Morgunblaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019
ALVÖRUMATUR
Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nokkur væta var á höfuðborgarsvæðinu í
gær eftir að þrumur og eldingar höfðu
leikið lausum hala í fyrrakvöld.
Veðrið var tiltölulega gott yfir daginn
en nokkuð bætti í vind um kvöldið. Að
sögn veðurstofunnar er spáð umhleyp-
ingum næstu daga og geta veðrabrigði
orðið ansi snörp að sögn veðurfræðings.
Er því mikilvægt að fylgjast vel með
veðurspá yfir helgina, sér í lagi ef ætlunin
er að ráðast í ferðalög milli landshluta eða
framkvæmdir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dansað yfir pollana við Reykjavíkurtjörn
Bankasýsla ríkisins, sem fer með
98,2% eignarhlut ríkisins í Lands-
bankanum og 100% eignarhlut í Ís-
landsbanka, hefur sent Bjarna
Benediktssyni, fjármála- og efna-
hagsráðherra, bréf, vegna launa og
starfskjara framkvæmdastjóra fé-
laga í meirihlutaeigu ríkisins.
Með því svarar Bankasýslan fyrir-
spurn ráðherra um málið frá 12.
febrúar sl. Spurði ráðherra m.a.
hvernig Bankasýslan hefði brugðist
við bréfi hans 6. janúar 2017 þar sem
fylgdu fyrirmæli um launastefnuna.
Til upprifjunar fluttist ákvörðun
um launakjör bankastjóra frá kjara-
ráði til stjórnar bankanna árið 2017.
Hafa launahækkanir frá árinu 2017
síðan orðið að umtalsefni eftir að
bankarnir birtu ársreikninga. Fram
kemur í bréfi Bankasýslunnar að
hún hafi brugðist við áðurnefndu
bréfi ráðherra, 6. janúar 2017, með
því að senda bréf til bankaráðs
Landsbankans og stjórnar Íslands-
banka 23. janúar 2017.
Skyldu tileinka sér hófsemi
Var þar m.a. tekið fram að ný lög
um kjararáð (130/2016) hefðu verið
samþykkt 22. desember 2016 og
myndu taka gildi 1. júlí 2017. Þá
sagði að opinber „fjármálafyrirtæki
skulu tileinka sér hófsemi þegar
kemur að launakjörum“.
Þá hafi verið vitnað til bréfs ráð-
herra frá 6. janúar 2017 varðandi
„mikilvægi þess að stjórnir hafi í
huga áhrif launaákvarðana á stöðug-
leika á vinnumarkaði og ábyrgð
félaganna í því sambandi“.
Bankasýslan rifjar svo upp að
hinn 30. júní 2017 hafi birst ný eig-
endastefna fyrir fyrirtæki, þar sem
„m.a. eru endurteknar áherslur
varðandi laun og starfskjarastefnu“.
Eftir að laun bankastjóra Íslands-
banka og Landsbankans komu til
umræðu sendi Bankasýslan fyrir-
spurn til bankanna. Fram kom í
bréfi til ráðherra að henni hefði ekki
unnist tími til að bregðast við bréf-
um bankanna. Hins vegar segir í
bréfi til ráðherra að „7. febrúar sl.
vöknuðu spurningar um hvort farið
hefði verið eftir ábendingum stofn-
unarinnar“. baldura@mbl.is
Bankasýslan hyggst gera
skýrslu um bankastjóralaun
Ætlunin að ráðherra fái skýrsluna innan tveggja vikna
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Þingmennirnir Karl Gauti Hjaltason
og Ólafur Ísleifsson tilkynntu í gær
að þeir hefðu gengið til liðs við Mið-
flokkinn. Þingmennirnir tveir náðu
kjöri á þing fyrir Flokk fólksins, en
voru reknir úr honum í kjölfar hins
svonefnda Klausturmáls í desember.
Í fréttatilkynningu frá Karli
Gauta og Ólafi segir að þeir telji sig
geta náð betri árangri í baráttumál-
um sínum á vettvangi Miðflokksins
og um leið styrkt málefnastöðu
flokksins. „Við höfum sameiginlega
sýn á sjálfstæði og fullveldi þjóðar-
innar, yfirráð hennar á auðlindum
sínum og mikilvægi vestrænnar
samvinnu,“ segir í tilkynningunni, en
þar segjast þeir einnig sammála um
nauðsyn þess að bæta kjör hinna
lægst launuðu og skapa öldruðum og
öryrkjum tækifæri til að bæta hag
sinn með aukinni vinnu án skerðing-
ar almannatryggingabóta.
Vilja kjósa upp á nýtt
Inga Sæland, formaður Flokks
fólksins, sagði í samtali við mbl.is í
gær að ákvörðun tvímenninganna
hefði ekki komið á óvart, en sagði að
þeir væru að svíkja kjósendur sína,
sem hefðu treyst þingmönnunum til
að vinna að góðum málum með
Flokki fólksins en ekki Miðflokkn-
um. „Kjósendur treystu á að þessir
menn væru heilir en þeir voru það
greinilega ekki. Þetta eru bara svik-
arar, það er það sem þeir eru.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, lýsti hins
vegar yfir ánægju sinni með lið-
styrkinn í bréfi sem hann sendi til
allra meðlima Miðflokksins, sem
verður nú þriðji stærsti flokkur á
þingi og stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn. Sagði Sigmundur Davíð
jafnframt í bréfi sínu að flokkurinn
hygðist fara fram á að kosið yrði aft-
ur í nefndir þingsins, svo að nefnda-
skipanin tæki mið af breyttum hlut-
föllum í stjórnarandstöðu og á
þinginu í heild.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti
Alþingis, sagði við Morgunblaðið að
slíkt erindi hefði ekki borist til sín í
gær. Gerði hann ráð fyrir að Karl
Gauti og Ólafur myndu rita sér bréf,
þar sem þeir tilkynntu með formleg-
um hætti vistaskiptin, sem yrði lesið
upp í byrjun næsta þingfundar á
þriðjudaginn og að afgangurinn
myndi ráðast í framhaldi af því. „Það
snýr þó kannski ekki með beinum
hætti að þingforseta, heldur sýnist
mér það frekar vera eitthvað sem
verði tekið upp á vettvangi formanna
þingflokkanna,“ segir Steingrímur.
Karl Gauti og Ólafur í Miðflokkinn
Miðflokkurinn orðinn stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn Vill að kosið verði aftur í þingnefndir
Morgunblaðið/Hari
Þingfundur Þingmenn Miðflokksins eru nú orðnir níu talsins.
Ólafur
Ísleifsson
Karl Gauti
Hjaltason