Morgunblaðið - 09.03.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019
Ný sending –
frábært úrval
Flottir
í fötum
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími 551-3033
gallabuxur
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Að búa á Íslandi er sannar-lega áhugavert fyrir migog ólíkt því sem ég þekki.Menningin hér er mjög
ólík þeirri sem ég er alin upp við. Þar
sem við bjuggum í Kína var mjög
heitt og rakt loftslag, en hér er loftið
þurrt og kalt. Heima í Shenzhen er
gríðarlegur hraði á öllu, alltaf eins
og allir séu að flýta sér. Shenzhen er
vissulega mjög spennandi borg og ég
starfaði þar sem tækniráðgjafi. En
stressið var mikið. Maðurinn minn
fullyrti að í lífi mínu yrði meiri ró eft-
ir því sem ég væri lengur búsett á Ís-
landi. Honum finnst ég vera ham-
ingjusamari manneskja núna en ég
var þegar við bjuggum í Kína. Og ég
er sammála því, Ísland dregur klár-
lega fram jákvæðu hliðina á mér. Og
ég finn virkilega fyrir því að allt er
rólegra hér en í Kína,“ segir Yabei
Hu, ung kona frá Kína sem býr á Ís-
landi og vinnur á markaðsdeild hjá
ferðaþjónustufyrirtækinu Iceland
Travel, þar sem hún sér um að
kynna það sem fyrirtækið hefur upp
á að bjóða á kínverskum markaði.
Hún flutti til Íslands fyrir tæpu
einu og hálfu ári, en ástæðan fyrir
búferlaflutningum hingað í norðrið
er eiginmaðurinn, Þorkell Ólafur
Árnason.
„Við kynntumst þegar við vor-
um í námi við sama skóla í Kína,
Lingnan Sun Yat-Sen háskóla í
Guangzhou. Ég var í MBA námi og
hann var í viðskiptanámi, en hann
hafði valið að fara í þennan skóla
sem skiptinemi, sem var sannarlega
örlagarík ákvörðun, því hingað er ég
komin, sest að á Íslandi, sem mig
hefði aldrei órað fyrir,“ segir Yabei
og hlær.
Að námi loknu bjuggu þau Ya-
bei og Þorkell saman í Kína í tæp
fimm ár, í Shenzhen, sem er í ná-
grenni Hong Kong. „Fyrir utan það
að vilja komast úr þessu streitu-
hlaðna umhverfi, þá langaði okkur
líka til að breyta til, svo við ákváðum
að flytja til Íslands.“
Tefræðin völdu mig
Yabei valdi að mennta sig í
nokkuð sérstæðum fræðum. Hún er
með BS gráðu í tefræðum frá Land-
búnaðarháskóla Hunan og MBA
gráðu frá Lingnan Sun Yat-Sen há-
skóla.
„Ég er af þessari sjaldgæfu teg-
und fólks sem hefur farið í háskóla
til að sérhæfa sig í tei. En þeir sem
fara alla leið á doktorssviðið í te-
fræðum, það er sannarlega allra
sjaldgæfasta tegundin af tefræð-
ingum,“ segir hún og hlær. „Fyrir
mér er það að drekka te, eins og að
hlusta á tónlist. Enginn getur sagt
þér hvað þér líkar við, en það er
hægt að segja þér hvað er almennt
talið vera mikil gæði og hvað ekki,“
segir Yabei sem ólst ekki upp í fjöl-
skyldu þar sem mikil áhersla eða
þekking var á tei.
„Tefræðin völdu mig, því ég var
ein af þeim sem ekki vissu um fjöl-
breytileikann og hversu margslung-
in slík fræði eru. En eftir mennta-
skóla var mér bent á nám í tefræði
sem spennandi möguleika. Frændi
minn sem var meðal þeirra mest
menntuðu í fjölskyldu minni og hafði
útskrifast frá þeim skóla sem ég fór
í, hann hvatti mig til að fara í þetta
nám og upplýsti mig um hversu
margir góðir prófessorar væru við
skólann. Námið innihélt mikla líf-
fræði, efnafræði, erfðafræði og
plöntufræði. Ég lagði áherslu á efna-
fræðilega samsetningu í tei í mínu
námi, sem getur nýst í störfum við
framleiðslu á lyfjum, heilsuvörum og
húðvörum.“
Kurteisi að bjóða gestum te
Yabei segir te vera stóran hluta
af menningunni í Kína, enda er saga
þess ævagömul þar.
„Í Kína á hver fjölskylda sitt te,
og þar þykir ákveðin kurteisi að
bjóða gestum ævinlega upp á gott te.
En samt sem áður er fjöldi fólks í
Kína sem veit lítið um te. Til er fólk
sem hefur áhuga á tei og drekkur
það hvern einasta dag, án þess þó að
þekkja te nema þær tegundir sem
þeim finnst góðar.“
Yabei segir að allt te sé komið af
sömu jurtinni, terunnanum.
„En persónuleiki telaufa getur
verið mjög ólíkur, því það hefur áhrif
í hvaða umhverfi terunninn vex,
hversu sólríku, við hvað hita- og
rakastig, hvernig jarðvegurinn er og
svo framvegis. Aldur plöntunnar
skiptir líka máli, stundum þurfa te-
laufin að vera gömul við tevinnslu,
en stundum þurfa þau að vera ung.“
Yabei segir te vera flokkað í sex
grunnflokka, eftir lit drykkjarins.
Grænt te, gult te, hvítt te, rautt te,
dökkt te og oolong te.
„Te sem kallað er svart te á
ensku, af því Bretarnir gerðu það að
sínu uppáhalds, það köllum við rautt
te í Kína, en sérkenni þess tes liggur
í rauðum telaufum eftir vinnslu, og
drykkurinn er einnig rauðleitur. En
innan hvers flokks af tei eru margar
undirtegundir og talað er um ólíka
mýkt milli þessara sex grunnflokka.
Það sem gerir það að verkum að te
er misjafnt að lit og eiginleikum þeg-
ar því er hellt í bolla, er bæði ræktun
tesins og vinnslan. Vinnslan er í
nokkrum og ólíkum skrefum milli
þessara sex undirflokka tesins. Byrj-
að er á að láta telaufin visna, en þá
eru þau losuð við svolítinn raka með
því að dreifa úr þeim við 22-30 gráð-
ur. Næsta stig felst í að velta telauf-
unum í heitri málmskál með berum
höndum, við misjafnan hita og mis-
langan tíma, en við það festir það lit
laufanna. Síðan eru þau formuð á
ólíkan hátt, við það verða þau ýmist
krulluð eða bein að lögun. Að lokum
eru laufin þurrkuð í heitri málm-
skál,“ segir Yabei og bætir við að
hver þáttur í vinnslunni sé ólíkur
öðrum í hverjum undirflokkanna
sex, í sumum flokkum er einhverjum
þáttum sleppt og í öðrum eru þeir
framkvæmdir með ólíkum hætti.
Hún tekur vinnsluna á grænu tei
sem dæmi.
„Grunnþátturinn í að vinna
græna teið felst í mjög háu hitastigi
þegar fersk telaufin eru sett í stóru
málmskálina til að festa litinn. Þá er
skálin hituð upp í 200-280 gráður.
Þar þarf að halda laufunum á hreyf-
ingu í skálinni með berum höndum
og í ákveðinn mjög stuttan tíma. Aft-
ur á móti er lykilatriði við vinnslu á
oolong tei, að telaufin eru sett í
tromlu eftir að þau eru visnuð, og þá
nuddast útlínur telaufanna og fyrir
vikið verða þær rauðar. Ilmur ool-
ung tesins er annar en hinna, vegna
þessarar tromlu. Græn lauf með
rauðum útlínum eru því eitt af ein-
kennum oolung tes.“
Smakkar áður en hún kaupir
Þegar kemur svo að því að laga
te til drykkjar, þá skiptir máli
hversu heitt vatnið er sem telaufin
eru sett í.
„Til dæmis ber græna og hvíta
teið í sér blíðu, og þess vegna má
vatnið ekki vera of heitt,“ segir Ya-
bei sem fór til Kína síðast liðið haust
og tók þá með sér heim heilmikið af
góðu tei, því fyrir henni er te nauð-
synlegt hvern dag, rétt eins og mörg
okkar komast vart í gegnum daginn
án kaffibolla.
„Ég kaupi aðeins hágæða te
heima í Kína, og fer því í sérstakar
tebúðir til að finna það. Og ég
smakka að sjálfsögðu áður en ég vel
hvað ég kaupi mér.“
Réttu græjurnar Yabei notast að sjálfsögðu við réttu græjurnar þegar hún lagar te, sérstaka töng, sérstaka bolla og sérstakar aðferðir, svo gæðateið fái að njóta sín þegar það kemur í bollann.
Að drekka te
er eins og að
hlusta á tónlist
„Ég er af þessari sjaldgæfu tegund fólks sem hefur
farið í háskóla til að sérhæfa sig í tei,“ segir Yabei
Hu, sem býr á Íslandi og er með háskólagráðu í te-
fræðum. Ísland dregur fram það besta í henni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vandaverk Vinnslan skiptir öllu máli. Hér eru telauf þurrkuð í heitri skál.
Yabei Hu Hún fær
sér te á hverjum
einasta degi, það er
hennar kaffi.