Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 ✝ Arnór Jóhann-esson fæddist á bænum Krossnesi í Grundarfirði 10. maí 1930. Hann andaðist á hjúkr- unarheimilinu Nes- völlum 24. febrúar 2019. Foreldrar hans voru Jóhannes Ólafur Þorgríms- son, kennari og bóndi, frá Miklahól í Skagafirði, 20.11. 1900, d. 16.12. 1975, og Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir húsmóðir, frá Krossnesi í Eyrar- sveit, f. 10.11. 1898, d. 18.3. 1986. Systkin Arnórs eru Guðmundur Lárus Skúli, f. 18.12. 1931, Guð- rún Kristín, f. 7.6. 1933, og Kristín Salbjörg, f. 7.8. 1937, d. 7.11. 1990. Arnór var nefndur Arnór Björgvin í höfuðið á Arnóri Þor- leifi föðurafa sínum og Sal- björgu Helgu, föðurömmu sinni. Hann valdi seinna að nota ein- ungis fyrra nafnið sitt. Fjöl- skylda og vinir kölluðu hann ávallt Adda og samstarfsfélagar hjónum sem sonur og hefur Arn- ór, og Guðbjörg á meðan hún lifði, verið hluti af fjölskyldu Sveinbjörns. Sveinbjörn er gift- ur Kristínu Lindu Ragnars- dóttur, f. 25.6. 1962, og börn þeirra eru 1) Davíð Örn, f. 30.12. 1984, maki Fjóla Dögg Halldórs- dóttir, f. 5.1. 1984, börn þeirra Salómon Blær, f. 29.7. 2012, og Elísa Björt, f. 16.6. 2017; 2) Benjamín Ragnar, f. 24.9. 1987, og 3) Guðlaug María, f. 24.5. 1994, í sambandi með Birki Ey- þór Ásgeirssyni, f. 31.1. 1989. Arnór var guðfaðir Elínar Sal- bjargar Agnarsdóttur, f. 12. jan- úar 2006, dóttur Agnars Björns- sonar, f. 12.5. 1961, sonar Kristínar Salbjargar systur Arn- órs. Arnór og Guðbjörg bjuggu sér heimili við Reykjanesveg 54, Ytri-Njarðvík, árið 1953. Hann starfaði hjá Hamilton-félaginu á Keflavíkurflugvelli þar til það var lagt niður árið 1961. Þá bauðst honum að starfa sem kokkur hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, fyrst í svo- kölluðum Officer-klúbbi en síðar í mötuneyti hersins (messanum), þar til hann hætti störfum vegna aldurs árið 2001, þá 71 árs. Útför Arnórs fer fram frá Njarðvíkurkirkju í Innri- Njarðvík í dag, 7. mars 2019, klukkan 13. kölluðu hann iðu- lega Nóra. 27. desember 1959 kvæntist Arn- ór Guðbjörgu (Guggu) Einars- dóttur, f. 23.3. 1918, d. 2.4. 1979, frá Vogi við Fells- strönd í Dalasýslu. Hún var dóttir hjónanna Einars Guðbrandssonar, f. 31.3. 1867, d. 13.1. 1927, og Hólmfríðar Ágústu Björns- dóttur, f. 14.8. 1877, d. 7.1. 1935. Dóttir Guðbjargar, Gerður Hólm Halldórsdóttir, f. 24.11. 1943, d. 1.4. 1996, ólst upp hjá þeim hjón- um. Gerður giftist Valgeiri Jóni Rafni Rögnvaldssyni, f. 17.12. 43. Mæðgurnar Guðbjörg og Gerður létust báðar úr maga- krabbameini. Arnóri og Guðbjörgu varð ekki barna auðið saman, en frá hausti 1963 og fram á haustið 1969 var hjá þeim í daglegri pössun og stundum meira Svein- björn Gizurarson, f. 17.5.1962, prófessor við HÍ. Hann var þeim „Við skulum drífa okkur, sækja netin og koma okkur inn í hús áður en það fer að rigna,“ sagði Addi. Ég leit upp í heiðblá- an himininn og spurði undrandi hvernig það mætti vera. Hann sagði, hlustaðu á himbrimann, það heyrist bara svona í honum, þegar úrkoma er í vændum. Það má búast við rigningu eftir u.þ.b. klukkustund og það stóð heima. Arnór fæddist og ólst upp í Krossnesi í Eyrarsveit við Grundarfjörð í góðum hópi syst- kina og frændsystkina. Hann var elstur systkina sinna og lærði fljótt þau vinnubrögð sem notuð voru í sveitinni. Hann lærði einn- ig að lesa í náttúruna eins og sagt er frá hér að framan. Hann gat sagt fyrir um komandi veður með nokkuð mikilli nákvæmni þegar hann sá útlit og tegund þeirra skýja sem voru á himninum. Ég man ekki til þess að honum hafi nokkurn tíma skjátlast. Arnór var einstaklega góður maður. Allir sem þekktu hann, unnu með honum eða voru tengd- ir honum fjölskylduböndum hafa sagt mér hvað hann var góður og hjálpsamur. Það fór ekki mikið fyrir honum en hann vissi hvað hann vildi. Hann starfaði lengst- um sem kokkur í mötuneyti varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli. Hann var fróður um mat og matarmenningu Bandaríkja- manna, þó að heima vildi hann hafa matinn einfaldan og syði gjarnan fisk og kartöflur saman í potti og léti nægja að setja út á smjör eða hamsatólg. Arnór var ekki maður mikilla breytinga. Eftir að hann fékk bil- próf keypti hann sér Ford Escort, og hélt sér við þá bílateg- und. Liturinn á húsinu sem hann byggði á Reykjanesveginum var nánast hinn sami frá því að hann málaði það í upphafi. Hann að- hylltist gamalt handverk og not- aði alltaf orf og ljá þegar hann sló túnið í kringum húsið sitt og setti niður kartöflur á hverju vori meðan heilsan leyfði. Arnór hafði oft orð á því, þar sem hann lá uppi í rúmi eða sófa með stafla af bókum og nef- tóbakspontuna hjá sér, að bæk- urnar væru vinir hans. Hann las mikið, bæði um áhrif seinni heimsstyrjaldarinnar á Ísland og íslenskt samfélag, og um áhrifa- menn í íslenskum stjórnmálum. Hann var minnugur á ljóð og fleyg orð og hafði gaman að því að fara með kvæði og vísur. Haustið 1963 tóku Addi og Gugga, kona hans, að sér að passa mig, sem þá var rétt um árs gamall. Fram á haust 1969 var ég daglega hjá þeim á meðan for- eldrar mínir voru við vinnu og stundum í lengri tíma ef þau voru erlendis. Ég fór með þeim í ótal ferðir á æskuslóðir Adda á Snæ- fellsnes og Guggu í Dalina, þar sem ég fékk nasasjón af því hvernig var að búa í sveit. Þegar Gugga lést árið 1979 styrktust böndin milli Adda og mín með hverju árinu. Hann heimsótti okkur fjölskylduna oft til Dan- merkur þegar við bjuggum þar. Ég var honum sem sonur og hann mér sem annar faðir og afi barna minna, enda hluti af fjölskyld- unni. Flest sumur fórum við Addi, ásamt einu eða fleiri barna minna, á æskuslóðir hans í Grundarfirði, allt þar til gamli sveitabærinn brann, eftir það fór hann aldrei aftur vestur. Margs er að minnast og margt er hér að þakka. Hvíl í Guðs friði, kæri vinur. Sveinbjörn og fjölskylda. Mig langar til að minnast móðurbróður míns Arnórs Jó- hannessonar, eða Adda eins og hann var kallaður á heimili for- eldra minna. Arnór var stóri bróðir móður minnar Kristínar Salbjargar. Addi var einn af uppáhaldsfrændum mínum og fylgdist vel með mér. Þegar ég eignaðist dóttur kom ekki annað til greina en að fá Adda til að vera guðföður hennar, en hún heitir Elín Salbjörg og er seinna nafnið nafn systur Adda. Addi elskaði sveitina sína Grundarfjörð og vissi ekki feg- urri sveit á Íslandi og allt það sem tengdist Grundarfirði var best. Sem dæmi um það er að eitt sinn var Guðmundur bróðir Adda og mömmu í heimsókn, og var soðinn fiskur í matinn sem Guð- mundur hafði komið með sér að vestan, Addi tók vel til matarins og sagði „mikið er þetta góður fiskur, en það fæst aldrei ætur fiskur úr Suðurnesjasjó“. Það var mér mikil ánægja að fara með Adda í göngutúr á Stöðina en það var í fyrsta og eina skiptið sem að hann fór þar upp, og naut hann þessi mikið að horfa yfir sína fögru sveit. Addi studdi SÍS, kaupfélögin og Framsóknarflokkinn og voru stundum líflegar pólitískar um- ræður milli föður míns og Adda. Steingrímur Hermannsson var í miklu uppáhaldi hjá Adda. Addi tók helst ekki bensín á bílinn nema hjá Essó, og keyrði frekar framhjá öðrum bensínstöðvum til að taka bensín hjá Essó. Ein- hverju sinni vorum við á ferðinni í Skagafriði á æskuslóðum Jó- hannesar föður Adda og var bíl- inn að verða bensínlaus en það voru nokkrir kílómetrar í næstu bensínstöð en hún var ekki Essó, en það mátti fara og taka þar bensín en bara nóg til að komast á næstu Essóstöð. Addi var laghentur og hafði gaman af því að byggja og dytta að. Hann byggði t.d. bílskúr hjá sér og réttu við feðgar honum hönd en stýrði verkinu. Jóhannes Þorgrímsson faðir Adda samdi ljóðið Grundarfjörð sem lýsir vel ást Adda á Grundar- firði. Ég þekki fjörð svo fagurbláan við fótskör draums og stunalags. Og hversu löngum sæll ég sá hann við sólarris hins nýja dags með daggarbros á grundum grænum og geislablik á sléttum sænum. Þar hefjast fjöll í vorsins veldi með vættasöng og fossa skrúð, og ljósaroðinn á lygnu kvöldi þau lyfta höfði frjáls og prúð. þar eygist fegri fjallaröðin en Fellið, Mönin, Hyrnan, Stöðin? Sér unnir byggð við brekkur háar og búðarrúst við saltadröfn og svanavötn og víkur bláar og vinjar kringlu lukta höfn. En út um leiðir unnir hjala, um unna dáð og hetjur tala. Agnar Björnsson. Arnór Jóhannesson góða vini. Við felum okkar góða vin algóðum Guði. Við eigum sjálfsagt eftir að hittast öll síðar, á öðrum stað og öðrum tíma og eiga góðar stundir saman. Hugur okkar er hjá Sigríði og fjölskyldunni allri á þessum erf- iðu tímum. Örlygur og Helga Richter. Þegar Skarphéðingar minnast látins bekkjarbróður, Guðmund- ar Malmquist, leitar hugurinn til haustsins 1961, þegar ungir sveinar hittust í 4. bekk Z í Menntaskólanum í Reykjavík. Góð vinátta þróaðist með þessum hópi. Hún heldur sannarlega enn og ekki síður þegar árin færast yfir. Námið gekk misvel og sveinar fóru á svig við námsleiða með glettni um námsefnið og kennar- ana, þótt skoplegastir væru þeir eflaust sjálfir. En hafi gáski og glettni einkennt flestar athafnir á þessum árum fylgdi engu að síður virðing í bland og tóku nemendur sérstöku ástfóstri við umsjónar- kennara bekkjarins, Skarphéðin Pálmason, sem kenndi Z-bekkn- um eðlis- og efnafræði. Skemmst er frá því að segja að andi Skarp- héðins hefur fylgt bekkjarfélög- unum allar götur síðan. Að stúdentsprófi loknu, vorið 1964, dreifðist hópurinn. Sumir fóru til námsdvalar í öðrum lönd- um. Aðrir luku námi á Íslandi, þ.á m. Guðmundur, en hann nam lögfræði við Háskóla Íslands. Meðfram námi vann hann ýmis störf og öðlaðist þar með víðtæka reynslu og samfélagslega þekk- ingu, sem kom honum að notum æ síðan. Guðmundur er kunnur fyrir störf sín og hér verður því aðeins að fáu vikið. Hann var lög- fræðingur hjá Seðlabankanum á árunum 1970-1972, lögfræðingur hjá lánadeild Framkvæmdastofn- unar 1972-1985, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra 1984-1985, for- stjóri Byggðastofnunar 1985- 2001 og framkvæmdastjóri Sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu 2001-2008. Önnum kafnir ungir menn og dreifðir um lönd stofnuðu þó Skarphéðingafélagið svo snemma sem í desember 1964. Frá fyrstu tíð hafa bekkjarfélagar notið virkni Guðmundar og víðtækrar reynslu. Löngum var hann í hlut- verki leiðtoga, en jafnframt hefur hann ævinlega verið siðameistari hópsins – einskonar jarðtenging, þegar glens og gáski hefur virst ætla að fara úr böndunum – og manna líklegastur til að finna sanngjarnt meðalhóf milli gam- ans og alvöru. Inntak félagsins var honum ávallt hugleikið. Miklu máli skipti að eiga vinahóp og geta tjáð sig um allt milli himins og jarðar fjarri áreiti og takmörk- unum hins opinbera lífs, eins og Guðmundur mun hafa komist að orði á góðri stundu. Ljúft er að minnast einstakrar gestrisni Guðmundar og eftirlif- andi eiginkonu hans, Sigríðar, þegar bekkjarfélagar ásamt eiginkonum komu saman á heim- ili þeirra hjóna á hátíðarfundum félagsins. Skörð hafa myndast í hópinn og er Guðmundur hinn fimmti í röð félaga sem fallnir eru frá. Reynslan kennir okkur að brátt munu fleiri verða kallaðir á brott. Þeir dagar eru löngu liðnir, þegar lærifeður okkar rýndu með okkur í Völuspá og fornar sögur, kenndu okkur að tala tungum eða bara glímutökin, sönnuðu stærð- fræðiformúlur og þegar Skarp- héðinn leiddi okkur í allan sann- leika um Coulomb, Kirchhoff og fleiri stórmenni í sögu eðlis- og efnafræði, en við sem eftir lifum munum enn um sinn leitast við að njóta góðra stunda og minnast með þakklæti fallins félaga sem auðgaði líf okkar. Við kveðjum Guðmund Malm- quist og vottum Sigríði, börnum þeirra og barnabörnum okkar dýpstu samúð. Hreinn Frímannsson, Gunnar S. Óskarsson og Níels Indriðason. ✝ Kristín HildurÓlafíudóttir Pálsdóttir fæddist 22. janúar 1991 á Selfossi. Hún lést á heimili sínu 27. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Ólafía Guð- rún Halldórsdóttir húsmóðir, f. 8. júní 1953, d. 26. febrúar 2019, og Páll Þór Engilbjartsson sjómaður, f. 1956. Bræður hennar sam- mæðra eru Halldór Davíð Sig- urðsson, f. 1971, Ævar Sigurðs- son, f. 1975, og Arnar Þór Sigurðsson, f. 1982. Bróðir hennar samfeðra er Páll Heiðar Pálsson, f. 1976. Kærasti Krist- ínar Hildar var Ar- on Kristinn Lýðs- son, f. 1990. Kristín Hildur lauk grunn- skólaprófi árið 2007 frá Grunn- skólanum í Hvera- gerði. Stundaði nám við Fjöl- brautaskóla Suður- lands og var í kór skólans. Hún vann m.a. við af- greiðslu og þjónustustörf og lengst af í Lyfjum og heilsu í Hveragerði og Þorlákshöfn. Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 7. mars 2019, klukkan 14. Þegar maður sest niður og hugsar til baka til Kristínar Hildar, litlu stelpunnar hans pabba og litlu systur minnar, eða Ollýjar, eiginkonu pabba og stjúpu minnar, þá er nær von- laust að tala um þær í sitthvoru lagi. Þegar ég minnist annarrar en hin alltaf nefnd í sömu andrá og því augljóst að skrifa minning- argrein um þær báðar saman. Þær minntu oft á vini, systur ásamt því að vera óðskiljanlegar mæðgur og virtust dansa í takt í gegnum lífið saman. Að þær skulu hafa fallið frá með sólarhrings millibili er óút- skýranlegt og engan veginn hægt að skilja. Systir mín, Kristín Hildur, var og verður alltaf litla systir mín sem ég sinnti aldrei nóg en hugs- aði oft og hlýtt til. Á seinni árum áttum við löng og góð samtöl á Facebook um lífið, tilveruna og tækifærin sem lífið hefur upp á að bjóða. Við hittumst nýlega og áttum langt og gott spjall sem ég vonaðist til að væri nýtt upphaf í lífi Kristínar. Ég hafði mikla trú á henni, hæfileikum hennar og greind sem hún náði aldrei að nýta sér til fulls en var sannfærð- ur um að myndi koma einn daginn. Veit að pabbi minn elskaði þær skilyrðislaust og mun alltaf gera það. Missir þeirra verður alltaf brot í hjarta hans og okkar. Minningar mínar frá barns- aldri eru óteljandi eins og þegar pabbi og Kristín fóru í bæinn sem Tímon og Púmba og höfðu þenn- an svarta skemmtilega húmor sem við áttum sameiginlegan. Það er ljúft að hugsa um þá góða tíma sem við áttum saman. Ásamt Kristínu var það stærsta afrek hennar Ollýjar að færa heiminum þrjá yndislega stráka, þá Halldór (Dadda), Æv- ar og Arnar, og get ég ekki lýst því með orðum hvað ég er þakk- látur fyrir að hafa kynnst þessum drengjum og eiga þá að ævilangt. Við sendum þeim samúðar- kveðju og allan þann styrk sem við getum veitt. Grámi dagsins grætur hin góðu liðnu ár þá hlupu fimir fætur og féllu gleðitár. Nú faðmast fólk sem lifir og fegurð leitar að en engill svífur yfir þeim yndislega stað. Nú tala englar aðrir um allt sem hérna var. Til jarðar falla fjaðrir sem fagrar minningar. (Kristján Hreinsson) Söknum ykkar og sendum ykkur alla þá ást og umhyggju sem við getum boðið. Elsku pabbi, ég er orðlaus yfir baráttu þinni og styrk, elska þig eins mikið og sonur getur elskað föður. Páll Heiðar Pálsson, Hafdís R. Sveinbjörns- dóttir og börn. Kristín Hildur Ólaf- íudóttir Pálsdóttir Elskulegur faðir okkar, GUNNAR A. OTTÓSSON, Hringbraut 50, Reykjavík, áður Ólafsvík, lést 27. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 11. mars klukkan 13. Þorbjörg Kristín Gunnarsdóttir Árni Freyr Gunnarsson Ástkær faðir okkar og afi, SIGURÐUR BLÖNDAL, lést á heimili sínu 1. mars. Útför fer fram frá Hveragerðiskirkju mánudaginn 11. mars klukkan 14. Elísabet Ósk Sigurðardóttir Bjarki Blöndal Sandra Sigurðardóttir Sólveig Hrönn Sigurðardóttir Indriði Hrannar Blöndal Bjarndís Helga Blöndal og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARTA KRISTJÁNSDÓTTIR, Kirkjuhvoli, áður til heimilis Eystra-Seljalandi, lést á Landspítalanum, Fossvogi, föstudaginn 1. mars. Útförin fer fram frá Stóradalskirkju föstudaginn 15. mars klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Kirkjuhvol. Örn Þór Hlíðdal Barbára Hlíðdal Auður Jóna Sigurðardóttir Óli Kristinn Ottósson Björgvin Valur Sigurðsson Jóhanna Gyða Stefánsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.