Morgunblaðið - 09.03.2019, Page 10

Morgunblaðið - 09.03.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti, þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður, skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum. Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum. OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16 Nýr Dacia Duster Gerðu virkilega góð kaup! Verð frá: 3.690.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 2 0 2 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 /www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Ísland er í neðsta sæti á nýjum lista fyrirtækisins AirVisual yfir loftmengun í löndum heims. Fyrirtækið tók saman tölur um svifryksmengun um allan heim á síðasta ári. Niðurstöður þess sýna að meirihluti jarðarbúa andar að sér menguðu lofti með tilheyrandi hættum. Í ljós kom að 86% landa þar sem nægileg gögn voru fyrir hendi ná ekki að uppfylla heil- brigðisviðmið Alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar, WHO. Í helm- ingi landanna sýna mælingar að loftmengun er yfir 200% yfir við- miðunum. Talið er að vandinn sé í raun enn stærri því gögn skorti víða. Til að mynda hafi mælingar aðeins nýlega hafist í Pakistan og landið skýst í annað sætið yfir mestu loftmengun í heiminum. Svifryksmengun (PM2.5) hér á landi mældist 5 μg/m³ að meðal- tali, samkvæmt lista AirVisual og er Ísland í 73. og neðsta sæti hans. Næst á listanum yfir hrein- asta loftið var Finnland með 6,6 μg/m³ að meðaltali, þá Ástralía og Eistland er í fjórða sæti. Í fimmta sæti er Svíþjóð með 7,4 að meðaltali og Norðmenn eru í sjötta sæti með 7,6 að meðaltali. Danmörk er ekki á listanum. Verst er ástandið í Bangladess þar sem svikryksmengun mælist 97,1 μg/m³ að meðaltali. Hér á landi eru þau viðmið að þegar magn svifryks fer yfir 50 μg/m³ yfir heilan sólarhring telst það fara yfir heilsuverndarmörk. Í öðru sæti yfir mestu mengunina er Pakistan, þá Indland og Afgan- istan. Í umfjöllun AirVisual kemur fram að yfir sjö milljónir manna látist árlega fyrir aldur fram af völdum loftmengunar. Þetta kosti hagkerfi heimsins háar upphæðir í töpuðu vinnuframlagi. Indland á átta af tíu borgum heims þar sem mesta loftmengun er að finna. Af tuttugu mest menguðu borgunum er átján að finna í Indlandi, Pakistan og Bangladess. Hreinasta loft í heimi er á Íslandi  Ný rannsókn á loftmengun í heim- inum  Loftgæði verst í Bangladess Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Loftgæði Veitt í soðið á fallegum vetrardegi í Reykjavíkurborg. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við leggjum áherslu á að við erum að bólusetja forgangshópana núna og biðjum aðra að koma ekki fyrr en í næstu viku,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, settur fram- kvæmdastjóri lækninga hjá Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. Ráðist verður í bólusetningar- átak á höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi um helgina til að sporna við útbreiðslu mislinga hér á landi. Í tilkynningu frá sótt- varnarlækni kemur fram að ákveð- ið hafi verið að grípa til ýtrustu varúðarráðstafana eftir að grunur vaknaði um fimmta mislingatilfellið hér á landi í fyrrakvöld. Síðdegis í gær kom staðfesting frá veiru- fræðideild Landspítala á fimmta smitinu. Umræddur einstaklingur er starfsmaður á leikskóla á Egils- stöðum og komst í snertingu við þann aðila sem kom með flugi til Egilsstaða hinn 15. febrúar og greindist síðar með mislinga. Á samráðsfundi í gær var ákveð- ið að hvetja þá sem eru óbólusettir og fæddir á tímabilinu 1. janúar 1970 til 1. september 2018 til að þiggja bólusetningu. Jafnframt þá einstaklinga sem útsettir hafa ver- ið fyrir mislingasmiti ásamt þeirra nánasta umgangshópi. „Við erum með mjög mikinn við- búnað enda er þetta stór hópur. Ef við horfum bara á börnin á aldr- inum 6-18 mánaða þá er það heill árgangur. 3.500-4.000 börn á öllu landinu. Við hins vegar byrjum bara á þessu svæði þar sem fólk hefur greinst; höfuðborgarsvæðinu og Austurlandi,“ segir Sigríður Dóra. Allar heilsugæslustöðvar á höf- uðborgarsvæðinu verða opnar milli klukkan 12 og 15 í dag og á morg- un. Ekki er um almenna opnun að ræða. Í dag er mælst til þess að 6- 18 mánaða börn og foreldrar þeirra mæti en fullorðnir á morg- un. Ítarlegar upplýsingar er að finna á heimasíðu landlæknis, heilsu- gæslunnar og heilbrigðisstofnunar Austurlands. Á vef landlæknis er greint frá því að almenningi sé bent á netspjall heilsugæslunnar á Heilsuvera.is. Upplýsingar vegna mislinga eru veittar í síma 1700.  Átak gert í bólusetningum gegn mislingum um helgina Morgunblaðið/Hari Bólusetning Allar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu verða opnar vegna bólusetninga við mislingum um helgina. Fimmta tilfellið er staðfest. Mjög mikill viðbúnaður á heilsugæslustöðvum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.