Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 55
Halla fékk sumarstarf við Íslend-
ingabók árið 1996 og hóf síðar sam-
fellda vinnu þar þegar hún hafði lok-
ið BA-prófi og nýsköpunar-
verkefnum. „Í ár eru því 23 ár síðan
ég hóf fyrst störf við Íslendingabók
og hefur ýmislegt breyst á þeim
tíma. Grunnurinn er orðinn mun um-
fangsmeiri núna og aðgengi að upp-
lýsingum á netinu hefur gjörbreyst.
Það sem hefur heillað mig helst er
að vinna með frumheimildir eins og
manntöl, kirkjubækur og sóknar-
manntöl sem mynda burðarásinn í
Íslendingabók. Í MA-ritgerð minni
skoðaði ég íslensk manntöl frá 18.
öld og þar gafst mér tækifæri til
þess að kafa aðeins dýpra og kanna
hvers eðlis þessar heimildir eru, til-
urð þeirra og áreiðanleika.“
Halla hefur tekið þátt í starfi
sagnfræðinga og t.d. setið í stjórnum
Sagnfræðingafélags Íslands og
Sögufélags.
Helstu áhugamál Höllu eru hlaup,
skíði og önnur útivera með fjölskyld-
unni, ferðalög, lestur góðra bóka og
góður matur. „Fyrirferðarmesta
áhugamálið núna eru hlaupin en ég
æfi með KR-skokk. Þetta er
skemmtilegur félagsskapur sem fer
annað hvert ár til útlanda í hlaupa-
ferðir og í september er stefnan sett
á heilt maraþon í Berlín. Í KR var
lengi starfrækt frjálsíþróttadeild
sem lagðist í dvala en við tókum okk-
ur saman nokkrir foreldrar og
endurreistum deildina árið 2013.
Halla er stödd í Stokkhólmi en
hún heldur upp á afmælið í sumar
með vinkonum sínum, sem einnig
verða fimmtugar á árinu, og mökum
þeirra þar sem þau ætla að hjóla um
sveitir Ítalíu.
Fjölskylda
Eiginmaður Höllu frá 14.9. 2002
er Þorfinnur Skúlason, f. 21.3. 1971,
markaðsstjóri hjá Rannsóknum og
greiningu. Foreldrar hans: Hjónin
Skúli Valtýsson, f. 16.11. 1946, við-
skiptafræðingur, bús. í Hafnarfirði,
og Vilborg Þorfinnsdóttir, f. 14.8.
1947, d. 28.5. 2003, kennari.
Börn Höllu og Þorfinns eru: 1)
Embla, f. 6.4. 1997, laganemi við HÍ;
2) Kristín, f. 3.9. 2004, nemi í Landa-
kotsskóla; 3) Magnea, f. 15.3. 2006,
nemi í Melaskóla.
Systur Höllu eru Elín G. Helga-
dóttir, f. 1.6. 1958, verkefnisstjóri
hjá Ríkisskattstjóra, og Svanfríður
Helgadóttir, f. 6.9. 1961, sérfræð-
ingur í viðskiptagreind hjá Seðla-
banka Íslands.
Foreldrar Höllu eru hjónin Helgi
Sigvaldason, f. 14.11. 1931, verk-
fræðingur, og Kristín B. Jónsdóttir,
f. 17.9. 1935, vann skrifstofustörf.
Þau eru búsett í Reykjavík.
Kristrún Halla
Helgadóttir
Kristín B. Jónsdóttir
skrifstofustarfsmaður í Reykjavík
Guðbjörg Kristinsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristinn Grímur Kjartansson
trésmiður á Bíldudal
Ingveldur
Kjartansdóttir
húsfreyja í Rvík
Lúðvíg
Guðmundsson
skólastjóri í Rvík
Jón Arnfinnsson
garðyrkjufræðingur og
rithöfundur í Reykjavík
Ingibjörg Jóna Sigurlínadóttir
húsfreyja á Dröngum
Arnfinnur Kristján Jónsson
bóndi á Dröngum í Dýrafirði
Guðrún Svanfríður Jónsdóttir
húsfreyja á Bíldudal, faðir hennar var Jón Eiríksson íshússtjóri á Bíldudal
Ólafur Jón Kristjánsson
kagfjörð verslunarstjóri í FlateyS
Kristján Skagfjörð
kaupmaður í Reykjavík
Ragnheiður Grímsdóttir
húsfreyja á Tindum í Geiradal
Júlíus Símonarson verkamaður á Ísafirði
Bjargey Símonardóttir
húsfreyja á Gestsstöðum
Þuríður Ormsdóttir húsfreyja
í Miðdalsgröf í Tungusveit
Grímur Ormsson
búfræðingur á Gestsstöðum í
Tungusveit, Strand.
Elín Guðrún Grímsdóttir
húsfreyja á Kletti
Blansiflúr Helgadóttir húsfreyja á Borg í Reykhólasveit
Sigvaldi Helgason
bóndi á Kletti í Geiradal,A-Barð.
Gróa Egilsdóttir
húsfreyja í Gautsdal
Helgi Helgason
bóndi í Gautsdal í Geiradal
Úr frændgarði Kristrúnar Höllu Helgadóttur
Helgi Sigvaldason
verkfræðingur í Reykjavík
Hjónin Halla og Þorfinnur.
ÍSLENDINGAR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Barnaumgjarðir
í miklu úrvali
Leyfðu barninu að njóta
frelsis í leik og starfi með
ÓBRJÓTANLEGUM
barnaumgjörðum
Göngugötunni Mjódd, Álfabakka 14a, s. 527 1515, gleraugnabudin.is, opið 10-18, laugardaga 11-16.
Persónu
leg
og fagle
g
þjónusta
Margir litir í boði
Hægt að breyta í íþrótta-
gleraugu með einu handtaki
Karl Kristján Karlsson fæddist7. mars 1919 á Húsavík. For-eldrar hans voru Karl
Christian Christensen, bryti í Kaup-
mannahöfn, og Einhildur Halldórs-
dóttir, f. 1895, d. 1937, húsfreyja í
Nýjabæ á Húsavík. Faðir Karls og
unnusti móður hans drukknaði 1918 á
leið til Íslands. Ólst Karl upp hjá
móður sinni og foreldrum hennar,
Halldóri Einarssyni og Guðrúnu Eld-
járnsdóttur.
Karl lauk gagnfræðaprófi á Akur-
eyri 1935 og fór til Kaupmannahafnar
í framhaldsnám við Købmandsskolen
1939-1940 og fór þaðan til Hamborg-
ar. Hann starfaði hjá Deutsche Ver-
kehrs Nachrichten 1940-42 og var
fréttaritari 1944-45 og stundaði frek-
ara nám. Hann fór svo aftur til Dan-
merkur og stundaði framhaldsnám
við Købmandshvile í Ringsted 1942-
1943. Í stríðslok fluttist Karl aftur til
Íslands og lagði stund á ýmis versl-
unarstörf..
Karl hóf rekstur eigin heildsölufyr-
irtækis í Reykjavík, Karl K. Karlsson
heildverslun, árið 1946 og var m.a.
umboðsmaður postulínsverksmiðj-
anna Bing & Gröndahl. Karl hafði
milligöngu um að Bing & Gröndahl
gerði hátíðarplatta fyrir þjóðhátíð Ís-
lendinga 1974, en hann sat í þjóðhá-
tíðarnefnd.
Meðan á uppbyggingu fyrirtækis
síns stóð stundaði Karl önnur störf og
vann að framgangi fyrirtækisins eftir
vinnu. Hann var framkvæmdastjóri
hjá I. Guðmundssyni og Co. 1952-
1955. Hann rak Pappírsiðjuna hf. og
listaverkaverslun Vals Norðdahls við
Hverfisgötu, var einn af stofnendum
Verzlunarsparisjóðsins, sem síðar
varð Verzlunarbankinn, og Bifreiða
og landbúnaðarvéla.
Karl sat í stjórn og varastjórn all-
margra hlutafélaga og starfaði í Odd-
fellowreglunni frá 1950.
Eiginkona Karls var Helga Stefáns
Ingvarsdóttir, f. 28.12. 1924, 5.5. 2006,
húsmóðir og verslunarmaður, þau
skildu. Börn þeirra Ingvar Jónadab
Karlsson, f. 1947, Guðrún Soffía, f.
1957, og Hildur Halldóra, f. 1959.
Karl lést 16. janúar 1996.
Merkir Íslendingar
Karl K.
Karlsson
90 ára
Inga Thorlacius
85 ára
Auður Ólafsdóttir
Ebba Júlíana Lárusdóttir
Guðmundur B. Ásgrímsson
Hjördís Ólafsdóttir
Pálmi Sigurðsson
80 ára
Kristinn Arnþórsson
Kristjana Guðmundsdóttir
Sigmundur Magnússon
Þórunn Gunnarsdóttir
Þórunn Pálsdóttir
75 ára
Haukur Örn Björnsson
Ingveldur Ingólfsdóttir
Júlíus Hafsteinn Vilhjálmss.
Margrét Árnadóttir
Sólborg Sæunn Sigurðard.
Theresia Erna Viggósdóttir
70 ára
Anna Nilsdóttir
Birkir Már Ólafsson
Friðjón Alfreðsson
Gyða Hauksdóttir
Rúnar H. Hoffritz
Sigríður Ása Harðardóttir
Sjöfn Eggertsdóttir
60 ára
Agnes Henningsdóttir
Alda Björgvinsdóttir
Auðunn Á. Gunnarsson
Álfheiður B. Marinósdóttir
Bjarney Lilja Bjarnadóttir
Guðrún Sigríður Steinsd.
Hólmfríður Traustadóttir
Hrönn Theódórsdóttir
Jón Eiríksson
Jón Steinar Benjamínsson
Margrét Höskuldsdóttir
Ronald Paul Botha
Salvör Guðmundsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir
Sigríður Valdís Karlsdóttir
50 ára
Barbara Helga Guðnadóttir
Embla Dís Ásgeirsdóttir
Guðbjörg Unnur Kristjánsd.
Hlynur Freyr Birgisson
Iosif Petran
Jörgen Árni Albertsson
Kristrún Halla Helgadóttir
Matthana Sukvai
Sigmundur K. Magnússon
Þorleifur Óskarsson
Þórhildur Ásgeirsdóttir
40 ára
Andrea L. Pauline Nielsen
Bjarni Óskar Tryggvason
Brynja Hrönn Ólafsdóttir
Hörður Elís Finnbogason
Jósef Fransisco Fernandez
Karen Rakel Óskarsdóttir
Kristín Guðrúnardóttir
Lovísa Dögg Viggósdóttir
Marcin Horodenski
Oktavía Hrund Jónsdóttir
Sigurður Rúnar Ásmundss.
30 ára
Cian Hermann Gestsson
Fannar Óðinn Ólafsson
Friðrik Guðmundsson
Gestur Jónsson
Kestutis Lukosevicius
Kevin Freyr Leósson
Laufey Einarsdóttir
Lena Ósk Sigurðardóttir
María Erla Kjartansdóttir
Rúnar Bjarki Elvarsson
Ryan S. Urbon
Tinna Dögg Tryggvadóttir
Tinna Hrönn Óskarsdóttir
Þórður Rafn Guðmundsson
Þórir Einarsson Long
40 ára Björn er Keflvík-
ingur og verkstjóri hjá
Icelandair.
Maki: Ásdís Björk Þorvalds-
dóttir, f. 1980, stuðnings-
fulltrúi í Njarðvíkurskóla.
Synir: Kjartan Freyr, f.
2002, Baltasar Þór, f.
2008, og Aron Óðinn, f.
2011.
Foreldrar: Sigurþór Árni
Þorleifsson, f. 1948, d.
1990, húsasmiður, og Sig-
ríður Björnsdóttir, f. 1940,
d. 2008, verkakona.
Björn Kjartan
Sigurþórsson
30 ára Adam er Selfyss-
ingur en býr í Reykjavík.
Hann er með BA í mann-
fræði og er sérfræðingur
hjá Þjóðskrá.
Maki: Solveig Karlsdóttir,
f. 1985, vinnur hjá Sam-
skipum.
Börn: Magnús, f. 2012,
Sigurbjörg, f. 2013, og
Heimir, f. 2016.
Foreldrar: Heimir Hoff-
ritz, f. 1966, olíubílstjóri,
og Helga Kristjánsdóttir, f.
1965, garðyrkjumaður.
Adam
Hoffritz
30 ára Tómas ólst upp á
Seltjarnarnesi en býr í
Njarðvík. Hann er at-
vinnulaus um þessar
mundir.
Systkini: Björn, f. 1979,
og Elín, f. 1982.
Foreldrar: Róbert Guð-
laugsson, f. 1955, öryrki,
búsettur í Njarðvík, og
Hildur Björnsdóttir, f.
1956, d. 2005, verslunar-
maður og vann í Líf-
stykkjabúðinni á Lauga-
vegi í Reykjavík.
Tómas Darri
Róbertsson
Til hamingju með daginn