Morgunblaðið - 23.02.2019, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.02.2019, Qupperneq 30
Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019 PáSkAfErÐiR Suðurlandsbraut 22 - Sími 415 0770 - www.farvel.is - farvel@farvel.is * per mann í tvíbýli EiNsTaK uR LeIðAnG uR ÖrFá SæTiLaUs BeSt Á BaLí 40.000 kR.AfSlÁtTuRtIl 10. mArS LúXuS Á LáGmArK sVeRðI FuLlT VeRð 399.000 kR. 30% AfSlÁtTuR BaLí Er PaRaDíS 13. til 28. apríl. - 358,000 kr* Þægileg ferð sem leiðir fólk um dulúðlegt og hrífandimannlíf og iðagræna náttúru eyjunnar. ElDaR InDlAnDs 12. til 23. apríl - 387,000 kr Gullni þríhyrningur Indlands: Delí, Jaípur og Agra ásamt Varanasi við Gangesfljót. UnDuR MaDaGaSkAr 15. til 26. apríl - 588,000 kr* Kjarnmikill ogmetnaðarfullur leiðangur umnáttúru- ogmannlíf Madagaskar. SóL í TaÍlAnDi 14. til 30. apríl - 279,000 kr* Sól og sæla í Taílandi. Ljúfir stranddagar í HuaHin ogævintýri Bangkok. Frjálsi lífeyrissjóð- urinn fagnaði á síðasta ári 40 ára starfs- afmæli sínu, sem telj- ast verður gott fyrir opinn lífeyrissjóð, sem öllum er frjálst að greiða til. Árangur líf- eyrissjóðsins allt frá stofnun er góður. Frjálsi er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins með um 237 milljarða í hreina eign, um 58 þúsund sjóð- félaga og yfir 3,5% samanlagða raunávöxtun í samtryggingar- og séreignardeild skyldulífeyrissparn- aðar síðastliðin 20 ár. Þar að auki hefur sjóðurinn vaxið hlutfallslega meira en íslenska lífeyriskerfið í áraraðir. Jákvæðum áhrifum sjóðsins á líf- eyriskerfi landsmanna í gegnum ár- in og baráttu hans fyrir valfrelsi al- mennings í lífeyrismálum er vert að halda á lofti. Þá skal því einnig hald- ið til haga að lífeyriskerfið er, og á að vera, í sífelldri þróun. Sigurður R. Helgason, fyrrverandi formaður stjórnar sjóðsins, skrifaði grein í til- efni af 20 ára afmæli sjóðsins, þar sem hann undirstrikaði mikilvægt hlutverk sjóðsins í þróun íslenska lífeyriskerfisins og vitnaði þar til nýrrar löggjafar. Í grein Sigurðar sagði: „Frjálsi lífeyrissjóðurinn er brautryðjandi á sínu sviði og hefur haft forgang um bætta þjónustu við lífeyrisþega, sem nú er búið að stað- festa í lög 20 árum síðar. Sjálfsögð þjónusta, svo sem regluleg yfirlit, árlegir sjóðfélagafundir og fulltrúar sjóðfélaga í stjórn sjóðsins, hefur um árabil verið veitt sjóðfélögum Frjálsa lífeyrissjóðsins.“ Það gleymist stundum, en margt af því sem við teljum sjálfsagt í dag hefur ekki alltaf verið það. Umræða um lífeyrismál mikilvæg Á 40 ára afmælisárinu tók ég við sem stjórnarformaður Frjálsa líf- eyrissjóðsins og það er mér sönn ánægja að taka við kefli forvera míns, Ásgeirs Thor- oddsen. Markmið stjórnar Frjálsa líf- eyrissjóðsins hefur allt- af verið að ná árangri fyrir hönd sjóðfélaga. Lífeyrissjóðir hafa ver- ið í umræðunni síðustu misseri og að mínu mati eiga þeir alltaf að vera það. Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins fagnar allri umræðu um lífeyrismál, ásamt samanburði við aðra sjóði, því sjóðurinn stendur framarlega á öll- um sviðum. Að mínu mati þurfa líf- eyrissjóðir að hlusta á eigendur sína, sjóðfélagana, og eiga við þá samtal á öllum stigum æviskeiðsins. Aukin þekking og áhugi sjóðfélaga á þessum mikilvægu málum fæst að- eins með aukinni umræðu og fræðslu. Á komandi misserum mun Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggja áherslu á að byggja ofan á þann trausta grunn sem lagður hefur verið, meðal ann- ars með því að auka gagnsæi í starf- semi sjóðsins enn frekar. Aukið gagnsæi felst til að mynda í enn betri upplýsingagjöf til sjóðfélaga, sem mun m.a. koma fram á vef sjóðsins sem nýlega var opnaður í endurbættri útgáfu. Þá mun sjóð- urinn jafnframt halda áfram að berjast fyrir auknu valfrelsi al- mennings þegar kemur að lífeyris- málum. Hagsmunir sjóðfélaga í fyrirrúmi Íslenskir lífeyrissjóðir sjá ýmist um rekstur og eignastýringu sjálfir, eða úthýsa til fjármálafyrirtækja, með það að markmiði að ná fram hagræði og góðri ávöxtun. Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur ætíð kosið að úthýsa nær allri sinni starfsemi og hefur átt farsælt samstarf við Arion banka síðastliðin 10 ár. Þetta rekstrarfyrirkomulag á stóran þátt í þeirri velgengi sem sjóðurinn hefur notið allt frá stofnun hans fyrir 40 árum. Rekstrarsamningur Frjálsa lífeyrissjóðsins og Arion banka er aðgengilegur á vef Frjálsa fyrir þá sem vilja kynna sér hann. Undanfarið hefur rekstrar- fyrirkomulag sjóðsins verið í um- ræðunni. Ég þakka þeim sjóð- félögum sem hafa gefið sér tíma til að rýna starfsemi sjóðsins til gagns og legg á sama tíma áherslu á mikil- vægi þess að umræðan sé mál- efnaleg og byggð á staðreyndum. Það er mín einlæga skoðun að ef við ætlum að vinna saman að því að bæta lífeyriskerfið í heild sinni eða einstaka sjóði, þá þurfi allir þátttak- endur umræðunnar að sýna ábyrgð. Valfrelsi í lífeyrismálum Sjóðfélagar Frjálsa hafa raun- verulegt frelsi þegar kemur að líf- eyrissparnaði og áhrif á þróun sjóðsins. Frá og með næsta ársfundi Frjálsa lífeyrissjóðsins verða allir stjórnarmenn sjóðsins kosnir af sjóðfélögum en jafnframt hefur það ætíð verið í höndum sjóðfélaga að taka ákvarðanir um breytingar á samþykktum sjóðsins. Sjóðfélagar með skyldusparnað í Frjálsa geta valið um tvær leiðir þegar kemur að ráðstöfun iðgjalda í séreign og sam- tryggingu og allt að 78% af 15,5% iðgjaldi fer í erfanlega séreign. Þá hafa sjóðfélagar jafnframt úr mis- áhættumiklum fjárfestingaleiðum að velja fyrir séreign sína. Ég vil nýta tækifærið og þakka sjóðfélögum Frjálsa lífeyrissjóðsins það traust sem þeir hafa veitt stjórnendum sjóðsins á 40 ára starfsævi hans. Með von um áframhaldandi far- sælt og gott samband. Frjálsi lífeyrissjóðurinn í 40 ár Eftir Ásdísi Evu Hannesdóttur »Markmið stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðs- ins hefur alltaf verið að ná árangri fyrir hönd sjóðfélaga. Ásdís Eva Hannesdóttir Höfundur er stjórnarformaður Frjálsa lífeyrissjóðsins. Nýlegt svar heil- brigðisráðuneytis við erindi Brákarhlíðar, hjúkrunar- og dvalar- heimilis í Borgar- byggð, er vonbrigði fyrir byggðarlagið. Þessi viðbrögð endur- spegla á vissan hátt skilningsleysi á að- stöðu samfélaga í hin- um dreifðu byggðum til að halda úti full- nægjandi þjónustu fyrir íbúa sem eru komnir á efri ár. Erindið var fyrst viðrað við ráðuneytið árið 2016 og fól í stuttu máli annars vegar í sér beiðni um að bæta við fjórum nýjum rýmum í húsakynn- um Brákarhlíðar og hins vegar að fjölga hjúkrunarrýmum og fækka þá á móti dvalarrýmum, eitt á móti einu. Um er að ræða mun hag- kvæmari útfærslu bæði fjárhags- lega og framkvæmdarlega heldur en að byggja upp ný rými frá grunni. Kjarninn í svari heilbrigðisráðu- neytisins var sá að því var hafnað að útbúin verði ný hjúkrunarrými í Brákarhlíð. Því til stuðnings er vísað til fjárlaga og í þá staðreynd að heilbrigðisumdæmi Vesturlands sé eitt best setta heilbrigðis- umdæmi landsins með tilliti til fjölda hjúkrunarrýma. Einnig kemur það fram að ráðuneytið sé til í að breyta þeim dvalarrýmum sem heimilið hefur nú rekstrarleyfi fyrir í hjúkrunarrými en með því skilyrði að tvö dvalarrými verði sett á móti einu hjúkrunar- rými. Brákarhlíð í lykil- hlutverki í sam- félaginu Brákarhlíð er fram- sækin stofnun sem spilar lykilhlutverk í samfélaginu okkar í Borgarbyggð og lagður hefur verið mikill metn- aður í að byggja upp þá aðstöðu sem þar er í dag. Stofnunin er vel rekin fjárhagslega, starfsfólkið er gott og aðstaðan til fyrirmyndar. Það sem hefur varpað skugga á starfið síðustu ár er að til staðar hafa verið biðlistar, bæði eftir hjúkrunar- og dvalarrýmum, og hefur sú staða komið upp að eldri íbúar hafa þurft að leita til ann- arra sveitarfélaga til að fá viðhlít- andi þjónustu fjarri sínum nánustu sem er ekki ásættanlegur kostur í stöðunni. Á biðlista eftir dvalar- rými eru nú sjö einstaklingar og eftir hjúkrunarrými 12, þar af fimm sem eru með samþykkt flutningsmat frá dvalarrými yfir í hjúkrunarrými. Samkvæmt hug- myndafræðinni sem fram kemur í svari ráðuneytisins þá á að fórna tveimur dvalarrýmum á móti einu hjúkrunarrými sem veldur því að heimilismönnum í Brákarhlíð fækkar og þar með standa fullbúin rými auð. Aðstöðumunur í dreif- og þéttbýli Sú stefna að gera öldruðum ein- staklingum kleift að dvelja heima hjá sér eins lengi og mögulegt er, er í grundvallaratriðum mjög góð en aðeins ef önnur viðeigandi þjón- ustuúrræði eru til staðar. Í hinum dreifðari byggðum er oft á tíðum erfiðara og mun fjárfrekara að halda úti heimahjúkrun en þá skiptir enn meira máli að grunn- þjónustan sé til staðar til að taka á móti þeim einstaklingum sem ekki geta dvalið heima og fengið nauð- synlega þjónustu. Þetta er raun- verulegt vandamál sem fjölkjarna samfélög með öfluga byggð í dreif- býlinu glíma við og erum við í Borgarbyggð engin undantekning. Þá hefur læknaþjónusta í miklum mæli færst til höfuðborgarinnar Að spara aurinn en kasta krónunni Eftir Lilju Björgu Ágústsdóttur Lilja Björg Ágústsdóttir »Ég vil hvetja heil- brigðisráðherra og viðkomandi ráðuneyti til að endurskoða afstöðu sína og nýta þetta dauðafæri til að fjölga rýmum í Brákarhlíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.