Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.2. 2019 VETTVANGUR staðgreiðslusköttum láglaunafólks í formi útsvars en eru þó aðeins áhorf- endur að þessari stöðu þó að flest hafi þau ákveðið að hafa útsvar sitt í hámarki. Horft um öxl Á því herrans ári 2007 sagði formað- ur Verkalýðsfélags Akraness að hækka þyrfti lágmarkslaun í landinu úr 125 þúsund krónum upp í um 176 þúsund. Í dag er krafan að þau hækki úr 300 þúsundum í 425 þús- und. Munurinn á tölunum núna og fyrir tólf árum er sláandi. En við vitum öll að þótt tekist hafi að hækka kaup- mátt lægstu launa mikið á undan- förnum árum – meira en annarra – endurspeglar munurinn á þessum tölum ekki hreina kjarabót fyrir fólkið sem hefur þessi laun. Verð- bólgan sér til þess. Kaupmáttur segir meira en krónur. Það er ekki innantómur frasi heldur staðreynd. Sprenging í ferða- þjónustu og aðrir þættir hafa haldið verðbólgunni í skefjum undanfarin ár þrátt fyrir langvarandi góðæri. Nú eru hins vegar blikur á lofti í þeim efnum eins og allir vita og kóln- un ekki bara í kortunum heldur hafin. Óvenjulegur taktur Ásgeir Jónsson hagfræðingur benti á það í vikunni að margt væri óvenjulegt við þessar samninga- viðræður í sögulegu samhengi. Til Viðkvæm og ískyggileg staðaer uppi eftir að það slitnaðiupp úr viðræðum Samtaka atvinnulífsins og fjögurra stéttar- félaga sem semja fyrir hönd tuga þúsunda starfsmanna. Mikið er í húfi fyrir alla landsmenn að viðræðurnar verði leiddar farsællega til lykta á raunhæfum forsendum sem fyrst. Væntingar og viðbrögð Kröfugerð félaganna gagnvart at- vinnurekendum liggur fyrir að því leyti sem hún var kynnt opinberlega fyrir nokkrum mánuðum. Ein af meginkröfunum var að eftir tvö ár myndi krónutala lágmarkslauna hafa hækkað um ríflega 40%. Tölur hafa síðan birst í fjölmiðlum um að krafist sé enn meiri hækkana handa hópum með töluvert hærri tekjur. Frá sjónarhóli stéttarfélaganna er tilboð Samtaka atvinnulífsins ó- ásættanlegt með öllu að þeirra sögn. Félögin birtu líka opinberlega lista yfir kröfur gagnvart stjórnvöld- um. Sérstaklega var farið fram á að skattalækkun á lágar og millitekjur yrði fjármögnuð með því að hækka skatta á aðra. Eftir að fjármálaráðherra kynnti skattalækkunar- og barnabótapakka ríkisstjórnarinnar fyrr í þessari viku sendu félögin fjögur frá sér sam- eiginlega yfirlýsingu þar sem þau lýstu ekki einungis vonbrigðum yfir tillögunum heldur einnig reiði. Vandséð er hvaðan væntingar gátu hafa skapast um annað og meira en kynnt hefur verið en yfir- lýsingar um „reiði“ eru til marks um þá hörku sem er í deilunni og virðist síst fara minnkandi. Frá sjónarhóli okkar sem stönd- um að ríkisstjórninni voru það von- brigði að umræðan skyldi af ein- hverjum ástæðum snúast um allt annað en þær miklu kjarabætur sem í tillögum stjórnvalda felast. Það var til að mynda furðulega lítið látið með stórtíðindi á borð við lengingu fæð- ingarorlofs og hækkun barnabóta auk skattalækkana til lágtekjuhópa og aðgerða í húsnæðismálum. Alls nemur útspil ríkisins um 30 millj- örðum. Hér má einnig minna á að sveitar- félög innheimta meirihlutann af dæmis væri óvenjulegt að farið væri fram á miklar kauphækkanir þegar samdráttur blasti við í helstu út- flutningsgrein landsins, ferðaþjón- ustunni, og efnahagslífið væri á leið niður eftir sjö ára hagvöxt. Yfirleitt hefðu verkalýðsfélög sýnt „hörku í uppsveiflu en hófsemi í niðursveiflu“, en því væri öfugt farið nú. Einnig væru kröfurnar lagðar fram án kostnaðarmats og áhrifagreiningar. Ónýtt módel? Fyrir hálfu öðru ári, á haustmánuð- um 2017, varaði Bjarni Benediktsson við þeirri stöðu sem hætt er við að sé að verða að veruleika nú. Hann tók fram að of mikil einföldun væri að skella skuldinni á einhverja tiltekna aðila í ljósi þess að sjálf aðferðafræði okkar væri gölluð: „Leitin að sökudólgnum beinir sjónum okkar frá aðalatriðinu sem er að vinnumarkaðslíkanið á Íslandi er í raun ónýtt. Ég veit að þetta eru stór orð, en hver getur mótmælt því þegar hver höndin er upp á móti annarri, jafnvel í upphafi samn- ingalotu? Það er lítil samvinna til staðar og skipulagið í kjara- viðræðum er tilviljanakennt og mjög breytilegt frá einum kjaraviðræðum til þeirra næstu. Það hvað okkur hef- ur lítið miðað undanfarna áratugi í að bæta úr þessu er stærsti einstaki veikleiki íslenskra efnahagsmála um þessar mundir.“ Bjarni bætti við að við þyrftum að koma betra skipulagi á kjara- viðræður; samkeppnishæfni þjóðar- búsins þyrfti að verða ráðandi um það svigrúm sem kjarasamningar byggðust á. Það er órjúfanlegur hluti hins margumtalaða norræna módels. Trúnaðurinn Hefð er fyrir því að trúnaður ríki um kröfur og tilboð þegar viðræður eru á viðkvæmu stigi, meðal annars um það sem fram fer hjá sáttasemjara. Þetta er umhugsunarefni. Kjarabar- átta er í æ meira mæli stunduð í fjöl- miðlum og með auglýsinga- herferðum. Báðir aðilar lýsa túlkun sinni á kröfum og tilboðum hins en almenningur, sem á mikilla hags- muna að gæta, hefur litlar sem engar forsendur til að meta um hvað deilan snýst í raun. Sögusagnir og óstað- festar fréttir flækja myndina enn frekar. Á tímum aukins gagnsæis á mörgum sviðum má spyrja má hvort heiðarlegra, sanngjarnara og skil- virkara væri að einfaldlega opna þetta ferli, sem snýst þegar upp er staðið ekki bara um lífsafkomu þeirra sem sitja við borðið heldur allrar þjóðarinnar. ’Mikið er í húfi fyriralla landsmenn aðviðræðurnar verðileiddar farsællega til lykta á raunhæfum forsendum sem fyrst. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Morgunblaðið/Hari Ískyggileg staðaFjölmiðla- maðurinn með meiru, Þor- steinn J. Vil- hjálmsson, tísti: „Þeir sem eru ekki með gönguskíðamyndir af sér á face- book, eru nýkomnir úr upp- skurði, eða eru á skíðum í Sviss Utd, eða eru komnir undir sæng til að forðast verðbólguskotið frá Samtökum atvinnulífsins, þetta er Ísland: Með mynd- skreytt tilfinningalíf að láni í ís- lensku krónunni á facebook í beinni og allt klabbið verðtryggt, og nú er verið að lesa Passíu- sálmana á Rás 1 til að drepa okkur endanlega úr leiðindum á sauðskinnsskónum, en við í Slippnum ætlum að fagna vori strax á morgun takk.“ Karen Kjartansdóttir, fram- kvæmdastjóri Samfylkingarinnar, tísti: „Undanfarið hefur það hent mig að heyra tal ungs fólks og ganga að því vísu að það sé að tala færeysku, tungumál sem er næstum íslenska en samt ekki. Við nánari athugun kemst ég svo að því að þetta er bara íslenska en með nýstárlegum hreim.“ Katrín Atladóttir borgar- fulltrúi tísti: „Vildi allir borgar- fulltrúar (ókei og reyndar fólk almennt) hefðu haft reynslu af því að koma upplýsingum frá sér á daily standup, eða bara á twitter. Það þarf ekki alltaf að segja svona mörg orð til að koma einum punkt frá sér!“ Og fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason tísti: „Engin Michelin-stjarna á Íslandi sem þýðir að gengið var framhjá KFC í Hafnarfirði enn eitt árið. Sorgardagur.“ AF NETINU Langar þig í ný gleraugu! Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.