Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
T
ilkoma sýklalyfja fyrir
miðja síðustu öld var
vafalaust ein helsta bylt-
ingin í sögu læknisfræð-
innar og lyfin gegna af-
ar mikilvægu hlutverki í nútíma-
heilbrigðisþjónustu. Á Íslandi eins
og annars staðar á Vesturlöndum
hefur vægi smitsjúkdóma, bæði
hvað varðar sjúkdómabyrði og
dánarorsakir, minnkað verulega.
Fljótlega eftir að pensilín kom á
markaðinn tók að bera á vaxandi
ónæmi ýmissa bakteríustofna. Þessi
þróun hefur haldið áfram æ síðan og
er þróun ónæmis fyrir sýklalyfjum á
heimsvísu mikið áhyggjuefni. Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur
af þessum sökum hvatt til aðgerða
til að sporna við þessari þróun. Hafa
verður í huga að engin ný sýklalyf
hafa litið dagsins ljós um allnokkurt
árabil.
Miklu ávísað á Íslandi
Stór áhrifaþáttur í tilurð og þróun
ónæmis fyrir sýklalyfjum er mikil
notkun þeirra. Íslenskir læknar hafa
í mörg ár ávísað mun meira af sýkla-
lyfjum en starfsbræður þeirra á hin-
um norrænu löndunum, sérstaklega
tilteknum breiðvirkum lyfjum. Ár-
um saman hefur sýklafræðideild
Landspítala fylgst með þróun
ónæmis og á undanförnum árum
hefur m.a. komið fram breyting á
næmi algengra öndunarfærabakt-
ería, svokallaðra pneumococca, fyrir
lyfjum sem hafa verið mikið notuð
hjá einstaklingum með pens-
ilínofnæmi.
Langflestar ávísanir á sýklalyf
eru gefnar út utan sjúkrahúsa og al-
gengustu ástæður meðferðarinnar
eru sýkingar í öndunarfærum og
eyrum, sýkingar sem mjög oft eru
saklausar og hafa mikla tilhneigingu
til að lagast án sýklalyfjameðferðar.
Veirur valda mörgum þessara sýk-
inga, en sýklalyf gagnast ekkert
gegn veirusýkingum og heilbrigt
fólk ræður að jafnaði vel við þær.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæð-
isins hóf fyrir þremur árum, í sam-
starfi við Sóttvarnalækni og sýkla-
fræðideild Landspítala, vinnu sem
hefur að markmiði að stuðla að
skynsamlegri ávísun sýklalyfja. Á
fyrstu tveimur árum verkefnisins
fækkaði ávísunum á tiltekin breið-
virk sýklalyf milli 20 og 30% milli
ára og einnig varð nokkur fækkun á
heildarávísunum og ávísunum til
barna sérstaklega.
Almenningur hér á landi gerir sér
vonandi almennt vel grein fyrir mik-
ilvægi þess að nota sýklalyf skyn-
samlega, bæði vegna hættu á ónæm-
isþróun almennt, en einnig vegna
hugsanlegra aukaverkana eða
óheppilegra áhrifa lyfjanna á þann
sem notar þau. Vegna þess hve
sýklalyfin eru mikilvæg ber okkur
öllum, almenningi svo og læknum
sem ávísa lyfjunum, að ganga vel
um þá mikilvægu auðlind sem þau
eru.
Ráðgjöf í boði
Ef þú, lesandi góður, ert eða verð-
ur í vafa um hvort þörf er á mati eða
meðferð við sýkingareinkennum
geturðu leitað ráðgjafar hjá hjúkr-
unarfræðingum heilsugæslustöðv-
anna í síma 1770, sem er opinn allan
sólarhringinn, og á slóðinni Heilsu-
vera.is.
Lyfjagjöf Læknar hvetja til hóflegrar sýklalyfjanotkunar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Samstarfsmenn Jón Steinar Jónsson og Kristján Linnet greinarhöfundar.
Heilsuráð
Jón Steinar Jónsson heilsugæslulækn-
ir og Kristján Linnet lyfjafræðingur,
Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsu-
gæslu og Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Skynsamleg notkun
sýklalyfja
Morgunblaðið/Árni SæbergLiðsmenn Hróksins hafa síðustu vik-
una staðið fyrir árlegri Polar Pelagic-
hátíð í Kulusuk á Grænlandi, sem er
næsti nágrannabær Íslendinga. Há-
punktur hátíðarinnar var meistara-
mót grunnskólans þar sem allir nem-
endurnir, rúmlega 30 talsins, voru
meðal keppenda.
Hátíðin hófst með kennslu og fjöl-
tefli Hrafns Jökulssonar, en öll börnin
í Kulusuk kunna mannganginn og
mörg eru orðin harla góð í skáklist-
inni eftir fjölmargar heimsóknir
Hróksins á liðnum árum. Reyndar
þurfti að gera hlé á fjöltefli Hrafns
þegar fréttist að einn af veiðimönn-
unum í Kulusuk hefði fellt ísbjörn í
jaðri þorpsins!
En það var ekki bara skáklistin sem
var á efnisskrá hátíðarinnar. Heið-
björt Ingvarsdóttir sá um föndur- og
hannyrðanámskeið og hin níu ára
gamla Jóhanna Engilráð Hrafnsdóttir
hélt utan um myndlistarkeppni
barnanna í skólanum.
Meistaramótið í Kulusuk var haldið
á þriðjudag, og þar sigraði Mikkel
Nathanielsen eftir æsispennandi bar-
áttu. Í næstu sætum komu Grethe
Nakinge, Julius Abelsen og Kenno
Kalia. Öll fengu börnin glaðning frá
Nóa Síríusi, auk þess sem Hróksmenn
færðu öllum börnunum ný skáksett
að gjöf frá Air Iceland Connect.
Verðlaun í myndlistarsamkeppninni
hlutu Hansiman Abelsen, William Nat-
hanielsen, Pipaluk Utitsatikitseg,
Grethe Nakinge, Helle Petersen, Enos
Utuaq og Jacob Abelsen. Allar myndir
krakkanna í Kulusuk verða til sýnis í
Pakkhúsi Hróksins við Reykjavíkur-
höfn helgina 16.-17. mars, en þá
standa Hrókurinn og Kalak fyrir
Grænlandshátíð til heiðurs Steffen
Lynge, skákmeistara, tónlistarmanni
og lögregluþjóni frá Grænlandi.
Polar Pelagic-hátíð Hróksins í Kulusuk
Meistaramót grunnskólans í
skák hápunktur hátíðarinnar
Grænland Vinningshafar í skákmótinu í Kulusuk kampakátir.
Kulusuk Allir nemendur grunnskólans í Kulusuk, 30 að tölu, tóku þátt í skák-
móti Hróksins, en gríðarlegur áhugi hefur kviknað meðal ungmenna á skákinni.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Škoda Kodiaq hefur slegið rækilega í gegn og Karoq litli bróðir
gefur honum lítið eftir. Komdu í reynsluakstur og finndu
hvernig er að vera á toppnum. Hlökkum til að sjá þig.
Tilboðsverð 4.550.000 kr.
Škoda Karoq
Ambition / 1.6 TDI / Sjálfskiptur
Listaverð 4.850.000 kr.
300.000 kr.
Afsláttur
Verð frá 5.790.000 kr.
Škoda Kodiaq 4x4
Tveir á toppnum frá Škoda