vilji skemma fyrir mér,“ sagði
Cardi í nýju viðtali við mars-
hefti bandaríska tímaritsins
Harper’s Bazaar. Hún kvartar
líka yfir því að langa ekki til að
vera ævintýraprinsessa lengur
heldur vilji hún bara ró og
næði. „Áður skipti allt mig
svo miklu máli, sambönd,
slúður. Núna finnst mér ég
ekki hafa tíma til að gera alla
glaða. Það skiptir mig ekki
margt máli lengur, bara ferill-
inn minn og barnið mitt.“
Vill frið
Umslag metsöluplötunnar sem
Cardi fékk Grammy-verðlaun fyrir.
Tónlistin okkar fjallar um þaðsem við upplifum í kringumokkur. Við vorum rosalega reið
hljómsveit en höfum í seinni tíð verið
að fjalla um þunglyndi, kvíða og að
læra að elska sjálfan sig. Við fjöllum
líka um alls kyns vandamál sem snúa
að því að búa á Íslandi. Við viljum að-
skilnað ríkis og kirkju til dæmis og
syngjum um það,“ segir Finnbogi
Örn Einarsson söngvari hljómsveit-
arinnar Great Grief en ásamt honum
eru í bandinu Gunnar Ágúst Thor-
oddsen, Leifur Örn Kaldal Eiríksson
og Fannar Már Oddsson. Strákarnir
fjórir eru á aldrinum 23 til 25 ára og
eru annað hvort í skóla eða vinnu
meðfram tónlistinni. Einnig spila
þeir í annarri hljómsveit sem ber
nafnið Une Misère.
Glíman við þunglyndi
Hljómsveitin hóf göngu sína árið
2013 undir nafninu Icarus en nafninu
var breytt árið 2015 í Great Grief.
Spurður um tónlistarstefnu segir
Finnbogi hana vera nokkurs konar
harðkjarnatónlist.
„Tónlistin er blanda af harðkjarna,
rokki og alls kyns jaðarstefnum. Við
erum vissulega reiðir ungir menn, að
hluta til. Ég var lengi þekktur fyrir
það að berja mig í andlitið með
míkrófóninum þangað til að blæddi,“
segir hann.
Finnbogi segist þjást af þunglyndi
sem hafi leitt til sjálfsvígstilraunar.
„Þann 29. apríl 2016 reyndi ég að
hengja mig. Ég var kominn á síðasta
snúning en við höfðum verið að túra
mjög mikið árinu á undan. Ég átti
mjög erfitt með þá breytingu að
koma aftur til Íslands og fara að lifa
venjulegu lífi aftur,“ segir hann.
„Þannig að nýja platan, Love, Lust
and Greed, er mjög mikið um þessi
mál,“ segir Finnbogi og er sann-
færður um að tónlistin hjálpi sér
mikið í glímunni við þunglyndi.
„Algjörlega. Meira að segja á þeim
tónleikum þar sem ég er alveg brjál-
aður er þetta alltaf mjög jákvæð upp-
lifun.“
Plötusamningur í höfn
Hljómsveitin hefur verið að koma sér
á framfæri í Bandaríkjunum og hafa
þeir félagar lagt upp í mörg ferðalög-
in með hljóðfærin í farteskinu.
„Þetta voru margar styttri ferðir,
oftar en ekki. Við fórum í þriggja
vikna túra og fórum líka á fullt af há-
tíðum, t.d. í Texas fórum við á So
What festival og svo fórum við á
mjög áhugaverða hátíð í Calgary,
Kanada. Þetta fór ekkert hátt á Ís-
landi og við gerðum þetta allt sjálfir.
Þetta voru svona „do it yourself“
vinnubrögð.“
Var ekkert erfitt að kynna sig í
Bandaríkjunum?
„Við bara mættum og spiluðum
þangað til að fólk kom og hlustaði,“
segir Finnbogi og nefnir að það hafi
borið árangur því nú hafa þeir skrif-
að undir samning við útgáfufyrir-
tækið No Sleep Records í Los Angel-
es.
„Það var algjör draumur að skrifa
undir hjá þeim, okkur hefur langað
til að skrifa undir samning frá upp-
hafi. Þeir heyrðu í okkur árið 2016 og
voru ofsalega hrifnir,“ segir Finn-
bogi.
Þann 23. febrúar er Great Grief
með útgáfutónleika á Húrra en þar
mun Elli Grill einnig troða upp ásamt
hljómsveitinni Grit Teeth. Einnig
mun DJ Dóra Júlía þeyta skífum.
„Þetta verður fjölbreytt pró-
gramm; við erum ekki bara með
reiða tónlist og ekki bara með dans-
tónlist. Við viljum bjóða alla vel-
komna,“ segir hann.
„Svo vorum við að tilkynna það í
gær að í apríl erum við að fara að
koma fram tvisvar á Roadburn, virtri
tónlistarhátíð í Hollandi.“
Hljómsveitina Great Grief skipa þeir Gunnar
Ágúst Thoroddsen, Leifur Örn Kaldal Eiríksson,
Finnbogi Örn Einarsson og Fannar Már Oddsson.
Ljósmynd/Art Bicnick
Reiðir ungir menn
Harðkjarnahljómsveitin Great Grief gaf nýlega út sína fyrstu breiðskífu,
Love, Lust and Greed. Þar fjalla þeir um ýmis þjóðfélagsmál, þunglyndi,
kvíða og leiðina til betra lífs. Útgáfutónleikar verða 23. febrúar á Húrra.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’ Við erum vissulegareiðir ungir menn, aðhluta til. Ég var lengiþekktur fyrir það að
berja mig í andlitið með
míkrófóninum þangað til
að blæddi.