Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Qupperneq 35
24.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 13.-19. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 KvikaÞóra Hjörleifsdóttir
2 Barnið sem hrópaði í hljóðiJónína Leósdóttir
3 Húðflúrarinn í AuschwitzHeather Morris
4 KambsmáliðJón Hjartarson
5 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason
6 Independent PeopleHalldór Laxness
7 EldrauninJørn Lier Horst
8 RoðabeinAnn Cleeves
9 Hulduheimar 5 – töfrafjalliðRosie Banks
10 Hulduheimar 6 – gliturströndRosie Banks
1 GangverkÞorvaldur S. Helgason
2 VetrarlandValdimar Tómasson
3
Perlur úr ljóðum íslenskra
kvenna
Silja Aðalsteinsdóttir valdi
4 BragarblómRagnar Ingi Aðalsteinsson
5 HaustauguHannes Pétursson
6 SálumessaGerður Kristný
7 Ljóð muna röddSigurður Pálsson
8 Ellefti snertur af yfirsýnÍsak Harðarson
9 Öskraðu gat á myrkriðBubbi Morthens
10 Að ljóði muntu verðaSteinunn Sigurðardóttir
Allar bækur
Ljóðabækur
Ég hef ekki lesið margar af bók-
unum sem komu út núna fyrir jól,
þær eru alltaf í útláni.
Ég er samt búin
með Ungfrú Ísland
eftir Auði Övu fyrir
svolitlu. Mér fannst
hún allt í lagi, var
ekki himinlifandi yfir
henni eins og gagn-
rýnendur. Ég hef les-
ið fleiri bækur eftir hana, en ekki
allar.
Svo las ég Henny Hermanns
eftir Margréti Blön-
dal. Mér fannst
gaman að lesa hana,
hún hefur lifað ævin-
týralegu lífi.
Ég las líka
Listamannalaun
eftir Ólaf Gunn-
arsson, en fannst lítið varið í hana.
Þetta voru bara einhverjar fyll-
eríssögur. Ég var
ekki hrifin af henni.
Ég er svolítið vand-
lát.
Ég er núna að lesa
Að eilífu ástin eftir
Fríðu Bonnie
Andersen. Ég er
ekki búin með hana, en mér finnst
hún allt í lagi, er komin fram í
miðja bók.
ÉG ER AÐ LESA
Dagný Þor-
finnsdóttir
Dagný Þorfinnsdóttir er bóka-
vörður á Bókasafni Seltjarnarness.
Fyrir skömmu kom út ljóðabókinGangverk eftir Þorvald Sigur-björn Helgason og vert að
geta þess að Þorvaldur hlaut Ný-
ræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra
bókmennta fyrir handritið að bók-
inni. Fyrsta bók Þorvaldar,
Draumar á þvottasnúru, kom út í
Meðgönguljóðaröð Partusar fyrir
þremur árum, en hann er sjálfstætt
starfandi rithöfundur og sviðshöf-
undur og hefur víða birt skáldverk á
síðustu árum.
— Draumar á þvottasnúru fannst
mér býsna góð bók, en þegar ég las
hana aftur eftir að hafa lesið Gang-
verk fannst mér þú hafa tekið mikl-
um framförum sem ljóðskáld.
„Það leið nú samt ekki langur tími
á milli ljóðanna, en það gerist mikið
á þeim tíma. Ég skrifaði fyrstu ljóðin
í Gangverki rétt áður en Draumar á
þvottasnúru kom út, en ég var klár-
lega með skýrari mynd á því sem ég
vildi gera með Gangverkið.
Draumar á þvottasnúru var saman-
safn af allskonar textum. Fyrsta
uppkastið að henni var þannig að í
mánuð skrifaði ég ljóð á hverjum
degi og valdi svo það besta úr því. Í
henni bjó ég til þráðinn eftirá, var í
raun að tengja saman ljóð sem sam-
in voru á ólíkum tímum og í ólíku
hugarástandi en þegar ég var að
skrifa Gangverk hafði ég alltaf
strúktúrinn í huga. Ég ætlaði að
fjalla um tiltekið málefni, um tiltek-
inn tíma í lífi mínu og skrifaði því inn
í þann strúktúr og strúktúrinn er
mjög mikilvægur partur af bókinni.“
– Hvað var það sem vakti fyrir
þér?
„Mig langaði að segja sögu, mína
sögu, og þetta er því mjög persónu-
leg bók – stærsti hlutinn af henni er
sannsögulegur, ég er ekkert að
leyna því. Ég lenti í hjartastoppi
þegar ég var fimmtán ára gamall að
verða sextán, á fyrsta ári í mennta-
skóla og á þeim tíma pældi ég ekkert
mikið í því, ég hristi það bara af mér
og hélt að ég væri kominn yfir það.
Það var ekki fyrr en mörgum árum
seinna að ég fór að líta til baka og
pæla aðeins meira í því og áttaði mig
á að þetta hefði kannski haft aðeins
meiri áhrif á mig en ég gerði mér
grein fyrir þá. Ég fór svo að vinna
verkefni tengd hjartastoppinu þegar
ég var á sviðslistabraut í Listahá-
skólanum, gerði til dæmis eina sýn-
ingu sem hét Gangverk lífsins, sem
var kannski einskonar forveri í leik-
listarformi að ljóðbókinni Gangverki
þó það hafi verið algerlega ótengt,
ekki sama umfjöllunarefnið, en
fjallað um hjartað í sviðslistarformi.
Þegar ég byrjaði í ritlist var ég í
áfanga hjá Gunnþórunni Guðmunds-
dóttur sem fjallaði um skáldskap á
mörkum, skáldskap sem er að nota
ólíkar aðferðir og ólíka miðla, bland-
ar þeim saman, og þá langaði mig að
skrifa um mína reynslu og nýta
raunverulegar heimildir, að nýta
sjúkrasöguna mína. Ég hafði sam-
band við lækninn minn, Hjört Odds-
son, og fékk aðgang að læknabréfum
og sjúkraskýrslum sem ég tvinnaði
saman við ljóð. Það var langur að-
dragandi að þessu en svo tók við
tveggja ára ferli þar sem ég vann úr
þessu öllu saman.
Meginpartur verksins, sem heitir
bara Gangverk, segir tíu ára sögu
sem er römmuð inn af tveimur ljóð-
um í byrjun og enda, 2007 og 2017.
Innan þess er ég að vinna með þrjár
ólíkar textatýpur; stutt dagbók-
arbrot, ljóð með rómverskum tölu-
stöfum sem eru skrifuð uppúr
læknaskýrslum og svo prósaljóð sem
eru persónulegri og ljóðrænni.
Í lokin er svo Gáttaflökt sem er
einskonar „remix“ af allri bókinni,
þá var ég að endurvinna minn eigin
texta sem var mjög skemmtilegt, gaf
mér allt öðruvísi sjónarhorn á eigin
skrif.“
– Kom eitthvað á óvart þegar þú
fórst að rýna í læknaskýrslurnar?
„Það sem mér fannst áhugaverð-
ast við þessi læknabréf var tungu-
málið sem þau eru skrifuð á, ein-
hverskonar köldu klínísku máli,
sum þeirra skrifuð í miklum flýti,
illa stafsett og með miklu af lækna-
slettum. Það var samt einhver
áhugaverð ljóðræna í þessum bréf-
um og það voru furðulega ljóð-
rænar myndir sem komu og ég
reyndi að grípa, tók setningar og
orð og raðaði þeim saman, en ég var
ekki mikið að breyta orðunum sjálf-
um, tók þau og setti í nýtt sam-
hengi.
Sumt af því var eins og smásögur,
til dæmis mjög nákvæm lýsing á at-
burðarásinni þegar ég fór í hjarta-
stopp og öllu umstanginu í kringum
það. Það var mjög sjokkerandi að
lesa það því ég hafði aldrei fengið
svona nákvæma lýsingu á þessu.
Mér fannst það skrýtið fyrst, en svo
vandist ég því.“
– Þrátt fyrir allar staðreyndirnar
þá er þetta ljóðabók og þú ert að
yrkja og leika þér með hugmyndir;
meðal annars kemur ástarsaga við
sögu.
„Það var líka eitthvað sem mig
langaði að vinna með. Ég var að
vinna með hjartað og hjartað er
bæði líffæri og líka hugmynd, það er
líka andlegt. Hjartað er bæði and-
legt og hlutlægt og mig langaði að
vinna með þessa tvíhyggju.“
Hjartað er bæði
líffæri og hugmynd
Í nýrri ljóðabók, Gangverki, sækir Þorvaldur S. Helgason hugmyndir í
tvíhyggju hjartans sem er í senn andlegt og hlutlægt.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason yrkir um gangverk.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SIGURVEGARI
Kaka ársins 2019
Sími 551 3083
Klapparstíg 3, 101 Reykjavík
Þú færð sigurkökuna
í Bernhöftsbakarí