Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Qupperneq 37
24.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar
SJÓNVARP Kelsey Grammer, eða „Frasier“ eins og við
köllum hann hér um slóðir, hvetur fólk til að fyrirgefa
gamanleikkonunni Roseanne Barr fyrir rasísk ummæli
sem hún lét falla um ráðgjafa Baracks Obama, fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta. Hann ver ekki ummælin en seg-
ir lífið of stutt til að refsa fólki fyrir mistök af þessu
tagi. Þess utan séu framhaldsþættirnir, sem Barr átti að
leika í, The Connors, ekkert sérstakir. „Það er eins og
það vanti mikilvægan hlekk í keðjuna,“ segir hann við
The Hollywood Reporter. Í sama viðtali útilokar
Grammer ekki að Frasier snúi aftur í samnefndum
gamanþáttum í náinni framtíð, þar myndi sagan þó
hverfast meira, fengi hann að ráða, um son Frasiers,
Frederick, sem nú væri að líkindum um þrítugt.
Ber ekki sitt Barr
Roseanne Barr
heimsótti Jerúsal-
em á dögunum.
AFP
MÁLMUR „John Lennon týndist í eina helgi,
ég týndist í heilan áratug.“ Þetta segir gítar-
leikarinn og Íslandsvinurinn Slash í samtali
við breska blaðið The Guardian, þar sem
hann rennir yfir feril sinn með Guns N’
Roses, Velvet Revolver og fleiri böndum.
Þetta gerðist eftir að Slash hætti í GNR árið
1996 og stofnaði band sem fáir muna eftir,
Snakepit. Slash rifjar einnig upp samstarf
sitt við Lemmy heitinn Kilmister en goðsögn-
in söng og samdi texta við lag hans, Dr. Alibi,
árið 2010. „Við Lemmy smullum saman frá
fyrstu stundu og vorum perluvinir upp frá
því. Veröld mín er ekki sú sama án hans.“
Lennon týndist eina helgi, ég í áratug
Slash með gítarinn á lofti. Búinn að finna sig.
Reuters
Áratugum saman stóð ég íþeirri meiningu að Húsið ásléttunni, eða Grenjað á
gresjunni, eins og það var kallað í
minni sveit, væri væmnasti þáttur
sjónvarpssögunnar og lengra yrði lík-
lega ekki komist í þeim efnum. Hverj-
ar hörmungarnar á fætur öðrum
gengu yfir Ingalls-fjölskylduna,
þannig að ekki var þurr hvarmur hér
í fásinninu milli klukkan 16.10 og 17 á
sunnudögum um langt árabil og vasa-
klútar seldust eins og heitar lummur.
Stóð ekki Hugvekjan örugglega frá
klukkan 16 til klukkan 16.10?
Nú hafa þau stórtíðindi orðið að
kominn er fram á sjónarsviðið væmn-
ari sjónvarpsþáttur; þáttur sem lætur
Húsið á sléttunni líta út eins ærsla-
leik eftir Dario Fo. Hér er ég vita-
skuld að tala um This Is Us, sem farið
hefur sigurför um heiminn á undan-
förnum misserum. Þátturinn er að
sjálfsögðu bandarískur í húð og hár
enda engin önnur þjóð þess umkomin
að herja af slíkum þunga á tárakirtla
blásaklauss fólks sem ekki má vamm
sitt vita.
Eins og Húsið á sléttunni er This
Is Us fjölskyldudrama. Hvers vegna
eru menn hættir að íslenska þátta-
heiti? This Is Us gæti hæglega verið
„Hér erum við“ eða „Af okkur“, eða
eitthvað í þá áttina. Eða jafnvel „Í
blíðu og stríðu“, í anda gömlu þýðing-
anna. En það er svo sem önnur saga.
Líf þessa fólks er allt með mestu
ólíkindum; við liggur að Kennedy-
arnir séu stálheppið kyn við hliðina á
Pearson-fjölskyldunni. Hjónin missa
barn við fæðingu, eitt af þremur, en
næla sér í annað í staðinn, af allt öðr-
um húðlit. Það veldur að vonum gleði
en um leið erfiðleikum. Síðan lifir
pabbinn af eldsvoða en deyr seinna
um kvöldið úr hjartaáfalli – vegna
þess að hann andaði að sér of miklum
reyk þegar hann bjargaði hundinum
á elleftu stundu úr logunum.
Svo er það Bakkus; hann eltir karl-
peninginn á röndum. Systirin er með
böggum hildar vegna yfirþyngdar og
hressi gaurinn, sambýlismaður syst-
urinnar, gengur fyrir geðlyfjum og án
þeirra er sem hleypt sé úr honum.
Allt raunsannar lýsingar og fram-
vindan átakanleg á löngum köflum en
væmnin liggur eins og mara yfir
þessu öllu. Náði hámarki þegar
mamman söng fyrir pabbann í bílnum
úti á plani – svo hann vatnaði músum.
Þetta er synd því margt er vel gert í
This Is Us og skemmtilega að upp-
byggingu staðið; eins og hvernig við
fáum alltaf fyllri mynd af persónun-
um gegnum tímaflakkið.
En sættu þig bara við það, lagsi;
maður horfir einfaldlega ekki á This
Is Us nema með vasklútinn í annarri
og ælupokann í hinni.
Þétt var fléttan í Húsinu á sléttunni.
AF VÆMNUM SJÓNVARPSÞÁTTUM
Með vasaklútinn í
annarri og ælu-
pokann í hinni
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
Á skjánum
This Is Us hefur sópað
að sér verðlaunum.
Óhætt er að segja að hlutverk séra Jóhannesar Kragh,
hins breyska guðsmanns í dönsku framhaldsþátt-
unum Herrens veje, hafi breytt lífi leikarans Lars
Mikkelsen til frambúðar. Þegar langt var liðið á aðra
seríu þessara vinsælu þátta gekk Mikkelsen á fund
prests og lét skíra sig inn í
dönsku þjóðkirkjuna – kominn
á sextugsaldurinn.
Mikkelsen ólst upp hjá trú-
lausum foreldrum sem að-
hylltust kommúnisma og
fannst kristnin og kirkjan lengi
vel ekki koma sér við. Hann sá
þó ekkert því til fyrirstöðu að
taka hlutverk séra Kraghs að
sér enda þurfa menn ekki að
vera skoskir morðingjar til að
leika Macbeth, eins og hann
bendir á í samtali við breska
blaðið The Guardian. „Til að
byrja með skipti bakgrunnur
minn engu máli þegar gera
þurfti prestinn trúverðugan.
En leiklistin er skrýtin skepna:
að hluta til er hún þú sjálfur, að
hluta til það sem stendur í handrit-
inu og að hluta til það sem situr
eftir úr rannsóknarvinnunni fyrir
hlutverkið. Að lokum er allt komið
í einn hrærigraut sem maður vill
kunna skil á,“ segir Mikkelsen.
Athöfnin var látlaus en leikarinn
viðurkennir að þessi óvænta
stefnubreyting í lífinu hafi komið
fjölskyldu hans og vinum í opna
skjöldu. „Ég veit ekki hvort þau
hafa fellt sig við þetta ennþá. Veit
satt best að segja ekki hvort ég hef
gert það sjálfur. En því eldri sem
maður verður þeim mun brýnna
er að vera sjálfum sér samkvæmur.
Þess vegna gerði ég þetta.“
Lars Mikkelsen með Emmy-verðlaunin sem hann hlaut á
síðasta ári fyrir hlutverk prestsins í Herrens veje.
AFP
DANSKI LEIKARINN LARS MIKKELSEN
Lét skíra sig
eftir að hafa
leikið prest
Mikkelsen og Ann
Eleonora Jørgensen
í Herrens veje. DR1