Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Opnunartilboð
Komdu við og
kíktu á tilboðin
Vorum að opna nýjan og glæsilegan sýningarsal
í verslun okkar á Óseyrarbraut 28, Hafnafirði.
Þau gleðitíðindi berast að danskir
þemadagar hefjist í Hagkaupum í
dag, en það þýðir að boðið verður
upp á gríðarlegt úrval ferskvöru
sem annars sést ekki hér á landi.
Meðal þess sem vert er að nefna er
kjöt, ostar, pylsur, álegg, síld og
fleiri þekktir danskir réttir sem við
Íslendingar þekkjum og elskum.
Dönsku þemadagarnir eru því
hvalreki, þá ekki síst þegar hálf
þjóðin er á ketó og getur gert vel
við sig í ostum og kjöti án þess að
það bitni á mittismálinu.
Morgunblaðið/Ómar
Danskir þemadagar Ljóst er að það verður drekkhlaðið borð af kræsing-
urm í boði í Hagkaupum næstu daga.
Danskir þemadagar í Hagkaupum
Heimabökuð pítsa með hráskinku, klettasalati,
sveppum, avókadó og mozzarella-perlum
250 ml volgt vatn
2 msk. ólífuolía
7 dl hveiti (ég setti 5 dl hveiti og 2 dl heilhveiti)
2 tsk. þurrger
2 tsk. salt
Álegg
Pítsasósa
Rifinn pítsaostur
8 sveppir
Parmaskinka
Klettasalat
Avókadó
Mozzarella-perlur
Pipar
Aðferð:
Setjið gerið út í vatnið og hrærið saman.
Blandið hveiti og salti saman í skál.
Hellið gerblöndunni út í hveitið með hrærivélina í gangi.
Bætið ólífuolíunni út í og hnoðið saman þangað til gott pítsa-
deig hefur myndast, það á ekki að vera of klístrað en auðvelt
að hnoða það.
Leyfið deiginu að hefast í a.m.k. 1 klst.
Stillið ofninn á 240°C, skiptið deiginu í tvo hluta og fletjið
deigin út.
Setjið pítsusósu og pítsaost á deigið, skerið sveppina og rað-
ið á botnana, bakið þá í ofni í um það bil 10 mínútur eða þar til
osturinn er byrjaður að brúnast og kantarnir á deiginu líka.
Takið pizzuna út úr ofninum og raðið parmaskinku, ruccola,
mozzarella-perlum og toppið með svörtum pipar.
Helgarpítsan
sem slær
í gegn
Þessi dásemd er hreinræktað sælgæti
enda höfundur hennar engin önnur en
Linda Ben. Það er ekki nokkur leið að
standast svona og því hvetjum við
ykkur eindregið til að láta vaða og
prófa þessa snilld.
Ljósmynd/Linda Ben
Ómótstæðilegt Að venju
klikkar Linda Ben ekki en
hvað er betra en heimagerð
pítsa með lúxus áleggi?