Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 53

Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Að leiðarlokum viljum við þakka Einari Sigur- björnssyni fyrir samstarf við að koma á fót djáknanámi á Ís- landi. Biskup Íslands skipaði hann ásamt okkur í djákna- nefnd þjóðkirkjunnar til að leita leiða til að kanna hvort og þá hvernig hægt væri að hefja djáknanám hér á landi. Eftir undirbúning, kynningu og sam- þykkt á kirkjuþingi var leitað til guðfræðideildar Háskóla Ís- lands um að bjóða upp á slíkt nám. Það var ákveðið og hófst það haustið 1993. Fyrstu dják- nakandídatarnir útskrifuðust 1995 og fimm vígðust sama ár. Tilkoma djákna var stórt Einar Sigurbjörnsson ✝ Einar Sigur-björnsson fæddist 6. maí 1944. Hann lést 20. febrúar 2019. Útför hans fór fram 6. mars 2019. skref í að þróa störf kirkjunnar. Þáttur Einars var að setja fram guð- fræði diakoniunnar og djáknaembætt- isins. Hann var fræðimaðurinn sem undirbyggði námið og stuðlaði þar með að því að ný sýn kæmi inn í hið hag- nýta starf kirkj- unnar. Við vottum Guðrúnu Eddu og fjölskyldu samúð. Guð blessi ykkur og styrki. Ragnheiður Sverrisdóttir Unnur Halldórsdóttir. Með komu Einars Sigur- björnssonar sem stundakennara að guðfræðideild haustið 1975 urðu kaflaskil í sögu deildarinn- ar, en hann leysti Jóhann Hannesson prófessor af hólmi í forföllum og var síðan skipaður eftirmaður hans. Gegndi Einar starfinu í nærfellt 40 ár. Við sem ritum þessi minn- ingarorð vorum í fyrsta nem- endahópi Einars. Hinn nýbak- aði doktor frá Lundarháskóla í Svíþjóð reyndist hafa af miklu að miðla. Hann var hafsjór af fróðleik á kennslu- og fræða- sviði sínu, trúfræðinni. Áhugi hans leyndi sér ekki og hann hreif nemendur með sér. Efnis- miklir og traustir fyrirlestrar hans eru afar minnisstæðir enda voru þeir af öðrum toga en við höfðum áður kynnst. Með þeim var líka lagður grunnur að höfuð fræðiriti Einars, „Credo: Kristin trúfræði“. Hafði bókin að geyma samfellda framsetn- ingu á trúfræðinni, en hún glím- ir við túlkun á innihaldi kristn- innar trúar, uppruna hennar, eðli og gildi. Talaði hann um þá grein sem „heimahaga“ sína í guðfræðinni. Hlutverki hennar lýsti hann þannig að „þar læsu menn Biblíuna, með kirkju ald- anna, og túlkuðu fyrir kirkju nútímans“. Einar birtist strax í upphafi kennslu sinnar og allar götur síðan sem hlýr maður, hógvær og háttvís. Hann talaði vissu- lega ekki hátt en flutti mál sitt þannig að eftir var tekið. Hann var húmoristi af Guðs náð og hafði notalega nærveru bæði gagnvart nemendum sínum og samkennurum eins og við reyndum síðar. Ýmsir samkenn- arar hans höfðu á orði að hægt væri að slá upp í honum nánast eins og alfræðiorðabók. Einar átti eftir að setja mjög mark sitt á allt starf deildarinn- ar sem kennari, deildarforseti og stjórnarformaður Guðfræði- stofnunar auk þess sem honum var trúað fyrir ýmsum veiga- miklum stjórnunarstörfum inn- an háskóla- og vísindasam- félagsins. Þá var hann leið- beinandi fleiri doktorsnema en nokkur annar kennari deildar- innar. Í trúfræðikennslu Einars og skrifum kom skýrt fram sú áhersla sem hann lagði á að byggja brú yfir til annarra greina guðfræðinnar og þá einkum hinnar hagnýtu og kennimannlegu guðfræði. Ann- að meginrit hans var enda bók- in „Embættisgjörð: Guðfræði þjónustunnar í sögu og samtíð“ (1996). Þar er fjallað um guðs- þjónustu kirkjunnar og eðli prestsþjónustunnar í öllum sín- um fjölbreytileika. Einar var afkastamikill í rannsóknum sínum, sem beindust mjög að kirkjufræði- legum og kirkjulegum viðfangs- efnum þar sem spurningin um embætti kirkjunnar og helgisiði hennar skipaði hvað hæstan sess. Í þeim skrifum og öðrum tengdi hann mjög við íslenska kirkju-, trúar- og menningar- sögu. Hann tók einnig þátt í nýrri þýðingu Biblíunnar sem kom út árið 2007 og leiddi störf sálma- og helgisiðabókarnefnda þjóðkirkjunnar um langt skeið. Að leiðarlokum þökkum við Einari fyrir hönd starfsfólks guðfræði- og trúarbragðafræði- deildar allt hans mikla og góða framlag til deildarinnar sem og hið góða og gefandi samstarf sem við fengum svo ríkulega að njóta. Starfsfólk deildarinnar vottar Guðrúnu Eddu og fjöl- skyldunni allri hugheila samúð. Guð blessi minningu góðs manns. Gunnlaugur A. Jónsson Hjalti Hugason. Hlutverk kennarans er marg- slungið og krefjandi. Í bestu til- vikum heldur uppfræðslan áfram þótt nemandi sé útskrif- aður og farinn að helga sig öðr- um störfum. Einar Sigurbjörns- son var slíkur kennari og sjálfur naut ég áfram leiðsagnar hans og stuðnings þótt námi við guðfræðideild Háskóla Íslands væri lokið. Á fyrsta ári mínu í prestskap bauð Einar mér að taka þátt í norrænu verkefni. Sú vinna varð upphafið að dokt- orsnámi, sem ég vann undir handleiðslu Einars. Þegar ég loks lauk þeim áfanga var gleði „doktor-föðurins“ ósvikin. Þau tímamót sögðu mikið um fram- lag Einars á vettvangi fræð- anna og enn fjölgaði í hópi ný- doktora sem höfðu skrifað undir hans leiðsögn. Þetta var um það leyti sem Einar sjálfur „útskrif- aðist“ úr Háskóla Íslands – í þeirri merkingu að hann settist í helgan stein. Verk hans lifa þó áfram og afraksturinn er mikill. Fjöldi fræðirita og -greina ligg- ur eftir hann og með alúð og hvatningu lagði hann sitt af mörkum svo að nemendur hans gætu látið draumana rætast. Ég kveð Einar Sigurbjörnsson full- ur þakklætis fyrir þá samfylgd sem ég átti með honum. Við hjónin vottum Guðrúnu Eddu Gunnarsdóttur og fjölskyldunni innilega samúð. Megi Guð helga farsælt ævistarf Einars Sigur- björnssonar og vera með þeim sem hann nú syrgja. Skúli Sigurður Ólafsson. Þegar við fjöl- skyldan fluttum í Haðalandið fyrir rúmlega 20 árum þekktum við vissu- lega Gylfa og Svölu sem virta starfandi lögmenn. Svo komumst við fljótlega að því að þau væru einnig framúrskarandi nágrann- ar. Gylfi var mikill og góður verk- maður og reyndi á góðlátlegan og oft gamansaman hátt að benda nýjum nágranna á ýmislegt sem e.t.v. mætti betur fara. Hann var líka örlátur á að lána verkfæri og sýna hvernig ætti að nýta þau sem best, þegar honum þótti verksvit nágrannans vera að ná nýjum botni. Orðatiltækið að falla ekki verk úr hendi fékk nýja merkingu eftir að við kynntumst Gylfa. Þegar við hugsum til hans sjáum við hann oftast fyrir okkur ýmist að dytta að húsinu eða garðinum. Þessi iðjusemi setti vissulega töluverð- an þrýsting á nágranna hans, en ég áttaði mig fljótlega á að ekki yrði keppt við Gylfa í þessum efn- um. Þegar pressan varð óbærileg kvartaði ég undan þessum dugn- aði við hann, en hann gaf þá skýr- ingu að hann þyrfti að klára eitt og annað áður en hann færi í slök- un í húsnæði sitt í Flórída. Tölu- verðar efasemdir voru um þessa slökun, enda fékkst það staðfest að hún ætti við lítil rök að styðjast. Í byrjun reyndum við að sýna nokkurn metnað með því að rækta kartöflur. Þegar við vorum að taka upp rýra uppskeru í haustrigningum benti Gylfi á að það væri verðstríð á kartöflum þannig að kílóið fengist á 5 krónur í Bónus. Auk þess upplýsti hann að sprenglærðir hagfræðingar hefðu komist að því að kartöflu- rækt í einkagörðum hefði slæm áhrif á hagvöxtinn. Við tókum þá sameiginlegu ákvörðun í haust- rigningunum að hvíla garðinn og stendur sú hvíld enn sem sameig- inlegt framlag okkar til aukins hagvaxtar. Allur samanburður við Gylfa reyndist afar ójafn. Á sama tíma og við reyndum af veikum mætti að rækta kartöflur, buðu Gylfi og Svala okkur að smakka á eplum sem þau höfðu ræktað í garðinum. Gylfi Thorlacius ✝ Gylfi Thorlac-ius fæddist 27. september 1940. Hann lést 22. febr- úar 2019. Útför Gylfa fór fram 4. mars 2019. Um leið og Gylfi brosti út í annað lýsti hann því yfir að stefnt væri að fram- leiðslu á Calvados í náinni framtíð. Jafn- framt ræktuðu þau Svala ýmsar fram- andi kryddjurtir og það virtist eins og annað leika í hönd- unum á þeim. Það er raunar erfitt að sjá Gylfa fyrir sér öðruvísi en að Svala sé þar nálægt. Gylfi var einstakt snyrtimenni og það er hæpið að annar eins bíl- skúr og hans finnist í Fossvogin- um og þó víðar væri leitað. Flísa- lagður í hólf og gólf og verkfærum raðað skipulega og snyrtilega. Ég hef af skiljanlegum ástæðum aldr- ei haft neinar sérstakar mætur á orðatiltækinu „umgengni lýsir innra manni“ en það á svo sann- arlega vel við nágranna minn Gylfa Thorlacius. Ég held að mér hafi aldrei fundist Gylfi vera mikið eldri en ég sjálfur. Þegar við ræddum saman fannst mér ég vera að tala við jafnaldra minn. Ég áttaði mig þó á því síðasta haust, að heilsan var ekki sú sama og áður þó að hann bæri sig vel. Andlát hans kom engu að síður á óvart. Við Olla og fjölskyldan í Haða- landi 16 sendum Svölu og fjöl- skyldu samúðarkveðjur Helgi Sigurðsson. Ég kynntist Gylfa Thorlacius fyrst í MR, en síðar lágu leiðir okkar enn frekar saman í þeirri eins konar litlu og nánu fjölskyldu sem fjórir innlendir fréttamenn og tveir erlendir skópu í árdaga Sjónvarpsins. Í þeim hópi gegndu þau hjónin Svala og Gylfi hlut- verki gestgjafa í einstaklega ánægjulegu teiti á hverri nýárs- nótt þar sem fólk munaði svo sem ekki um það að skjótast í eitt stykki stórbruna úr teitinu og í teitið aftur og hlýða í leiðinni á fyrstu lög hins óþekkta en upp- rennandi Magnúsar Eiríkssonar. Sem sagt: Gefandi kynni í meira lagi. Í lok samveru okkar hér á jörð naut ég síðan til fulls við úr- lausn slysabótamáls míns ein- stæðrar lagni Gylfa við að gera jafnan það sem var leiðinlegt og erfitt að ljúfri lífsnautn undir merkjum jákvæðni og einstaklega gefandi kímnigáfu. Lærði meðal annars ógleymanlegan lærdóm um svonefndan hrakvirðisflokk og excel-skjal með stöfunum 75 sem gengur í gegnum allt líf hinna gömlu hér landi. Fullur saknaðar og þakkar í hans anda kveð ég nú þennan ljúfa vin minn og votta hans nánustu innilega samúð. Ómar Ragnarsson. Heiðar frændi hefur nú horfið á braut til sumarlandsins eilífa. Heiðar var einstakur persónu- leiki, ljúfur og skemmtilegur mað- ur með húmor fyrir lífinu og sjálf- um sér. Minningar hrannast upp þegar horft er á samleið okkar á lífsins göngu. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Heiðar Bergmann Marteinsson ✝ Heiðar Berg-mann Mar- teinsson fæddist 10. janúar 1929. Hann lést 24. febrúar 2019. Útför Heiðars fór fram 28. febr- úar 2019. Heiðar var upp- finningasamur mað- ur og snjall í sinni hugsun, en sem vél- virki rak hann vél- smiðju sem hann stofnaði sjálfur um það leyti er ég var þriggja ára gutti árið 1964. Á unglingsár- um mínum áttum við samleið er ég vann í Bæjarútgerðinni í Reykjavík í fiskvinnslu og bjó hjá Önnu ömmu á Grandaveginum, móður hans. Það var alltaf gaman þegar Heiðar kíkti í morgunkaffi og gaf sér tíma fyrir góða morg- unstund og spjall. Ég á Heiðari og Gógó að þakka mína fyrstu utan- landsferð frá Íslandi, sannkölluð ævintýraferð til að hitta bróður hans Guðmund (Mumma) í Tuc- son Arizona. Ferðalagið var langt og farið var frá Íslandi til Chicago, og ef mig minnir rétt var flogið með Douglas DC-8-flugvél Flug- leiða einhverjum mánuðum áður en Icelandair var stofnað, og það- an áfram til Tucson í innanlands- flugi. Sannkallaðir fagnaðarfundir urðu þar og ekki spillti 42 stiga hiti einu né neinu í þessari fyrstu ferð minni til útlanda árið 1978. Ferðirnar áttu eftir að verða fleiri og á námsárunum mínum í Kali- forníu var ein eftirminnilegasta ferðin þvert yfir Kaliforníu frá San Francisco og yfir til Tucson Arizona en ferðirnar voru margar og endapunkturinn ávallt að hitta bróður hans þar. Nú árin liðu og skemmtilegt var hversu virkur hann var í allri tækni sem hann tileinkaði sér allt fram til hinstu stundar. Minnis- stæð eru skype-samtölin, face- book-færslurnar, tölvuvandamál- in sem við leystum saman og sameiginlegur áhugi á gömlum sem nýjum myndum. Eftir- minnilegt er 90 ára afmælið þar sem allir ættingjar komu saman alls staðar að, líka frá Bandaríkj- unum og Noregi, en það var sann- kölluð gleðistund. Heilsu hans hrakaði þó ört frá þeim tíma- punkti og ein mín síðasta minning er þegar ég kíkti í heimsókn á spítalann með fjölskyldumyndirn- ar úr afmælinu og hann velti þeim vel og lengi fyrir sér ánægður með þessa stóru fjölskyldu. Ég kveð Heiðar frænda með söknuði og sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur til Gógóar og stórfjölskyldunnar hans. Guðmundur Skúli Viðarsson. Þeir séðu kaupahéðnar „Silli og Valdi“ opnuðu í lok seinni styrj- aldar ofurlítinn veitingastað í einni af mörgum eignum sínum við Laugaveg 11. Þennan stað sóttu einkum stúdentar og alls kyns listaspírur: Steinn Steinarr, Elías Mar, Jökull, Hannes Péturs- son, Sturla Tryggvason fiðlari, Helgi skepna Kristinsson, Alfreð Flóki, Ásgeir Magnússon fræði- maður. Ýmsar fagrar stúlkur: Guðmundur Ebeneser Pálsson ✝ GuðmundurEbeneser Páls- son fæddist í Reykjavík 24. jan- úar 1924. Hann lést í Reykjavík 21. jan- úar 2019. Foreldrar hans voru Páll Magnús- son og Jóhanna María Ebenesers- dóttir. Útför Guð- mundar fór fram í kyrrþey. Brynja Benedikts- dóttir, Hólmfríður K. Gunnarsdóttir, Ásdís Kvaran, Bríet Héðinsdóttir, Þóra Elfa Björnsson, einnig Guðmundur Arngrímsson rann- sóknarlögreglumað- ur, Dagur Sigurðar- son og Guðmundur Ebeneser Pálsson, B.A. í enskri sögu og uppeldisfræði. Guðmundur var sá gestur þessa veitingahúss sem hvað flestir gestir komu til að berja augum – enda var hann á þessum árum eitt helsta aðdráttarafl veitingahússins. Hví? Framganga GEP og einkum þó glaðhlakkalegur og hvellur hlátur hans kom nærstöddum jafnan í gott skap. Þegar undirritaður gekk í hjónaband óskaði vinur hans þess við GEP, að hann tæki sér stöðu við kirkjudyr og ræki upp rosalegan hlátur, þegar brúð- hjónin gengu útúr kirkjunni. GEP varð ekki við þessum tilmælum, lét undirritaðan vita um tilboðið og fékk eðlilega greiðslu fyrir vikið. Árið 1956, nokkru áður en GEP lauk háskólaprófum sínum, stofnaði hann ásamt Alfreð Flóka, undirrituðum, Helga úra Guð- mundssyni, Baldri Jónssyni bók- menntafræðingi, Ásgeiri Magnús- syni fræðimanni, Ólafi skák- meistara Magnússyni og Þorsteini frá Hamri leynifélagið „Intelli- gentía“ sem starfaði nokkuð blóm- lega í þrjú ár. Starfsstöð félaga þessa var Grófin 1, þar sem Slysa- varnafélag Íslands hafði aðsetur. Helsta skáld félagsins var Ásta Sigurðardóttir, til heimilis í C-10 í Kamp Knox, og leiddi aðildin til þess að Þorsteinn félagi frá Hamri eignaðist fimm börn með Ástu. Síðustu fjóra áratugi hef ég lítt heyrt frá GEP, þó fékk ég hann til þess að þýða úr ensku fróðlegan fyrirlestur Leós páfa IX um frí- múrara og gjörði hann það með miklum sóma. Ég votta aðstandendum Guð- mundar einlægan samhug. Með honum er genginn heilsteyptur og sannur klassískur menntamaður af gamla skólanum. Bragi Kristjónsson. Ástkær bróðir okkar, SIGURÐUR MAGNI SVEINBJÖRNSSON, dvalarheimilinu Ási, Hveragerði, lést á heimili sínu 26. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Systkini hins látna og fjölskyldur Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.