Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfirði
Árið 2019 hefur farið vel af stað í
Grundarfirði, veður verið nokkuð
stillt, mestmegnis uppáhalds-
vindáttir af austri til norðurs. Frá
26. janúar í um það bil heilan mánuð
gekk skíðalyftan svo til upp á hvern
dag í útjaðri þorpsins og ungir sem
eldri renndu sér á skíðum meðan
dagurinn lengdist smátt og smátt.
Svo snerist vindur og veðurguðir sáu
til þess að allur snjór hvarf af jörðu
nema allra hæstu ruðningar. En nú
hefur hann aftur snúist til betri veg-
ar og snjór hylur jörð, þó ekki í það
miklum mæli að gefi í skíðalyftuna.
Framkvæmdahugur sem byrj-
aði hjá fjölskyldufyrirtækinu GRUN
með byggingu tæknilega fullkomn-
asta frystihúss hér á landi veitir
bjartsýni inn í samfélagið. Hafn-
arstjórinn skrifaði á dögunum undir
verksamning við Björgun ehf. um
framkvæmdir við fyrsta áfanga á
lengingu Norðurgarðs Grund-
arfjarðarhafnar. Áfanginn felst í
dælingu púða undir 130 m lengingu
garðsins, en verkið var boðið út í
janúar sl. Í Grundarfirði eru hafn-
arskilyrði afar góð og tækifæri til að
byggja aðstöðu fyrir skip framtíð-
arinnar, sem munu rista sífellt
dýpra. Við framkvæmdina skapast
einnig tæplega 5.000 m2 nýtt at-
hafnasvæði, til viðbótar við um 4.200
m2 athafnasvæði Norðurgarðs.
Undirbúningur framkvæmd-
anna hefur staðið í hartnær 2 ár og
framkvæmdatími er sömuleiðis
áætlaður um 2 ár.
Í frystihús GRUN vantar nú
fleiri vinnufúsar hendur í fiskvinnslu
og þrif, enda þótt tæknin leysi margt
af hólmi er hún fyrst og fremst til
hægðarauka fyrir þá sem koma að
vinnslu og gerir þeim störfin auð-
veldari en eykur jafnframt afköstin.
Búið er að fínslípa allar véla-
samstæður til þess að skila há-
marksafköstum og samtímis ganga
tvær flökunarlínur hvor með sinni
fisktegundinni og flökin renna á
færiböndum þar til þau enda inni í
ógnarlöngum frystivélum og út úr
þeim koma þau svo tilbúin í pakkn-
ingar við hæfi sem henta til útflutn-
ings beint í flug eða skip, allt eftir
óskum væntanlegra kaupenda.
Ferðamenn flykkjast í fjörðinn
sem aldrei fyrr um hávetur og eru
áberandi innanbæjar svo ekki sé
minnst á bílastæðin við Kirkjufells-
foss. Nú hefur verið skrifað undir
samning við Almennu umhverf-
isþjónustuna í Grundarfirði um gerð
nýs bílastæðis norðan við núverandi
bílastæði og uppi á hæðinni en þau
eldri voru löngu orðin of lítil og þar
að auki skapast oft hætta vegna legu
þeirra neðan við blindhæð. En sem
sagt, senn má vænta betri tíma og
öruggari í umferðarmálum þótt
áhöld séu um hvort hin nýju bíla-
stæði verði nægjanlega stór.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjáns
Hafnarframkvæmdir Dæluskipið Sóley við uppbyggingu púðans undir lengingu Norðurgarðs í Grundarfirði.
Framkvæmdir hjá GRUN
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019
Baldvin Ómar Magnússon
Lögg. Fasteignasali
Sími: 585 0101 – Gsm: 898 1177
baldvin@huseign.is
Suðurlandsbraut 20, 2 hæð, Reykjavík | Sími: 585 0100 | www.huseign.is
Við getum boðið margar gerðir stálgrindarhúsa
með fullmáluðum einangruðum samlokueining-
um, gluggum, glerveggjum og fleira en þetta er
líklegasti ódýrasti byggingarmátinn í dag.
Nú getum við boðið stálgrindarhús frá ýmsum
fyrirtækjum í Evrópu og Asíu á mjög hagstæðu
verði sem uppfylla öll
evrópsk skilyrði.
Við vinnum með kaupanda/arkitekti eða yfir-
verktaka frá fyrstu hugmynd til verkloka. Þannig
verður ódýrasti byggingarmátinn staðreynd.
Hugmyndir af stálgrindarhúsum:
Íþróttahús, verslunarmiðstöðvar, knattspyrnuhús,
skrifstofubyggingar, verksmiðjuhús, gripahús,
íþróttastúkur, brýr og ýmislegt fleira.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Snorrason
í síma 615 2426.
Stálgrindarhús
Nú finnur
þú það
sem þú
leitar að á
FINNA.is
IÐNAÐARMENN
VERSLANIR
VEITINGAR
VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
OG FLEIRA
Samgöngustofa hefur úrskurðað að
WOW air skuli greiða farþegum með
flugi félagsins frá Cincinnati til
Keflavíkur og öðru flugi áfram til
Amsterdam 177 þúsund krónur í
skaðabætur vegna þess að farangur
þeirra tapaðist.
Í ákvörðun Samgöngustofu kem-
ur fram að farangurinn skilaði sér
ekki fyrr en átta dögum eftir að
ferðinni lauk. Farþegarnir voru á
leið í þrettán daga skemmtisiglingu
um Bretlandseyjar og fengu þau
skilaboð frá WOW að kaupa þær
nauðsynjavörur sem þeir teldu sig
þurfa á að halda og félagið myndi
endurgreiða þeim í samræmi við
kvittanir.
Farþegarnir keyptu sér inniskó,
skó, sokka, nærbuxur, buxur, stutt-
buxur, andlitskrem, ferðatöskur,
sundföt og sitthvað fleira fyrir sigl-
inguna og gerðu kröfu á WOW að
upphæð 353 þúsund krónur. Á það
féllst flugfélagið ekki og bauð á móti
69 þúsund krónur. Farþegarnir féll-
ust ekki á það en buðust til að lækka
kröfu sína um helming. WOW hafn-
aði sáttaboðinu, vísaði í fyrra tilboð
og bauð farþegunum að skjóta mál-
inu til Samgöngustofu sem þeir og
gerðu. Í úrskurði stofnunarinnar
segir meðal annars að kvartendur
hafi sýnt fram á tjón sitt með full-
nægjandi hætti og WOW beri að
greiða þeim 177 þúsund krónur
vegna útlagðs kostnaðar sem af far-
angurstöfinni hlaust.
WOW greiði 177 þúsund í skaðabætur