Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 10

Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 NÝR BÆ KLINGUR Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Str. 38-58 Nýjar vörur streyma inn Wakefield falsaði niðurstöður sína og vísindaritið dregið greinina til baka, er kenningin lífseig. Breska ríkisútvarpið, BBC, fjallaði nýverið um aukningu í mislinga- tilfellum í Bretlandi og Evrópu, en í Bretlandi hafa 87,5% fimm ára barna fengið MMR-bólusetninguna. Þar var rætt við Simon Stevens sem er yfirmaður bresku heilsugæslunnar, NHS sem sagði að málflutningur andstæðinga bólusetninga á netinu hefði fengið aukinn byr sem mætti rekja til falsfrétta. Skilaboðum um að MMR-bólusetningin ylli einhverfu væri beint á samfélagsmiðlum að for- eldrum ungra barna. „Þetta er mikið áhyggjuefni,“ sagði Stevens í samtali við BBC. Spurður hvort hann verði var við viðhorf af þessu tagi hér á landi segir Þórólfur svo vera. „Þessi umræða er lífseig og erfitt að kveða hana niður. Þeir sem eru andvígir bólusetningum halda þessu á lofti en ég hef svo sem ekki heyrt þetta mikið síðustu daga.“ Hér á landi hafa 90-95% lands- manna ýmist fengið mislinga eða ver- ið bólusettir við þeim. Þetta hlutfall er undir viðmiði Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar, WHO, sem er 95%. „Ég hef stundum verið eins og hróp- andi í eyðimörkinni þegar ég tala um mikilvægi bólusetninga,“ segir Þór- ólfur. „En málið er að fólk í dag hefur ekki séð hvað þessir sjúkdómar geta verið skaðlegir og er almennt ekkert að hugsa um þá fyrr en svona ástand kemur upp.“ Ein bólusetning dugar Af og til hefur sú umræða komið upp að skilyrða ætti leikskóladvöl við börn sem hafa verið bólusett. Spurð- ur hvort það hafi verið rætt á vett- vangi Embættis landlæknis segir Þórólfur svo ekki vera. „Þegar börn eru ekki bólusett er það yfirleitt ekki vegna andstöðu foreldra, heldur vegna þess að innköllunarkerfi heilsugæslunnar er ekki alveg nógu gott á ákveðnum aldursskeiðum. Skynsamlegast væri að laga það fyrst og sjá hvort þátttakan ykist ekki áður en farið væri að beita hörð- um aðgerðum. Það hefur ekki gefist vel að koma á skyldubólusetn- ingum,“ segir Þórólfur og vísar þar til reynslu annarra þjóða. „En það gæti verið örþrifaráð þegar annað dugar ekki.“ Að öllu jöfnu eru til um tveggja mánaða birgðir af MMR-bóluefninu hér á landi, en gengið hefur á þær undanfarið og nú þarf að forgangs- raða þeim sem það fá. „Við bólusetj- um óbólusetta sem eru í tengslum við einstaklinga sem geta mögulega bor- ið smit, því það er í forgangi hjá okk- ur að stoppa útbreiðslu. Aðrir þurfa líklega að bíða fram í næstu viku,“ segir Þórólfur. Spurður hvort áhrif bólusetningar fjari út með aldrinum segir hann svo ekki vera. „Nei, og fullorðið fólk sem fékk bólusetningu gegn mislingum í æsku þarf ekki að fá hana aftur.“ Í gær komu allir svæðisstjórar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins saman á fundi, auk setts forstjóra Heilsugæslunnar og Framkvæmda- stjóra Læknavaktarinnar þar sem rætt var um verklag varðandi lækn- isvitjanir, en þeir sem telja sig hafa smitast af mislingum eru beðnir um að leita hvorki á heilsugæslustöðvar né sjúkrahús, heldur hafa samband símleiðis og fá lækni heim til sín. Þórólfur segir að þau mislinga- tilvik sem upp hafa komið sýni glöggt fram á hvað sjúkdómurinn geti verið bráðsmitandi. „En þetta sýnir ekki síður hversu auðvelt það er fyrir einstakling sem kemur það- an sem mislingar eru að ganga að smita aðra, einkum börn sem ekki hafa fengið bólusetningu. Þetta sýnir okkur líka hversu mikilvægt er að foreldrar hugi vel að bólusetningum barna sinna.“ Vonandi bara stök tilfelli Þeir sem hafa smitast eru búsettir á Austurlandi og á höfuðborgar- svæðinu og Þórólfur segir að nú sé fyrst og fremst einblínt á þessi land- svæði. Starfsfólk Heilbrigðisstofn- unar Austurlands, HSA, hefur unnið að því undanfarna daga að finna þá sem taldir eru hafa orðið útsettir fyr- ir smiti. Pétur Heimisson, umdæm- islæknir sóttvarna á Austurlandi, segir að þegar sé búið að safna tals- verðu magni upplýsinga, en ekki megi búast við því að hægt verði að ná til allra sem um ræðir. „Það sem er verið að gera er að átta sig á ferð- um þeirra sem hafa smitast af misl- ingum, kortleggja hverja þeir hafa umgengist og gera viðeigandi ráð- stafanir,“ segir Pétur. „Það, að tak- ast á við mislingasmit í samfélaginu, er verkefni sem við verðum upptekin af næstu vikur.“ Að sögn Péturs hafa margir haft samband við HSA síðan fréttist af mislingasmitinu. Fólk hafi ýmsar spurningar um smitleiðir og einkenni og þá hafi verið talsvert um að fólk komi í bólusetningar. „Það er mikið og gott hjarðónæmi hér, með allt að 95% þátttöku barna í bólusetningu. Við vonum að þetta verði ekkert ann- að en stök tilfelli,“ segir Pétur. 11 mánaða barn í einangrun  Mesti fjöldi smitaðra í meira en 40 ár  Bólusetning hér á landi er undir alþjóðlegum viðmiðum  Skyldubólusetningar væru örþrifaráð  Bóluefni senn á þrotum  Óvíst hvort fleiri hafi smitast AFP Bólusetning 90-95% Íslendinga hafa ýmist fengið mislinga eða verið bólusettir við þeim. Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir segir að fólk leiði ekki hugann að slíkum sjúkdómum fyrr en tilvik komi upp. SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Ellefu mánaða gamalt barn liggur nú á Barnaspítala Hringsins eftir að hafa veikst af mislingum. Í gær var vitað um að fjórir hefðu smitast. Það er mesti fjöldi sem greinst hefur með sjúkdóminn frá árinu 1977. Sá fyrsti smitaðist erlendis, hinir þrír í flugvél Air Iceland Connect á milli Reykja- víkur og Egilsstaða 15. febrúar síð- astliðinn. Þeirra á meðal er barnið, sem samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er í einangrun á spít- alanum.Ekkert þeirra sem smitaðist hafði verið bólusett. Mikil ásókn hef- ur verið í bólu- setningar við mislingum síðan fréttir bárust af smitinu og bóluefnabirgðir í landinu verða senn á þrotum. Þórólfur Guðna- son, sótt- varnalæknir hjá Embætti land- læknis, segir að talsvert sé um að áhyggjufullt fólk hafi samband við embættið og heilsu- gæslustöðvar vegna þessa og segir að þessi tilvik verði vonandi til þess að Ísland nái þeim alþjóðlegu viðmiðum sem sett eru um hlutfall bólusettra, en það hefur farið minnkandi hér á landi undanfarin ár. Hann segir ekki útilokað að fleiri tilfelli muni bætast við, óvíst sé hvort fleiri hafi smitast. 18 mánaða bólusetning Bólusett er við mislingum með svo- kölluðu MMR-bóluefni við 18 mánaða aldur, en tvö þeirra sem smituðust eru börn undir þeim aldri sem ekki höfðu verið bólusett. „18 mánaða við- miðið er vegna þess að ekki er víst að bólusetningin virki ef hún er gefin börnum mikið yngri en þetta,“ segir Þórólfur. „Hún getur virkað frá sex mánaða aldri, en það er ekki hægt að stóla á að árangurinn verði ótvíræður þegar barnið er það ungt.“ Auk mislinga er MMR-bóluefnið gegn hettusótt og rauðum hundum. Árið 1998 birti breski læknirinn And- rew Wakefield niðurstöður rann- sóknar sinnar sem hann sagði sýna samband á milli MMR-bólusetning- arinnar og einhverfu. Lækna- tímaritið Lancet, eitt virtasta tíma- ritið sinnar tegundar, birti rannsóknina sem fékk mikla umfjöll- un og í kjölfarið fjölgaði þeim for- eldrum umtalsvert sem ákváðu að láta ekki bólusetja börn sín. Þrátt fyrir að síðan þá hafi komið í ljós að Þórólfur Guðnason Mislingar, sem á latínu heita Morbilli, eru mjög smitandi veirusjúkdómur sem var algengur áður fyrr hér á landi og víðar, en eftir að farið var að bólusetja gegn honum dró mjög úr algengi hans. Sjúkdómurinn berst manna á milli með úða frá öndunarfærum, t.d. hósta eða hnerra og einnig með snertingu. Eftir að veiran berst út í andrúmsloftið getur hún lifað þar í allt að tvær klukkustundir og valdið smiti. Byrjað var að bólusetja við mislingum hér á landi árið 1975, að sögn Þórólfs. Sé þorri fólks bólusettur er hægt að halda farsóttum í skefjum en þannig myndast svokallað hjarðónæmi. Það þýðir að ónæmi gegn sjúk- dómunum verður nægilega algengt í landinu til að koma í veg fyrir út- breiðslu þeirra, jafnvel þó að einstök tilfelli komi upp. Metfjölgun varð í mislingasmiti í Evrópu á síðasta ári sem m.a. er rakið til Ítalíu og ýmissa landa Austur-Evrópu. Tugþúsundir Evrópubúa greind- ust með sjúkdóminn í fyrra og að sögn Þórólfs er þessi faraldur ekki í rénun. Sóttvarnalæknir hefur í samvinnu við heilsugæsluna, Landspítala, Læknavaktina og fleiri aðila gefið út sóttvarnaráðstafanir sem birtar eru á vefsíðu Embættis landlæknis. Þær eru til þess ætlaðar að hindra frekari dreifingu mislinga og í þeim felst m.a. að komist óbólusettur einstak- lingur í snertingu við mislingasmit er honum ráðlagt að halda sig heima frá degi 6 til dags 21. Á þeim tíma geta veikindin komið fram og einstak- lingar eru þá smitandi. Sé bólusett innan 72 klukkustunda frá smiti er í mörgum tilfellum hægt að koma í veg fyrir veikindi, samkvæmt ráðstöf- ununum. Einnig er fólk beðið um að koma hvorki beint á heilsugæslu- stöðvar né á sjúkrahús ef það telur sig eða börn sín veik af mislingum. Mjög smitandi veirusjúkdómur SÓTTVARNARÁÐSTAFANIR GEFNAR ÚT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.