Morgunblaðið - 23.02.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019
✆ 585 8800
Við leggjum kapp á að veita vandaða og trausta þjónustu í fasteignaviðskiptum
og leitumst við að ná hámarksárangri fyrir viðskiptavini okkar
Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is
44.800.000,-
Falleg 2-3ja herb. risíbúð 74.9 m2 Glæsilegt útsýni
Falleg risíbúð með glæsilegu útsýni í mjög fallegu steinhúsi við
Fjólugötu í Þingholtunum. Eignin er skráð 74 m2, en gólfflötur er stærri
þar sem hluti eignarinnar er undir súð.
Fjólugata 19a – 101 Reykjavík
Laust strax
Atvinnuhúsnæði til leigu, 292,6 m2
Húsnæðið er á tveimur hæðum í bakhúsi við Suðurgötu, inngangur frá
Suðurgötu og aftan við húsið. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már
löggiltur fasteignasali í síma 865-8515
Suðurgata 10 – 101 Reykjavík
Sléttuvegur 15, 103 Reykjavík
Fjölbýli, 3-4ra herb., 133,3 m2 Laus strax.
Afar falleg og björt íbúð á 1. hæð í vönduðu og eftirsóttu fjölbýlishúsi
fyrir 55 ára og eldri. Íbúðin er skráð 133,3 m2 en að auki er 11,5 m2
flísalögð, yfirbyggð og upphituð verönd til suð- vesturs.
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali
Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali
Opið hús
mánudag 25. feb.
16:45 til 17:15
32.500.000,-
Fjölbýli 2ja herb - 58,4 m2
Fellsmúli 2 – 108 Reykjavík
Falleg og björt 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð í góðu fjölbýlishúsi við
Fellsmúla.
64.900.000,-
Fyrir síðustu borgarstjórnar-kosningar sýndi skoðana-
könnun að konur voru mun líklegri
til að kjósa Samfylkinguna en
karlar.
Sama könnunsýndi að yngstu
og elstu kjósend-
urnir voru líkleg-
astir til að kjósa
Samfylkinguna,
mun líklegri en þeir
sem voru á miðjum aldri. Þetta var
enn meira afgerandi hjá yngstu
kjósendunum en þeim elstu.
Af þessu var augljóst að afarhagfellt væri fyrir Samfylk-
inguna ef kjörsókn hinna yngstu
yrði sem mest og eins ef kjörsókn
eldri kvenna yrði góð.
Svo gerðist það að fyrir kosn-ingar sendi borgin frá sér sér-
stök skilaboð til einmitt þessara
hópa, yngstu kjósendanna og eldri
kvenna!
Þetta gerðist þrátt fyrir aðvar-anir stofnana og ráðuneytis
um að þetta væri ekki í lagi. Á dag-
inn kom svo að þetta reyndist lög-
brot.
Svör Dags B. og borgarstjórnar-meirihlutans eru meðal annars
þau að embættismenn hafi séð um
að framkvæma þetta lögbrot.
Auðvitað er það fjarstæða eneins og framganga embættis-
manna borgarinnar sýnir þá breyt-
ir það svo sem engu.
Þeir eru margir farnir að líta ásig sem snattara meirihlutans í
borginni, ekki starfsmenn allra
borgarbúa.
Dagur B.
Eggertsson
Embættismenn
meirihlutans
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sigurður Kristinsson var dæmdur
í fjögurra og hálfs árs fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
fyrir aðild að Skáksambandsmálinu
svokallaða. Auk
hans voru tveir
til viðbótar
dæmdir til fang-
elsisvistar; Há-
kon Örn Berg-
mann hlaut tólf
mánaða dóm og
Jóhann Axel
Viðarsson var
dæmdur í níu
mánaða fangelsi,
þar af sex mán-
uði skilorðsbundna. Frá þessu var
greint á vef Fréttablaðsins.
Mennirnir þrír voru ákærðir fyr-
ir smygl á fimm kílóum af amfeta-
míni, sem falin voru í skákmunum
og send með pakka sem stílaður
var á Skáksamband Íslands.
Sigurður kaus að gefa ekki
skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð
málsins, en Hákon sagðist ekki
hafa vitað að í pakkanum hefðu
verið fíkniefni. Hann hefði talið
peninga í honum. Það hefðu því
runnið á sig tvær grímur þegar
Sigurður hefði sagt sér að það
væri ekki sniðugt að hann tæki á
móti pakkanum sjálfur.
Jóhann játaði að hafa sótt pakk-
ann fyrir utan húsnæði Skák-
sambands Íslands. Hann sagðist
þó ekki heldur hafa haft hugmynd
um að hann innihéldi fíkniefni,
heldur hefði sig grunað að þetta
væru sterar. Við aðalmeðferð
málsins, sem hófst í byrjun janúar,
sagði Jóhann að Hákon hefði beðið
sig að sækja pakkann og heitið því
að fella niður gamla skuld í stað-
inn. Hann hefði farið og sótt
sendinguna samkvæmt leiðbein-
ingum frá Hákoni og átt að skilja
hana eftir á tilteknum stað í Mos-
fellsbæ og setja ruslapoka yfir
hana ef það skyldi rigna. Hann
hefði síðan verið umkringdur lög-
reglumönnum sem handtóku hann.
Þar kom einnig fram að Sig-
urður hefði lent í lausafjárvanda
sumarið 2017 og Hákon þá lánað
honum fjármuni. Hákon neitaði því
að hafa fjármagnað fíkniefna-
kaupin, heldur hefði hann aðeins
ætlað að aðstoða Sigurð við að
standa við skuldbindingar eins og
t.d. afborganir af íbúðaláni og
heimilisbókhaldið. Mennirnir hafa
fjórar vikur til að ákveða hvort
niðurstöðunni verði áfrýjað til
Landsréttar.
Sigurður í fjögurra
og hálfs árs fangelsi
Þrír dæmdir í Skáksambandsmálinu
Sigurður
Kristinsson
Stjórn Starfsmannafélags Ráðhúss
Reykjavíkur óskar vinnufriðar í
skjóli fyrir stjórnmálaumræðu sem
eigi „með réttu að eiga sér stað á
milli kjörinna fulltrúa og á pólitísk-
um vettvangi“. Segir meðal annars í
tilkynningu félagsins að í stjórnsýslu
borgarinnar starfi fólk sem þyki
vænt um vinnuna sína og vinni þar af
„heiðarleika og einlægni að hag
borgarbúa út frá ákvörðunum og
stefnu borgarstjórnar hverju sinni“.
Tilkynningin kemur í kjölfar
færslu sem Stefán Eiríksson borgar-
ritari skrifaði í fyrradag á starfs-
mannasíðu borgarinnar á Facebook,
þar sem hann gagnrýndi harðlega
framgöngu ónefndra borgarfulltrúa,
sem hefðu m.a. eitrað starfs-
umhverfi starfsfólks borgarinnar
með „fordæmalausri hegðun, atferli
og framgöngu“.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn, sagði
í gær að Stefán þyrfti að skýra
færslu sína, þar sem hann nafn-
greindi ekki þá borgarfulltrúa sem
hann vísaði til sem „tudda á skóla-
lóðinni“. Sagði Eyþór að heiðarlegra
hefði verið af Stefáni að gera það og
nefna þau atvik sem um væri að
ræða, annars lægju allir undir grun.
Kærunni vísað frá
Sýslumaður vísaði í fyrradag frá
kæru Vigdísar Hauksdóttur,
borgarfulltrúa Miðflokksins, á
borgarstjórnarkosningunum 2018,
en hún hafði kært þær með vísan til
úrskurðar Persónuverndar fyrr í
mánuðinum um ólögleg SMS-
skilaboð til kjósenda. Tilkynnti Vig-
dís í gærmorgun á facebooksíðu sinni
að hún hefði þegar áfrýjað ákvörð-
uninni til dómsmálaráðuneytis, og að
hún hygðist tæma allar kæruleiðir
innanlands áður en frekari ákvarð-
anir yrðu teknar. sgs@mbl.is
Óska eftir vinnufriði í Ráðhúsinu
Stefán þarf að útskýra skrif sín, segir Eyþór Vigdís áfrýjar til ráðuneytis