Morgunblaðið - 23.02.2019, Page 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019
Með innblæstri frá birtunni í Provence, skapaði L’OCCITANE hið nýja
Immortelle Reset sem býr yfir kröftugri blöndu náttúrulegra
innihaldsefna. Gullin hylki sem búa yfir kröftum Immortelle
ilmkjarnaolíunnar, fljóta í einstöku serumi úr kryddmæru sem hjálpar
húð þinni að endurnýja sig eftir erilsaman dag.
Sýnilegan mun má sjá á húðinni sem virðist ÚTHVÍLD og FERSK.
loccitane.com
ÚTHVÍLD OG ENDURNÆRÐ
VAKNAÐU MEÐ FERSKA OG GEISLANDI HÚÐ
#HelloGoldMorning
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
Alltaf er nú gott að
hrósa fólki, taka eftir
öllu því jákvæða sem er
að gerast í lífi okkar og
tilveru og þakka fyrir
það sem vel er gert.
Mikið ber ég mikla
virðingu fyrir og er
þakklátur fyrir allt okk-
ar hlýja, góða og vand-
aða heilbrigðisstarfs-
fólk, sem leggur sig
fram dag eftir dag til að gera okk-
ur ævigönguna bærilegri.
Hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða, geislafræð-
inga, líftækna, sjúkra-
þjálfara og aðra sem
starfa í kringum þá.
Þá er maður ekki síst
þakklátur fyrir læknana
okkar færu og góðu og
lyfjafræðingana. Allt
þetta blessaða fólk hefur
lagt á sig að vera í erfiðu
og krefjandi námi jafn-
vel svo árum skiptir til
að læra að bera um-
hyggju fyrir sam-
ferðafólki sínu og skjólstæðingum
með því að greina sjúkdóma, lina þján-
ingar, lækna, þjálfa, liðka og líkna.
Þetta er fólk sem starfar iðulega undir
miklu álagi, oft við mjög erfiðar að-
stæður. Framkvæma vandasamar
skurðaðgerðir, beita hárnákvæmum
geislum, stöðugt vakandi fyrir nýjum
lyfjum og öðrum meðferðarúrræðum.
Og erfiðast er nú líklega að þurfa,
jafnvel á hálftíma fresti, að greina
skjólstæðingum sínum frá því að kom-
ið hafi í ljós eftir rannsóknir og mæl-
ingar að viðkomandi sé með ill-
læknanlegan og jafnvel ólæknanlegan
sjúkdóm. Krabbamein eða aðra óáran.
Ég bið því góðan Guð, höfund lífs-
ins, kærleikans og friðarins, að blessa
alla þessa mikilvægu þjóna í okkar
samfélagi og um heim allan og fjöl-
skyldur þeirra.
Hann andi á þau með mætti sínum
og gefi þeim styrk til að takast á við
sín krefjandi og vandasömu en von-
andi líka gefandi verkefni. Hann upp-
örvi þau öll sem kölluð hafa verið til að
vera farvegur kærleika hans á þessu
sviði og gefi þeim náð sína til að starfa
í auðmýkt. Og að þau fái að upplifa og
finna að þau starfi sem framlengdur
armur upprisukrafts lífsins sem linar
þjáningar, líknar og læknar. Hans
sem gerir alla hluti nýja.
Ég hvet okkur öll til að biðja fyrir
þeim og hugsa til þeirra með hlýjum
hug og með þakklæti í hjarta.
Virðingarfyllst með þakklæti og
kærleikskveðju.
Lifi lífið!
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
»Ég bið að þau upplifi
og finni að þau séu
framlengdur armur upp-
risukrafts lífsins sem lin-
ar þjáningar, líknar og
læknar. Hans sem gerir
alla hluti nýja.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Í þakklæti og virðingu fyrir heilbrigðisstarfsfólki
Á undanförnum ár-
um og misserum hafa
fjölmargir sérfræð-
ingar og leikmenn á
sviði raforkumála
bent á hversu óhag-
kvæm virkjun á
Ófeigsfjarðarheiði sé
og valdi miklum og
óafturkræfum nátt-
úruspjöllum. Þessi
viðhorf endurspeglast
í aðsendum athugasemdum við
breytingartillögu á deiliskipulagi
Árneshrepps sem auglýst var í
haust í annað sinn. Við þetta bæt-
ist síðan ný og vönduð skýrsla En-
vironice sem fjallar m.a. um að
friðlýsa Drangajökulssvæðið.
Það hefur lengi verið vitað að
hægt væri að virkja í Ófeigsfirði,
en áður en HS orka/Vesturverk
kom að borðinu höfðu hvorki
Orkubú Vestfjarða né Lands-
virkjun neinn áhuga á þessum
virkjunarkosti. Gerðu sér vænt-
anlega vel grein fyrir að virkjun á
þessum stað í órafjarlægð frá
dreifikerfinu væri bæði dýr og
óhagkvæm, og mundi með engu
móti standa undir lögbundnum
tengikostnaði.
Málið tók hinsvegar aðra stefnu
með pólitísku inngripi iðnaðar-
ráðherrans Ragnheiðar Elínar
sem, eins og kunnugt er, setti
reglugerð sem gefur þeirri virkjun
sem fyrst tengist nýjum punkti af-
slátt af öllum tengikostnaði og
sparar þannig HS orku/Vestur-
verki milljarða. Þannig liðkaði þá-
verandi ráðherra verulega fyrir
þessu verkefni. Kostnaðurinn, ef
af þessum skandal verður, mun
því lenda á almennum raforkunot-
endum. Þetta plott var eitt af
fyrstu afrekum HS Orku/Vestur-
verks vegna þessarar fyrirhuguðu
virkjunar.
En Hvalárvirkjun vermir hins
vegar áfram botnsætið sem óhag-
kvæmasti virkjunarkosturinn í
nýtingarflokki Rammaáætlunar.
Ókostir þessarar virkjunar felast
ekki síst í gríðarlegum og óaftur-
kræfum umhverfisspjöllum, og má
þá minna á það að umhverfismat
vegna línulagna hefur enn ekki
farið fram, en ætti að sjálfsögðu
að liggja fyrir samhliða mati á
umhverfisáhrifum vegna vega-
gerðar og virkjunarinnar sjálfrar.
Það mat fékk eins og kunnugt er
falleinkunn hjá Skipulagsstofnun.
Það voru ýmsir sem spáðu því
að aðkoma HS orku að virkjun á
Ófeigsfjarðarheiði mundi ekki hafa
bætandi áhrif á hið fámenna sam-
félag í Árneshreppi. Það hefur því
miður gengið eftir.
HS orka/Vesturverk hefur
stundað blygðunarlausan blekk-
ingarleik bæði gagnvart Vestfirð-
ingum og svo Árneshreppsbúum.
Blákalt hefur því verið haldið að
Vestfirðingum að Hvalárvirkjun
muni stórbæta raforkuöryggi á
Vestfjörðum. Þessar
fullyrðingar er fyrir
löngu búið að hrekja
og þær standast enga
skoðun.
Í Árneshreppi lagði
HS orka/Vesturverk
fram kostulegan lof-
orðalista til að tryggja
sér grænt ljós fyrir
virkjuninni. Flest af
þessum verkefnum
sem á listanum eru er
þó öðrum en HS
Orku/Vesturverki ætl-
að að framkvæma og fjármagna
eins og bættar samgöngur í
hreppinn. Vegagerð og samgöngur
eru þó á forræði Vegagerðarinnar
en ekki HS Orku/Vesturverks eins
og flestir vita. Þrífösun rafmagns
um hreppinn var eitt af loforð-
unum, það verkefni er á hendi
Orkubús Vestfjarða ekki HS
Orku/Vesturverks. Ljósleiðari um
sveitina var líka á listanum en
lagning ljósleiðara er óvart verk-
efni Mílu en ekki HS Orku/
Vesturverks. Aðeins eitt af þess-
um loforðum gæti talist trúverð-
ugt, það er hlutdeild í kostnaði við
lagningu hitaveitu í Norðurfjörð.
En svo kom stóra trompið sem
átti að kveða endanlega niður allar
efasemdaraddir ef einhverjar
væru. Lundabúð (Vesturverk kall-
aði það upplýsingamiðstöð) uppi í
fjalli norðan Hvalár í yfirgefnum
vinnubúðum verktaka að loknum
framkvæmdum við virkjunina.
En það var smá hængur á
þessu. Ekkert af því átti að gerast
nema vilyrði fengist innan sveitar-
félagsins til virkjunarframkvæmda
í Ófeigsfirði. Og svona hefur HS
Orka / Vesturverk unnið, býr til
fléttu til þess að komast hjá millj-
arða tengigjöldum vegna virkj-
unarinnar og velta þeim kostnaði
yfir á almenning. Reynir síðan að
kaupa sér brautargengi hjá fá-
mennasta sveitarfélagi landsins
með loforðum sem í flestum til-
fellum er engin innistæða fyrir.
Sveitarfélagi sem stendur veikt
fyrir á viðkvæmum tímamótum.
Það er á vissan hátt hægt að
skilja að gripið sé í þau hálmstrá
sem eru í boði, en þau reynast þá
visin og ónýt.
HS Orka/Vesturverk ætlar svo
að þakka fyrir sig með því að
spilla og í raun eyðileggja ein
stærstu samfelldu víðerni landsins
með virkjun sem engin þörf er
fyrir.
Virkjanavilla á
Ófeigsfjarðarheiði
Eftir Valgeir
Benediktsson
Valgeir Benediktsson
»HS orka/Vesturverk
hefur stundað blygð-
unarlausan blekkingar-
leik bæði gagnvart
Vestfirðingum og svo
Árneshreppsbúum.
Höfundur er búsettur
í Árneshreppi.