Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 41

Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 41
an skýrðist myndin. Og örlagasagan. Hvernig bærinn hafði verið. Þessi verndun kirkjugarðsins á Víkurtorgi hefur aldrei alfarið snúist um að varðveita beinagrindur. Af því að það þykja nú rök í mál- inu að beinagrindurnar séu horfnar. Önnur rök eru þau að við höfum aldrei vitað af þessum garði. Einmitt, ég fann skinnhandrit fornt í garðinum mínum sem ég vissi ekki af. Beinin geyma samt upplýsingar um lífið. Bein eru líka trommukjuðar. Til að telja í lag. Tromman er upphafið. Hvað um það, enginn þolir skáld- legt tal nú á tímum. Ó mæ god. En það sem höfðar til mín er þessi örlagasaga, saga manneskjunnar, lífsins og dauðans. Þegar ég geng í gegnum gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu undr- ast ég þennan arkitektúr sem er engum líkur. Hugsa: Hvenær ætli ég deyi, hvernig verður minn legsteinn, get ég legið ofan í þessari köldu mold. Samt er ég að hugsa um líf mitt. Ég staldra við legsteinana, tré- krossana, og les nöfn og ártöl, hvernig var líf þessarar manneskju. Hvernig lifði hún og dó. Og mikið er þessi ungur, bara nokkurra mán- aða. Á einum steini stendur bara stórum stöfum: Mamma. Hvorki nafn né ártal. Einu sinni var stelpa sem lærði að lesa af legsteinum. Og hvað stendur? Allt sem minnir okkur á harm- rænt eðli lífsins: Blessuð sé minning hans. Minning hans lifir. Sjáumst aftur. Hvíl í friði. Hér er lagður foreldra fagur gim- steinn. * Hér hvílast þeir sem þreyttir göngu luku. * En við viljum kannski bara gleyma því. Höfundur er skáld. UMRÆÐAN 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Nauðsynlegt er að Reykjavík – stærsta sveitarfélagið í land- inu – komi að kjara- viðræðunum sem nú standa yfir enda er mikið í húfi fyrir at- vinnurekendur og borgarbúa alla. Af þeim sökum verður að teljast mikið ábyrgðarleysi að meirihlutinn í borg- inni, með Dag B. Eggertsson í broddi fylkingar, skuli hafa fellt kjarapakka sjálfstæðismanna á fundi borgarstjórnar síðastliðinn þriðjudag. Þessi afgreiðsla Dags og félaga er ekkert annað en blaut tuska framan í skattgreiðendur í Reykjavík. Nú hefur formaður stærsta verkalýðsfélags landsins, Ragnar Þór Ingólfsson, stigið fram opin- berlega og hælt kjarapakkanum, enda hefði hann komið sér mjög vel fyrir félagsmenn VR sem eru þrjátíu og fimm þúsund talsins. Það munar um slíkan búhnykk Raunar kvað Ragnar útspil borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins vera fagnaðarefni með hliðsjón af þeirri staðreynd að kjörnir fulltrúar sveitarfélaga væru farnir að taka tillit til þeirr- ar alvarlegu stöðu sem upp væri komin og hugsa lausnamiðað í þeim efnum. Auk þess sagði hann tillöguna um lækkun útsvars opna á auknar ráðstöfunartekjur félaga í VR sem búsettir væru í Reykja- vík. En þess má geta að sú tillaga hefði lækkað skattbyrði meðalfjöl- skyldu um 84 þúsund krónur eftir skatta á ári. Það er engum vafa undirorpið að það munar um slíkan bú- hnykk. Ýtir undir stöðugleika Borgin tekur meira af launaskattinum í sinn hlut en ríkið. Borgin tekur 54% í sinn hlut en ríkið tek- ur 44%. Þannig fær borgin 25% meira en ríkið af skatttekjum borgarbúa. Það er gömul saga og ný að mikið vill meira. Borgarstjórinn getur ekki hugsað sér að missa spón úr aski sínum til að koma til móts við launafólk í borginni, enda kallaði hann tillögur okkar innihaldslaust bull. Orðrétt lét borgarstjórinn hafa eftir sér á fundi borg- arstjórnar: „Þetta er svokallað bull. Innihaldslaust og ábyrgðar- laust bull.“ Til marks um þetta saup félags- hyggjumaðurinn – borgarstjórinn sjálfur – hveljur þegar hann heyrði að sjálfstæðismenn í borgarstjórn hygðust lækka rekstrargjöld heimilanna í borg- inni um 36 þúsund krónur að jafn- aði á ársgrundvelli. Enda átti að framkvæma það með því að hverfa frá fyrirhuguðum arðgreiðslum Orkuveitunnar til Reykjavíkur- borgar að hluta til. Þetta hefði þýtt kjarabót fyrir heimilin í borginni upp á 60 þús- und krónur árlega fyrir skatta. Það sem meira er; þetta hefur bein áhrif á vísitölu neysluverðs, sem heldur verðbólgunni í skefj- um, og hefur áhrif til lækkunar verðtryggðra lána. Þannig er hægt að tala um þessa aðgerð kjarapakkans sem verulega kjara- bót fyrir heimilin í borginni, enda ýtir tillagan jafnframt undir stöð- ugleika. Brunnið upp á báli hærra húsnæðisverðs Meirihlutinn hefur fengið hverja falleinkunnina á fætur annarri þegar kemur að húsnæðismálum, enda stefna hans í þeim efnum beðið skipbrot. Í því samhengi nægir að nefna að húsnæðisverð hefur hækkað um 100% á síðustu átta árum. Sú staðreynd hefur gert það að verkum að á hverju ári fer meira og meira af tekjum fólks í að greiða af húsnæði. Síð- ustu árin hefur staðreyndin því verið sú að kaupmáttaraukning borgarbúa hefur brunnið upp á báli hærra húsnæðisverðs. Það er því engin tilviljun að for- svarsmenn verkalýðsfélaganna hafi látið hafa eftir sér að ekki verði skrifað undir kjarasamninga nema fyrir liggi skuldbindandi samkomulag um að bæta aðstæður fólks á húsnæðismarkaði. Það er heldur engin tilviljun að átaks- hópur stjórnvalda í húsnæðis- málum hafi bent á að auka þyrfti framboð lóða til að mæta vand- anum. Þess vegna var í kjarapakk- anum lagt til að Keldnalandið yrði nýtt til uppbyggingar hagkvæms húsnæðis og að auki yrði fallið frá innviðagjöldum og byggingarrétt- argjöldum stillt í hóf. Betra er seint en aldrei Það er því köld kveðja til borgarbúa að meirihluti borg- arstjórnar hafi hafnað tillögu okk- ar um að samið yrði við ríkið um Keldnalandið án skilyrða um aðra fjármögnun ríkisins. Það er líka köld kveðja til tugþúsunda borg- arbúa að meirihluti borgarstjórnar skuli hafa hafnað tillögu okkar sjálfstæðismanna um kjarapakka sem koma á til móts við launafólk og liðka til í kjaraviðræðunum. Enn er borð fyrir báru. Meiri- hlutinn í Reykjavík hefur enn tækifæri til að bregðast við og leggja sitt lóð á vogarskálarnar til lausnar kjaradeilunni. Betra er seint en aldrei. Reykjavíkurborg gæti spilað stórt hlutverk í að liðka fyrir kjaraviðræðunum enda hefur borgin enn svigrúm til að koma að því að auka ráðstöf- unartekjur og kaupmátt heim- ilanna í borginni. Enn er borð fyrir báru Eftir Mörtu Guðjónsdóttur » Það sem meira er; þetta hefur bein áhrif á vísitölu neyslu- verðs, sem heldur verð- bólgunni í skefjum, og hefur áhrif til lækkunar verðtryggðra lána. Marta Guðjónsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. 20% afsláttur af öllum vörum nema tilboðsvörum OPIÐ FRÁ 10 TIL 23 KONUKVÖLD Í SMÁRALIND www.OpticalStudio.is Módel: Brynja Dan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.