Morgunblaðið - 07.03.2019, Síða 22
Vegvísir að heimsmarkmiðum Sam-
einuðu þjóðanna ræddur í Hörpu
asta land í heimi en það sé ekki rétt.
Ísland standi sig hlutfallslega illa
þegar komi að umhverfismálum og
þá sérstaklega í frárennslismálum
og líffræðilegum fjölbreytileika.
Nást heimsmarkmiðin?
„Ráðstefnunni er ætlað að varpa
ljósi á hvað það er sem gengur upp í
að efla félagslegar framfarir í sam-
félaginu. Við erum að miklu leyti að
mæla sömu hlutina og endurspegl-
ast í heimsmarkmiðunum. Með
hjálp SPI sést hvort við erum að
fara í rétta átt varðandi heimsmark-
mið Sameinuðu þjóðanna. Við horf-
um á árangurinn yfir tíma og getum
brugðist við. Heimsmarkmiðin hafa
það að leiðarljósi að bæta heiminn
og skilja engan eftir. Það skiptir
miklu máli að hver og ein þjóð,
svæði, fyrirtæki, einstaklingur taki
þátt með einum eða öðrum hætti,“
segir Rósbjörg og bætir við að fjöldi
leiðtoga og stjórnenda hvaðæva úr
heiminum sé væntanlegur. M.a.
muni Helen Clark, fyrrverandi for-
sætisráðherra Nýja-Sjálands, ræða
leiðir að heimsmarkmiðunum. Skoð-
að verður hvaða þjóðir muni hugs-
anlega ná heimsmarkmiðunum og
hverjar ekki. Einnig hvaða áhrif
tækniþróun hafi á heimsmarkmiðin.
Í vinnustofum verður að sögn
Rósbjargar rætt um hvernig hægt
sé að ná markmiðum um menntun
fyrir alla, vinnu fyrir alla og inn-
viðauppbyggingu sem mæti nauð-
synlegum grunnþörfum. Einnig
hvernig stuðla megi að bættri heilsu
og vellíðan fyrir alla, áskoranir í
umhverfismálum og þátttöku og
frelsi einstaklingsins í samfélaginu.
„Á ráðstefnunni verður kafað of-
an í miklvægi samvinnu og sam-
starfs til þess að ná heimmarkmið-
unum og hvernig hægt er að beita
SPI sem verkfæri til þess að varpa
ljósi á stöðuna á mismunandi svæð-
um. Við munum einnig ræða um
fjármögnun til þess að ná heims-
markmiðunum. Peningar eru jú afl-
vaki alls og við verðum að gæta þess
hvernig við nýtum peningana og
hvernig þeir skiptast á milli svæða,“
segir Rósbjörg og bætir við að
fulltrúar frá OECD og fjárfestar
muni taka þátt í umræðunni.
„Bæjarstjóri Kópavogs og borg-
arstjórar í San Jose í Kaliforníu,
Missisippi, Bratislava og fleiri
borga munu ræða mismunandi
áskoranir sem bíða borga og bæja
til þess að ná heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna,“ segir Rós-
björg sem bætir við að jafnréttis-
umræðunni verði gerð góð skil en
nýr stjórnarmaður SPI, Silvana
Koch-Mehrin, sem jafnframt er for-
maður og stofnandi Woman Politi-
cal Leaders, muni ræða jafnrétti
kynjanna. Þá muni Özlem Cekic,
fyrrverandi þingmaður í Danmörku,
deila skoðun sinni og reynslu af hat-
ursumræðu og hvernig hægt sé að
brúa bilið milli ólíkra menningar-
heima. Skoðað verði hvernig menn-
ingarlegur munur og mismunandi
þátttaka í samfélaginu getur haft
áhrif á að heimsmarkmiðin 2030 ná-
ist.
Helstu stuðningsaðilar ráðstefn-
unnar eru forsætisráðuneytið, Arion
banki, Alþjóðabankinn og Deloitte
en ráðstefnuna sitja 150 boðsgestir
frá um 30 löndum að sögn Rós-
bjargar. Hún vonast til þess að sem
flestir nýti sér hliðarviðburði ráð-
stefnunnar sem verða í Hörpu og
Norræna húsinu 1. og 3. apríl og
eru opnir öllum sem skrá sig á við-
burðina í gegnum heima- eða fés-
bókarsíðu What Works 2019.
„Í Norræna húsinu skoðum við
hvað geri það að verkum að vísitala
félagslegra framfara mælist hvað
mest á Norðurlöndum. Hvaða tæki-
færi þau hafi til enn frekari fram-
fara í félagslegu og umhverfislegu
tilliti og hvaða áskoranir þessar
þjóðir eru að takist á við. Í Hörpu
verðum við með kynningu á starf-
semi SPI og fyrir hvað félagsleg
vísitala stendur,“ segir Rósbjörg og
bætir við að í vinnustofu um sam-
félagslega ábyrgð taki þátt inn-
lendir og erlendir fyrirlesarar sem
fjalla muni um ábyrgð og félagsleg
áhrif fyrirtækja. Spurt verði hvað
atvinnulífið geti gert til að efla sam-
félög.
Lausnamiðuð tækifæri
„Atvinnulífið eða fyrirtækin geta
snúið áskorunum samfélaga og um-
hverfis upp í lausnamiðuð tækifæri
með gagnkvæman ávinning að leið-
arljósi. Stjórnvöld þurfa að búa til
gott starfsumhverfi fyrir atvinnu-
lífið til að geta skapað verðmæti
með ábyrgum hætti. Þetta er mikil
áskorun í samfélögum þar sem allt
byggist á stöðugu árangursmati. Því
er mikilvægt að árangurinn sé
mældur og veginn með skilmerki-
legum og raunhæfum mælingum,“
segir Rósbjörg. Í sérstakri vinnu-
stofu um sjálfbærni í ferðaþjónustu
og heimsmarkmiðin munu innlendir
og erlendir sérfræðingar ræða
hvernig ferðaþjónustan geti stutt
við það að heimsmarkmiðunum
verði náð bæði hér á landi sem og
erlendis, að sögn Rósbjargar sem
segir að ferðaþjónustan sé öflugur
drifkraftur sem geti stutt við það að
ná heimsmarkmiðunum. Ferðaþjón-
ustan sé ein stærsta atvinnugrein í
heimi með um 10% af allri lands-
framleiðslu. Ferðaþjónustan skapi
eitt af hverjum tíu störfum í heim-
inum og leggi mikið af mörkum
bæði beint og óbeint til sjálfbærrar
þróunar og velferðar í samfélögum.
„Í vinnustofunni verður einnig
farið yfir félagslegar framfarir í
ferðaþjónustu og fylgni hennar við
sjálfbæran hagvöxt á tækniöld, fé-
lagslega þátttöku, atvinnu og hvern-
ig dregið hefur úr fátækt,“ segir
Rósbjörg og bendir á að einnig
verði fjallað um úrræði þegar kem-
ur að skilvirkni umhverfisverndar
og loftslags. Samstarfsaðilar vinnu-
stofunnar eru Háskóli Íslands, Ís-
lenski ferðaklasinn og INCAE við-
skiptaskólinn á Kosta Ríku.
Vísitala æskunnar
„Við munum taka sérstaka vinnu-
stofu undir málefni ungs fólks þar
sem farið verður yfir vísitölu æsk-
unnar, Youth Progress Index, sem
byggist á sömu aðferðafræði og
SPI. Vísitala æskunnar er eitt af
fyrstu mælitækjum sem notuð eru
til þess að meta hvernig líf ungs
fólks er í dag óháð efnahaglegum
vísum. Það er mikilvægt bregðast
við og tryggja að komandi kynslóðir
geti átt farsælt líf. Innlendir og er-
lendir fyrirlesarar munu taka þátt í
þessari mikilvægu og áhugaverðu
umræðu og leggja mat á hvort við
náum að skapa æskunni sömu tæki-
færi til framtíðar og við fengum,“
segir Rósbjörg sem bætir við að það
eigi allir á Íslandi að geta haft það
gott og því sé ábyrgðin mikil að
tryggja komandi kynslóðum öflugt
og farsælt sjálfbært samfélag fyrir
alla.
What Works-ráðstefna í þriðja sinn á Íslandi Hliðarviðburðir opnir öllum, nýjung á ráðstefnunni
150 boðsgestir frá 30 löndum Fleiri bæjarfélög ætla að nota SPI, vísitölu félagslegra framfara
Morgunblaðið/Eggert
Markmið Rósbjörg Jónsdóttir, fulltrúi Social Progress Imperative og Cognitio sem stendur fyrir What Works-
ráðstefnunni, hefur í nógu að snúast við undirbúning ráðstefnunnar og opinna hliðarviðburða sem tengjast henni.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Kópavogur hefur nýtt sér aðferðafærði SPI sem er vísitala félagslegra
framfara. Hún er notuð til þess að skoða hverjar séu grunnþarfir íbú-
anna, grunnstoðir velferðar og hvaða tækifæri íbúar fái til þess að lifa
góðu lífi. Að sögn Rósbjargar Jónsdóttur, fulltrúa Sosical Progress Im-
perative á Íslandi, fékk Kópavogur sitt fyrsta skorkort byggt á vísitölu
félagslegra framfara árið 2018.
Rósbjörg segir að með skorkortinu hafi Kópavogur fengið ákveðinn
leiðarvísi sem nýttur hefur verið til að fara af stað í innleiðingarferli á
heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna og staðfestir jafnframt að sterk
samlegð er á milli mælikvarðans og markmiðanna. Þessi leið hefur vakið
verðskuldaða athygli, bæði hjá, rannsóknarstofnun Norrænu ráðherra-
nefndarinnar, Nordregio í Svíþjóð og OECD. Að sögn Rósbjargar eru fleiri
sveitarfélög að hefja sömu vegferð og Kópavogur. Hún segir að enn geti
fleiri hoppað á vagninn og hvetur sveitarfélög landsins til að koma með.
„Það er von okkar að sem flest komi með okkur þar sem við horfum á
hvernig við getum gert gott samfélag enn betra,“ segir Rósbjörg og
bendir á frekari upplýsingar á heimasíðunni www.socialprogress.is
Kópavogur fyrstur með SPI
VÍSITALA FÉLAGSLEGRA FRAMFARA
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
VIÐTAL
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Við ætlum í fyrsta sinn að bjóða
upp á spennandi hliðarviðburði sem
allir geta sótt í tengslum við What
Works-ráðstefnuna í Hörpu 1. ,til 3.
apríl,“ segir Rósbjörg Jónsdóttir,
fulltrúi Social Progress Imperative,
SPI á Íslandi og Cognitio sem
stendur fyrir alþjóðlegu ráðstefn-
unni What Works. Ráðstefnan er
haldin í þriðja sinn á Íslandi og
sjónum verður beint að því hvernig
hægt sé að nýta Social Progress Im-
perative, SPI eða vísitölu fé-
lagslegra framfara, VFF eins og
SPI útleggst á íslensku, til þess að
ná heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbærni 2030.
Rósbjörg segir að SPI mæli
hæfni samfélaga til þess að tryggja
að einstaklingurinn fái grunn-
þörfum sínum fullnægt, að grunn-
stoðir velferðar séu í lagi og ein-
staklingurinn hafi tækifæri til að
bæta líf sitt.
„SPI endurspeglar ekki líðan
okkar né sýnir hagrænar stærðir.
Vísitalan sýnir hvernig okkur hefur
tekist til við að ná fram félagslegum
og umhverfislegum framförum.
Social Progress Imperative er al-
þjóðleg stofnun sem haft hefur veg
og vanda af þróun vísitölunnar og
hefur birt hana frá 2014,“ segir Rós-
björg sem bendir á að Ísland hafi
árið 2017 verið í 3. til 4. sæti ásamt
Noregi miðað við niðurstöður það
ár. Danmörk hafi komið best út og
Finnland í 2. sæti.
Rósbjörg segir að 2018 vermi Ís-
land annað sætið af 46 löndum þeg-
ar komi að vísitölu félagslegra fram-
fara en Noregur sé aðeins 0,02
punktum hærri og komi best út.
SPI mælir hvar Íslendingar standa
sem þjóð meðal þjóða. Segir Rós-
björg að í sumum tilfellum geti Ís-
land komið vel út í þessum sam-
anburði þrátt fyrir að ýmislegt megi
betur fara í samfélaginu.
„Ísland skarar fram úr þegar
kemur að þátttöku í samfélaginu og
hér ríkir mesta umburðarlyndi
gagnvart minnihlutahópum. Ísland
er gott land til að búa í miðað við
vísitölu félagslegra framfara. Það
þýðir ekki að allir hafi það gott en
tækifærin eru til staðar. Við þurfum
að byggja upp og viðhalda kerfi þar
sem allir fá tækifæri til að njóta
sín,“ segir Rósbjörg sem bendir á
að Íslendingar telji sig eiga hrein-