Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Síða 4
INNLENT
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.2. 2019
Eldri kettir ekki endilega á skrá
Flestir kattaeigendur gera ráðfyrir að týnist köttur þeirra,komist hann fljótt heim til sín
ef svo fer að góðviljaður einstaklingur
fari með ráðvilltan köttinn í Kattholt
eða á dýraspítala – til að lesa á ör-
merkinguna. Örmerkingin gefi upp-
lýsingar um eigendur sem auðvelt er
þá að hafa samband við.
Slíkt er þó ekki sjálfgefið og hafa
komið upp tilfelli þar sem upplýs-
ingar bak við örmerkinguna eru ein-
faldlega ekki á skrá í miðlægum
gagnagrunni eða rangt skráðar.
„Það kemur fyrir að týndir kettir
sem koma til Kattholts séu örmerktir
en ekki skráðir inn á Dýraauðkenni.
Hefur það þá komið fyrir að skráning
hafi misfarist, sem sagt rangar upp-
lýsingar á bak við númerið eða upp-
lýsingum frá þeim dýralækni sem ör-
merkti ekki komið áfram í grunninn,“
segir Halldóra Björk Ragnarsdóttir,
formaður Kattavinafélags Íslands.
Árið 2012 stofnaði Dýralækninga-
félag Íslands miðlægan gagnagrunn,
dyraaudkenni.is, og í dag eiga dýra-
læknar að færa skráningu katta inn í
gagnabankann þegar dýrið er ör-
merkt.
Dýr sem örmerkt voru fyrir stofn-
un dýraauðkennisvefsins, 2011 og
fyrr, eru helst í hættu að vera ekki
skráð í gagnagrunninn eða rangt
skráð en samkvæmt upplýsingum frá
Dýrahjálp Íslands voru vanhöld á að
dýralæknar sendu inn skráningar.
Dýralæknum var boðið að skrá öll ör-
merkt dýr frítt á sínum tíma, þegar
gagnagrunnurinn tók til starfa eða
fyrir júlí 2011, og þótt flestir hafi sent
inn skráningar gerðu það ekki allir og
einhverjar skráningar voru ófull-
nægjandi og ekki hægt að færa inn í
gagnagrunninn.
„Í þessum tilfellum, þegar upplýs-
ingar bak við örmerkið eru engar eða
rangar, hefst mikil leit, oft með mörg-
um símtölum, því þá er kötturinn að-
eins skráður hjá viðkomandi dýra-
lækningastofu eða -spítala fyrir utan
dæmin þegar upplýsingar um köttinn
eru óvart rangt færðar inn.
Við höfum líka brugðið á það ráð að
auglýsa köttinn með númeri hans
þegar ekkert kemur úr úr þessum
símtölum. Þetta getur verið mjög erf-
itt fyrir köttinn, sem þarf þá kannski
að bíða lengi eftir að það finnst hver
eigandinn er.“
Inni á vefnum dyraaudkenni.is er
hægt að fletta dýri sínu upp eftir
númeri á ör- eða eyrnamerkingu.
Hafi fólk ekki númerið á örmerkingu
er hægt að hafa samband við þann
dýralækni sem kötturinn var ör-
merktur hjá og láta fletta upp núm-
erinu og hvernig það er skráð. Á
dyraaukenni.is er hægt að fletta upp
hvaða dýr eru skráð á mann. Ef gælu-
dýrið var örmerkt fyrir júlí 2011 þarf
að virkja eigandaaðgang með því að
greiða skráningargjald á síðunni en
gjaldið er 1.000 kr. en eigandaað-
gangur var innifalinn í örmerkingu
eftir þann tíma.
Halldóra Björk bendir á að einnig
sé afar mikilvægt að breyta upplýs-
ingum á dýraauðkennisvefnum ef fólk
skiptir um símanúmer eða flytur, svo
ekki sé minnst á ef eigendaskipti
verða á dýrinu.
„Það er alltaf nóg af kisum í Katt-
holti en þó er gleðilegt að eldri kis-
urnar eru frekar að komast á heimilin
þessi misserin, enda minna framboð
af kettlingum. Það breytist þó senni-
lega með hækkandi sól.“ Sem fyrr
séu algengustu ástæður þess að kett-
ir týnist að fólk sé mikið fjarverandi
eða fer frá án nægilegra góðra ráð-
stafana. Kötturinn stingi af sé hann
lengi einn yfir daginn án þess að kom-
ast inn um glugga, enda húki köttur-
inn ekki endalaust og bíði heldur leiti
annað.
Þessi kisa sem komið
var með í Kattholt
reyndist ekki svo hepp-
in að vera örmerkt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miðlægur gagnagrunnur á netinu, með örmerkingarnúmerum og eyrnamerkingum, breytti miklu fyrir leit að eigendum
týndra katta. Ekki er þó hægt að ganga út frá því vísu að örmerktir kettir séu í gagnagrunninum, sérstaklega þeir eldri.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Halldóra Björk Ragnarsdóttir segir að þótt alltaf nóg af kisum í Kattholti sé
gleðilegt að eldri kisurnar séu frekar að komast á heimilin þessi misserin.
Morgunblaðið/Eggert
Örmerki er kubbur sem
dýralæknir setur undir húð í
herðakambi kattar en kubb-
urinn geymir 15 stafa númer
kattarins.
Þrátt fyrir að örmerking sé
nauðsyn og skylda er líka
mikilvægt að merkja ketti
með hálsól og merkispjaldi
með heimilisfangi og síma-
númeri. Það auðveldar gang-
andi vegfarendum að sjá
hvort köttur sem þeir rekast
á sé fjarri sínu heimili og
koma honum fyrr til skila.
Samskiptamiðillinn Face-
book hefur einnig breytt
miklu fyrir leit að týndum
köttum og eigendum týnda
katta síðustu árin. Í facebook-
hópana Kattavaktin og Kettir
á Facebook, aðdáendur katta
og allir dýravinir eru skáðir
yfir 20.000 Íslendingar og hafa
margir kettir ratað heim til
sín fyrir tilstilli þessara hópa.
Facebook
breytti miklu
Ég fór í banka um daginn. Sem er reyndar í frásögurfærandi því ég geri það mjög sjaldan sjálfviljugur.En það er alls ekki punkturinn heldur það að þegar
ég var að ganga út úr bankanum, mögulega eitthvað að
dunda mér í símanum eins og gengur, þá gekk ég á
dráttarkúlu sem stóð aftan úr bíl. Það var vont. Alveg
svakalega vont. Í raun alveg fáránlega vont. Og heimsku-
legt.
Fyrstu viðbrögð mín voru að brjálast og hugsa með
sjálfum mér: Af hverju er þetta ekki merkt? Af hverju eru
ekki einhverjar reglur um að svona bílar séu ekki með
svona stóra kúlu aftan úr sér? Þess utan var þetta gamall
jeppi sem leit ekki út fyrir að vera líklegur til að draga
neitt.
Mér fannst semsagt á þessum tímapunkti, á meðan ég
strauk á mér sköflunginn, að það væri ekki svo galin hug-
mynd að sett yrði sérstök reglugerð um merkingu kúlna á
slyddujeppum og bara helst öllum bílum. Þeir fengju þá
sérstakar merkingar til að koma í veg fyrir að saklaust fólk
stórskaðaði sig á því að ganga á þær. Það mætti jafnvel
bara koma á fót lítilli og krúttlegri deild í Samgöngustofu
til að sjá um þetta.
Svo jafnaði ég mig og fór aðeins að hugsa. Eins og ég
geri stundum. Því meira sem ég hugsaði því erfiðara var að
selja sjálfum mér að það þyrfti í raun að vera eftirlit með
þessu. Mögulega hefði ég ekki átt að glápa á símann minn,
heldur horfa kannski aðeins í kringum mig.
Mér datt þetta í hug þegar ég sá viðbrögð sumra við því
þegar einhverjir geimvísindamenn ákváðu að selja bíla eft-
ir að hafa skrúfað duglega niður kílómetramælana. Kaup-
endurnir urðu að sjálfsögðu sótillir enda óvenju einbeittur
brotavilji í þessum viðskiptum.
Þá upphófst gamalkunnur söngur: Það þarf að auka eft-
irlit með þessu. Það þarf að fylgjast betur með þessum
viðskiptum og setja einhverjar skorður í sölu bílaleigubíla.
(Sem er stórkostlega bjánalegt orð. Svona eins og vatns-
könnuvatn. En það er aukaatriði.) Það þyrfti að skoða þá á
hverju ári og fara sérstaklega yfir mælana og helst að
skila einhverju vottorði þegar þeir væru seldir. Ég yrði
illa svikinn ef það þyrfti ekki líka að þinglýsa því hjá sýslu-
manni fyrst. Bara svona til að gera þetta aðeins flóknara.
Það er dýrt að leigja bíl á Íslandi. Aukið eftirlit, út af
nokkrum glæpamönnum myndi bara hækka þann kostnað.
Og það sem er kannski mest svekkjandi er að þetta yrði að
sjálfsögðu aukakostnaður fyrir þá sem gera ekkert af sér.
Fyrir utan það að það er ekki einu sinni víst að þetta
myndi skila árangri.
Vissulega skil ég reiði fólks sem í góðri trú keypti bíla
og taldi sig jafnvel vera að gera góð kaup. Það á að sjálf-
sögðu alla mína samúð. En við leysum ekki allt með auknu
eftirliti, löggjöf, reglugerðum og nýjum stofnunum.
Stundum verðum við bara að treysta fólki. Og ef við kom-
umst að því að fólk hafi
brugðist trausti þá
verðum við að stóla á að
það fái makleg mála-
gjöld. Mér sýnist allt
stefna í það.
Við vitum að það eiga
eftir að koma fram fleiri
sérfræðingar sem munu
plata fólk á einhvern
hátt. Selja því eitthvað
sem virkar ekki, reyna að ná peningum frá saklausu fólki,
þykjast jafnvel vera útlendir tölvusérfræðingar að laga
vírusa. Þetta virðist einhvern veginn vera gangur lífsins.
Þá er bara spurningin hvernig við ætlum að bregðast
við þessu? Mér finnst mesta skynsemin í því að læra af
þessu og reyna að vera vakandi næst þegar svona snill-
ingar koma fram en ekki leyfa glæpamönnum að taka
okkur á taugum.
Reglur um reglur
’Mér fannst semsagt á þessumtímapunkti, á meðan égstrauk á mér sköflunginn, að þaðværi ekki svo galin hugmynd að
sett yrði sérstök reglugerð um
merkingu kúlna á slyddujeppum
og bara helst öllum bílum.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is