Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 43

Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 43
UMRÆÐAN 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Hlustaðu á hjartað þitt Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði – sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Beltone Trust ™ Þakka ber þann mikla fróðleik sem er að finna í safni ritgerða sex frábærra fræði- manna: Líftaug lands- ins – Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-2010, útg. Háskóli Íslands 2017. Sú saga hefst þá þegar með landnáminu. Ekki var hafið farartálmi fyrir landnemana, þá miklu sæfara með næga farkosti, að sækja það sem vantaði í búið á Íslandi. En að því kom að í Gamla sáttmála, sem íslensku höfðingjarnir gerðu við Noregskonung 1262, er kveðið á um að tryggja árlega sigl- ingu sex kaupskipa til landsins. Ætla má að eftir því sem leið á Þjóðveldistímabilið hafi skipakosturinn rýrnað svo mjög, að það þurfti för um bón- arveg til Noregskon- ungs að halda uppi siglingum. Þar með glataðist sjálfstæðið. Svo einfalt er þetta þó hugsanlega ekki. Verðbreytingar á út- flutningsvörunum, vaðmáli, skreið og lýsi, gætu hafa spillt viðskiptakjörum og að kenn- ingin um gullöld í upphafi Íslands- byggðar sé 19. aldar tilbúningur. Það er hið mikla verk Snorra Sturlu- sonar, Heimskringla, hins vegar ekki, enda hann bjargvættur sögu þess tíma og hinnar fornu norrænu menningar. Heimskringla er meist- araverk í Evrópusögunni. Með Kalmarsambandinu 1382 flyst konungsvaldið til Kaup- mannahafnar. Þýskir og enskir kaupmenn taka upp verslun við Ís- land og síðar alfarið Danir með ein- okunarverslun sem konungur inn- leiddi 1602. Einokunin, skelfilegt hagstjórnartæki merkantílismans, stóð fram eftir 18. öld og miklar hörmungar gengu yfir þjóðina. En eldsumbrot og kuldaköst eiga sinn þátt í þeirri hungursneyð og mann- falli. Þrátt fyrir það stóð íslensk menning og tunga bjargföst. Kaup- mannahöfn var evrópsk menning- arborg og gagnast Fjölnismönnum og skáldunum í Höfn vel sem slík á 19. öld frelsisbaráttunnar. Og sú trú rættist að framar öðru myndu fram- farir fást við sjálfstæði þjóðarinnar. Í anda þess var Eimskipafélagið – „óskabarn þjóðarinnar“ – stofnað 1914 til að tryggja þátt siglinga í líf- taug landsins . En styrkleiki þeirrar taugar er háður öðru en siglingum okkar, svo sem lærist í tveim heims- styrjöldum 20.aldar þá er Atlants- hafið verður framlenging af vígvöll- unum. Að fengnu fullveldi 1918 lýsa Ís- lendingar sig hlutlausa þjóð en Þjóðabandalagið, sem átti að tryggja Versalafriðinn dugði ekki til þess. Útbreiðsla trúarinnar á alheims- kommúnismann, sem náði hingað, var jafn fáránleg og væri um Kína í dag, sé einhver á þeirri línu. Ísland, frjálst og fullvalda ríki, skipar sér í samstarf i efnahags- og varnar- málum með öðrum lýðræðisríkjum. Árið 1949 standa Bandríkin að stofn- un Atlantshafsbandalagsins, og þar með hefst hálfrar aldar friðarskeið Evrópu. Öryggi Íslands hvílir öðru fremur á varnarsamstarfinu í NATO sem mætir auknum þrýstingi frá Rússum, sem líta til síns gamla veld- is og Kínverjum, sem verður ágengt um efnahagsleg ítök á heimsvísu. Af- nám viðskipta- og greiðsluhafta var skilyrði fyrir Marshall-aðstoð Bandaríkjanna og úr þeim farvegi kemur Evrópusambandið, fríverslun í EFTA og EES og aukið við- skiptafrelsi í Bandaríkjunum. Líf- taug okkar hlýtur að hvíla alfarið á viðskiptastöðu sem áunnist hefur við grannríkin austan hafs og vestan og er þar með leiðarljós á tímum óvissu. Líftaugin Eftir Einar Benediktsson Einar Benediktsson » Líftaug okkar hlýtur að hvíla alfarið á við- skiptastöðu sem áunnist hefur við grannríkin austan hafs og vestan og er þar með leiðarljós á tímum óvissu. Höfundur er fyrrverandi sendiherra. hafa tekið afstöðu í þessu máli án þess að hugsa það alla leið og held ég að þörf sé á að skoða þetta út frá staðreyndum og út frá okkar aðstæðum hér á þessu landi. Hér eru nokkur atriði sem við ættum að hafa í huga: Yfir fjóra dimmustu mánuðina hjá okkur breytir það litlu að seinka klukkunni því við munum eftir sem áður vakna í myrkri klukkan 06:30 á morgnana. Við myndum hinsvegar strax átta okkur á því að það myndi dimma fyrr og við myndum missa klukkutíma af dagsbirtu í frítíma okkar efir vinnu. Varla viljum við það? Nei, það er okkur og börnum okkar afar mik- ilvægt að geta notið birtu í frítíma okkar. Það skiptir miklu máli. Yfir sumarmánuðina breytir þetta litlu eða engu á morgnana þar sem við vöknum alltaf í birtu nema að það myndi kannski birta of snemma á vorin og haustin. Við myndum að sama skapi missa klukkutíma af sumarkvöldunum okkar björtu og hver vill það? Eftir skammdegið eigum við það skilið að njóta óvenju langrar birtu í okkar frítíma. Það gerum við með því að hafa klukkuna eins og hún er. Svo er það millilandaflugið en viðbúið er að flýta þurfi flestum brottförum til Evrópu um klukku- stund. Hefur einhver áhuga á því að vakna klukkutíma fyrr til þess að fara í flug? Svefnvenjur unglinga munu ekki breytast við það að seinka klukk- unni, það vitum við vel. Við vitum líka af eigin raun að þegar við förum snemma að sofa, eða fyrir 11 á kvöldin, hvílumst við betur. Það stafar einfaldlega af því að svefn fyrripart nætur er jafnan bestur. Með því að seinka klukkunni mynd- um við í raun fara seinna að sofa ef við miðum við líkamsklukkuna. Við vitum af eigin raun að það yrði ekki góð breyting. Það var í raun ótrúlega skyn- samleg ákvörðun á sínum tíma að stilla klukkuna þannig að hádegi er hjá okkur um 13:30. Það hentar okkur einfaldlega frábærlega vel í alla staði. Ég vil hvetja fólk til þess að hugsa þetta vel frá öllum hliðum og vona að við berum gæfu til þess að taka rétta ákvörðun í þessu máli. Ákvörðun sem er byggð á góðri reynslu okkar af núverandi fyr- irkomulagi. Ef klukkunni yrði seinkað um klukkustund á Íslandi yrði um að ræða ábyrgðarlausa til- raun sem hefði í för með sér mikinn kostnað og fórnir fyrir flesta, leyfi ég mér að segja. Töluverð umræða er í þjóðfélaginu þessa dagana um það hvort seinka skuli klukkunni. Svo virðist sem þessi umræða snúist ekki endilega um hluti sem skipta okkur Íslend- inga mestu máli. Sér- fræðingar tala um lík- amsklukku og að seinka klukkunni sé lausn á mörgum af okk- ar vandamálum, til að mynda er því slegið föstu að unglingarnir okkar myndu sofa lengur. Margir virðast Hvað á klukkan að vera? Eftir Sigurjón Sigurjónsson Sigurjón Sigurjónsson » Það var í raun ótrú- lega skynsamleg ákvörðun á sínum tíma að stilla klukkuna þann- ig að hádegi er hjá okk- ur um 13:30. Höfundur er flugvirki. sigurjons@icelandair.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.