Morgunblaðið - 23.02.2019, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019
Moskvu. AFP. | Tugir háhyrninga og
mjaldra, sem veiddir voru lifandi til
að selja þá í hvala- og sædýrasöfn,
eru nú í sjókvíum í Rússlandi og útlit
er fyrir að þeim verði haldið þar
mánuðum saman vegna deilu milli
ráðuneyta um hvort heimila eigi sölu
þeirra eða láta þá lausa. Málið hefur
vakið athygli fjölmiðla víða um heim
og umræðu um hvort binda eigi enda
á veiðarnar.
Rússland er eina landið þar sem
heimilt er að veiða háhyrninga og
mjaldra í „fræðsluskyni“. Þessi
smuga í lögunum hefur verið notuð
til að veiða og flytja út hvali, einkum
til að mæta mikilli eftirspurn eftir
þeim í hvala- og sædýrasöfnum í
Kína. Veiðarnar hafa sætt mikilli
gagnrýni að undanförnu vegna
mynda af alls ellefu háhyrningum og
87 mjöldrum sem haldið er í litlum
sjókvíum nálægt bænum Nakhodka
við austurströnd Rússland. „Svo
margir hvalir hafa aldrei áður verið
veiddir og geymdir á sama stað,“
sagði Dmítrí Lísítsyn, formaður
rússneskrar náttúruverndarhreyf-
ingar sem hefur barist fyrir því að
hvalirnir verði látnir lausir.
Gagnrýnin á veiðarnar eftir að
myndirnar voru birtar varð til þess
að yfirvöld í Rússlandi hófu tvær
rannsóknir, annars vegar á því hvort
veiðarnar væru löglegar og hins veg-
ar hvort meðferðin á hvölunum sam-
ræmdist lögum um aðbúnað dýra.
Umhverfisstofnun landsins hefur
neitað að heimila útflutning á hvöl-
unum. Talið er að rannsóknirnar og
hugsanleg dómsmál vegna ákvörð-
unar umhverfisstofnunarinnar geti
tekið marga mánuði. Ekki bætir úr
skák að ágreiningur er í stjórnkerf-
inu um hvað gera eigi við hvalina.
Umhverfisráðuneytið vill að hvöl-
unum verði sleppt sem fyrst en land-
búnaðarráðuneytið, sem fer með
sjávarútvegsmál, hefur varið veið-
arnar og sagt að heimila eigi útflutn-
inginn. Lísítsyn segir að hugsanlega
verði deilan ekki leyst nema Vladim-
ír Pútín Rússlandsforseti höggvi á
hnútinn.
Hvalasérfræðingar í Moskvu
segja að svo mörgum hvölum hafi
aldrei verið sleppt í hafið í einu.
Landbúnaðarráðuneytið segir hættu
á að margir hvalanna drepist verði
þeim sleppt en hvalasérfræðingar
telja miklar líkur á því að frelsun
hvalanna myndi heppnast vel.
Vaxandi eftirspurn í Kína
Háhyrningarnir sem eru í haldi
tilheyra stofni sem étur seli og
blandast ekki háhyrningum sem lifa
á fiski. Embættismenn umhverfis-
stofnunarinnar segja að í stofninum
séu aðeins 200 dýr og telja að hann
sé í útrýmingarhættu. Landbúnar-
ráðuneytið segir hins vegar að há-
hyrningar séu ekki í neinni útrým-
ingarhættu.
Flestir hvalanna sem veiddir hafa
verið við strendur Rússlands eru
seldir til Kína þar sem 74 sædýra-
söfn eru með hvali og höfrunga til
sýnis. Verið er að reisa fleiri sæ-
dýrasöfn og eftirspurnin hefur því
aukist, einkum eftir háhyrningum
sem njóta mestra vinsælda. Sautján
háhyrningar hafa verið seldir frá
Rússlandi til Kína frá árinu 2013 og
talið er að verðið á hverjum þeirra
hafi numið jafnvirði rúmra 120 millj-
óna króna.
Tugir stuðningsmanna hvalveið-
anna trufluðu mótmæli andstæðinga
þeirra í Moskvu á laugardaginn var
og sögðu að margir sjómenn myndu
missa atvinnuna ef veiðarnar yrðu
bannaðar.
Deilt um hvali
sem voru
veiddir lifandi
Mjaldurinn notar hátíðnihljóð og hljóðendurkast til að finna fæðu og vakir í hafís
Mjaldurinn
Heimildir: WWF/National Geographic/Animaldiversity.com
Hámarksaldur:
30 til 35 ár
Liðugur háls gerir
höfuðið hreyfanlegra en
venjulegt er hjá hvölum
Þykkt spiklag
til að einangra
búkinn frá
köldum sjónum
Lengd:
Allt að 6 m
Þyngd:
900 til 1.300 kg
Bakhryggur
Mjaldurinn er ekki með neinn
bakugga, hugsanlega vegna
þess að það hjálpar honum
að halda í sér hita í köldum sjó
Blástursop
Eins og aðrir hvalir
þarf mjaldurinn að
komast upp á yfirborðið
til að anda
Lítil og ávöl bægsli
Áberandi enni
sem er sveigjan-
legt og getur
breytt um form
Einkenni
Mjaldrar eru félagslyndir og hjarðdýr,
oftast eru um 15 dýr í hverri hjörð
Fæðast gráir eða brúnir en verða
síðan hvítir
Spjalla samanmeð syngjandi hljómi, tísti,
ískri og blístri. Hvalveiðimenn kölluðumjaldurinn
„kanarífugl hafsins“
Veiddir til að nýta húðina og hvalspikið
Vísindamenn Bandaríkjahers rannsökuðu
mjaldra á áttunda áratug aldarinnar sem
leið, einkum vegna hljóðendurkastsins
Á meðal fyrstu hvalategundanna sem veiddar
voru til að hafa til sýnis, sá fyrsti var sýndur
í New York árið 1861
Veiðar og rannsóknir
Verndarstaða
Áætlaður fjöldi: 136.000
Fæða
Lax, loðna, síld, rækja, þorskur,
krabbadýr og lindýr
Sést hefur til mjaldra kafa í allt að
350 m dýpi í fæðuleit
Afræningjar
Hvítabirnir
Háhyrningar
Útbreiðsla
Staða skv. válista IUCN: Lítil hætta á því að tegundin
verði í útrýmingarhættu í náinni framtíð
AFP
Í haldi Tvær af sjókvíunum þar sem tugum háhyrninga og mjaldra hefur
verið haldið nálægt bænum Nakhodka við austurströnd Rússlands.
Hátt í 100 háhyrningum og mjöldr-
um haldið í sjókvíum í Rússlandi
GRANDAVEGUR 42
Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is
Sundlaug
4 mín.
11 mín.
Matvöruverslun
2 mín.
11 mín.
Háskóli
4 mín.
15 mín.
Grunnskóli
2 mín.
4 mín.
Leikskóli
1 mín.
5 mín.
Líkamsrækt
3 mín.
20 mín.
Bakarí
1 mín.
3 mín.
AÐEINS
9
ÍBÚÐIR
EFTIR
Konudagstilboð
20% afsláttur af ilmvörum og kósýfötum
Kóði í vefverslun : KONA
SMÁRATORGI | KRINGLAN
GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS