Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Qupperneq 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Qupperneq 26
heimtu bóta fyrir flug sem fellt er niður. „Þess eru dæmi að það taki óratíma að greiða út bætur sem fólk á rétt á, jafnvel þótt bóta- skyldan sé ljós og hafi verið sam- þykkt. Það getur reynst þrautin þyngri að fá þetta í gegn. Við höf- um verið að annast milligöngu fyr- ir félagsmenn okkar og ýta á eftir því. Þetta á alls ekki við um öll flugfélög, en við höfum fengið svona dæmi til okkar og hjálpum þá félagsmönnum okkar að sækja rétt sinn.“ Breki segist telja að fólk sé al- mennt frekar meðvitað um rétt sinn en þó sé full ástæða til að benda fólki á þau réttindi sem gildi ef flug fellur niður. Flugmiði er ekki sama og flug-miði því alltaf þarf að gætaþess að bera saman sam- bærilegar tegundir fargjalda. Enginn vill panta meiri þjónustu en þörf er á en samt viljum við heldur ekki lenda í vanda á flug- vellinum og þurfa að greiða óþarfa kostnað. Nú þegar flest flugfélög eru farin að brjóta verð flugmið- ans niður í smærri einingar verð- ur æ mikilvægara að flugfarþegar séu meðvitaðir um samsetningu fargjaldsins og beri örugglega saman sambærilega þjónustu þeg- ar kostir eru vegnir. En það er fleira en samsetning fargjalds sem þarf að skoða, til dæmis er góð hugmynd að kynna sér vel og vandlega þau réttindi sem flugfarþegar njóta. „Við fáum fullt af alls konar fyrirspurnum varðandi flugfar- gjöld,“ segir Breki Karlsson, for- maður Neytendasamtakanna. Hann segir að mest hafi farið fyrir tvennu í sambandi við rétt- indi flugfarþega: annars vegar leiti fólk eftir upplýsingum varð- andi svokallaða „no show“-reglu og hins vegar leiti fólk til samtak- anna vegna ógreiddra bóta frá flugfélögum. Breki útskýrir að hin svokallaða no show-regla hafi verið gagnrýnd af samtökum neytenda víða um Evrópu og nú hilli undir að hún heyri sögunni til. „Ef þú átt bókað flug en t.d. nýtir ekki flugið af einhverjum ástæðum þá áttu samt rétt á að nýta hinn legginn, flugið heim. En flugfélög hafa ekki alltaf viljað viðurkenna að farþegar eigi rétt á að nota bara annan flug- legginn hafi báðir verið keyptir. Nú er búið að dæma í tveimur málum, í Spáni og í Noregi, og þar með komið fordæmi fyrir því að þessi regla flugfélaganna standist ekki Evrópulög. Þar af leiðandi munu flugfélög væntanlega bara hlíta því.“ Hann segir að flugfélög hér á landi hafi oftast haft þann háttinn á að leyfa fólki að nýta bara annan fluglegg sé látið vita með nægum fyrirvara, en þó séu dæmi um ágreining sem hafi risið í þeim til- vikum sem fólk mætir ekki. Erfitt að fá bætur greiddar Önnur flugfargjaldatengd mál sem koma gjarnan inn á borð Neyt- endasamtakanna tengjast inn- „Ef þú kaupir flugmiða hjá fyr- irtæki og fyrirtækið fellir niður flugið áttu rétt á að velja um þrennt: endurgreiðslu, inneign hjá flugfélaginu eða að láta flugfélagið redda þér á áfangastað eins ná- lægt dagsetningu upphaflega flugsins og mögulegt er án þess að komi til aukagjalda fyrir þig. Þetta á alltaf við þegar flugferð er felld niður. Hafi flugfélag boðið þér miða til sölu og þú keypt miða þá ber flug- félaginu að útvega þér annan miða ef flug er fellt niður, jafnvel þótt það hætti sjálft að fljúga til við- komandi áfangastaðar. Þá þarf að útvega miða með öðru flugfélagi,“ bendir Breki á. Thinkstock Fjölbreytt flóra fargjalda Færst hefur í vöxt að flugfélög brjóti niður kostnað vegna flugferða þannig að farþegar borgi fyrir fargjaldið, töskuna og sætið sitt í hvoru lagi. Úr vöndu getur verið að ráða þegar flug er bókað og miklu skiptir að kynna sér vandlega hvað er innifalið í því gjaldi sem greitt er. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.2. 2019 FERÐALÖG Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Lang- vinsælastur hollusta í hverjum bita Sömu reglur gilda um allar flug- ferðir sem annaðhvort hefjast eða enda í Evrópulandi. Flug til og frá Íslandi lýtur því sömu reglum og flug til og frá öðrum áfangstöðum í Evrópu. Upplýs- ingar um þau réttindi sem flug- farþegar njóta og þær skyldur sem þeir gangast undir er hægt að finna á vef Samgöngustofu. Flugfarþegar ættu auðvitað fyrst og fremst að slaka á og njóta flugsins, en það getur borgað sig að þekkja reglur fari eitthvað úrskeiðis. Thinkstock MEÐ REGLURNAR Á HREINU Evrópureglur gilda hér

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.