Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 2
Í mælingum fyrir suðurströndinni síðustu daga hefur ekki mælst nægjanlegt magn til að gefa út upphafskvóta á vertíðinni. Loðnu hefur víða orðið vart við Reykjanes og suðurströndina, en hún er nú á hefð- bundinni gönguslóð á leið á hrygningar- stöðvar fyrir vestan land. Væntanlega er það loðna sem hvalur og fuglar eru að gæða sér á á myndinni til hliðar. Á fundi samráðshóps Hafrannsókna- stofnunar og útgerða uppsjávarskipa í gær var ákveðið í kjölfar frétta að Polar Amaroq færi norður fyrir land til að kanna hvort þar er einhver loðna á ferð- inni. Ásgrímur Halldórsson var í gær langt kominn með vöktun úti fyrir Suð- austurlandi. aij@mbl.is Leita loðnunn- ar áfram fyrir norðan land Ljósmynd/Haraldur Hjálmarsson 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 y y Hvítu Þorpin Gönguferð um Jimera de Líbar –Montejaque –Grazalema–Genalguacil – Ronda 9. júní í 7 nætur Frá kr. 239.995 Fararstjóri: ÁsaMarinHafsteinsdóttir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Karl Steinar Valsson, yfirlögreglu- þjónn hjá Lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu, segir aukinn fíkniefna- akstur vera eina vísbendingu um aukið aðgengi að fíkniefnum. „Fíkniefnaaksturinn er auðvitað ein vísbendingin. Annars vegar um aðgengi að efnum og hvernig menn líta til fíkniefna. Það viðhorf endur- speglast svolítið mikið í því. Það eru mjög margar helgar þannig að við erum að hafa afskipti af nánast jafn mörgum fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og ölvunarakstur,“ segir Karl Steinar. Samkvæmt dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru fjörutíu og sex ökumenn teknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur um síðustu helgi. Þar af einn sem var tekinn fyr- ir þessar sakir í tvígang, fyrst á föstudagskvöld og svo aftur aðfara- nótt sunnudags. Þetta voru þrjátíu og sex karlar og tíu konur, en yngsti ökumaðurinn var 18 ára og sá elsti 66 ára. Karl Steinar segir það tiltölu- lega nýlega þróun að fleiri aki undir áhrifum fíkniefna. Mesta breytingin hafi átt sér stað í fyrra. Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlækn- ir á sjúkrahúsinu Vogi, segir að margt sé líkt með því sem þau sjá og því sem lögreglan sér. „Það er aukn- ing á kókaíni og aukin eftirspurn eft- ir meðferð. Síðustu tvö ár hefur eft- irspurnin verið miklu meiri. Vandinn er mikill og mikið ákall í raun,“ segir Valgerður. Hún segir að örvandi efni eins og amfetamín, kókaín og mdma séu al- gengustu efnin í umferð. „Kókaínið hefur eiginlega verið mest áberandi af þessum lyfjum síðasta árið,“ segir Valgerður og bætir við að þau sjái fleiri vera að leita sér aðstoðar vegna kóakaínfíknar núna en árið 2007. mhj@mbl.is Aukinn fíkniefnaakstur vísbending um aðgengi  46 ökumenn teknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur Morgunblaðið/Eggert Eftirlit Lögreglan við eftirlit með ökumönnum í miðbæ Reykjavíkur. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Enginn slasaðist þegar Beitir NK fékk fyrirvaralaust á sig brot á heim- siglingu af kolmunnamiðunum vest- ur af Írlandi um hádegi á laugardag- inn var. Tvö kýraugu á íbúðargangi aðalþilfars sprungu inn og blindlúg- ur sem loka kýraugunum að innan- verðu brotnuðu. Þar fossaði sjór inn í klefa eins skipverjans. Auk þess brotnaði gluggi á dekkhúsi á efra þil- fari. Sjórinn fossaði inn í klefann þar sem kýraugun brotnuðu og þar var einn úr áhöfninni sem á endanum stóð í sjó upp í mitti, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar (svn.is). Sturla Þórðarson skipstjóri sagði að þetta hefði verið einkar óþægileg upplifun fyrir skipverjann. „Sem betur fer slasaðist enginn í þessum látum og það má alltaf gera við járn og tré um borð. Eftir þetta slóuðum við í eina 12 tíma og komum ekki til löndunar fyrr en í gær,“ sagði Sturla. „Þetta var svakalegt dúndur“ Skipið lagði af stað af miðunum um miðnætti aðfaranótt laugardags með fullfermi, um 3.100 tonn af kol- munna. Það er með því mesta sem ís- lenskt fiskiskip hefur borið að landi úr einni veiðiferð. Þá var framundan 860 sjómílna heimsigling sem sam- svarar 1.593 km. Brátt skall á hörku- bræla en veðurfar á þessum slóðum getur verið afar slæmt, að sögn Sturlu. Þegar vindur er mikill verða öldurnar risavaxnar og heldur ógn- vekjandi. Vindur og sjór voru um 45 gráður fyrir aftan þvert. Eftir um tólf tíma siglingu skall brotið fyrirvaralaust aftarlega á skipið bakborðsmegin. „Þetta var svakalegt dúndur,“ sagði Sturla. Hann sagði að svona brot gerði í fæstum tilfellum boð á undan sér. Sturla sagðist hafa verið með í því áður að fá inn kýrauga og glugga. „Það er ekki skemmtilegt,“ sagði Sturla. Áhöfnin brást hárrétt við Beitir NK hélt strax aftur til veiða að lokinni löndun í Neskaupstað. Hárrétt viðbrögð áhafnarinnar komu í veg fyrir að skemmdir um borð yrðu verulegar, að sögn Karls Jóhanns Birgissonar, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar. „Sjór- inn sem komst í klefann flæddi síðan um allan íbúðarganginn og fór inn í alla klefa. Áhöfnin náði fljótt að þurrka allt svæðið sem sjórinn komst á og þétta kýraugun sem brotnuðu þannig að komið var í veg fyrir að skemmdir yrðu töluverðar. Þegar skipið kom í höfn í gær var strax ráðist í viðgerðir á kýraugun- um og lauk því verki um miðnætti,“ segir Karl Jóhann í frétt Síldar- vinnslunnar. Veiðar og vinnsla ganga vel Kolmunnaveiðar og kolmunna- vinnsla ganga vel, að sögn Gunnþórs Ingvasonar, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar. Auk Beitis NK eru Börkur NK og Bjarni Ólafsson AK á kolmunnaveiðum um þessar mundir fyrir Síldarvinnsluna. Gunnþór segir að sækja þurfi langt á kolmunnamiðin og að veður hafi verið erfið. Það er því eins gott að vera á traustum skipum. Aflinn er kældur um borð og er kolmunninn unninn í fiskimjöl og lýsi í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Góðir markaðir eru fyrir afurðirnar, að sögn Gunnþórs. Brot skall fyrirvaralaust á Beiti  Tvö kýraugu brotnuðu og sjórinn fossaði inn  Skipverjar brugðust hárrétt við  Enginn slasaðist við óhappið  Beitir NK kom með um 3.100 tonn af kolmunna Ljósmynd/Smári Geirsson Beitir NK Undirbúningur viðgerðar hófst um leið og skipið lagðist að bryggju í Neskaupstað. Beitir hélt strax aftur til veiða eftir löndun. Reiknað er með að Félagsdómur kveði í dag upp dóm um lögmæti boðunar Eflingar stéttarfélags á verkfalli hótelþerna. Verkfallið á að hefjast á morgun. Fundur er boðaður í vinnudeilu VR, Verkalýðsfélags Grindavíkur, Verkalýðsfélags Akraness og Efl- ingar við Samtök atvinnulífsins (SA) kl. 10.00 í dag. Engir fundir hafa verið í deilunni síðan við- ræðum var slitið 21. febrúar. Eng- inn hafði óskað eftir frestun fund- arins í dag þegar rætt var við Bryndísi Hlöðversdóttur ríkis- sáttasemjara í gærkvöld. Hún reiknaði með að staðið yrði við fundartímann. „Við tökum stöðuna á því hvort fólk er tilbúið í frekari samningaviðræður,“ sagði Bryndís. Vinnufundir Starfsgreina- sambandsins, Samflots iðnaðar- manna, Landssambands verslunar- manna og SA eru bókaðir kl. 9.00 til 17.30 í dag, á morgun, á laugardag og sunnudag. gudni@mbl.is »8 Morgunblaðið/Hari Ríkissáttasemjari Fundur verður í deilu VR, VLFG, VLFA og Eflingar við SA í dag. Reiknað með dómi Félagsdóms í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.