Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 ✝ Jónas Hall-grímsson fæddist á Knapps- stöðum í Fljótum 12. nóvember 1930. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 27. febr- úar 2019. Foreldrar hans voru Hallgrímur Bogason, f.17.8. 1898, d. 12.6. 1985, og Kristrún Jónasdóttir, f. 17.6. 1903, d. 28.3. 1989, bænd- ur á Knappsstöðum. Systkini Jónasar eru Guðný, f. 1924, d. 2006, Bogi, f. 1925, Dagbjört, f. 1926, d. 1988, og Sigurjón, f. 1932, d. 2002. 11. nóvember 1960 giftist Jónas Huldu Erlingsdóttur frá Ásbyrgi í N-Þingeyjarsýslu, f. 11.11. 1937. Foreldrar hennar voru Erlingur Jó- hannsson frá Arnanesi, f. 1903, og Sigrún Bald- vinsdóttir frá Ófeigsstöðum, f. 1907, ábúendur í Ásbyrgi. Börn Jónasar og Huldu eru 1) Dag- ur, f. 17.10. 1961, maki Helga Hall- dóra Þórarins- dóttir, f. 27.4. 1965, börn þeirra eru Breki, f. 18.3. 1995, unnusta hans er Saga Sif Gísla- dóttir, f. 14.2. 1995, og Hulda, f. 2.1. 1997, Kristmann Freyr, f. 22.1. 1986, maki Auður Páls- dóttir, f. 27.2. 1988, eiga þau tvær dætur. Móðir Kristmanns er Gyða Kristmannsdóttir. 2) Dóttir fædd andvana 3. sept- ember 1963. 3) Hlynur, f. 6.12. 1964, dóttir hans og Áslaugar Davíðsdóttur er Stella, f. 5.4. 2000. 4) Halldór Auðarson, f. 3.4. 1959, börn hans með Jónu Hilmarsdóttur eru Salóme Ás, f. 18.11. 1985, Rebekka Ás, f. 13.10. 1988, og Guðmundur, f. 19.7. 1990, barnabörnin eru fimm. Móðir Halldórs er Auður Guðmundsdóttir. Jónas flutti til Reykjavíkur rúmlega tvítugur og byrjaði að vinna hjá tollstjóra, flest árin í vöruskoðun en flutti sig síðan í tolladeild Ríkisendurskoðunar og vann hjá stofnuninni til sjö- tugs, eða í 29 ár. Jónas ferðaðist mikið um há- lendi Íslands og byggð, og stundaði skíðamennsku frá unga aldri. Hann stundaði leik- fimi í áratugi með skíða- félögum sínum og vinum. Í Reykjavík bjuggu Jónas og Hulda lengst í Búlandi 14 í Fossvogi, fluttu þangað 1968. Frá árinu 2003 hafa þau búið í Þorláksgeisla í Grafarholti. Útför Jónasar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 7. mars 2019, klukkan 13. Elsku pabbi, mikið held ég að þú hafir verið hvíldinni feginn, nú ertu kominn í draumalandið og hittir þar ömmu, afa og vini þína sem taka vel á móti þér. Það er margs að minnast, all- ar skíðaferðirnar, Kerlingar- fjöll, Austurríki og allar ferð- irnar okkar í Hamragil og Bláfjöll. Það skipti ekki máli hvernig veður var, við fórum á skíði ef það var opið. Þú kenndir mér svo margt, þú varst svo handlaginn og ég lærði svo margt af þér, alltaf varst þú tilbúinn að hjálpa við alls kyns vinnu. Við vorum svo heppin árið 2002 fjölskyldan, og sérstaklega þú, að komast aftur í heimahagana, Knappsstaði, ganga um móana, brasa eitt- hvað skemmtilegt, laga og bæta eins og þér var einum lagið. Ógleymanlegar allar vinnuferð- irnar á Knappsstaði, allt skipu- lagt í þaula og alveg sama hvað það var, eða hversu verkefnin reyndust stór, hvort sem það var að endurbyggja heilu vegg- ina, setja niður rotþró eða klæða bæinn, þú varst með lausnina. Þarna fannst mér ég kynnast þér upp á nýtt, þú varst kominn heim, þekktir hverja einustu þúfu og sagðir sögur sem ég, Helga og börnin okkar muna og gleyma aldrei. Þú vildir hvergi annars staðar vera, besti staður í heimi og skildir líka við okkur þannig að hvergi annars staðar viljum við vera en í þessari dásamlegu sveit. Elsku pabbi, hvíl í friði, takk fyrir allt og Guð veri með þér. Dagur. Hann elsku afi Jónas, afi okkar sem við eyddum svo mörgum stundum með, afi okk- ar sem við eigum svo óteljandi minningar með og afi okkar sem fékk okkur til að hlæja hvenær sem er, er fallinn frá. Bestu minningar okkar um afa koma frá uppáhaldsstaðnum hans, sem hann kynnti okkur af öllu sínu hjarta, þar sem við munum alltaf sjá hann í huga okkar, standandi á pallinum á Knappsstöðum með handklæðið um mittið, talandi við himbrim- ann sem syndir á Stífluvatni með himbrimamáli sínu sem enginn annar skilur. Alltaf var stutt í hláturinn og gat hann alltaf fengið okkur til að hlæja með sínu frægu grett- um, og gerði hann það eins lengi og hann hafði heilsu til. Mikið gætum við skrifað um allar skíðaferðirnar og öll sumr- in sem við áttum með afa og ömmu á Knappsstöðum, en það- an eru allra bestu minningar okkar með elsku afa og mikið erum við þakklát fyrir allar þær stundir og hvað þær hafa gefið okkur. Elsku afi, þín verður sárt saknað. Breki og Hulda. Við fráfall Jónasar Hall- grímssonar kemur í hugann eft- irfarandi tilvitnun úr Predikar- anum: „Öllu er afmörkuð stund, og sérhver hlutur undir himn- inum hefir sinn tíma. Að fæðast hefir sinn tíma og að deyja hefir sinn tíma.“ Jónas var okkur mjög kær. Hann var í senn svili og mágur okkar hjóna. Samveran við Jónas stóð samfellt yfir í meira en hálfa öld. Það er dágóður tími í lífi einstaklings og því er eftirsjáin mikill við fráfall hans. Jónas var tæplega níræður þeg- ar hann féll frá. Síðustu miss- erin voru honum erfið og það var því ákveðin líkn í sjálfu sér fyrir hann að fá að kveðja, sátt- ur við allt og alla. Við minnumst skemmtilegra stunda með Jónasi og Huldu, bæði hér innanlands og erlend- is. Tvær skemmtiferðir með þeim hjónum á bílaleigubíl um þvera og endilanga Evrópu fyr- ir tæpum þremur áratugum eru okkur sérlega minnisstæðar. Það var fjögurra eða eigum við að segja fimm landa sýn að sögn Jónasar, eins og oft var sagt í ferðauglýsingum á þess- um árum. En kannski voru gæðastundirnar með Jónasi bestar hér heima í dagsins önn sérstaklega í Búlandinu í Foss- vogi þar sem þau Hulda áttu heima lengst af og í Fljótum en þar dvöldu þau hjónin á sumrin í heilan áratug á jörð þeirra Knappstöðum. Þá má þess geta að þau hjónin stunduðu skíði af kappi enda hafði Jónas mikinn áhuga á allri útivist. Jónas hafði góða nærveru, það var notalegt að vera í návist hans hvar sem var og hvenær sem var, ræða stundum málin í alvöru og hafa svo gaman af einhverju skemmtilegu í tilver- unni. Jónas var náttúrubarn sem elskaði landið sitt og þá sér- staklega bernskuslóðir sínar í Fljótum. Að því leyti átti hann margt sameiginlegt með alnafna sínum í Öxnadal, listaskáldinu góða, að bera virðingu fyrir landinu, náttúrunni og smávin- unum fögru svo vitnað sé í skáldið. Í Fljótum er mjög snjóþungt eins og kunnugt er. „Eilífur snjór í augu mín“ kveður nafni hans Jónas í kvæðinu Alsnjóa. Nú þegar Jónas er á leiðinni á annað tilverustig er eins víst að hann hafi komið við í Fljótum og virt fyrir sér snjóbreiðurnar eins og hann gerði í uppvexti sínum á Knappstöðum. Við færum eiginkonu Jónas- ar, Huldu Erlingsdóttur, sér- stakar samúðarkveðjur. Hvílík hetja. Hún annaðist Jónas að mikilli ástúð og kostgæfni á Hjúkrunarheimilinu Eir í erf- iðum veikindum hans. Einnig sendum við sonum Jónasar og fjölskyldum þeirra okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Góða ferð kæri vinur og hafðu þökk fyrir allar góðu samverustund- irnar á liðnum árum. Kristín Erlingsdóttir og Hrafn Magnússon. Kær vinur er kvaddur eftir áratuga samfylgd. Íþróttir og söngur leiddi okkur saman. Kynntumst fyrst í Kerlingar- fjöllum við skíðaiðkanir, söng og gleði í góðum félagsskap. Jónas var afbragðsgóður skíða- maður, jafnvígur á svig og skíðagöngu með fjaðurmagnað- an léttan stíl sem einkenndist af mýkt og öryggi. Þessi mikla mýkt og léttleiki var áberandi í leikfiminni, sem við iðkuðum í háttnær hálfa öld með skíða- félögum okkar. Það var sem Jónas varla snerti gólfið í göngu eða hlaupi. Hann var líka svona í eðli sínu, einstaklega þægileg- ur og notalegur í umgengni, sannarlega gæðamaður. Þessi frábæri skíða-leikfimis- manna hópur gerði sér margt til skemmtunar, hélt þorrablót og freyjufagnaði fyrir eiginkon- urnar og fór í ógleymanlegar skíðaferðir í Alpana. Söngur og gleði ríkti alls staðar þar sem við vorum. Jónas hafði yndi af söng, hafði þýða og fallega ten- órrödd og átti létt með að syngja raddað. Við tókum lagið oft saman og völdum falleg lög, sem gott var að radda. „Nú sef- ur jörðin sumargræn“ var í miklu uppáhaldi og var einmitt lokadúettinn okkar í síðustu heimsókn til hans á Eir, nokkr- um dögum fyrir andlát hans. Stór skörð hafa komið i vina- hópinn á undanförnum árum. Kemur mér oft í hug kveðskap- ur Bólu-Hjálmars: Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld. Ég kem á eftir, kanske í kvöld, með klofinn hjálm og rofinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. Ég efast ekki um að Jónasi sé nú vel fagnað „í sælli veröld“ af þeim frækna hópi, sem þar er fyrir. Við sem eftir stöndum kveðjum ljúflinginn Jónas með söknuði en unnum honum þess að vera laus úr jarðneskri „prís- und“ og þeim erfiðu veikindum sem hann átti við að stríða undanfarin ár. Í þeim sýndi hann einstaka sálarró og hélt reisn sinni með stuðningi Huldu, sem vakti yfir honum með einstakri elsku og um- hyggju fram á síðustu stundu. Við færum henni og fjöl- skyldu innilegustu samúðar- kveðjur. Kristín og Valdimar Örnólfsson. Góður vinur og ferðafélagi er farinn á vit nýrra ævintýra. Við Gunnlaugur áttum samleið með Jónasi og Huldu hans í mörgum ógleymanlegum og ævintýraleg- um ferðum um landið okkar. Minnisstæðust er ef til vill ferð okkar þvert yfir landið á tveim- ur Bronco-jeppum sem hófst í Búlandi 14 og lauk á miðnætti viku seinna á sjávarkambinum í Öxarfirði í blæjalogni við kerta- ljós þegar sólin var að setjast. Úr bænum var ekið sem leið lá í Nýjadal og eftir það Gæsa- vatnaleið norðan Bárðarbungu um Urðarháls og sullað yfir flæðurnar þar sem alls ekki mátti stansa vegna sandbleytu og taka átti stefnuna beint á Upptyppinga. Þaðan var svo bein leið norður í Öxarfjörð. Fyrsta skíðaferð okkar fjög- urra saman var í Kerlingarfjöll 1962, árið eftir að Skíðaskólinn var stofnaður þar, og urðu skíðaferðirnar margar og ánægjulegar. Ekki voru skíða- ferðirnar utanlands síður minn- isstæðar. Þær hófust oft með bílferð frá Lúxemborg til áfangastaða í Ölpunum og var þá oftar en ekki sungið við- stöðulaust alla leiðina, marg- raddað. Þau voru mörg handtökin sem Jónas átti með okkur við uppbyggingu sumardvalarstað- ar okkar í Goðdal norður á Ströndum og ómetanlegar eru minningarnar þar við veiði, ber- jatínslu, gleði og söng. Elsku Hulda mín, mig langar að kveðja Jónas þinn með ljóði eftir Þorstein Valdimarsson fornvin minn: Sumir kveðja, og síðan ekki söguna meir. - Aðrir með söng, er aldrei deyr. Inga Ingibjörg Guðmundsdóttir. Jónas Hallgrímsson ✝ Ólafía GuðrúnHalldórsdóttir fæddist 8. júní 1953 á Húsavík. Hún lést á heimili sínu 26. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar eru Halldór Davíð Benedikts- son bakari, f. 1929, d. 2009, og Matthildur Zop- honíasdóttir húsmóðir, f. 1928. Systkini Ólafíu Guðrúnar eru: Arnþrúður Jósepsdóttir, f. 1950, Halldór Benedikt Hall- dórsson, f. 1955, Jónasína Halldórsdóttir, f. 1961, Anna Soffía Halldórsdóttir, f. 1967, og Ester Halldórsdóttir, f. 1969. dóttur, æskulýðsfulltrúa Sel- fosskirkju, f. 1979. Börn þeirra eru Sigurður Ísak, f. 2002, Ólafur Jóhann, f. 2005, og Benedikt Ívar, f. 2015. 3) Arnar Þór, vélgæslumaður hjá Icelandic Water Holdings, f. 1982, dóttir hans af fyrra sam- bandi er Emilía Guðrún, f. 2012, í sambúð með Sólrúnu Þórðardóttur, snyrtifræðingi hjá Snyrtistofu Ólafar, f. 1989, dóttir hennar er Jenný Helga Sívertsen, f. 2014. Ólafía Guðrún giftist árið 2002 Páli Þór Engilbjartssyni, f. 1956, þau skildu. Dóttir þeirra er Kristín Hildur, f. 1991, d. 27. febrúar 2019. Ólafía Guðrún ólst upp í Vest- mannaeyjum og stundaði þar nám. Hún sinnti ýmsum störf- um um starfsævina samhliða húsmóðurstörfum, m.a. á Hár- greiðslustofu Brósa, í apóteki og Hverabakaríi. Útför Ólafíu Guðrúnar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 7. mars 2019, klukkan 14. Ólafía Guðrún giftist árið 1971 Sigurði Þór Sveinssyni, f. 1951, þau skildu. Synir þeirra eru: 1) Halldór Davíð, yfirþjónn á Hótel Örk, f. 1971, kvæntur Söndru Guðmundsdóttur, forstöðumanni Birtu starfsend- urhæfingar, f. 1980. Börn þeirra eru Ólafía Sara, f. 2006, Birna Marín, f. 2010. Börn Halldórs Davíðs úr fyrri samböndum eru Ólafur Þór, f. 1993, d. 1994. Thelma Lind, f. 1996, Jón Þór, f. 1999. 2) Æv- ar, húsasmiður, f. 1975, kvæntur Jóhönnu Ýri Jóhanns- Orð eru máttvana í sorginni. Það verða ekki til nógu sterk orð til að lýsa þeim harmleik sem það er að þið báðar farið svo snögglega frá okkur. Hinn 26. febrúar sl. sat ég við eldhúsborðið með kaffið mitt bara eins og ég geri hvern morg- un og var að hugsa um daginn sem fram undan var. Hvað gera þyrfti og hvað ekki. Síminn hringdi og þar var bróðir minn sem tilkynnti að elskuleg systir okkar Ólafía Guð- rún (Ollý) væri dáin. Það varð allt svart á svipstundu. Ollý dá- in! Nei, það gat engan veginn staðist. Ollý, þessi lífsglaða og yndislega sál. Nei, nei glumdi í höfði mér. Elsku systir mín farin, en ég sem átti eftir að hringja í hana og vita hvernig hún hefði það því fyrir helgina hafði hún hand- leggsbrotnað. Dagurinn leið í þoku og hugs- unin ein hjá Ollý, varla nokkuð annað komst að í huga mér. Morguninn eftir, hinn 27. febr- úar, var aftur hringt og mér til- kynnt að dóttir Ollýjar, Kristín Hildur, hefði ekki vaknað, dáin í rúmi sínu. Ollý og Kristín Hildur höfðu nýverið keypt sér fallega íbúð á Selfossi og búið sér þar til fallegt heimili. Þar ætluðu þær sér að búa saman enda mjög svo sam- rýndar mæðgur. Þær máttu varla hvor af annarri sjá. Þær lifðu lífinu saman, þær dóu saman með sólarhrings millibili. Fallegt og traust samband milli þeirra. Elsku Ollý systir og Kristín Hildur. Þið voruð saman í lif- anda lífi, þið eruð saman núna þar sem við öll eigum eftir að koma. Alveg er ég viss um að pabbi tekur á móti ykkur með útbreiddan faðminn og umvefur ykkur ást og kærleik. Þannig var hann og þannig voruð þið. Ég ætla ekki að kveðja ykkur því að þið báðar munuð lifa í hjarta mínu á meðan ég er hér og þegar ég kem til ykkar þá veit ég að þið takið á móti mér og öllum öðrum ástvinum ykkar. Þá fæ ég Ollýjarfaðminn aftur sem var alltaf svo sérstaklega hlýr og góður. Það munu allir muna þann hlýja faðm og brosið þitt sem geislaði af fegurð og gæsku. Við sem eftir lifum syrgjum. En fallegar og góðar minningar munu lifa og við munum halda þeim á lofti. Takk, elsku Ollý systir mín, fyrir allt sem þú hef- ur gert fyrir mig, takk fyrir að vera til staðar þegar ég hef þurft á að halda, takk fyrir fallegu brosin þín og kímni. Takk fyrir að vera önnur af stóru systrum mínum. Ég elskaði ykkur í gær, ég elska ykkur í dag og ég mun elska ykkur alla tíð. Kveðja í bili elsku Ollý systir og Kristín Hildur. Þín gullnu spor um ævina alla hafa markað langa leið. Skilið eftir ótal brosin, og bjartar minningar sem lýsa munu um ókomna tíð. Anna Soffía Halldórsdóttir. Ólafía Guðrún Halldórsdóttir Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar konu minnar, móður, dóttur, systur og mágkonu, KRISTJÖNU RÍKEYJAR MAGNÚSDÓTTUR. Sigurgeir Höskuldsson Hildur, Ríkey og Magnús Máni Ríkey Einarsdóttir Guðbjörg Magnúsdóttir Halla Magnúsdóttir Hlífar S. Rúnarsson tengdafjölskylda og systrabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BJARGAR Ó. BERNDSEN, áður Langagerði 114. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Eirar. Benedikt Ólafsson Ólafur Benediktsson Kristín Benediktsdóttir Birna Benediktsdóttir Hilmar Þórarinsson barnabörn og barnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.