Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 39
39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Ekki glæpsamleg Á borða sem komið hefur verið fyrir á brú yfir Miklubraut í Reykjavík eru skilaboð sem einhverjum þykir brýnt að koma á framfæri við borgarbúa: Samstaða er ekki glæpur!
Hari
Nú hefur frumvarp um breyt-
ingu á ýmsum lagaákvæðum sem
tengjast fiskeldi verið lagt fram
á Alþingi. Meginmarkmið frum-
varpsins er að styrkja lagaum-
gjörð og stjórnsýslu fiskeldis og
að með því að ýta undir að fisk-
eldi verði sterk og öflug atvinnu-
grein þar sem sjálfbær þróun og
vernd lífríkis er höfð að leiðar-
ljósi. Frumvarpið byggist að
verulegu leyti á skýrslu starfs-
hóps um stefnumótun í fiskeldi
sem skilaði tillögum sínum í ágúst 2017.
Segja má að þær umhverfislegu áskoranir
sem blasa við íslensku fiskeldi séu af þrenn-
um toga; lífrænt álag, sníkjudýr (m.a. laxa-
lús) og erfðablöndun við villta laxastofna.
Rétt er að fara stuttlega yfir þessi þrjú atriði
með tilliti til þeirra breytinga sem frum-
varpið kveður á um.
Lífrænt álag innan marka
Frá árinu 2015 hefur Hafrannsóknastofn-
un unnið að því að mæla burðarþol þeirra
hafsvæða þar sem ráðgert er að stunda fisk-
eldi, þ.e. hversu miklu lífrænu álagi umrætt
hafsvæði getur tekið á móti án þess að það
hafi óæskileg áhrif á lífríkið. Samkvæmt því
frumvarpi sem nú hefur verið lagt fram skal
Hafrannsóknastofnun vakta lífrænt álag
þeirra svæða sem þegar hafa verið metin til
burðarþols og endurskoða matið svo oft sem
þörf þykir að mati stofnunarinnar. Jafnframt
er í frumvarpinu kveðið á um að lífmassi eld-
isdýra í rekstrarleyfum megi aldrei verða
meiri en burðarþolsmat Hafrannsóknastofn-
unar segir til um.
Rík áhersla á varnir gegn sníkjudýrum
Í frumvarpinu er lögð rík áhersla á varnir
gegn sníkjudýrum í fiskeldi, m.a. til að
minnka líkur á laxalús. Þannig er gert ráð
fyrir að innra eftirlit sjókvíaeldisstöðvar
skuli meðal annars fela í sér vöktun á við-
komu laxalúsar í samræmi við leiðbeiningar
sem fram koma í reglugerð sem ráðherra
setur. Niðurstöður vöktunar skulu sendar
Matvælastofnun sem metur hvort og þá
hvaða aðgerða er þörf vegna laxalúsar. Nið-
urstöður vöktunar skal Matvælastofnun birta
opinberlega.
Jafnframt er lagt til að sett verði skýr
reglugerðarheimild í lög um
varnir gegn fisksjúkdómum
fyrir ráðherra til að setja
ákvæði um vöktun og aðgerðir
vegna laxalúsar. Í slíkri reglu-
gerð er ráðherra heimilt að
mæla fyrir um aðgerðir vegna
sníkjudýra í fiskeldi, svo sem
um skyldu rekstraraðila til að
telja laxalús við tilteknar að-
stæður, tiltekin viðmið-
unarmörk þar sem viðbragða
er þörf og aðgerðir vegna út-
breiðslu laxalúsar. Fram-
angreint var unnið í samvinnu
við sérfræðinga Matvælastofnunar.
Erfðablöndun við villta laxastofna
Sú áskorun sem hefur fengið mesta athygli
í opinberri umræðu er möguleg erfðablöndun
frjórra eldislaxa við villta laxastofna. Stefna
stjórnvalda er að ákvarðanir um uppbygg-
ingu fiskeldis verði byggðar á ráðgjöf vís-
indamanna. Af þeim sökum er í frumvarpinu
kveðið á um að áhættumat erfðablöndunar
verði lögfest og þannig tryggt að það verði
lagt til grundvallar leyfilegu magni af frjóum
eldislaxi í sjókvíum á hverjum tíma en matið
segir til um hversu mikið magn laxa óhætt er
að ala í sjókvíum á ákveðnu svæði þannig að
ekki hljótist skaði af fyrir villta laxastofna.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að Hafrann-
sóknastofnun geri bindandi tillögur að
áhættumati erfðablöndunar en tillögurnar
verði áður bornar undir samráðsnefnd um
fiskeldi til faglegrar og fræðilegrar umfjöll-
unar. Nefndin getur þó ekki gert neinar
breytingar á áhættumatinu. Ráðherra stað-
festir í kjölfarið áhættumat erfðablöndunar
samkvæmt tillögu Hafrannsóknastofnunar og
er sú tillaga bindandi fyrir ráðherra.
Með því að lögfesta áhættumat erfðablönd-
unar eru stjórnvöld að takast á við þetta
vandasama verkefni með vísindalegum að-
ferðum. Aðeins með þeim hætti mun skapast
traustur grunnur til farsællar uppbyggingar
laxeldis í fullri sátt við umhverfið.
Aukið gegnsæi og öflugt eftirlit
Í frumvarpinu er jafnframt lögð áhersla á
að auka gegnsæi í fiskeldisstarfsemi. Liður í
því er að skylda fiskeldisfyrirtæki til að láta
upplýsingar um starfsemi sína til eftirlits-
aðila verða umfangsmeiri en samkvæmt gild-
andi lögum. Þá verður Matvælastofnun veitt
heimild til að birta upplýsingar úr eftirliti
opinberlega.
Þá er í frumvarpinu lagt til að sett verði
lagaákvæði um skyldu rekstrarleyfishafa til
að starfrækja innra eftirlit. Jafnframt er
gerð sú krafa að frávik við eftirlit Mat-
vælastofnunar sé innan ásættanlegra marka.
Öflugt innra eftirlit á að tryggja að starfsem-
in sé í lagi og uppfylli settar kröfur. Með
þessu skapast forsendur til að byggja upp
áhættumiðað eftirlit með fiskeldi sem þýðir
að fiskeldisfyrirtæki sem hafa sinn rekstur í
lagi og starfa í samræmi við kröfur laga og
reglna fá færri eftirlitsheimsóknir en þau
sem ekki uppfylla kröfurnar. Loks má nefna
að í frumvarpinu er að finna heimild fyrir
Matvælastofnun til að útvista framkvæmd
eftirlits með sérstökum samningi.
Samráðsnefnd sett á fót
Undanfarna mánuði hef ég fengið að kynn-
ast uppbyggingu fiskeldis í okkar helstu ná-
grannalöndum, m.a. Noregi og Færeyjum.
Þessar þjóðir eru komnar mun lengra en við
Íslendingar í að byggja upp öflugt fiskeldi og
því fróðlegt að læra af því sem vel hefur ver-
ið gert. Í því samhengi er áhugavert að ein
helsta ráðgjöf þessara þjóða til okkar Íslend-
inga var sú að stuðla að náinni samvinnu
þeirra lykilþátta sem koma að uppbyggingu
greinarinnar. Þannig er meðfylgjandi mynd
þýdd útgáfa af mynd sem birtist í kynningu
frá fulltrúum norska sjávar-
útvegsráðuneytisins um að helsti lykilinn að
velgengni í norsku fiskeldi væri samvinna
fjögurra lykilþátta, þ.e. stjórnvalda, fiskeld-
isfyrirtækja, náttúrunnar og vísinda.
Umræðan hér heima er stundum með þeim
hætti að maður upplifir eins og það þurfi að
velja á milli tveggja sjónarmiða – hvort viltu
byggja upp fiskeldi eða vernda náttúruna? Í
mínum huga er þetta röng nálgun. Þessi
grundvallaratriði bæði geta og eiga að fara
vel saman enda er eldi á laxfiskum talið vera
umhverfisvæn og sjálfbær matvæla-
framleiðsla. Því tel ég okkur Íslendinga geta
gert mun betur í að láta þessa lykilþætti
vinna saman. Með það að markmiði er í
frumvarpinu sett á fót samráðsnefnd sem er
stjórnvöldum til ráðgjafar vegna málefna
fiskeldis. Markmið þessa er að styrkja vís-
indalegan grundvöll áhættumats erfðablönd-
unar og stuðla að nauðsynlegu samráði við
uppbyggingu fiskeldis. Hlutverk samráðs-
nefndarinnar verður m.a. að leggja mat á for-
sendur og úrvinnslu þeirra gagna sem
áhættumat erfðablöndunar byggist á. Mik-
ilvægt er að allir helstu aðilar hafi sameig-
inlegan vettvang til skoðanaskipta um þetta
mikilvæga tæki sem áhættumatið er en einn-
ig um aðra þætti sem snerta málefni fisk-
eldis. Í nefndinni munu eiga sæti fimm
fulltrúar og skipar ráðherra formann nefnd-
arinnar. Þá tilnefna Hafrannsóknastofnun,
fiskeldisstöðvar, Landssamband veiðifélaga
og Samband íslenskra sveitarfélaga fulltrúa í
nefndina.
Framtíðarsýn
Með því frumvarpi sem nú hefur verið lagt
fram á Alþingi er ætlunin að skapa íslensku
fiskeldi bestu möguleg skilyrði til uppbygg-
ingar og það verði þannig sterk og öflug at-
vinnugrein. Við ætlum hins vegar að vanda
okkur í þessari uppbyggingu og stuðla að
ábyrgu fiskeldi þar sem sjálfbær þróun og
vernd lífríkis og villta laxins er höfð að leið-
arljósi á grundvelli vísinda og rannsókna.
Eftir Kristján Þór Júlíusson
» „… ýta undir að fiskeldi
verði sterk og öflug at-
vinnugrein þar sem sjálfbær
þróun og vernd lífríkis er höfð
að leiðarljósi.“
Kristján Þór Júlíusson
Lykillinn að velgengni: Samvinna
Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra.