Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 LJÓSADAGAR AF ÖLLUM LJÓSUM 30% AF PERUM 6. - 18. MARS 20-50% 30% AF ÖLLUM VITA LJÓSUM Hugvísindaþing 2019 verður sett í Hátíðasal Háskóla Íslands á morg- un, föstudag, kl. 12. Í framhaldinu flytur Stephen Greenblatt, prófess- or í bókmenntum við Harvard- háskóla, hátíðarfyrirlestur undir yfirskriftinni „Survival Strategies: Shakespeare and Renaissance Truth-Telling“. Á föstudag og laugardag verður boðið upp á um 150 fyrirlestra í 43 málstofum sem allir eru opnir almenningi. Hugvísindaþing 2019 sett í HÍ á morgun FIMMTUDAGUR 7. MARS 66. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Eftir aðeins fimmtán daga hefst undankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu þegar Ísland mætir Andorra á útivelli en liðið leikur síð- an við Frakka í París þremur dögum síðar. Staðan á íslensku landsliðs- mönnunum er misjöfn, sumir spila alla leiki sinna liða og eru í góðu leikformi á meðan aðrir eiga erfitt uppdráttar um þessar mundir. Farið er rækilega yfir þetta í íþrótta- blaðinu í dag. » 2-3 Misjöfn staða á lands- liðsmönnum Íslands ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Hið árlega málþing Bókabæjanna austanfjalls fer fram í Tryggva- skála á Selfossi í kvöld kl. 19. Síð- asta málþing bar yfirskriftina Kerlingabækur og sneri að meint- um kvennabókmenntum, en nú er sjónum beint að karlabók- menntum. Boðið verður upp á erindi, tónlist og leiklist ásamt pallborðsumræðum. Meðal þeirra sem fram koma eru Auð- ur Ava Ólafsdóttir, Bjarni Harðarson og Hallgrímur Helgason. Aðgangur er ókeypis og allir velkomn- ir meðan húsrúm leyfir. Karlakvöld fyrir alla Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslendingar tóku fyrst þátt í skíða- göngu Vetrarólympíuleikanna í Ósló 1952. Þrír þeirra fóru síðan til Sví- þjóðar og voru með í Vasagöngunni ásamt Íslendingi sem bjó í Svíþjóð. Einn þeirra var Ebenezer Þór- arinsson frá Ísafirði og sl. sunnudag gekk Auður Kristín, dóttir hans og margfaldur Íslandsmeistari á árum áður, í skíðaspor föður síns. Auður er íþróttakennari í Sala- skóla í Kópavogi, hefur lengi þjálfað og séð um kennslu á gönguskíðum og rekur Skíðagöngukennslu Auðar og Óskars ásamt Óskari Jak- obssyni. „Ég hef meðal annars þjálfað fólk og hópa fyrir þátttöku í Vasagöngunni en aldrei gefið mér tíma til þess að takast á við þrek- virkið fyrr en nú,“ segir hún. Bætir við að mörgum hafi þótt þetta und- arlegt og hún hafi oft verið spurð hvort hún ætlaði ekki að vera með í næstu keppni. „Mér leiddist að vera með afsakanir og sagði að gangan yrði á dagskrá áður en ég yrði fimmtug. Hugsaði svo ekki meira um það fyrr en Ólafur Már Björns- son hringdi fyrir um fjórum vikum og minnti mig á að áfanginn væri í vor. Ég hef gjarnan verið með skíðakennslu í Tékklandi þegar Vasagangan fer fram en ekki að þessu sinni og því sló ég til.“ Merkileg keppni Fyrir nær 500 árum flúði Gustav Eriksson Vasa á skíðum í átt að norsku landamærunum eftir að hafa mótmælt Kalmarsambandinu harð- lega. Tveir menn í Mora fóru á eftir honum til að telja honum hughvarf og náðu honum í Sälen. Þremenn- ingarnir sneru við þessa 90 km leið, Svíum tókst að hrekja Dani á brott og Vasa varð Svíakonungur 1523. Vasagangan var fyrst haldin 1922 til þess að minnast þessa og hefur farið fram árlega síðan nema hvað hún hefur fallið þrisvar niður vegna snjóleysis. Afrek Ebenezers hefur verið of- arlega í huga Auðar alla tíð. Hann varð fyrstur Íslendinga í mark, í 67. sæti af 364 keppendum, sem þá var metfjöldi, gekk á 5 klst. og 53 mín., 43 mínútum á eftir sigurveg- aranum. Í keppninni sl. sunnudag voru um 15.800 keppendur skráðir, 14.716 byrjuðu og 12.558 luku keppni. Þrátt fyrir að vera ekki sem best upplögð líkamlega vegna veik- inda skömmu fyrir keppnina var Auður í 6. sæti af um 70 Íslend- ingum og fremst íslenskra kvenna, í 16. sæti í sínum aldursflokki í keppninni og í 212. sæti kvenna, en þegar á heildina er litið var hún í kringum 4.000. sætið. Hún gekk á 7,56 klst., um 30 mínútur frá verð- launasæti. „Ég vildi feta í spor pabba og hugsaði fyrst og fremst um að ljúka keppni,“ segir Auður, en þess má geta að aðstæður voru óvenju slæmar, snjókoma, mót- vindur og brautir erfiðar. Stórkostleg upplifun Auður segir að keppnin hafi verið stórkostleg upplifun. „Ég hugsaði til pabba alla leiðina og veit að hann var með mér,“ rifjar hún upp. Bætir við að árangur hans hafi verið ótrú- legur og ekki sé hægt að bera að- stæðurnar saman við nútímann og hvað þá útbúnaðinn. „Á leiðinni var ég uppnumin af því hvernig hann fór að því að ná eins góðum tíma og hann náði. Það er líka merkilegt hvað margir Íslendingar hafa lokið þessari göngu og tekið þátt í henni ár eftir ár með ágætum árangri, sem er meira en að segja það.“ Í skíðaspor föður síns í Vasagöngunni Keppniskona Auður Ebenezersdóttir brosti breitt í Svíþjóð á sunnudag.  Auður Kristín Ebenezersdóttir sló tvær flugur í einu höggi Skíðakappi Ebenezer Þórarinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.