Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Blaðsíða 15
24.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Vill hlaupa inn á í miðjum leik
Dóttir Helenu varð tveggja ára fyrr í þessum
mánuði og hún segir móðurhlutverkið hafa
gjörbreytt lífi sínu. „Fókusinn færist ósjálfrátt
þegar maður eignast barn og í dag er það
besta tilfinning í heimi að fá stelpuna beint í
fangið eftir leiki,“ segir Helena en maður sér
varla sjónvarpsviðtal við hana í leikslok öðru-
vísi en að hún sé með Elínu Hildi á hand-
leggnum. „Helst vill hún hlaupa inn á í miðjum
leik en pabbi hennar heldur sem betur fer aft-
ur af henni.“
Hún hlær.
Finnur Atli hefur leikið körfubolta með KR
eftir að þau snéru heim og fyrir vikið þarf að
stóla töluvert á barnapössun. „Hún er fyrsta
barnabarnið mín megin og mamma hefur verið
boðin og búin að passa, eins mamma hans
Finns og fyrir það erum við óendanlega þakk-
lát. Það kemur þó fyrir að ég þurfi að taka
stelpuna með mér á æfingar og hún veit fátt
skemmtilegra en að hlaupa um hérna í Vals-
heimilinu.“
Eflaust er hægt að hugsa sér verri staði til
að alast upp á.
Sú stutta sér væntanlega sæng sína upp
reidda. „Tja, báðir foreldrarnir eru hávaxnir
og í körfubolta og ekki ólíklegt að hún leiðist út
í þetta. Við munum þó alls ekki setja neina
pressu á hana; aðalatriðið er að hún sé ánægð í
því sem hún tekur sér fyrir hendur.“
Helena segir þau Finn staðráðin í að eignast
fleiri börn. Það bíði þó betri tíma – þangað til
körfuboltaskórnir verða komnir á hilluna.
Hún segir það alls ekki hafa verið svo mikið
mál að koma sér aftur í keppnishæft form eftir
barnsburðinn. „Meðgangan gekk vel og svo
spillir ekki fyrir að eiga mann sem starfar sem
einkaþjálfari.“
Hún brosir.
Alls ekki að hætta í bráð
Helena verður 31 árs á þessu ári og gerir sér
grein fyrir því að körfuboltaferillinn styttist
í annan endann. Því fer þó fjarri að hún sé
farin að huga að því að rifa seglin. „Mér líður
vel líkamlega og finnst ennþá mjög
skemmtilegt að spila körfubolta. Ég saknaði
þess ógurlega meðan ég var ólétt og hef not-
ið þess í botn eftir að ég byrjaði aftur að
spila. Núna líður mér eiginlega eins og að ég
vilji aldrei hætta,“ segir hún hlæjandi. „Auð-
vitað veltur framhaldið á því hvort ég slepp
við meiðsli og hvort áhuginn verður áfram
svona mikill. Jón Arnór [Stefánsson] og
Hlynur [Bæringsson] voru að leika sinn síð-
asta landsleik í vikunni og þeir eru 36 ára.
Miðað við það á ég alla vega sex ár eftir.“
Enda þótt skórnir endi á hillunni, eins og hjá
öllum, þá sér Helena fyrir sér að körfubolti
verði áfram hluti af lífi hennar. Hún hefur ver-
ið að þjálfa svolítið, fyrst hjá Haukum, yngri
landslið kvenna og nú hjá Val og getur vel
hugsað sér að gera meira af því í framtíðinni.
Hvort það verði í yngri flokkunum eða
meistaraflokki verði tíminn að leiða í ljós. „Ég
nýt þess að miðla reynslu minni og gefa af
mér, bæði til eldri og yngri iðkenda.“
Langar að verða kennari
Hún er með BA-gráðu í sögu og upplýsinga-
tækni og stefnir á að bæta við sig meistara-
gráðu í kennslu næsta haust. „Ég hef aðeins
verið í forfallakennslu í grunnskóla í vetur og
kann vel við mig í því hlutverki. Ég hef mjög
gaman af því að vera innan um börn og get vel
hugsað mér að starfa sem kennari í framtíð-
inni, hvort sem er í grunn- eða framhalds-
skóla.“
Fleiri járn eru í eldinum en Helena kemur
nú að íslensku fyrirtæki, Sports and Education
USA, sem sérhæfir sig í að aðstoða ungt
íþróttafólk við að komast í háskólanám í
Bandaríkjunum. „Það eru íslensk hjón sem
reka þetta fyrirtæki og hafa aðallega verið að
hjálpa fólki að fara út til að spila fótbolta en
mitt hlutverk verður að koma körfunni á kort-
ið. Það leggst vel í mig enda er tengslanet mitt
vestra ágætt.“
Þetta eru markmiðin til framtíðar en í nútíð
snýst allt um Val – og vegginn á Hlíðarenda
sem gæti átt eftir að taka hröðum breytingum.
Helena fagnar bikarmeistaratitlinum í Laugardalshöllinni um liðna helgi ásamt systur sinni, Guð-
björgu Sverrisdóttur, og dóttur sinni, Elínu Hildi Finnsdóttur, sem missir ekki af leik hjá mömmu.
Morgunblaðið/Eggert
Helena og Elín Hildur með Íslandsbikarinn sem sú fyrrnefnda vann með Haukum síðastliðið vor.
Morgunblaðið/Hari
Helena og eiginmaður hennar, körfuboltamaðurinn Finnur Atli Magnússon, með dóttur sína, Elínu
Hildi, nýfædda. Helena segir móðurhlutverkið hafa gjörbreytt lífi sínu og fókusinn hafi færst til.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Helena og Pálína María Gunnlaugsdóttir fagna frábæru gengi með Haukum vorið 2007.
Morgunblaðið/Eggert
Morgunblaðið/RAX