Morgunblaðið - 23.02.2019, Side 35

Morgunblaðið - 23.02.2019, Side 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019 Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Þorbergur Þórðarsson Elís Rúnarsson Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi ✝ GuðríðurBjargey Helga- dóttir fæddist á Svangrund í Austur-Húnavatns- sýslu 16. mars 1921. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 11. febrúar 2019. Guðríður ólst upp í Núpsöxl á Laxárdal við öll al- geng sveitastörf þeirra tíma til 14 ára aldurs, þegar fjölskyldan flutti norður að Tungu í Göngu- skörðum í Skagafirði. Guðríður var næstelst af níu systkinum. Foreldrar Guðríðar voru hjónin Jóhann Helgi Magnús- son, fæddur á Hrúteyri við Reyðarfjörð 13. maí 1895, og Kristín Jakobína Guðmundsdóttir, fædd í Þverárdal A.-Hún. 27. nóvem- ber 1894. Guðríður giftist Sæmundi Kristjáns- syni 1946. Þau slitu samvistum 1952. Börn þeirra eru: Helgi, f. 15. júlí 1946, og Ásdís, f. 23. nóvember 1947. Hún giftist Friðriki Brynjólfs- syni 1959. Börn þeirra eru: Sig- ríður Guðrún, f. 14. nóvember 1959, Brynjólfur, f. 7. nóvember 1960, Kristín, f. 28. maí 1963, og Ólína Þóra, f. 7. október 1966. Útförin fer fram frá Sauð- árkrókskirkju í dag, 23. febrúar 2019, klukkan 13. Móðir mín, Guðríður Bjargey Helgadóttir, er látin. Hún er farin til sumarlandsins, þar sem náttúran fær að njóta sín, fallegar heiðar eru ekki lagðar undir vatn né fallegustu foss- arnir virkjaðir. Sauðfé er rúið á réttum tíma og ullin nýtt á réttan hátt, þar varðveita allir íslenskuna og nota sitt kjarn- góða móðurmál, allt þetta var henni hugleikið. Ævi hennar var eins og margra sem fæddir eru fyrir tæpum 100 árum, tími mikilla tæknibreytinga sem hún var ávallt opin fyrir og gat tileinkað sér. Hún var næst elst í stórum hópi systkina sem voru flest fædd í torfbæ í Lax- árdal og mjög snemma þurfti hún að hjálpa til og var sístarf- andi allt sitt líf fram til síðustu viku lífs síns. Hún skilur eftir sig mikið magn heimilda um verkkunnáttu, lýsingu á bús- háttum, lifnaðarháttum og handbragði sem þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins varðveitir. Í bókunum gefur hún innsýn í lífsstarf sitt í ljóðum og ótal myndum af listaverkum sem hún saumaði með listsaum og lét frá sér til ættingja og vina. Þar eru einnig margar af þeim greinum sem hún ritaði í blöð og til ýmissa aðila, því hún hafði sterkar skoðanir á mörg- um málum og kom þeim til skila. Við skilnað foreldra minna fluttum við mamma suður. Ég minnist þess sem barn að fara með henni og ömmu á kvæða- kvöld hjá Kvæðamannafélaginu Iðunni, hvað það var gaman að hlusta á hana og ömmu. Ég naut þess að móðuramma mín var ávallt minn stuðningur og faðmur hennar opinn, því mamma vann mikið, tók m.a. að sér heimasaum ásamt því að hún lauk sveinsprófi sinu sem kvenklæðskeri á sama tíma og hún eignaðist sína eigin íbúð fyrir okkur. Ég kem aldrei til með að gleyma hvað hún var falleg og flott í sveinsstykki sínu, hún var eins og drottning í dimmbláum kjól með víðu pilsi, með útsaumuðu ber- ustykki með perlum og fíneríi. Hvað ég átti flotta mömmu! Ekki voru síðri fermingarfötin mín kjóll og kápa eins og komin úr tískubúð þess tíma. Stuttu eftir að mamma gift- ist aftur flutti hún í Austurhlíð sem í mínum huga, sem ný- fermd Reykjavíkurmær, var af- dalakot án rafmagns. Þar var hún önnum kafin allan sóla- hringinn, ég man eftir því að hún vakti yfir sauðburði á vor- in, hjálpaði ófáum lömbum í heiminn, bar heim nýfætt folald sem var að krókna úr kulda, svo sat hún á gólfinu með það í fanginu fyrir framan heitan bakaraofninn á Sóló-vélinni og kom því til lífs. Börnunum fjölgaði og hún var ávallt störf- um hlaðin en milli stunda skrif- aði hún niður ljóðin sín og ann- að merkilegt á gömlu ritvélina sína og seinna á tölvu. Hún fór ríðandi yfir Kjöl 89 ára því hún hafði lofað sjálfri sér að gera það fyrir 90 ára aldurinn. Hún fylgdist vel með á Facebook og var virk þrátt fyrir að hafa misst annað augað og sjá illa með hinu. Hún tók sjálf ákvörðun um hvar og hvernig hún kysi að eyða síðustu árunum sínum og þar hefur henni liðið vel, ná- lægt sínum átthögum og systk- inum. Þar fékk hún útrás við fleiri form í listsköpun sinni. Takk fyrir allt. Þín Ásdís. Fáir búa við þann munað að hafa átt langömmu, sum okkar fram á fullorðinsárin. Hvað þá að eiga eina sem sá því lítið til fyrirstöðu að taka strætó lands- hluta á milli þrátt fyrir að vera komin á tíræðisaldurinn. Að koma í heimsókn til ömmu í Austurhlíð á sumrin var ávísun á heimsókn í gróð- urhúsið að tína upp í sig jarð- arber, sem þrátt fyrir að vera lítil voru þau bestu í heimi! Sama má kannski segja um langömmu, sem var ekki hávax- in en engu að síður kjarnorku- kona sem lét fátt á sig fá. Við erum mjög heppin að hafa haft þessa fyrirmynd í okkar lífi, að hafa fengið frá henni alla þá góðu kosti sem hún hafði. Hún var áræðin, kraftmikil, brosmild, handlagin, með græna fingur og stolt af eigin landi. Að geta tileinkað sér þó ekki væri nema aðeins einn af þessum kostum er gulls ígildi. Eitt er víst að við erum öll ríkari fyrir að hafa átt hana að. Þú ert ís, þú ert eldur og aldan blá, þú ert auður og von og trú, þú ert friðsæld og frelsi og fjöllin há, landið fegursta, það ert þú. Þegar vorsólin rís yfir borg og bæ og hvert blóm fær sitt líf og lag berst sem óður til lífsins í ljúfum blæ söngur lóu um sumardag. Þú ert napurt norðanél, þín er nóttin svört sem hel, þú ert dimm og hyldjúp gjá, þú ert dáið, lítið strá. Góða Ísland, gamla Ísland, þú sem geymir mín spor, gef mér kjark, gef mér dug, gef mér þor! Sé með svikum og vélráðum veist að þér skal ég verja hvern dal og hól og að endingu tekur á móti mér moldin þín þegar sest er sól. (Jóhann G. Jóhannsson) Fyrir hönd barnabarna Helga Sæm, Heiðrún Sæmundsdóttir. Guðríður B. Helgadóttir, föð- uramma okkar, var af þeirri kynslóð sem upplifði stökk- breytingar í þjóðlífinu. Með fjörugum systkinahópi hljóp unga stúlkan um þúfurnar á sauðskinnsskóm. Um fermingu fékk hún sín fyrstu stígvél og hætti að vera blaut í fæturna. En henni var aldrei kalt. Ullin sá til þess að hlýja mjúkum iljum. Hún fór með pabba sínum þegar gróður var í blóma og safnaði maríustakk, til að eiga yfir veturinn ef ske kynni að leggja þyrfti græðir yfir blæðandi sár. Amma var tvígift, átti sex börn sem hún kom öllum vel til manns og sinnti margvíslegum störfum. Hún var hamhleypa í vinnu og stóð framar öðrum í öllum verkum, sífellt að sýsla, frá morgni til kvölds. Eldaði, saumaði, bakaði brauð og kök- ur, tók á móti öllum gestum sem væru þeir höfðingjar, þvoði þvott, hrærði steypu, ræktaði land, rakaði dreifina, mokaði í heyblásarann, mjólk- aði og sinnti mörgum félags- málum. Amma var stundum stórlynd og lét samferðafólk oft heyra það. Það var lítið hvíslað í ná- vist ömmu og lífið var ekki allt- af dans á rósum. En faðmurinn var stór, huggandi og hlýr þeg- ar við átti. Hún var virk í pól- itík, var sósíalisti, vildi jafn- rétti, félagslegan jöfnuð og unni landinu. Við munum hvað amma varð glöð þegar Vigdís varð forseti. Þá tók hún okkur með á kjörstað og kenndi hversu mikilvægt lýðræðið væri og að nýta kosningaréttinn. Hún mótmælti Blönduvirkjun og því hversu illa var farið með náttúruna og benti á skaðann sem fyrirhuguð Blöndulón myndu valda. Hún kenndi okk- ur góða siði og að sópa betur fóðurganginn. Það var ekki ein- falt verk því amma var kröfu- hörð á vandvirkni og nýtni. Við vorum mörg sumur í sveit hjá ömmu. Minningarnar eru ótelj- andi og „oft er í svefni og vöku, sólskin á leiðinni heim“ í Austurhlíð. Þrátt fyrir að vera ekki lang- skólagengin þá var amma sífellt að læra. Hún skar út í við og saumaði magnaðar myndir sem hún gaf ættingjum og vinum. Á áttræðisaldri keypti hún sér tölvu og skráði inn minnisbréf sem hún átti í fórum sínum. Hún skrifaði margar greinar í blöðin og gaf út þrjár bækur. Hún byrjaði að nota samskipta- miðla, á undan sumum barna sinna. Sagði að í gegnum þá gæti hún fylgst betur með vinum um allan heim. Hún sendi þeim hugleiðingar um ýmisleg mál- efni. Hún fylgdist vel með, setti „læk“ á myndir, myndbönd og sendi fallegar kveðjur þegar við átti og deildi málefnum líðandi stundar, sem henni þóttu merkileg. Nútíminn mælir allt í próf- gráðum og peningum. Sá sem á mest þegar hann deyr vinnur. Þetta virðist vera lífsgildi margra. Ekki ömmu. Síðasta samtalið við hana var um sjálfbærni og réttláta skiptingu auðæfa. Hún vildi jafna aðstöðu milli borgar og landbyggðar, jafna kjör kyn- slóðanna, búa vel að flóttafólki, fátækum, öryrkum og öldruð- um. Við deildum skoðunum um náttúruvernd. En ekki tókst okkur að verða sammála um hversu langt átti að ganga með forræðishyggju að vopni. Það er ofsagt að við höfum rifist, en þið megið geta hvert okkar vildi ganga lengst. Minning um mikla konu lifir. Aðalheiður, Sæmundur og Atli Helgabörn. Þeim er mikið gefið sem halda heilbrigðri hugsun og reisn langa ævi, til hinstu stundar 98 ára. Hamhleypa, stórt orð en það sem hún skilur eftir sig er sönnun þeirrar stað- hæfingar. Hún var hispurslaus í öllu. Vildi hafa áhrif til heilla landi og þjóð. Sýndi það í verki og skrifum. Allt lék í höndum hennar. Fatahönnun og -saum- ur, tréskurður, listsaumur, hekl og prjón af öllum stærðum og gerðum, ótrúlega mikilvirk á öllum sviðum, jafnt inni sem úti. Náttúruunnandi og rækt- unarkona, fagurkeri og í öllu til fyrirmyndar. Hún ólst upp við mikla vinnu frá barnæsku. „Þá höfðu ung- menni ekki tíma til að verða vandræðaunglingar.“ Ein mín fyrsta minning er í hlýju rúmi við hlið Guju systur. Síðan alla tíð var hún mér sem besta móð- ir, sem alltaf átti ráð við öllum vanda, hvort það var að sníða flík, hekla dúk eða aðrar flækj- ur. Hennar verður lengi minnst með einlægu þakklæti fyrir allt. Börnum hennar sex og af- komendum öllum bið ég bless- unar um ókomin ár. Við gátum lífsins gjarnan var greiðlega oft fengið svar, einörð traust og alltaf var, íslenskan í forgang þar. María Helgadóttir (Mæja systir). Guðríður Bjargey var rithöf- undur og listamaður. Æsku- heimili hennar uppi á Laxárdal var menningarheimili, systkina- hópurinn stór og fjölskyldan samheldin. Það sama má segja um nágrennið við fjölskyldurn- ar sem bjuggu þar á næstu bæjum á dalnum. Það ríkti hlýja og traust milli grannanna í dalnum sumarfagra. Guðríður hefur reist fólki sínu og sveit bautastein, lítt brotgjarnan, með skrifum sín- um, blaðagreinum og með bók- unum tveimur sem hún skrifaði og gaf sjálf út á efri árum sín- um. Norðlendingar, kvæðamenn og landsmenn yfirleitt eiga henni skuld að gjalda fyrir ævi- starf hennar, bæði rit hennar og listilega saumaðar myndir sem sjá má myndir af annarri í bókinni hennar. Bókin ber það óvenjulega en lýsandi heiti: Þessi kona. Góðan hjálparmann hefur Guðríður lengi átt í systur- dóttur sinni, Sigríði á Stóru- Ökrum, sagnfræðingi og safn- verði, sem setti upp sýningu með verkum frænku sinnar og studdi hana við útgáfu bók- anna. En Guðríður í Austurhlíð fór sem oftar gegn straumnum, hún flutti aftur norður yfir heiði þegar aðrir fluttu suður. Það eitt er drjúgt þakkarefni. Flutningur fjölskyldunnar af Laxárdal norður að Tungu í Gönguskörðum varð þeim heillaspor en flest systkina hennar ílentust nyrðra eða sneru þangað aftur eins og hún sjálf gerði með eiginmann og fjölskyldu. Í Austurhlíð var heimili Guðríðar frá 1961-2010, en þá flutti hún aftur í ná- grenni Gönguskarðanna, í þorpið undir Nöfunum sem nú er orðið stærðar bær. Þessum minningarorðum lýk ég með vísu hennar, sem hún setti á dögunum í gestabók góðra vina: Vanmet eigi vinafund – vitablik í gegnum myrkur. – Þó ber hæst á hættustund hugarró og viljastyrkur. (GBH) Ingi Heiðmar Jónsson. Guðríður Bjargey Helgadótt- ir frá Núpsöxl, Skollatungu, Austurhlíð í Blöndudal og Sauðárhæðum i Skagafirði var óvenjulega fjölhæf náttúrulista- kona, eldhugi fram í fingur- góma og til hins síðasta, upp- örvandi og gefandi. Hún sýndi gott fordæmi, hvar sem hún fór. Áhugamálin víðfeðm, kraft- urinn ótrúlegur. Það var gott að kynnast henni, þessari konu, sem var orðin 97 ára, þegar hún kvað um Eyjafjallaskalla inn á sönglagadiskinn minn, sem vonandi kemur út á þessu ári. Hún var létt til líkama og sálar fram til hins síðasta. Segja má, að hún hefði logandi áhuga á öllu á landi voru: lista- verkum náttúrunnar, gróðri, fénaði og fólki. Náttúran öll, sköpunarverkið allt var á henn- ar áhugasviði. Hún hvatti aðra til að láta sig varða allt sem bæta þurfti og leggja sig fram af alefli. Þessi kona var sannkölluð fyrirmynd. Í skrifum sínum skildi hún eftir arfinn. Það er mannbætandi fyrir unga sem gamla að eignast og lesa vel fallegu bækurnar hennar tvær og kynnast þar lífi þessarar konu og viðhorfum hennar. Bækurnar heita: I. Þessi kona – í máli og myndum (2010) og II. Þessi kona á tíunda tugnum – Hvað hugsa gamlingjar (2015). Til hamingju með að hafa kynnst þessari konu. Sigurður Sigurðarson dýralæknir. Guðríður Bjargey Helgadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.