Morgunblaðið - 09.03.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 09.03.2019, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ríkisstjórn Venesúela lokaði í gær skólum og vinnustöðum eftir að raf- magnslaust varð um mestallt landið í fyrradag. Ákvað Nicolas Maduro, forseti landsins, að lokunin væri nauðsynleg til þess að auðvelda við- gerðarstarf á rafmagnskerfi lands- ins. Maduro hafði áður kallað raf- magnsbilunina „skemmdarverk“, sem runnið væri undan rifjum and- stæðinga hans og útsendara Banda- ríkjastjórnar. Rafmagnsleysið náði um mestallt landið, en stjórnvöld sögðu að 23 af 24 fylkjum landsins hefðu orðið fyrir barðinu á því. Þar á meðal var höfuð- borgin Caracas, en rafmagnið fór al- gjörlega af borginni stuttu fyrir sól- setur í fyrrakvöld. Það slokknaði á umferðarljósum og neðanjarðarlest- arkerfi borgarinnar lamaðist. Urðu því margir að ferðast fótgangandi heim til sín. Skemmdarverk eða vanhirða? Rafmagnsleysi er ekki óalgengt í Venesúela og segja andstæðingar ríkisstjórnarinnar að hún hafi látið undir höfuð leggjast að halda raf- orkukerfi landsins í sómasamlegu ástandi. Stjórnvöld kenna hins vegar iðulega utanaðkomandi öflum um þegar eitthvað fer úrskeiðis. Rafmagnsveitan Corpoelec sagði að skemmdarverk hefði verið unnið á stórri vatnsaflsvirkjun, sem nefnist Guri, en virkjunin selur einnig raf- magn til Brasilíu. Juan Guaidó, leið- togi stjórnarandstöðunnar, sagði aft- ur á móti á Twitter að landið hefði nóg af orkugjöfum. Vandamálið fæl- ist í spillingu Maduro-stjórnarinnar. Rafmagnslaust í Venesúela  Maduro sakar andstæðinga sína og Bandaríkin um skemmdarverk á raforkuveri AFP Rafmagnsleysi Biðraðir sköpuðust við verslanir í Caracas í gær. Bandaríska geimferðastofnunin NASA sendi í gær frá sér litaðar ljósmyndir, þar sem tvær hljóðfráar þotur af gerðinni T-38 sjást rjúfa hljóðmúrinn samtímis. Sýndu myndirnar glögglega hvernig höggbylgj- urnar sem sköpuðust við það breyttu lögun sinni þegar þær lentu hvor á annarri. AFP Lögun höggbylgna rannsökuð í þaula Hljóðmúrinn rofinn samtímis Juha Sipilä, for- sætisráðherra Finnlands, baðst í gær lausnar fyrir ríkisstjórn sína eftir að henni mistókst að ná umbótum á velferðar- og heilbrigðiskerfi landsins í gegn- um þingið. Si- pilä sagði það mikil vonbrigði, en deilt hefur verið um stöðu þess- ara málaflokka í meira en ára- tug. Fimm vikur eru til þingkosn- inga í Finnlandi og hafa sósíal- demókratar, sem nú eru í stjórn- arandstöðu, leitt flestar skoðanakannanir að undanförnu. Miðflokkur Sipilä er hins vegar í þriðja sæti með um 15% fylgi. Ríkisstjórnin hefur setið frá árinu 2015, en auk Miðflokksins eru Sambandsflokkurinn og Blá framtíð í ríkisstjórninni. Stjórnin fer frá í að- draganda kosninga Juha Sipilä FINNLAND Óánægðir Als- írbúar flykktust á götur Algeirs- borgar í gær til að mótmæla því að Abdelaziz Bouteflika, for- seti landsins, ætl- ar að bjóða sig fram að nýju til embættisins. Bouteflika hefur nú þegar setið í fjögur kjörtímabil en áhyggjur af heilsufari forsetans hafa einkennt síðustu árin. Kosningastjóri Bouteflika, sem er 82 ára, sagði í gær að forsetinn væri við hestaheilsu en hann er nú staddur í Sviss þar sem hann hefur verið síðan í lok febrúar. Mótmæli gegn framboði Boutef- lika hafa nú staðið yfir í tvær vikur, en þau hafa að mestu farið frið- samlega fram. Bouteflika hefur hins vegar varað við skemmdar- vörgum í röðum mótmælenda. Mótmæla fimmta framboði Bouteflika Abdelaziz Bouteflika ALSÍR Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að niðurstaðan í dóms- máli Pauls Manafort, fyrrverandi kosningastjóra síns, sannaði að framboð sitt hefði ekki átt í ólög- mætum samskiptum við Rússa í að- draganda forsetakosninganna 2016. Manafort var í fyrrakvöld dæmdur í 47 mánaða fangelsi fyrir brot á skattalögum og fjársvik. Gagnrýndu demókratar T.S. Lew- is, dómara málsins fyrir vægan dóm, en saksóknarar höfðu krafist allt að 24 ára fangelsis yfir Manafort fyrir brot hans, en kviðdómur sakfelldi hann í ágúst síðastliðnum. Málið yfir Manafort á rætur sínar að rekja til rannsóknar Roberts Mueller, sérstaks saksóknara, á því hvort framboð Trumps hafi átt í óeðlilegum og ólögmætum samskipt- um við rússnesk stjórnvöld í aðdrag- anda kosninganna 2016. Hingað til hafa málin sem spunnist hafa úr rannsókninni ekki sýnt fram á slík tengsl, heldur hafa þau frekar leitt í ljós fjármálamisferli hjá nokkrum af helstu ráðgjöfum Trumps á þeim tíma. Kevin Downing, lögfræðingur Manaforts, sagði eftir að dómur féll í fyrrakvöld, að engar sannanir væru fyrir því að Paul Manafort hefði tek- ið þátt í einhvers konar samsæri með nokkrum fulltrúa rússneskra stjórn- valda. Sagði Trump að hann vorkenndi Manafort, sem hefði gengið í gegn- um erfiða tíma vegna sakamálsins, en Trump hefur áður gefið í skyn að hann kunni að beita valdi sínu til að náða suma af þeim sem Mueller hef- ur ákært, Manafort þar á meðal. sgs@mbl.is Ekki sýnt fram á neitt samráð  Manafort dæmdur í 47 mánaða fangelsi AFP Manafort Kevin Downing, lögfræð- ingur Manaforts, ávarpar fjölmiðla eftir dóminn í fyrrakvöld. Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, sagði í gær að landið myndi verja réttindi kínverskra fyrirtækja og einstaklinga. Sagði Wang að aðgerð- ir bandarískra stjórnvalda á hendur fjarskiptarisanum Huawei og ákær- ur gegn Meng Wanzhou, fjár- málastjóra þess, væru pólitískar of- sóknir. Hrósaði Wang fyrirtækinu fyrir að láta ekki „leiða sig eins og lamb til slátrunar“, en Huawei stefndi bandaríska ríkinu í vikunni til þess að fá hnekkt löggjöf sem meinar bandarískum alríkisstofnunum að stunda viðskipti við fyrirtækið. Bandarísk stjórnvöld hafa varað við því að slík viðskipti kynnu að leiða til þess að leynileg bandarísk tækni félli Kínverjum í skaut. Terry Branstad, sendiherra Bandaríkjanna í Kína, sagði í gær að stefna Huawei hljómaði „líkt og hefndaraðgerð“ og líkti henni við handtökur kínverskra stjórnvalda á tveimur Kanadamönnum í desember síðastliðnum. Verða ekki „leidd til slátrunar“  Kínastjórn veitir Huawei stuðning Verð kr. 155.500 Mottumarsverð kr. 135.000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.