Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 39

Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 39
39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Ekki glæpsamleg Á borða sem komið hefur verið fyrir á brú yfir Miklubraut í Reykjavík eru skilaboð sem einhverjum þykir brýnt að koma á framfæri við borgarbúa: Samstaða er ekki glæpur! Hari Nú hefur frumvarp um breyt- ingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi verið lagt fram á Alþingi. Meginmarkmið frum- varpsins er að styrkja lagaum- gjörð og stjórnsýslu fiskeldis og að með því að ýta undir að fisk- eldi verði sterk og öflug atvinnu- grein þar sem sjálfbær þróun og vernd lífríkis er höfð að leiðar- ljósi. Frumvarpið byggist að verulegu leyti á skýrslu starfs- hóps um stefnumótun í fiskeldi sem skilaði tillögum sínum í ágúst 2017. Segja má að þær umhverfislegu áskoranir sem blasa við íslensku fiskeldi séu af þrenn- um toga; lífrænt álag, sníkjudýr (m.a. laxa- lús) og erfðablöndun við villta laxastofna. Rétt er að fara stuttlega yfir þessi þrjú atriði með tilliti til þeirra breytinga sem frum- varpið kveður á um. Lífrænt álag innan marka Frá árinu 2015 hefur Hafrannsóknastofn- un unnið að því að mæla burðarþol þeirra hafsvæða þar sem ráðgert er að stunda fisk- eldi, þ.e. hversu miklu lífrænu álagi umrætt hafsvæði getur tekið á móti án þess að það hafi óæskileg áhrif á lífríkið. Samkvæmt því frumvarpi sem nú hefur verið lagt fram skal Hafrannsóknastofnun vakta lífrænt álag þeirra svæða sem þegar hafa verið metin til burðarþols og endurskoða matið svo oft sem þörf þykir að mati stofnunarinnar. Jafnframt er í frumvarpinu kveðið á um að lífmassi eld- isdýra í rekstrarleyfum megi aldrei verða meiri en burðarþolsmat Hafrannsóknastofn- unar segir til um. Rík áhersla á varnir gegn sníkjudýrum Í frumvarpinu er lögð rík áhersla á varnir gegn sníkjudýrum í fiskeldi, m.a. til að minnka líkur á laxalús. Þannig er gert ráð fyrir að innra eftirlit sjókvíaeldisstöðvar skuli meðal annars fela í sér vöktun á við- komu laxalúsar í samræmi við leiðbeiningar sem fram koma í reglugerð sem ráðherra setur. Niðurstöður vöktunar skulu sendar Matvælastofnun sem metur hvort og þá hvaða aðgerða er þörf vegna laxalúsar. Nið- urstöður vöktunar skal Matvælastofnun birta opinberlega. Jafnframt er lagt til að sett verði skýr reglugerðarheimild í lög um varnir gegn fisksjúkdómum fyrir ráðherra til að setja ákvæði um vöktun og aðgerðir vegna laxalúsar. Í slíkri reglu- gerð er ráðherra heimilt að mæla fyrir um aðgerðir vegna sníkjudýra í fiskeldi, svo sem um skyldu rekstraraðila til að telja laxalús við tilteknar að- stæður, tiltekin viðmið- unarmörk þar sem viðbragða er þörf og aðgerðir vegna út- breiðslu laxalúsar. Fram- angreint var unnið í samvinnu við sérfræðinga Matvælastofnunar. Erfðablöndun við villta laxastofna Sú áskorun sem hefur fengið mesta athygli í opinberri umræðu er möguleg erfðablöndun frjórra eldislaxa við villta laxastofna. Stefna stjórnvalda er að ákvarðanir um uppbygg- ingu fiskeldis verði byggðar á ráðgjöf vís- indamanna. Af þeim sökum er í frumvarpinu kveðið á um að áhættumat erfðablöndunar verði lögfest og þannig tryggt að það verði lagt til grundvallar leyfilegu magni af frjóum eldislaxi í sjókvíum á hverjum tíma en matið segir til um hversu mikið magn laxa óhætt er að ala í sjókvíum á ákveðnu svæði þannig að ekki hljótist skaði af fyrir villta laxastofna. Frumvarpið gerir ráð fyrir að Hafrann- sóknastofnun geri bindandi tillögur að áhættumati erfðablöndunar en tillögurnar verði áður bornar undir samráðsnefnd um fiskeldi til faglegrar og fræðilegrar umfjöll- unar. Nefndin getur þó ekki gert neinar breytingar á áhættumatinu. Ráðherra stað- festir í kjölfarið áhættumat erfðablöndunar samkvæmt tillögu Hafrannsóknastofnunar og er sú tillaga bindandi fyrir ráðherra. Með því að lögfesta áhættumat erfðablönd- unar eru stjórnvöld að takast á við þetta vandasama verkefni með vísindalegum að- ferðum. Aðeins með þeim hætti mun skapast traustur grunnur til farsællar uppbyggingar laxeldis í fullri sátt við umhverfið. Aukið gegnsæi og öflugt eftirlit Í frumvarpinu er jafnframt lögð áhersla á að auka gegnsæi í fiskeldisstarfsemi. Liður í því er að skylda fiskeldisfyrirtæki til að láta upplýsingar um starfsemi sína til eftirlits- aðila verða umfangsmeiri en samkvæmt gild- andi lögum. Þá verður Matvælastofnun veitt heimild til að birta upplýsingar úr eftirliti opinberlega. Þá er í frumvarpinu lagt til að sett verði lagaákvæði um skyldu rekstrarleyfishafa til að starfrækja innra eftirlit. Jafnframt er gerð sú krafa að frávik við eftirlit Mat- vælastofnunar sé innan ásættanlegra marka. Öflugt innra eftirlit á að tryggja að starfsem- in sé í lagi og uppfylli settar kröfur. Með þessu skapast forsendur til að byggja upp áhættumiðað eftirlit með fiskeldi sem þýðir að fiskeldisfyrirtæki sem hafa sinn rekstur í lagi og starfa í samræmi við kröfur laga og reglna fá færri eftirlitsheimsóknir en þau sem ekki uppfylla kröfurnar. Loks má nefna að í frumvarpinu er að finna heimild fyrir Matvælastofnun til að útvista framkvæmd eftirlits með sérstökum samningi. Samráðsnefnd sett á fót Undanfarna mánuði hef ég fengið að kynn- ast uppbyggingu fiskeldis í okkar helstu ná- grannalöndum, m.a. Noregi og Færeyjum. Þessar þjóðir eru komnar mun lengra en við Íslendingar í að byggja upp öflugt fiskeldi og því fróðlegt að læra af því sem vel hefur ver- ið gert. Í því samhengi er áhugavert að ein helsta ráðgjöf þessara þjóða til okkar Íslend- inga var sú að stuðla að náinni samvinnu þeirra lykilþátta sem koma að uppbyggingu greinarinnar. Þannig er meðfylgjandi mynd þýdd útgáfa af mynd sem birtist í kynningu frá fulltrúum norska sjávar- útvegsráðuneytisins um að helsti lykilinn að velgengni í norsku fiskeldi væri samvinna fjögurra lykilþátta, þ.e. stjórnvalda, fiskeld- isfyrirtækja, náttúrunnar og vísinda. Umræðan hér heima er stundum með þeim hætti að maður upplifir eins og það þurfi að velja á milli tveggja sjónarmiða – hvort viltu byggja upp fiskeldi eða vernda náttúruna? Í mínum huga er þetta röng nálgun. Þessi grundvallaratriði bæði geta og eiga að fara vel saman enda er eldi á laxfiskum talið vera umhverfisvæn og sjálfbær matvæla- framleiðsla. Því tel ég okkur Íslendinga geta gert mun betur í að láta þessa lykilþætti vinna saman. Með það að markmiði er í frumvarpinu sett á fót samráðsnefnd sem er stjórnvöldum til ráðgjafar vegna málefna fiskeldis. Markmið þessa er að styrkja vís- indalegan grundvöll áhættumats erfðablönd- unar og stuðla að nauðsynlegu samráði við uppbyggingu fiskeldis. Hlutverk samráðs- nefndarinnar verður m.a. að leggja mat á for- sendur og úrvinnslu þeirra gagna sem áhættumat erfðablöndunar byggist á. Mik- ilvægt er að allir helstu aðilar hafi sameig- inlegan vettvang til skoðanaskipta um þetta mikilvæga tæki sem áhættumatið er en einn- ig um aðra þætti sem snerta málefni fisk- eldis. Í nefndinni munu eiga sæti fimm fulltrúar og skipar ráðherra formann nefnd- arinnar. Þá tilnefna Hafrannsóknastofnun, fiskeldisstöðvar, Landssamband veiðifélaga og Samband íslenskra sveitarfélaga fulltrúa í nefndina. Framtíðarsýn Með því frumvarpi sem nú hefur verið lagt fram á Alþingi er ætlunin að skapa íslensku fiskeldi bestu möguleg skilyrði til uppbygg- ingar og það verði þannig sterk og öflug at- vinnugrein. Við ætlum hins vegar að vanda okkur í þessari uppbyggingu og stuðla að ábyrgu fiskeldi þar sem sjálfbær þróun og vernd lífríkis og villta laxins er höfð að leið- arljósi á grundvelli vísinda og rannsókna. Eftir Kristján Þór Júlíusson » „… ýta undir að fiskeldi verði sterk og öflug at- vinnugrein þar sem sjálfbær þróun og vernd lífríkis er höfð að leiðarljósi.“ Kristján Þór Júlíusson Lykillinn að velgengni: Samvinna Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.